Morgunblaðið - 04.11.1984, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 4. NÓVEMBER 1984
111
\fík?AKANDI
SVARAR Í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MANUDEGI
II
Olið
og
bölið
Árni Helgason, Stykkishólmi
skrifar:
Enn á ný eru sjálfboðaliðar
áfengisauðmagnsins komnir á
stúfana. Nú á að opna fleiri
áfengisveitur „borgurum landsins
til heilla". Maður hefði ímyndað
sér, eftir það sem á undan er geng-
ið, að Alþingi hefði öðrum hnöpp-
um að hneppa en að eyða tíma í að
afmanna þjóðina í gegnum
drykkjubúlur og svoleiðis gróð-
rarstíur. Hélt að landið þyrfti á
öðrum atvinnurekstri að halda en
ölsjoppum og þvíumlíku. Auðvitað
er það rétt, að þetta er atvinnu-
vegur, sem ber sig fyrir þá sem
dæla þessu í mannfólkið, en hvort
þetta er atvinnuvegur, sem bætir
þjóðlífið og skapar betri þegna er
ég ekki viss um og hitt vita allir
sem opin augu hafa, að áfengisböl-
ið er nú í þeirri sókn að lífi, heilsu
og dómgreind landsmanna að þar
sér á með hverjum degi.
Allir viðurkenna að víman sé
böl, en ráðamenn þjóðarinnar,
sem kjörnir eru til að bæta lands-
haginn, láta sig hafa það að vera
með í þeirri hersingu sem eykur á
vandann. Páll Ólafsson vissi hver
vandinn var: „Því sjónin og heyrn-
in og málið fer með og minnið úr
vistinni gengur.“ Og það er ein-
mitt þetta, sem þessir blessuðu
menn eru að gera. Þeir geta ekki
afsakað sig með að þeir viti ekki
hvað þeir séu að gera, því reynslan
er æpandi allt í kringum þá. Aldr-
ei hafa afvötnunarstofnanir verði
fleiri en í dag, aldrei hafa fleiri
heimili verið til bjargar drykkju-
sjúkum mönnum og geðsjúkra-
deildir eru komnar við stærstu
sjúkrahús landsins. Finnst
kannski flutningsmönnum of lítið
berast til þessara stofnana af
verkefnum svo þeir þurfi að gera
meira átak til að auka atvinnu og
störf þeirra?
Það er von menn spyrji og eins
hver er tilgangurinn. Þola þeir
ekki gróandi þjóðlíf með þverr-
andi tár? Eða er þetta ekki svo
einfalt? Hugsa sér ef þessir menn
beittu sér fyrir því duglega að
minnka áfengis- og fíkniefna-
neyslu landsmanna með öllu
mögulegu móti. Hve gott og heil-
brigt það væri þjóðlífinu og mikið
gagn þeim einstaklingi, sem
freistingar eru erfiðar. Og hve
mannlífið myndi breytast til bóta.
En hvers vegna beita þessir
menn sér ekki fyrir slíku? Eins og
ástandið er í dag, hélt ég að þing-
menn vorir hefðu annað við tím-
ann að gera en að auka á eitrið í
þjóðfélaginu. Er það virkilega svo,
að þeir sjái framtíðinni betur
borgið fyrir landsmenn með fjölg-
un öldrykkjustaða og þá um leið
fleiri afvötnunarstöðvum, sem
ríkið svo verður að hafa allan
kostnað af, en fækka þeim og um
leið tryggja landinu fleiri þegna
með hrausta sál í heilbrigðum lík-
ama? Væri nú ekki heillavænlegra
fyrir þessa þingmenn að snúa sér
með alvöru að þjóðþrifamálum,
heldur en að hjálpa til við að dæla
meiri vímu út í þjóðfélagið?
Þessir hringdu . .
