Morgunblaðið - 05.02.1985, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 05.02.1985, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBROAR 1985 Víkingar í þorraskapi í STÓRMARKAÐI Víðis í Mjóddinni í Reykjavík hefur nú verið reistur burstabær þar sem vígalegir víkingar ota ýmsu matarkyns að viðskiptavinum. Að sögn Þorsteins Hjaltested, matreiðslumanns, var ákveðið að hafa þjóðlegt umhverfi í versluninni um þorrann. „Við reistum burstabæ yfir kjötkælinn okkar og fengum lánaða muni frá Árbæjarsafni og Þjóðminjasafni, t.d. rúllupylsu- pressu, aska, skyrsíur og fleira. Viðskiptavinir fá að bragða á ýmsum þorramat, t.d. hákarli, hrútspungum, sviðasultu, og yfirleitt öllu því sem til þorramatar heyrir." Á meðfylgjandi mynd sjást þeir Arthur Pétursson, matreiðslunemi og víkingurinn Helgi Helgason, matreiöslumeist- ari, fyrir innan þorralegt borðið. Gefjun AKUREYRI Nr.3 Kiwanisklúbburinn Þyrill á Akranesi færir stórgjafir Akranesi, 29. janúar. Á AFMÆLISFUNDI í Kiwanis- klúbbnum Þyrli á Akranesi sl. laugardag afhenti klúbburinn þrjár stórar gjafir til félaga- og stofnana á Akranesi. Hið nýja sambýli fjölfatlaðra á Akranesi fékk að gjöf bifreið til afnota fyrir vistmenn. Bifreiðin er af gerðinni Mitsu- bishi og tekur 11 manns. Um- boðsaðili bifreiðarinnar á Is- landi, Heildverslunin Hekla hf., var klúbbfélögum mjög innan handar við kaupin og veitti þeim afslátt af kaupverðinu og styrkti á ýmsan annan hátt. Kemur þessi bifreið sér mjög vel fyrir sambýlið. Sigurfarasjóður sem annast uppbyggingu kútter Sigurfara við Byggðasafnið í Görðum fékk kr. 100.000.- og Björgunarsveit Slysavarnadeildarinnar Hjálpin á Akranesi fékk kr. 75.000.- til tækjakaupa. Afmælisfundurinn var hald- inn í tilefni af 15 árá afmæli Bifreiðin sem maðurinn varð undir og Guðmundur lyfti. Maðurinn var við viðgerðir aftarlega á bifreiðinni, en afturhluti bifreiðarinnar vegur 550 kg, en þegar annað hjólið er vigtað var þyngdin 300 kg. Guðmundur lyfti öðru horni bifreiðarinnar. Lyftu 300 kílóum og björguðu mannslífi Vofrum 28. janúar. UNGUR maður í Vogum á Vatns- leysuströnd varð fyrir þeirri óskcmmtilegu reynslu nýlega að þegar hann lá undir bifreið sinni aö viðgerðum, að bifreiðin rann til og var tjakkurinn að falla undan. Var ekki um annað að ræða fyrir hann en að kalla á hjálp og reyna að halda við bílinn svo hann félli ekki alveg niður. Það tókst svo vel til að maður í nágrenninu heyrði neyðaróp við- gerðarmannsins og þaut til, og tókst með yfirnáttúnilegum krafti að lyfta bifreiðinn' ásamt móður viðgerðar- mannsins ofan af manninum svo hann komst undan bifreiðinni. Það telst fullvíst að mannslífi hafi verið bjargað, og maðurinn sem lyfti bifreiðinni heitir Guð- mundur í. Ágústsson og er á sex- tugasta og sjöunda aldursári. Hann hefur lyft sannkölluðu kraftaverki því bifreiðin vigtar 300 kg eitt hjólið. Viðgerðarmað- urinn sagðist alltaf setja búkka undir bifreiðina er hann væri við viðgerðir undir bifreiðinni, en það hefði ekki verið gert í þetta sinn. Þá sagði hann það hafa verið sér Guðmundur í. Ágústsson til happs að hafa staðið að við- gerðinni utan húss, en hann væri ætíð inn í bílgeymslu við þá iðju, hefði hann verið þar hefði senni- lega enginn heyrt til hans. Viðgerðarmaðurinn var farinn að blána og sagði hann aðeins sek- úndur þar til bíllinn hefði lagst af fullum þunga á hann. Var maður- inn ómeiddur er hann kom undan bílnum. E.G.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.