Morgunblaðið - 04.11.1984, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.11.1984, Blaðsíða 8
72 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1984 MENGUN Þar standa þeir sífellt á öndinni Hlæið ekki. Við erum að dauða komin.“ Eftirfarandi orð stóðu meðal annars á mótmæla- spjóldum, sem um 2.000 manna hóp- ur bar fyrir skömmu í Alameda Park í miðri Mexíkóborg. Fundurinn var haldinn síðla föstudags, þegar um- ferðaröngþveitið í borginni er sem mest Af skiltunum mátti draga þá ályktun, að hópurinn væri hrædd- ur um að verða hafður að háði og spéi. Og æði margir hafa væntan- lega séð harla lítinn tilgang í að- gerðum hans. Þarna voru á ferð- inni félagar í vistfræðisamtökum Mexíkó og höfðu þar með efnt til fyrstu skipulögðu mótmælaað- gerðanna í baráttunni fyrir hreinu lofti í Mexíkóborg. í engri annarri borg á byggðu bóli er viðlíka mikil mengun og þar. Og þarna búa um 16 milljónir manna, eða um það bil 20% af íbúum landsins. Forsvarsmenn mótmælaaðgerð- anna benda á að loftmengun i Mexíkóborg sé talsvert meiri en í Los Angeles, New York, Tókýó eða nokkurri annarri borg í heimin- um, og að brýnt sé að aðhafast eitthvað hið skjótasta. En vistfræðingarnir standa frammi fyrir því vandamáli, að umhverfisvernd er munaður sem ekki er á færi allra í þriðja heim- inum að veita sér. Götusalinn og skóburstarinn sem hafast við i menguðu loftinu í miðborg Mex- íkóborgar hafa nóg á sinni könnu við að afla sér viðurværis og litinn tíma og orku til að hafa áhyggjur af öðru. Ekki eru þó allir jafnfá- tækir, og vistfræðingarnir gera sér vonir um að ná meðal annars til þeirra, sem eiga þær 2,5 millj- ónir ökutækja sem í borginni eru. Mörg þeirra eru bandarísk trylli- tæki, sem spýja eiturgufum út í andrúmsloftið þar sem súrefni er af skornum skammti fyrir enda er borgin 7.000 fet yfir sjávarmáli. Samkvæmt upplýsingum vist- fræðisamtakanna látast árlega 5.000 manns beinlínis vegna um- hverfismengunar þarna í höfuð- borginni. Að auki þjást 400.000 manns af sjúkdómum, sm rekja má til mengunar, svo sem astma og augnkvillum ýmiss konar svo sem astma og augnkvillum. Þá eru meltingartruflanir og margskonar magasjúkdómar líka raktir til mengunarinnar. Vistfræðingarnir geta sýnt fram á að barátta þeirra hefur borið nokkurn árangur. Þegar for- seti Mexíkó flutti árlegt ávarp sitt til þjóðarinnar i september sl. skýrði hann frá því, að breyting á reglugerð hefði haft hagstæða þróun í för með sér í þessu tilliti. Til dæmis hefði stórlega dregið úr notkun eldsneytis, sem innihéldi mikið blý. Og þá hefðu sum þeirra iðnfyrirtækja í Mexíkóborg, sem völd hefðu verið að mikilli loft- mengun, horfið frá því að brenna olíu og notuðu þess í stað jarðgas. — PETER CHAPMAN ÞRÆLAHALD Alltnemahlekkirnir Ahmed Ould Sid Ahmed barm- ar sér yfir því, að gömul kona, sem eitt sinn var ambátt fjölskyldu hans, komi enn heim til hans á tyllidögum, biðji um pen- inga og líti á sig sem eina af fjöl- skyldunni. Þetta er dálítið erfitt mál fyrir Sid Ahmed, því að hann var fyrir skömmu formaður sendinefndar Mauritaníu á ráðstefnu