Morgunblaðið - 05.02.1985, Side 24

Morgunblaðið - 05.02.1985, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1985 Suður-Afríka: Tutu gefur stjórn- völdum 2 ára frest Jóhannesarbori;, 4. febrúar. AP. DESMOND Tutu, fridarverðlauna- hafi Nóbels, var um helgina skipað- ur fyrsti svarti biskup Jóhannesar- borgar og var mikið fjölmenni vió- statt athöfnina sem fór fram í Maríukirkjunni í borginni. Tutu not- aði tækifaerið og boðaði harðar að- Desmond Tutu gerðir gegn minnihlutastjórn hvítra ef ekki yrði horfið frá aðskilnaðar- stefnu stjórnvalda innan tveggja ára. Tutu sagði stjórnarfarið í land- inu vera „af hinu illa og ekki í samræmi við kristnidóminn". Svo sagði hann: „Hvaða hvíti maður í Suður Afríku vildi skipta á stöð- um við blökkumann þó ekki væri nema í einn dag? Enginn." Ræðu sinni lauk Tutu með þeim orðum, að ef stjórnvöld í Suður Afríku létu ekki af aðskilnaðarstefnu sinni innan tveggja ára, myndi hann beita sér fyrir því að landið yrði beitt hörðum efnahagsþving- unum. Þessi orð biskupsins vöktu mikla athygli og þóttu jaðra við landráð. Þrátt fyrir hörð orð, undirstrik- aði Tutu að fyrst og fremst vildi hann þó friðsamlega lausn á vandamálum Suður Afríku og hann myndi beita sér fyrir því, starfa sem milligöngumaður milli stjórnvalda og skæruliða og blökkumanna ef þess væri óskað. Hinir 2.000 athafnargestir, hvítir og svartir, klöppuðu Tutu lof í lófa í ræðulok. Pinochet gefur hvergi eftir Santiago, 4. febrúnr. AP. AUGOSTO Pinochet forseti her- stjórnar Chile framlengdi um helgina um 90 daga herlögum og neyðarástandi í landinu. Það þýðir að enn um sinn verður áköf rit- skoðun, bönn við fjöldafundum og starfsemi stjórnarandstæðinga og útgöngubann í helstu borgum landsins. Pinochet hefur ekki tjáð sig opinberlega um framlenging- una, hún var lesin upp í útvarpi og sjónvarpi án athugasemda. Fregnir herma, að margir af helstu ráðgjöfum Pinochets hefðu ráðið honum frá því að troða þennan veg, en hann vilji á ekkert slíkt hlusta. telja ráð- gjafarnir að forsetanum hafi mislukkast að berja niður vinstri sinnuð öfgaöfl, heldur hefðu aðgerðirnar aðeins orðið til að stappa stálinu í andstæð- inga stjórnarinnar, auk þess sem almenningsálitið í heimin- um hefði orðið stjórn Pinochets andsnúnara og var þó vart á bætandi. Þessi mynd af Jóhannesi Páli páfa II var tekin I Ecuador á miðvikudag. Páfi lét sér rétt sem snöggvast renna í brjóst, áður en hann prédikaði í La Carolina-garðinum (Quito, höfuðborg landsins. Jóhannes Páli páfí í Perú: „Röksemdir ofbeldisins þjóna engum tilgangi“ Aymfurho, Perii, 4. febrúw. AP. Á SUNNUDAG hélt Jóhannes Páll páfi II ræðu í borginni Ayacucho í Andesfjöllum, þar sem herinn hef- ur mikinn viðbúnað vegna and- spyrnustarfsemi, og bað páfi hina vinstri sinnuðu skæruliða að leggja niður vopn og hætta baráttunni, sem hann kvað þegar hafa kostað um 4000 manns lífið. „Miskunnarlausar röksemdir ofbeldisins þjóna engum til- gangi," sagði páfi við tugi þús- unda manna sem tóku á móti honum á flugvellinum. „Ef það er heill Perú sem þið stefnið að, farið þá samningaleiðina," sagði hann. Páfi sagði í ræðunni, að stjórnvöld, sem ættu að halda uppi lögum og reglu, yrðu að gera allt sem í þeirra valdi stæði til að „eignast traust þjóðarinn- ar“. Mannréttindasamtökin Amn- esty International gáfu nýlega út skýrslu, þar sem því er haldið fram, að hundruð manna hafi verið myrt á Ayacucho-svæðinu, eftir að öryggissveitir hersins hafi tekið þá höndum, og mörg fórnarlambanna hafi verið pynt- uð og síðan varpað nöktum í fjöldagrafir. Fernando Belaunde forseti, sem brátt lætur af embætti, hef- ur vísað þessum staðhæfingum á bug. Páfi kom til Perú á föstudag og fer þaðan á morgun, þriðju- dag, í lokaáfanga þessarar sjöttu ferðar sinnar til Suður-Ameríku. Sækir hann þá Trinidad og Tob- ago heim. Hættir í hungur- verkfalli París, 4. janú&r. AP. FJÓRIR félagar í frönsku hryðju- verkasamtökunum Action directe og einn stuðningsmaður samtakanna, sem sitja í fangelsum í París og nágrenni, hafa hætt tveggja vikna löngu hungurverkfalli, sem þeir fóru í til að lýsa yfir stuðningi við Rauðu herdeildirnar svonefndu í Vestur- Þýskalandi. Rauðu herdeildirnar eru hryðju- verkasamtök, sem rekja uppruna sinn til Baader-Meinhof samtak- anna, og hafa að undanförnu unn- ið mörg hryðjuverk. Þau hafa m.a. lýst á hendur sér ábyrgð á morð- inu á iðjuhöldinum Ernst Zimm- erman, sem myrtur var á föstu- dag. Smábarni fórnað fyrir uppskeru Njja Delhí. 