Þörf ábending
Þorkels
Stefán Gestur hringdi og hafði
eftirfarandi að segja:
Ég vil taka undir orð Þorkels
Hjaltasonar í Velvakanda á
fimmtudag, þar sem hann ræðir
um að ástand Sturlungaaldar sé
nú ríkjandi hér á landi. Þetta
var vel skrifað og þörf ábending
til íslensku þjóðarinnar. Ég vil
benda stjórnmálamönnum á
hverjir það eru sem halda uppi
þjóðinni. Það eru konurnar, sem
vinna í fiski með 76 krónur í
tímakaup, en ekki þessir háu
/VblRffl...
Nbmbou
þaó þekkisl á bragóinu
herrar. Ég er gamall sjálfstæðis-
maður og ég vil ekki að fólk trúi
því að Guðmundur J. stjórni öllu
hér. Launamálin eru öll komin í
vitleysu og tími til kominn að
fólk sjái að sér og hætti að trúa
orðum Guðmundar og annarra
slikra. Eina lausnin er, að
stærsti flokkurinn, Sjálfstæðis-
flokkurinn, komi fram með
raunhæfar lausnir á þeim
vandamálum, sem nú blasa við.
Að lokum vil ég senda kærar
kveðjur til vinar míns Alberts
Guðmundssonar.
Fyrirspurn til
útvarpsstjóra
Óskar Haraldsson hringdi:
„Mig langar til að koma á
framfæri fyrirspurn til útvarps-
stjóra. Hvernig stendur á því, að
tvo til þrjá fíleflda menn þarf til
að lesa fréttir í 10—15 mínútur
tvisvar á dag, eins og var á með-
an á verkfalli stóð? Að mínu
mati og fjölda annarra er þetta
álíka og að ráða þrjá verkamenn
um hverja skóflu, eða þrjá
trésmiði á hvern hamar. Ég óska
eftir skiljanlegum skýringum á
þessu og því einnig, hvers vegna
allur þulahópurinn er við lestur
frétta sjónvarpsins. Þarna raða
sér upp fjórir til fimm þulir og
veðurfræðingur að auki. Það er
alltaf verið að tala um að spara,
en þett finnst mér og fleirum
hreint bruðl.
Þessi mynd, sem komin er nokkuó til ára sinna, sýnir þrjá þuli sjónvarps-
ins og veóurfræðing. óskari Haraldssyni fínnst óþarfí aó svo margir sinni
þessum störfum ó hverju kvöldi.
S2F SIGGA V/öGA í VLVtflAk
Hjartanlega þakkir þeim er sýndu mér hlýhug á 100 ára
afmæli mínu.
Guð blessi ykkur ölL
Jóhanna Kristófersdóttir
Talskólinn
Skúlagötu 61, sími 17505
Framsögn, taltækni, ræðumennska.
Ný námskeiö hefjast 12. og 13. nóvember. Kennt mánu-
daga til föstudags kl. 16—19.
Athugið við veitum starfshópum, félögum og fyrir-
tækjum sérstök afsláttarkjör.
Innritun daglega kl. 15—19.
Talskólinn.
Gunnar Eyjólfsson.
ALLT
FULLT
AF VÖRUM
Viö vorum aö taka heim alveg
ótrúlegt úrval af allskonar hús-
gögnum.
JOLLY Hornsófi kr.
49.820
Kauptu ekki húsgögn fyrr en þú
hefur skoöaö hjá okkur. Þaö
borgar sig.
HDSGAGNAHÖLLIN
BILDSHÖFÐA 20-110 REYKJAVlK * 91-61199 og 81410
ÞAÐ VEUA ALUR
m
UÓSALAMPA
ÞBÐ m EIN3 06 HVER'
ÖNNUR GUPSMILDI BÐ r húN DHTT'
HÓN SKYLDI EKKI / KipRi LESTINR
STÖR9LRSRST/< RD MINNSTRKOST'
„SEK METRR FRLL,
EF HUN HEFDI EKKI
KOMIÐ SVONR NIDUR
lHEFDI
/EN DRÐ VILDI HENNI
SEMSRGT TIL RÐ HÚN KOM
NIDUR R HÖFUDID,
rz-8
'////+