Samein- uðu þjóðanna um mannréttindi, þar sem fjallað var um þrælahald. í Mauritanfu eru um tvær millj- ónir manna og þar af eru 40% annað hvort þrælar eða leysingj- ar, enda þótt þrælahald hafi form- lega verið aflagt þrisvar sinnum. Nú mun þeim samt loksins vera alvara á þessum slóðum og félags- skapur, sem berst gegn þrælahaldi og hefur bækistöðvar í Lundúnum, á hvað drýgstan hátt f þeirri þróun. Á fundinum um mannréttinda- mál, sem fyrr frá greinir, var lesin upp skýrela frá sendinefnd á veg- um Sameinuðu þjóðanna, sem sótti Mauritaníu heim fyrr á þessu ári. Peter Davies, framkvæmda- stjóri félagsins f Lundúnum, sagði af því tilefni, að herforingja- stjórnin í Mauritaníu hefði sýnt þann manndóm að viðurkenna, að enn eimdi eftir af þrælahaldi f landinu, þótt 24 ár væru iiðin sfð- an það hlaut sjálfstæði. Frakkar afnámu þrælahald f Mauritaníu formlega árið 1905, en það var þó áfram við lýði. Þrælar voru að visu ekki hafðir f hlekkj- um ein9 og borið gat við í Suður- ríkjum Bandaríkjanna á þeim tíma, en eigi að síður voru þeir LÆKNAVÍSINDIN Lyl fyrir lágvaxna Fyrir skömmu hófust til- raunir með lyf, sem e.t.v. á eftir að valda byltingu í læknavísindunum. Það hefur þau áhrif, að það eykur lík- amsvöxt barna og unglinga, en læknar eru þó nú þegar farnir að hafa áhyggjur af, að það kunni að verða misnotað. Læknarnir, sem að til- raununum standa, telja, að með íyfinu verði unnt að búa til heila kynslóð af ofur- mennum í íþróttum. Þeir óttast líka, að metnaðarfull- ir foreldrar, sem eiga smá- vaxin en eðlileg börn, muni gefa þeim það af einskærum hégómaskap. Nýja lyfið, kallað Somatonorm III, er vaxtarhormón, sem búið er til að aðferðum erfðaverk- fræðinnar og gert fyrir bðrn, sem ekki geta búið nóg til af því sjálf og ná því sjaldan meðalvexti. Hægt verður að framleiða eins mikið af þessu lyfi og hver vill og þótt það sé vissu- iega kostur fyrir þá, sem á því þurfa að halda, er hætt við, að óvandaðir menn í læknastétt skrifi upp á það fyrir börn, sem ekkert amar að þótt smávaxin séu. Lyfinu fylgir líka sú hætta fyrir þá, sem heilbrigðir eru, að of mikið af vaxtarhormóninu getur vaidið sykursýki. Sér- fræðingar vona, að ekki verði öðrum leyft að gefa þetta lyf nema valinkunnum heiðursmönnum til að ólík- legra sé, að það verði misnot- að. — ANNABEL FERRIMAN Vopnabúr í einkaeign — og tilheyrandi slagorð. HINIR SKOTGLOÐU Selst sem hugsjón Skyrtubolir með áletrununum „Dreptu komma fyrir mömmu", „Sprengjum upp Hanoi. Það er ekki of seint", „Farið til Líbanon og hjálpið Sýr- lendingi á fund Allah“ og „Sprengjum upp Havanna" eru líklega meinlausustu vörurnar, sem auglýstar eru í tímaritum fyrir Bandaríkjamenn, sem eiga þá hugsjón helsta að heyja einka- stríð gegn kommúnistum, sér- staklega þeim í Mið-Ameríku. Þegar tveir Bandaríkjamenn, háðir húsbændum sinum i hvi- vetna. Þrælarnir voru ævinlega þel- dökkir. Yfirleitt voru húsbændur þeirra „hvítir“ márar eða þeldökk- ir Afríkumenn. Að sjálfsögðu átti enginn svertingi hvítan þræl. Þrælarnir unnu myrkranna á milli. Þeir önnuðust búpening, sóttu vatn í