Morgunblaðið - 05.02.1985, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1985
21
Já, sá stærsti!
Ef allir teldu rétt og samviskusamlega fram og greiddu skatta af raunveru-
legum tekjum, gætu skattaálögur lækkað um tvo milljarða króna, miðað við
óbreytt fjárlög.
Og aukavinningurinn: Jafnari og réttlátari skattbyrði.
Ef reiknað er með að skattsvik á íslandi séu
hlutfallslega jafnmikil og í nágrannaríkjum
okkar má búast við að vangreiddir skattar
og gjöld á árinu 1985 verði á bilinu 1,7 -
2,0 milljarðar.
Það er full ástæða til að velta fyrir sér hvar
þessir fjármunir munu lenda og hversu
mikið kæmi í hlut hverrar fjölskyldu á
landinu í lækkuðum sköttum ef þeir skiluðu
sér.
Það væri nógu gam-
an að vita hvað
vinningslíhurnar yrðu
mihlar hjá Eiríhi
, frænda!
fjármálaráðuneytið
V^terkur og
kJ hagkvæmur
auglýsingamióill!
Paul Celan
Biðin eftir því að Paul Celan fái
Nóbelsverðlaun hlýtur að verða
löng. Nú eru liðin rúm fjórtán ár
síðan hann lést í París fjörutíu og
níu ára að aldri. Akademíunni er
vorkunn. Kraftaverkastofnun er
hún ekki. Aftur á móti töldu
margir á sjöunda áratugnum lík-
legt að röðin kæmi að Ceian. Með
bókum eins og Die Niemandsrose
(1963), Atemwende (1967) og
Fadensonnen (1968) skipaði hann
sér i flokk helstu samtímaskálda.
Mikilleika skáldskapar hans sönn-
uðu ekki síður Lichtzwang (1970)
og Schneepart (1971).
Það sem segja má grein George
Steiners til hróss er að bók-
menntasmekkur hans sem fram
kemur í greininni er ákaflega fjöl-
breytilegur. Sumar ábendingar
hans um lítt þekkta höfunda eru
gagnlegar. Hann leggur stundum
að jöfnu öndvegishöfunda og miðl-
ungshöfunda og gerist þá sekur
um það sama og hann ákærir Aka-
demíuna sænsku fyrir. Niðurstað-
an eftir lestur greinarinnar er sú
að það er ekki auðvelt að dæma og
gæta skal nokkurs hófs.
Stóri
vinningurinn?
Athugasemd vegna
annarlegra sjónarmiöa
Afmælismót
Skáksambandsins:
Jóhann Hjálmarsson
í Morgunblaðinu (27. jan. sl.) er
grein eftir Georg Steiner sem
nefnist Annarleg sjónarmið allsráð-
andi og fjallar um Nóbelsverðlaun.
Margt er skarplega athugað í
greininni, en hún er skrifuð með
þeim hætti sem er dæmigerður
fyrir enskumælandi menntamenn,
minnir helst á eins konar saman-
safn af stráksskap, lærdómi og
glannalegum fullyrðingum. Ef til
vill er þetta eina leiðin til að vekja
athygli á menningunni, gera hana
að æsiefni á borð við sakamál.
Eins og nafn greinarinnar vitnar
um efnast Steiner um heilindi
sænsku Akademíunnar, rökstyður
sum sjónarmið sín, en virðist
njóta þess að bera á borð ýmsar
getgátur.
Meðal þess sem furðu hlýtur að
vekja er sú skoðun Steiners að
með því að veita Albert Camus
Nóbelsverðlaun 1957 hafi Aka-
demían í reynd verið „að hylla
persónuleika á sviði bókmennta og
vissan hugarheim, sem í einu og
öllu má segja að sé í fyllsta sam-
ræmi við ríkjandi lífsviðhorf í
Stokkhólmi".
Það þarf töluvert hugmyndaflug
til að tengja Albert Camus við
sænskan hugmyndaheim, fáir
voru franskari en hann. Val hans
var líka óvenju djarft, hann var
enn ungur höfundur, yngstur Nób-
elsverðlaunahafa.
í bollaleggingum um að vegir
bókmenntaverðlaunanna séu
órannsakanlegir segir Steiner:
„En svo einkennilega vill hins veg-
ar til, að nafn Pauls Celan, sem
með ljóðrænum kveðskap sínum
hefur þó sýnt hvað mest innsæi og
slegið flesta nýja strengi í vest-
rænum bókmenntum vorra tíma,
hefur enn þá ekki og á ef til vill
aldrei eftir að birtast á lista Aka-
demíunnar yfir verðug skáld, sem
til greina koma. Hví skyldi innsæi
hljóta meirihluta atkvæðanna?"
Vafasamt er að nota orðið
kveðskapur um skáldskap Pauls
Celans, en það er ekki sök Stein-
ers. Ég er sammála Steiner um
innsæi Celans og var satt að segja
himinlifandi þegar ég las skil-
greiningu Steiners á Celan. Ég hef
lengi verið aðdáandi þessa skálds
og þýddi tvö ljóða hans, að vísu af
vanefnum, annað þeirra er hið
magnaða ljóð Helfúga sem greinir
frá útrýmingu evrópskra gyðinga
á stríðsárunum: „Hann kallar
leikið Ijúfar dauðann dauðinn er
meistari frá Þýskalandi/ hann
kallar strjúkið myrkar fiðluna þá
stígið þið reykur upp í loftið/ þá
eignist þið gröf í skýjunum þar er
nægilegt rúm“.
Mótið í 11.
styrkleika-
flokki
MEDALSTIG keppenda á 60. ára af-
mælismóti Skáksambands íslands
eru 2.518 stig og verður mótið í 11.
styrkleikaflokki. Þetta verður sterk-
asta skákmót, sem hér hefur verið
haldið. Til þess að ná stór-
meistaraáfanga þurfa keppendur að
hljóta 7 vinninga og 5 vinninga að
alþjóðlegum titli.
Sovéski stórmeistarinn Artur
Yusupov er stigahæstur keppenda
með 2.590 Elo-stig. Boris Spassky
kemur næstur í röðinni með 2.580
Elo-stig, Vlastimil Hort í þriðja
sæti með 2.560 stig. Margeir Pét-
ursson er fjórði stigahæsti kepp-
andinn með 2.535 Elo-stig. Þá
kemur Jóhann Hjartarson með
2.530 og Bent Larsen með 2.520
Elo-stig. Helgi Ólafsson í sjöunda
sæti með 2.515 Elo-stig, Curt Han-
sen, Danmörku, 2.505 stig, hol-
lenski stórmeistarinn Van der
Wiel 2.500 stig. Jón L. Árnason er
í tíunda sæti með 2.495 stig, Guð-
mundur Sigurjónsson 2.485 stig og
Karl Þorsteins 240 Elo-stig.
Sex stórmeistarar taka þátt í
mótinu og fimm alþjóðlegir meist-
arar. Karl Þorsteins er eini titil-
lausi skákmaðurinn á mótinu, sem
hefst 12. febrúar. Teflt verður á
Hótel Loftleiðum.
Bókmenntír