Morgunblaðið - 05.02.1985, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 05.02.1985, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1980 25 V-Þýzkaland: Umfangsmikil leit að borgarskæruliðum MUncben, 4. febrúar. AP. LÖGREGLAN f Vestur Þýskalandi loitar nú ákaft tveggja hrydjuverka- manna sem myrtu iðnrekandann Ernst Zimmermann á heimili hans í Miinchen á laugardaginn. Hafa verið gerðar teikningar af parinu sem myrti hinn 55 ára gamla Zimmerman, en lögregluyfirvöld viðurkenndu hins vegar að þau hefðu enga hugmynd um hvar fólkið væri niður komið. Lýsingar á fólkinu eru hafðar eftir eiginkonu Zimmermanns, sem opnaði fyrir þeim hurðina. „Rauða herdeildin" lýsti ábyrgð á verknaðinum. - New York, 4. janúar. AP. ARKADY Shevchenko, háttsettur sovéskur stjórnarerindreki, sem fékk hæli sem pólitískur flótta- maður í Bandaríkjunum árið 1978, segir í endurminningum sínum, sem vikuritið Time hefur birt út- drátt úr, að á árinu 1960 hafi hann heyrt Nikita Krúsjef, þáverandi forsætisráðherra Sovétríkjanna, hafa uppi hótanir í garð Dags Hammarskjöld, þáverandi fram- kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð- anna. Shevchenko, sem var einn af aðstoðar framkvæmdastjórum SÞ er hann baðst hælis í Banda- ríkjunum, segir í endurminning- um sínum Breaking with Mos cow, að Krjúsjef hafi gramist af- skipti Sameinuðu þjóðanna af borgarastyrjöldinni í Kongó. Hafi hann farið hinum verstu orðum um stofnunina og sagt við samstarfsmenn sína, að Hamm- arskjöld væri að skipta sér af málum, sem honum kæmu ekki við, „Hann hefur tekið sér vald, sem hann á ekki að hafa. Hann verður að gjalda fyrir það. Við verðum að losna við hann með öllum tiltækum ráðum,“ hefur Shevchenko orðrétt eftir Krúsj- ef. Shevchenko segir að kunningj- ar sínir innan sovésku ríkis- stjórnarinnar hafi sagt sér, að þeir hafi séð leyniskjal frá KGB, sem bendi til þess að stuðnings- menn Sovétríkjanna í Kongó hafi skotið vél Hammarskjölds niður, en hún fórst í Kongó árið 1961 við dularfullar aðstæður. Shevchenko segir ennfremuur í endurminningum sínum, að samstarfsmaður sinn, Mikhail Kapitsa, sem er sérfræðingur Sovétstjórnarinnar í málefnum Asíu, hafi sagt sér frá miklum hitafundi í stjórnmálaráði sov- éska kommúnistaflokksins árið 1969, þar sem um það var deilt hvort varpa ætti kjarnorku- sprengju á Kina. Ríkin áttu þá í landamæradeilu. Frá þessari hugmynd var fallið vegna ótta við að heimsstyrjöld brytist út í kjölfarið. Lögreglan hefur einkum leitað 32 ára manns og 28 ára konu sem likjast mjög parinu sem myrti Zimmermann. Þau hafa lengi ver- ið eftirlýst fyrir önnur hryðju- verk. Morðið var mjög í anda af- töku, Zimmermann var bundinn á höndum og fótum, keflaður um munninn, en siðan var hann skot- inn einu sinni i hnakkann. Hann lést 11 klukkustundum síðar á sjúkrahúsi. Konu Zimmermanns bundu morðingjarnir og skildu hana þannig eftir á stofugólfinu Norðursjór: Kaupmannahbrn, 4. febrúar. AP. LEIT hefur verið hætt að skipinu „Konstantinopel“ sem sendi frá sér neyðarkall úti fyrir ströndum Dan- merkur. Raunar efast margir um raunverulega tilvist skipsins þar sem ekkert skip með umræddu nafni er til á skrá. Hins vegar var staðfest að neyðarkallið kom af hafi. Tveggja sólarhringa leit bar ekki árangur. Björgunarvesti fannst á floti í sjón- um og eitthvað fleira, en ósannað var að það tilheyrði skipinu „Konst- antinopel". skammt frá deyjandi eiginmanni sínum. Tókst henni um síðir að losa sig og gera lögreglunni við- vart. Fyrirtæki það sem Zimmer- mann veitti forstöðu framleiðir túrbínur í herflugvélar. Þýska blaðið Die Welt sagði svo frá, að Zimmermann hefði verið „að- gengilegt" skotmark fyrir hryðju- verkamenn, „hann var tákn víg- búnaðar og þeir þurftu ekki að glíma við harðsnúna lífverði," rit- aði Die Welt. Aðallega var leitað á hafsvæð- um vestur af Jótlandi og norður af Vestur-Þýskalandi, en þaðan kom kallið. Það var á þá leið, að skipið væri að því komið að sökkva og 21 áhafnarmeðlimur væri að klifra um borð í björgunarbát. Ekki reyndist unnt að halda sambandi og ekkert hefur heyrst síðan. Nú er leit hætt sem fyrr segir og að margra áliti var hér um gabb að ræða. Nikita Krúsjef Dag Hammarskjöld Arkady Shevchenko Endurminningar háttsetts sovésks flóttamanns: „Verðum að losna við Dag Hammarskjöld" — sagði Krúsjef ári áður en framkvæmdastjóri SÞ lést í dularfullu flugslysi Leit að huldu- skipinu hætt Í88KAPAR) Hollensk hágæðavara \RF 844 ☆☆☆☆☆ <æliskápur 310 Itr. meö 65 Itr. frystihólfi. H I59. B 55. D 58 cm. Verð kr. 21.200.- stg. ARF 842 ☆☆ Kæliskápur 340 Itr. meö 33 Itr. frystihólfi. H 144. B 59. D 64 cm. Verð kr. 17.500.- stg. HUOMBÆR HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999 HUOM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI ARF 843 ☆☆☆☆☆ Kæliskápur 265 Itr. með 55 Itr. frystihólfi. H 139. B 55. D 58 cm. Verð kr. 18.500.- stg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.