lindir og þrifu tjöldin án þess að fá nokkra greiðslu fyrir. Til skamms tíma tíðkaðist það jafnvel að húsbændur hefðu ungar ambáttir til tækifærisgjafa. Leysingjar eru um 30% af íbúum Mauritaníu. Þeir eru álíka réttlausir og lægsta stétt manna á Indlandi. Niðjar þeirra þurfa í sumum tilvikum að greiða fram- lag til húsbændanna. Vitað er til þess að leysingjar, sem vinna í frönskum bílaverksmiðjum, senda fyrrverandi húsbændum hluta af launum sínum. En þess eru einnig dæmi að leysingjar hafi orðið efn- aðir kaupsýslumenn, landeigendur og háskólamenn — og þess eru líka dæmi að leysingjar hafi gerst þrælahaldarar. Þrælahald var afnumið með lög- um árið 1961 og aftur árið 1981, en í bæði skiptin skorti að viðeigandi ráðstafanir væru gerðar til að unnt væri að framfylgja lögunum. Stjórnvöld í Mauritaníu þræta fyrir að þrælahald sé enn við lýði í landinu — nema ef til vill í út- kjálkabyggðum. En þó er vitað til þess að dómarar hafi vísað frá sér þrælum, sem leitað hafa til þeirra til að öðlast frelsi. Slfkum dómur- um hefur nú verið vikið úr emb- ætti, en I sumum tilvikum bæta lögreglumenn gráu ofan á svart og reyna að handsama þræla sem flú- ið hafa. Sumir þeirra eru nefni- lega þrælahaldarar líka. — DENNIS HERBSTEIN sem börðust við hlið uppreisnar- manna í Nicar- agua, féllu nú fyrir skömmu, vakti það ekki aðeins athygli á þessum krossförum gegn komm- únismanum heldur ekki sfður á því andlega fóðri, sem þeir nærast á. Tímaritin skipuleggja ferðir sjálfboðaliða til EI Salvador og Honduras, safna fé fyrir stjórn- arherinn í E1 Salvador og upp- reisnarmenn f Nicaragua og segja sögur af hernaði Suður-Afríku- manna gegn skæruliðum Swapo- hreyfingarinnar. Stríð og stríðs- vopn eru aðalefnið á siðum blað- anna og hetjusögur af hermönn- um. í leiðurum eru menn hvattir til að taka þátt f kosningum og kjósa þann frambjóðanda, sem hugsar eins og þeir. Reagan er í náðinni en þó harðlega gagnrýnd- ur fyrir linku bæði í Mið-Ameríku og Áfganistan. Nú nýlega sögðu talsmenn ríkis- stjórnarinnar, að það væri ekkert rangt við það að gerast sjálfboða- liði í Mið-Ameríku enda hefði þingið bannað leyniþjónustunni aðgang að þeim sjóðum, sem hún notaði áður til að útvega uppreisn- armönnum vopn, lyf og einkenn- isbúninga. Sumir þingmenn, og jafnvel leiðarahöfundur Wash- ington Post líka, halda þvf fram, að enginn munur sé á þessum sjálfboðaliðum og þeim Banda- ríkjamönnum, sem tóku þátt í borgarastyrjöldinni á Spáni 1936—39 og að þess vegna ættu stjórnvöld ekkert að skipta sér af þeim. Ekki fer á milli mála, að upp- reisnarmenn f Nicaragua og stjórnarherinn í EI Salvador fá umtalsverða aðstoð frá einstakl- ingum, félögum og rfkisstjórnum, sem sammála eru stefnu Reagan- stjórnarinnar f málefnum Mið- Ameríku. Þrátt fyrir það eru upp- reisnarmenn ekki á neinum hrak- hólum með bandariska sjálfboða- liða. Það er meira en nóg af þeim. Sumir auglýsa þjónustu sína í her- mannatimaritum, sem venjulegt fólk hefur andstyggð á fyrir gróft og ofbeldisfullt efni, — MIGUEL ACOCA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.