Morgunblaðið - 04.11.1984, Síða 28
92
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1984
Miklar breytingar hafa
orðið á þeim 40 árum
sem ég þjónaði brauði
Viðtal við séra Pétur Ingjaldsson
Hvernig skyldi það vera að
starfa sem sveitapreatur? Hvernig
skyldu prestar til sveita hafa þjón-
að söfnuðum sínum fyrir nokkrum
áratugum? Þegar vetur sezt að og
mörg okkar fyllast dálitlum ónot-
um yfir ófærðinni, sem fyrr eða
síðar tefur ferðir, er ekki úr vegi á
kirkjusíðu að leita svara við
ofangreindum spurningum — og
með þær í huga snúum við okkur
til séra Péturs Ingjaldssonar, fyrr-
um prófasts í Húnavatnsprófasts-
dæmi.
Séra Pétur segir mikla breyt-
ingu hafa orðið á þeim 40 árum,
sem hann hafi þjónað brauði. —
Ég þjónaði alla tíð á sama stað,
Höskuldsstaðaprestakalli í
Húnvatnssýslu. Er ég hóf starfið
mátti segja að prestakallið væri
vegalaust nema vegspottar um
10 kílómetrar á 60 kilómetra
strandlengju. Því þurfti ég,
Reykjavikurpilturinn, að ferðast
mest á hestum. Þá var húsvitjað
á hverjum bæ og í hverju húsi í
Höfðakaupstað og tekið mann-
tal. Tók þetta þrjár vikur á
hausti.
120 kílómetrar
Húsvitjanirnar urðu til þess
að ég kynntist vel högum sókn-
arbarna minna og batt mikið
vinfengi við þau. Nú eru húsvitj-
anir hættar, bílvegir og brýr um
allt svo að prestar eru fljótir í
förum. Það kom sér betur er ég
þjónaði í 10 ár Langadal og
Svartárdal, þar af sex ár sam-
fleytt. Var ég þá með sex kirkj-
ur. Alls voru brauðin 120 kíló-
metrar að lengd austan Blöndu
frá Fossum í. Svartárdal til
Hafna á Skaga.
Ég messaði oft, hafði góðan
farkost, jeppa á vetuma, fólksbíl
á sumrin. Dómhildur Jónsdóttir
kona mín var jafnan með mér og
drengirnir. Hún hafði stund
fyrir börnin í messulok. Á vet-
urna hafði ég bílstjóra í þessum
ferðum.
Er kirkja í dag?
Þegar ég var í guðfræðideild-
inni starfaði ég við sunnudaga-
skólahald í Skerjafirði á vegum
KFUM. Þessi reynsla varð mér
til góðs er ég hóf reglubundið
Höskuldsstaöakirkja
sunnudagaskólastarf með konu
minni eftir að við fluttum í
kaupstaðinn. Ánægjulegt var er
börnin sögðu á förnum vegi við
prestinn sinn: Er kirkja í dag?
Allflestir prestar hafa í dag
mikið sunnudagaskólastarf.
Eftir að elliheimili reis á
Blönduósi var það venja að koma
með börnin í sunnudagaskólan-
um í heimsókn þangað og hafa
helgistund með ungum og öldn-
um. Hafði fólkið ánægju af
þessu, ekki sízt ef börnin voru
afkomendur þess. Þá var það
venja mín að heimsækja elli-
heimilið er ég var á ferðinni.
Starfió í Hallgrímskirkju
Eftir að ég lét af störfum höf-
um við hjónin tekið að okkur
starf aldraðra í Hallgrímssöfn-
uði hér í borg. Hún sem safnað-
arsystir og ég sem prestur við
þetta starf ásamt sóknarprest-
um kirkjunnar. Þar fer fram
starfsemi eins og í öðrum sókn-
um á höfuðborgarsvæðinu.
Þannig hefur kirkjan reynt að
fylgjast með þróun tímans
hverju sinni.
SuniMJdag&skólinn á Skagaslrönd irið 1980.
Nú skil ég
Jerzy Kosinski fæddist í Pól-
landi árið 1933. Fjölskylda hans
var af Gyðingaættum og kom frá
Rússlandi. Þegar síðari heims-
styrjöldin skall á, og hann var
sex ára, var honum komið fyrir
hjá fósturforeldrum uppi í sveit
til aö foröa honum undan
ofsóknum nasista gegn pólskum
Gyðingum. Fósturforeldrarnir
létust, og hann flæktist um einn
til tólf ára aldurs þegar stríðinu
lauk. Um tíma missti hann alveg
röddina vegna taugaáfalls, en
fékk hana síðar aftur.
