Morgunblaðið - 04.11.1984, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 04.11.1984, Qupperneq 38
102 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1984 + Elginmaöur minn, JÓN Q. NIKULÁSSON, laaknir, Eapigaröi 4 Raykjavík, lést í Borgarspítalanum 1. nóvember. Helga Ólafason. t JÓN EBBA80N, Hrafnhólum S, lóst 21. október. Útförin hefur fariö fram. Þökkum auösýnda sam- úö. Guöbjörg H. Sigurbjörnadóttir, Ebbi J. Guönaaon og aöatandendur. + Dóttir mín og systir okkar, ODDNÝ GUÐRÚN ÞORVALDSDÓTTIR, Fellamúla 4, lést 27. október. Jaröarförin fer fram frá Bústaöakirkju mánudag- inn 5. nóvember kl. 13.30. Gróa Oddsdóttir og systkini hinnar látnu. + Faöir okkar, tengdafaöir og bróöir, MAGNÚS GUÐJÓNSSON, Hringbraut 60 Hafnarfiröi, lést í Landspítalanum ð. október. Útförin fór fram i Fríkirkjunni Hafnarfiröi 17. október. Þökkum öllum þeim er heiöruöu minningu hans og vottuöu okkur samúö. Bjarni Magnússon, Andrés Magnússon, Sverrir Þ. Magnússon, Inga Guöjónsdóttir, Sigrún Steingrímsdóttir, Guörún B. Torfadóttir, Helen M. Róberts, Anna Guöjónsdóttir. + Eiginkona min, móöir, tengdamóöir og amma, JÓNÍNA INGVELDUR VIGFÚSDÓTTIR, Haukshólum 6, lést þann 25. október sl. aö Hátúni 10b. Útförin hefur fariö fram i kyrrþey aö ósk hlnnar látnu. Sérstakar þakklr eru færöar læknum og hjúkrunarfólki öldrunardeildar Landspítala islands aö Hátúni 10b fyrir umönnun hennar. Sigurjón Hákonarson, Hákon Birgir Sigurjónsson, Hanna iris Sampsted og barnabörn. + Faöir minn, tengdafaöir afi og langafi, ERNST HINZ, Neuenburg Baden, Þýskalandi, er látinn. Jaröarförin hefur fariö fram. Þökkum innilega auösýnda samúö. Hans Gunnar Hinz, Jóhanna G. Hinz Elías örn Hinz, Gunnar Björn Hinz, Þorbjörg Guðjónsdóttir, Henny og Jóhanna Halldóra. + Alúöar þakkir fyrir auösýndan hlýhug og samúö viö fráfall og útför móöur mlnnar og tengdamóöur, SEVERÍNU PETREU HÖGNADÓTTUR, Suöurtúni 3 Keflavfk, sem andaöist hinn 29. september sl. Elín Ólafsdóttir, Marteinn Árnason. + Þökkum innilega vináttu og hlýhug viö andlát og útför REBEKKU KRISTJÁNSDÓTTUR frá Seyöisfiröi. Sérstakar þakkir til starfsfólks B-deildar Fjóröungssjúkrahússins á Akureyri fyrir góöa aöhlynningu. Marfa Sveinlaugsdóttir, Vernharöur Sveinsson, Björn Sveinlaugsson, Þórunn Magnúsdóttir, Guóný Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Gunnar Jósefsson verkstjóri - Minning Fæddur 9. msí 1909. Diimi 6. október 1984. Gunnar Jósefsson var verkstjóri hjá Hafnamálastofnun ríkisins er hann lést. Hafnamálastofnun ríkisins hef- ur alltaf haft mjög góða verk- stjóra. Ráðnir hafa verið til verk- stjórnar menn sem reyndir eru við framkvæmdir, traustir menn, ábyggilegir, með leiðtogahæfi- leika. Verkin ero erfið og vanda- söm, aðeins bestu menn eru gjald- gengir. í hópi verkstjóranna sóp- aði að Gunnari. Gunnar Jósefsson var fæddur og uppalinn á Atlastöðum i Sléttu- hreppi. Hann fékk sveinsbréf í húsasmiði 25 ára gamall og siðan meistarabréf í skipasmíði nokkr- um árum siðar. A árunum i og eftir heimsstyrjöldina síðari rak hann dráttarbraut á Siglufirði og seinna á Akureyri og hafði mikil umsvif. Á þessum árum var athafnalíf með miklum blóma á Siglufirði. Síldarævintýrið stóð sem hæst og stundum lágu bátar i tugatali inni á firðinum. Margir þessara báta þurftu ýmsa þjón- ustu við viðgerðir og er mér sagt af kunnugum að Gunnar hafi unn- ið ómetanlegt starf við bátaflot- ann. Gunnar vann