Morgunblaðið - 04.11.1984, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1984
91
Gervigrasvöllurinn:
Þau eru harla lág
— sagöi Magdalena Schram borgarfulltrúi Kvennaframboðsins um leigugjöldin
NÝLEGA samþykkti borgarráð tillögu íþróttaráðs borgarinnar um
að leigugjald fyrir gervigrasvöllinn í Laugardal verði 700 krónur
fyrir æfingaleigu og 200 krónur að auki, þegar (lóðljós verða notuð,
en keppnisleiga verði 17 prósent af innkomu, og lágmarksleiga
krónur 2000.
t máli Magdalenu Schram,
borgarfulltrúa kvennaframboðs-
ins, á borgarstjórnarfundi í
fyrradag lýsti hún þeirri skoðun
sinni að þetta gjald væri harla
lágt, þegar litið væri til þess
hver kostnaðurinn væri af lagn-
ingu gervigrassins. Óskaði hún
eftir útskýringum á því hvernig
þetta gjald væri reiknað. Gjaldið
í þessari mynd mætti rétt eins
gefa eftir.
Davíð Oddsson, borgarstjóri,
sagði að hingað til hefði borgin
ekki reiknað stofnkostnað inn í
afnotagjöld af íþróttaaðstöðu.
Látið væri nægja að miða þar
við rekstrarkostnaðinn. Þetta
gjald væri ákveðið í byrjun og
látið á það reyna hver sá kostn-
aður verður og þessi ákvörðun
yrði tekin til endurskoðunar síð-
ar. Afstaða kvennaframboðsins
væri önnur í þessu máli, heldur
en gagnvart upphæð þjonustu-
gjalda t.d. að sundstöðunum,
sem þær vildu sem mest greiða
niður úr borgarsjóði. Áætlað
væri að notkun á gervigrasvell-
inum gæti orðið allt að 3000 tím-
ar á ári, sem væri geysimikil
aukning frá þeirri nýtingu sem
verið hefði á þeirri aðstöðu sem
fyrir væri.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (V)
ítrekaði að þessi gjöld væru allt
of lág og nefndi það til viðmið-
unar að konur í fimleikum
greiddu 700 krónur á klst. í
salarleigu við íþrótt sína. Nefndi
hún fimleika sem dæmi um
íþrótt sem konur stunduðu.
Höföar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
íslendingar
sýna í Berlín
Berlín, 30. október. Frá
Hjálmari Jótusjni, frétUritara Mbl.
TVEIR íslenzkir myndlistarmenn,
sem hafa verið við nám hér í Berlfn,
opnuðu samsýningu á verkum sínum
á laugardag í síðustu viku. Myndlist-
armennirnir eru Ómar Stefánsson
og Þorlákur Kristinsson. Á sýning-
unni eru 16 myndir, átta eftir hvorn
myndlistarmann. Sýningin, sem er
sölusýning, er haldin á Kleistner í
Hauptstrasse 5 hér í borg, sem jafn-
framt því að vera gallerí er einnig
kaffihús.
Þetta er frumraun þeirra félaga
á sviði sýningarhalds erlendis, að
öðru leyti en því að Ómar hefur
áður tekið þátt í samsýningu í
Sviss. Heima á tslandi hafa þeir
einnig sýnt verk sín, en báðir út-
skrifuðust úr Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands áður en þeir
héldu til framhaldsnáms hér í
Berlín. Ómar er að byrja þriðja
námsár sitt hér í Hochschule Der
Kunst, þar sem hann nemur hjá
prófessor Fussmann, en Þorlákur
var gestanemandi við sama skóla
síðastliðið ár og stundaði nám
undir leiðsögn prófessors Hödicke.
Hann hefur nú um stundarsakir
brugðið sér til íslands, en hyggst
hefja nám sem reglulegur nem-
andi við skólann síðar í vetur.
Sýningin stendur í mánuð, til
27. nóvember.
Erai=AXir»T
Eiðfaxi
kominn út
NÍUNDA tölublað tímaritsins Eið-
faxa er komið út. t ritinu eru að
venju ýmsir fastir þættir. Fjallað
er um nokkur hestamannamót á sl.
sumri, m.a. íslandsmótið í hesta-
íþróttum, sem haldið var um versl-
unarmannahelgina á Vindheima-
melum jafnhliða árlegu hestamóti
Skagfirðinga, stórmótinu á Hellu
11. og 12. ágúst og hestaþingi á Mel-
gerðismelum, sem þrjú hesta-
mannafélög f Eyjafirði héldu
28.-29. júlí.
Spjallað er við hjónin Vernharð
Vilhjálmsson og önnu Birnu Snæ-
þórsdóttur f Möðrudal f Jökul-
dalshreppi, Ingvar Hallgrfmsson og
Sigfús Þorsteinsson á Skálateigi f
Norðfirði. Sagt er frá Færeyingum,
sem hér voru á ferð, og fleiru.
Ritstjóri Eiðfaxa er Hjalti Jón
Sveinsson, en hann og Sigurður Sig-
mundsson, ritstjórnarfulltrúi tóku
flestar myndimar f ritinu.
Það er margt sem ræður því að
Mayrhofen í Zlllertal er elnn
þekktasti skíðastaður Austurríkis.
Fyrst er auðvitað að nefna, að
skíðasvæðin kringum bæinn fullnægja
þörfum allra, ekki síst byrjenda En
einnig ræður sérlega fallegt umhverfi
miklu um aðdráttarafl Mayrhofen.
Þessi tírólski skíðabær er einkar
þægilegur dvalarstaður; gististaðirnir
eru góðir, skemmtileg diskótek,
veitingahús og ölkrár á hverju horni
og verðlagið mjög hagstætt.
Fararstjóri Flugleiða i Mayrhofen
heitir Rudi Knapp.
Hann er innfæddur Tíróli, talar
íslensku og er hrókur alls fagnaðar:
Réttur maður á réttum stað. Rudi
annast skipulagningu skoðunarferða,
m.a. til Innsbruckog Sterzingá Ítalíu.
Þú lærir fljótt aðstanda
á skíðum i Mayrhofen.
Byrjendur á skíðum fá vart betra
tækifæri til að auka hæfni sína.
Skiðaskólinn í Mayrhofen hefur getið
sér gott orð fyrir vel skipulagða og
árangursríka kennslu, bæði fyrir
fullorðna og börn. Þú lærir ótrúlega
margt á einum degi. Á þriðja degi
ferðu niður hverja brekkuna af annarri
án þess að detta.
Skíðaferðir í beinu leiguflugi eða
með viðkomu í Luxemborg.
Beint leiguflug til Innsbruck: 26.
janúar, 9. febrúarog 23. febrúar 1985.
Með viðkomu í Luxemborg: Alla
föstudaga frá 21. desember fram í
aprílmánuð 1985. í Luxemborg
bjóðast margar gerðir bílaleigubfla á
hagstæðu verði.
Flug, bíll ogskíði: Vetrarfrí með
fjölbreyttri dagskrá.
FLUGLEIDIR
Leitið frekari upplýsinga um skíðaferðirnar
til Mayrhofen á söluskrifstofum Flugleiða,
hjá umboðsmönnum félagsins eða á
ferðaskrifstofunum.