4. febrúar. AP. INDVERSKA fréttastofan United News Of India greindi frá því í dag, að bóndi einn í Mahrarastraríki í vesturhluta Indlands, hefði rænt 4 ára dreng, hálshöggvið hann og fært þannig frjósemisguðum fórn. Mun bóndi hafa ætlað að blíðka guðina til að færa sér risauppskeru. Fréttastofan greindi þannig frá atburðinum að litli drengurinn hefði verið á leið heim frá fjöl- bragðaglímukeppni er bóndinn stökk á hann á skógarstíg og stakk honum í sekk. Var hann síðan stríðalinn í fjóra sólarhringa á heimili bónda uns aftakan fór fram. Síðan dreifði bóndi blóði drengsins um gróðurmold sína. En hann varð uppvís að athæfinu og mun svara fyrir það. Viðræður um framtíð Gíbraltar Geaf, 4. febrúar. AP. Utanríkisráðherrar Bretlands og Spánar, sir Geoffrey Howe og Fer- nando Moran, hittast í Genf á morg- un, þriðjudag, til að ræða framtíð Gíbraltar við Njörvasund, sem Bret- ar hafa ráðið frá 1704. í almennri atkvæðagreiðslu á Gíbraltar árið 1967 lýstu 12.138 kjósendur sig andvíga sameiningu við Spán og aðeins 44 voru henni hlynntir. Krafizt afsagnar Bodströms Stokkhólmi, 4. febrúar. Frá fréttaritara Mbl. TALSMENN stjórnarandstöðuflokkanna í Svíþjóð eru mjög harðorðir vegna ummæla Lennarts Bodstroms, utanríkisráðherra um að engar sannanir séu fyrir því að kafbátar hafl roflð sænska landhelgi eftir atburðina í Hárflrði árið 1982. Torbjörn Fálldin, forystumaður Miðflokksins hefur kraflzt þess að Bodström segi tafarlaust af sér og talsmaður Þjóðarflokksins Bengt Wester- berg sagði að með þessu væri Bodström að draga í efna áreiðanleika skýrslu hersins um málið. Oryggismálaáerfræðingur Hægri flokksins (Moderaterna), Carl Bildt, tók í sama streng í ummælum sínum. Orsökin er sú, að utanríkisráð- herrann sagði á fundi með nokkr- um fréttamönnum í fyrri viku, að ekki væru neinar sannanir fyrir þvi að óvinakafbátar hefðu gerzt brotlegir síðustu þrjú ár í land- helgi. Þessi fundir var haldinn til að reyna að bæta heldur kuldaleg samskipti milli utanrikisráðu- neytis Svíþjóðar og fjölmiðla. Ummæli Bodströms stinga í stúf við niðurstöður kafbáta- nefndarinnar og ýmis fyrri um- mæli ábyrgra fulltrúa stjórnar- innar. Lennart Ljung, yfirmaður sænska heraflans sagði í skýrslum sínum yfir tímabilið frá 1983—1985, að sannanir væru fyrir brotum kafbáta enda þótt ekki væri hægt að fullyrða hvaðan þeir væru. Utanríkisráðherrann reyndi i gær að draga nokkuð af ummæl- um sinum til baka, sagði að blaða- menn hefðu misskilið orð sín og hann sagðist hafa langt áherzlu á Lennart Bodström að hann hefði átt við, að ekkert lægi fyrir um, hvaðan bátanir hefðu verið. Blaðamennirnir eru sammála um, að þeir hafi í engu mistúlkað staðhæfingu Bod- ströms. Stjórnarandstaðan segir að þetta muni veikja tiltrú annarra ríkja á varnarstefnu Svía og þetta gefi sovézkum yfirvöldum byr undir báða vængi, en þau hafa fullyrt að allar staðhæfingar um að sovézkir kafbátar færu í sov- ézka landhelgi væru hugarórar og áróður gegn Svoétríkjunum. Olof Palme, forsætisráðherra vildi í gær, sunnudag, ekki segja neitt um ummæli Bodströms. Það virðist augljóst að þetta mál gæti orðið til þess að Bodström fengi ekki tækifæri til að bjóða sig fram við kosningarnar í september nk. GOÐUR ODYR LIPUR SÆLL AFBRAGÐ ARriARHÓLL Hvíldarstaður í hádegi höll að kveldi Velkomin Aligrísarifj asteik (flæskesteg) að dönskum hætti. Kr. 310.- Borðapantanir í síma 18833. Opnum kl. 11.30 SÝNISHORN ÚR MATSEÐLI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.