ýmis störf fyrir Hafnamálastofnunina allar götur síðan 1950, aðallega við neðansjávarframkvæmdir, boran- ir og sprengingar neðansjávar- hleðslu á steyptum undirstöðum hafnargarða o.s.frv. Kafarastörf eru líklega með erfiðustu störfum við hafnargerðir. Það var árið 1970 að Gunnar vann við boranir og sprengingar neðansjávar í Gerðavör og Vogum. Það barst í tal að Gunnar þá liðlega sextugur væri of gamall fyrir verkið. Hann fékk pata af þessu og sagði: „Hvaða vitleysa er þetta, ég hef tekið verkið að mér.“ Það reyndist einnig svo að hann leysti þetta starf með ágætum og gaf öðrum yngri mönnum ekkert eftir. Þetta dæmi lýsir vel persónuleika Gunn- ars. Hann sagði aðeins það sem hann gat staðið við og loforð voru bindandi. Árið 1971 varð Gunnar verk- stjóri og kafari hjá Hafnamála- stofnun rikisins og vann þar til æviloka. Ég kynntist Gunnari fyrst á efri árum hans en mér er tjáð af mönnum sem þekktu hann að hann hafi á yngri árum borið af mönnum í gjörvi og glæsileika. Gunnar var afbragðs verkstjóri. Hann hafði mjög fjölþætta reynslu til að byggja á í verkstjórastörfum sínum og var ótrauður við að takast á við ný verkefni. Mér leið vel í návist Gunnars. Hann var karlmenni, óhræddur við tilveruna og naut greinilega lífsins. Slíkir menn hafa mannbætandi áhrif. Ég þakka Gunnari ágæta sam- vinnu og votta ástvinum hans innilega samúð mína. Danfel Gestsson Margrét Finnbjörns- dóttir Hansen Fædd 10. apríl 1898 Dáin 20. október 1984 Elskuleg amma er horfin af sjónarsviðinu. Hún kvaddi þennan heim með sömu reisn og einkenndi hennar lífsgöngu. Ekkert tóm gafst til að kveðja þessa öldnu ættmóður sem hélt hugrökk til móts við almættið. Hún var fædd i Görðum I Aðal- vík þann 10. apríl 1898, eitt af ell- efu börnum Halldóru Halldórs- dóttur og Finnbjörns Elíassonar. í hamravíkum ystu Hornstranda höfðu þá kynslóðir lifað og dáið allt frá því Geirmundur heljar- skinn nam þar land. óblið nátt- úruöfl gerðu Hornstrendinga ósigrandi þolendur harðræðis og lausa við kveifarskap. Þeir urðu einlægir trúmenn og dýrkendur drottins píslanna i Passíusálmun- um en jafnframt unnendur fornra bókmennta og hetjulýsinga þeirra. Úr þessu umhverfi var hún upp- runnin og bar þess merki hvar sem hana bar niður. Aldamótakynslóðin sem nú er óðum að hverfa lifði tímana tvenna. Það er erfitt fyrir nútima- barnið að gera sér i hugarlund þau ævikjör sem henni voru búin. Svo margt höfum við þó heyrt um þá kynslóð en skiljum aldrei til fulls. Eitt er þó víst; hún lét aldrei hug- fallast en horfði bjartsýn fram á við og nærði okkur hin sem á eftir komu. Amma mín tilheyrði þessari kynslóð og eins og svo margir af þeirri kynslóð vann hún engin þau afrek sem helst verða reiknuð til manngildis nú á dögum. Auð eða glæsta menntun átti hún enga. En hún tók því með þökkum sem lífið gaf og skóp sér sjálf þau tækifæri sem nýtast máttu. Ung að árum sigldi amma til Kaupmannahafnar og dvaldi þar um nokkurra ára skeið. Á heim- leið mætti hún ungum og fallegum Dana, Rudolf Theil Hansen, sem var á leið til starfa á tslandi. Þar var kominn hennar lífsförunautur og varð um fimmtíu og sex ára skeið. Þau gengu í hjónaband hinn 10. ágúst 1926 og varð fimm barna auðið. Á fullorðinsaldri reistu þau sér hús í Garðabæ og bjuggu þar í rúm tuttugu ár. Þaðan eru mínar fyrstu minningar um ömmu og afa. í huga barnsins var amma bara amma, hlý og mild sem sagði okkur börnunum sögur