Morgunblaðið - 04.11.1984, Page 32
96
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1984
Það vakti athygli heims-
pressunnar þegar breskur
ævintýramaður að nafni
Richard Knight sagði nýlega
á blaðamannafundi, sem
hann hélt, að hann væri
sannfærður um, að sér myndi
hafa tekist að finna fjársjóð
sjóræningjans kapteins
Kidds á lítilli víetnamskri
eyju, ef óheppnin hefði ekki
elt hann. Óheppnin var sú að
Knight var stungið í fangelsi
í Víetnam þar sem hann fékk
að dúsa í 14 mánuði en yfir-
völd í Víetnam töldu hann og
fylgdarmann hans, Frederick
Graham, vera njósnara.
Knight sagðist hafa undir
höndum tvö kort, „greinilega
ófölsuð", sem vísuðu á fjár-
sjóðinn á eynni Hon Tre Lau.
Knight vildi ekkert um það
segja hvort hann hygðist
gera aðra tilraun til að finna
fjársjóðinn.
IGJAR
Af kapteini Kidd og Svarta Barty,
tveimur frægum sjóræningjum,
sem áttu sér talsvert ólíkan feril
Bartbolomew Roberts eða Svarti
Barty var án efa einn fengsælasti
sjóræningi sögunnar. Hann
rændi um 400 skip í sinni tíð en
áböfn bans (neðri mynd) þurfti
að fara eftir ströngum reglum ef
þeir vildu sigla með bonum.
Tveir einustu kven-
kynssjóræningjar sög-
unnar, Anne Bonny og
MaryRead.
Sjóræningjar
í Hollywood
Annars er það eiginlega aðeins í
sögubókum, sem sagt er af ævin-
týramönnum í leit að fjársjóðum
illræmdra sjóræningja, sögubók-
um eins og Gulleyjunni eftir Rob-
ert L. Stevenson. Og einu sinni
voru sjóræningjamyndir ógurlega
vinsælar í Hollywood, sérstaklega
ef Errol Flynn lék sjóræningjann.
Þær eru ekki eins vinsælar lengur
en þó er alltaf verið að gera eina
og eina sjóræningjamynd og
minnir mig að leikstjórinn Roman
Polanski sé að fást við það efni um
þessar mundir. Hetjan í gömlu
sjóræningjamyndunum var und-
antekningarlaust hinn besti mað-
ur, góður við fátæklinga en vondur
við riku kallana, konur elskuðu
hann og hann ekki síður þær og
enginn var leiknari en hann í bar-
dögum ...
Kapteinn Kidd
En sjóræninginn kapteinn
William Kidd var ekki neitt sér-
staklega líkur Hollywoodútgáf-
unni. Það er lítið vitað um upp-
runa hans. Hann fæddist í Skot-
landi, sennilega í kringum 1645, og
faðir hans var prestur. Það fyrsta
sem vitað er um hann með nokk-
urri vissu er að hann barðist á
sjóræningjaskipi sínu við Frakka í
Vestur-Indíum. Sagt var að hann
hefði verið góður kapteinn en
áhöfn hans gerði uppreisn og
sigldi áfram undir stjórn Robert
nokkurs Cullifords. Það var árið
1691. Kidd giftist ríkri ekkju og
komst þannig í töluverðar álnir og
lifði í stóru og fallegu húsi við
Wall Street í New York og gerðist
skipeigandi.
Að ráði nokkurra breskra
stjórnmálamanna úr hópi frjáls-
lyndra í Bretlandi, sem hugðust
græða svolítið á sjóránum, en í
þeim hópi var m.a. jarlinn af
Bellomont, sem seinna átti eftir að
verða landsstjóri í New York,
veitti William konungur Englands
kapteini Kidd leyfi til annars veg-
ar að ræna frönsk skip og hins
vegar að leggja hald á sjóræn-
ingjaskip og góss þeirra og átti
það að gefa pólitikusunum mestan
aurinn. Raunar vildi kapteinn
Kidd helst af öllu fá að stjórna
einu af herskipum Hans hátignar,
en í staðinn var hann aðeins gerð-
ur að yfirmanni á skipinu „Ad-
venture Galley" og stefnt á Ind-
landshaf til sjórána.
Óheppnin eltir Kidd
Ferð kaptein Kidds gekk vægast
sagt ekki eins og í sögu a.m.k. til
að byrja með. Einn þriðji áhafnar
hans lést úr kóleru og skyrbjúg á
einni viku og það eina sem hann
rændi í lengri tíma var franskt
fiskiskip, sem var ekki með neitt
nema salt og veiðarfæri um borð.
Skip Kidds hriplak og áhöfnin var
í uppreisnarhug. Þegar Kidd neit-
aði svo ofan á allt að ræna enskt
kaupfar missti áhöfnin, sem hafði
aftur náð sinni fyrri stærð eftir
nokkurt stopp í landi, þolinmæði
sina. Kapteinn Kidd reifst hastar-
lega við eina af skyttum sínum,
William Moore, og endaði rifrildið
á því að Kidd sló manninn með
fötu í hausinn svo hann hlaut
bana af.
Til að friða áhöfn sína og til að
fá eitthvað til að éta rændi kap-
teinn Kidd þrjú lítil skip, eitt hol-
lenskt, eitt arabískt og eitt portú-
galskt. Og loksins varð kapteinn
Kidd heppinn þegar hann réðst á
franska kaupskipið „Quetta
Merchant" við strendur Malabar.
Franska skipið var hlaðið gulli og
gimsteinum, silki og sykri svo eitt-
hvað sé nefnt, nóg til að stjórn-
málamennirnir í Englandi ættu að
Richard Knight
sá síöasti sem gerir til-
raun til að fínna fjársjóð
kapteins Kidds.