Hann flúði 24 ára gamall til
Bandaríkjanna. í New York
stundaði hann margskonar
vinnu áður en hann hóf ritstörf.
Hann hefur samið átta skáldsög-
ur: The Painted Bird, Being
There, Cockpit, Blind Date, The
Devil Tree, Passion Play, Pinball
og Steps.
Kosinski stundaði enskunám
við Princeton- og Yale-háskól-
ana. í nokkur ár var hann forseti
alþjóða PEN-samtakanna.
Bók hans Being There var
kvikmynduð með Peter Sellers í
aðalhlutverki, var hún sýnd
lengi í Bíóhöllinni. Kosinski lék í
kvikmynd Warren Beattys,
Reds, þar sem hann fór með
hlutverk sovézks embætt-
ismanns.
Kosinski var kvæntur, en kona
hans lézt fyrir tíu árum. Hann
býr í New York, Los Angeles,
Dóminíkanska lýðveldinu og
Genf. Auk ritstarfa eru helztu
áhugamál hans skíðaferðir og
póló.
Þrjár bækur hafa komið út
eftir hann á íslensku, Skræpótti
fuglinn (The Painted Bird),
Fram í sviðsljósið (Being There)
og Stefnumót við óvissuna
(Blind Date), sem kom út hjá
Bókaklúbbi Almenna bókafé-
lagsins nýlega.
Kristnin í
framtíðinni
Flettu upp í Matteusar-
guðspjalli, ef þú vilt, og lestu
frá 33. versi. hvað kemur þér
í hug? Mér kemur I hug að
næsta sunnudag er kristni-
boðsdagurinn í kirkju okkar.
„Guðs ríki verður frá yður
tekið og gefið þeirri þjóð, sem
ber ávexti þess.“ Þetta eru
dómsorð. Stundum boðar
texti sunnudagsins okkur orð
miskunnar, uppörvunar eða
annan jákvæðan boðskap.
Okkur þykir það betri boð-
skapur en dómsorð. En við
verðum líka að hlýða á þau.
Og hlýða viðvörun þeirra.
Margt kristið fólk, sem býr í
hinum svokölluðu kristni-
boðslöndum, löndunum, sem
kristni heimurinn gamli hef-
ur boðað kristna trú, segir að
brátt muni kristniboðar frá
þeim streyma til vesturlanda,
sem löngu séu orðin heiðin.
Heldur þú það? Ég las nýlega
að kristin trú muni hugsan-
lega líða undir lok bráðlega
ef hún eignist ekki nýjan
lífsmátt eins og gerzt hefur i
múhameðstrú. Eg trúi því
ekki. Ég hef líka lesið að
kristin trú eigi nú dýpri ræt-
ur meðal fólks en nokkur trú-
arbrögð hafi nokkur tíma átt.
En þótt fólk á vesturlöndum
leiti kristinnar trúar æ ákaf-
ar munu það samt verða önn-
ur lönd, sem verða aðal-
heimkynni kristninnar eftir
næstu aldamót segir I söir.u
grein. Brasilía og Nígería
munu þá ef til vill senda fjöl-
marga kristniboða til vestur-
landa og Ástralia, Indland og
Indónesía verða meðal þeirra
landa, þar sem kristin trú
verður sterkust. Ef tíl vill
verður það svo. Okkur er það
ekki ljóst hvaða afleiðingar
það muni hafa á menningu
okkar og hugarfar þegar það
verður endanlega viðurkennt
að lönd okkar eru ekki lengur
kristin. Kannski verður það
til þess að hið nýja kristniboð
sendir lffgandi strauma um
þjóðirnar. Eða er nú þegar
hafin vakning á vesturlönd-
um, sem kallar æ fleiri ein-
staklinga til afturhvarfs? Ég
veit það auðvitað ekki — en
ég sendi þér þetta til hugleið-
ingar í dag.
Biblíulestur vikuna 4. til 10. nóvember
Drottinn hjálpar
Sunnudagur 4. nóv.:
Davíðssálmur 23 — Drottinn er minn hirðir.
Mánudagur 5. nóv.: ’
Davíðssálmur 142 2—4 — Þegar andinn örmagnast.
Þriðjudagur 6. nóv.:
Davíðssálmur 143 2—6 — ... leiðir þú mig.
Miðvikudagur 7. nóv.:
Jesaja 53 3—5 — Fyrir hann urðum við heilbrigð.
Fimmtudagur 8. nóv.:
Matt. 11 27—30 — Komið til mín.
Föstudagur 9. nóv.: Jóh. 14 1—4 — Skelfist ekki.
Laugardagur 10. nóv.: Ekkert hrífur okkur úr hendi Guðs.