sem hún hafði sjálf samið, bakaði pönnu- kökur handa okkur og glettist við okkur. Árin liðu og við hættum að vera börn. Með auknum þroska lærðist mér að líta jafnframt á hana sem konu og nú þegar hún er öll, skiljast mér aldrei betur þau öfl sem bjuggu að baki þessari konu. Heimskonan og Hornstrending- urinn sameinuðust I henni á frá- bæran hátt. Kjarkur, dugnaður og þrautseigja var henni í blóð borin. Hún var höfðingi heim að sækja og unni öllu fínlegu og fögru. Hún kunni ógrynnin öll af kveðskap og hafði yndi af músik og söng. Gam- ansemi átti hún í ríkum mæli og húmorinn hennar var einstakur á sinn hátt. Hún bar tilfinningar sinar ekki á torg en tregaði i hljóði. Hún var furðanlega næm á þankagang annarra og ekki sist okkar unga fólksins. Fordóma átti hún fáa og diplómat fram i fing- urgóma. Hún var mannasættir og tók oftast málstað þess sem niður var settur. En umfram allt var hún mild og hlý. Þannig lifir minning hennar hjá mér, barnabarni þessarar gengnu konu. Fallega skrifuðu bréfin hennar frá Danmörku er hún bjó þar öðru sinni og stundirnar okkar yfir kirsuberjavini á dönskum sumarnóttum, þar sem hún var mér sem uppspretta heilræða og visku, lifa i minningunni. Nú hvilir hún að loknu dags- verki við hlið þess manns sem hún deildi kjörum með f meira en hálfa öld. Það var henni mikið áfall er hann lést fyrir tæpum tveimur ár- um. Nú sigla þau aftur saman að bjartari ströndum, þar sem himnafaðirinn strýkur burt þreytu og erfiði dagsins. Þess vildi ég óska að eiginleikar sem hennar bærust áfram til barna minna og niðja. Ég kveð með kæru þakklæti fyrir allt sem hún gaf. Blessuð sé minning henn- ar. Margrét Jónsdóttir Margrét Finnbjörnsdóttir Han- sen lést 20. október síðastliðinn, áttatíu og sex ára að aldri, og kom andlát hennar á óvart. Ég heim- sótti hana á heimili hennar, Garðaflöt 7, Garðabæ, þrem dög- um fyrir andlátið. Hún var hress og tók á móti mér með sinni ein- stöku hlýju og gestrisni og gerði að gamni sinu eins og hennar var vani. Ég kynntist henni í æsku á Siglufirði, en þar bjó hún i mörg ár ásamt eiginmanni sínum, Rud- olf Theil Hansen, klæðskera og 5 börnum þeirra hjóna. Rudolf var danskrar ættar og einstakt ljúf- menni. Hann andaðist fyrir 2 ár- um. Þau hjón fluttust til Reykja- víkur eftir stríðið og bjuggu mörg ár á Nýlendugötu 15A. Þar var ég sem unglingur daglegur gestur i nokkur ár, en við Anna dóttir þeirra vorum vinkonur. Á þvi heimili ríkti ávallt glaðværð og góðvild og alltaf var mér tekið opnum örmum, sem væri ég ein af fjölskyldunni. Margrét var afar söngeísk og öll hennar börn og var mikið um söng og hljóðfæraslátt á heimilinu. Hún var einnig fróð og kunni frá mörgu að segja frá lið- inni tíð og kryddaði jafnan frá- sögn sína gamansemi. Ég dáðist oft að hve fundvis hún var á hið spaugilega í tilverunni og hefur það án efa létt henni lifið, ásamt meðfæddri bjartsýni. Hún vann lengst ævinnar tvöfaldan vinnu- dag utan heimilis sem innan. Inni- legt og náið samband var alla tíð með Margréti og börnum hennar enda vildi hún veg þeirra sem mestan. Þau eru öll mesta mynd- arfólk. Elst er Anna gift Ólafi M. Ólafssyni, Halldóra gift Guð- mundi Gilssyni, Steinunn gift Jóni Bjarnasyni og yngst eru Alma og Gunnlaugur. barnabörnin eru 15. Ég sendi börnum hennar og öðr- um ættingjum innilegar samúð- arkveðjur. Þorgerður Brynjólfsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.