Morgunblaðið - 05.02.1985, Page 34

Morgunblaðið - 05.02.1985, Page 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1985 Byggingahraði B-álmu Hvað veldur seinlæti? — eftir Guðjón B. Baldvinsson Borgarspítali — B-álma? Hverj- ir bíða eftir því vistrými? Eru það forréttindahópar samfélagsins, sem eiga að njóta vistar í B-áímu? Nei, þetta rými hefur ávallt verið ætlað öldrunarsjúklingum. Opin- ber stjórnvöld hafa a.m.k. gengið út frá því og aðstandendur aldr- aðra langlegusjúklinga hafa bund- ið vonir við þá fyrirætlun. Þessir aðilar hafa náttúrlega meira að segja en sjúklingarnir sjálfir. En samningarnir frá því í apríl, þeir halda ekki. Við lesum það í frétt Mbl. Ríkissjóður ætlar að leggja fram 8 millj. kr. á þessu ári en hlutur þess á að nema 85% af byggingarkostnaði á móti 15% frá borginni. Mig minnir að ráö hafi verið fyrir því gert einhvern tíma á ári aldraðra að byggingu ætti að vera lokið 1984. Nefndur apríl- samningur gerði ráð fyrir verklok- um 1986, en kostnaður áætlaður kr. 136 millj. fyrir eftirstöðvum byggingarkostnaðar. Og hvað nú ungi maður? „Eru tilfinningar um- boðsmanna okkar á Al- þingi og í ríkisstjórn þunglamalegri vegna aldurs þeirra, eöa máski vegna aldurs Borgarspít- alans ..." Borgarstjórinn upplýsir í frétt- inni að „framkvæmdir verði hæg- ari en gert var ráð fyrir" í samn- ingi hans við tvo ráðherra. Og huggunin er: „En framkvæmdir halda auðvitað áfram og B-álman kemst í notkun smám saman." Það getur ekki verið skemmtilegt fyrir borgarstjóra að gefa svona yfir- lýsingu eftir að hafa samið við tvo flokksbræður á ráðherrastólum. Ef gert er ráð fyrir að skipta áætl- unarkostnaði á 2 ár, þá ætti að veita á fjárlögum ársins 1985 um 58 millj. kr., þ.e. 50 millj. vantar ti) að ríkið standi við undirritað loforð heilbrigðis- og fjármála- ráðherra. Hvað áætlað hefur verið á fjárhagsáætlun borgarinnar veit ég ekki, en það hefðu átt að vera Guðjón B. Baldvinsson rúmar 10 millj. miðað við samn- inginn. Þessi dráttur hlýtur að hækka kostnaðinn um vexti af því fé sem þegar hefur verið lagt fram og um þá hækkun sem leiðir af verð- bólgu. En það er lítilsvirði á móti þeim sáru vonbrigðum og ómældu erfiðleikum aldraðra sjúklinga og aðstandenda þeirra, sem af brigð þessa viðmiðunarsamnings leiðir. Mannlegur þáttur þessa óheyri- lega dráttar er léttur á vogarskál- ar peningavaldsins. Vegna þess að það er ekki þrýstihópur, sem rís upp og hótar atkvæðaflutningi, þegar um er að ræða aldraða borg- ara. Þetta eru bara sjúkir ein- staklingar og þeirra aðstandendur eru líka í mörgum tilfellum aldr- aðir einstaklingar, sem hvorki hafa krafta né aðstöðu til að beita þrýstingi. Aldurinn orsakar hæg- ari viðbrögð einstaklingsins. Við verðum svifaseinni og þolinmóðari þegar við eldumst. A það að verka á byggingar- hraða B-álmunnar? Eru tilfinn- ingar umboðsmanna okkar á Al- þingi og í ríkisstjórn þunglama- legri vegna aldurs þeirra, eða máski vegna aldurs Borgarspítal- ans, eðá hvaða ástæður aðrar geta legið að baki þessu óafsakanlega seinlæti og þeim samúðarskorti sem einkennir allar aðgerðir ríkis- ins um fjárveitingar til B-álmunn- ar? Guðjón B. Baldrinsson er formað- ur Samhands lífeyrisþega ríkis og bæja. Fræöslu- mynd fyrir starfsfólk í matvælaiðju ÞESSA dagana er að koma út á myndbandi frædslumynd fyrir starfsfólk í matvælaiðju er nefnist „Matur er mannsins megin“. Fræðslumynd þessi er hönnuð með það í huga að vera eins konar námskeiö fyrir starfsfólk í fisk- og kjötiðnaði, veitingahúsum, stórum eldhúsum, matvöruverzlunum og almennum matvælaiðnaði. I myndinni er farið í gegnum nokkra þætti er snerta starfið s.s. hreinlæti og aðferðir við þrif, skyndihjálp og notkun hand- slökkvitækja. Framleiðandi myndarinnar er Matvælatækni en stjórn handritsgerðar annaðist Hákon Jóhannesson matvæla- * fræðingur. Fyrsta tölublað Bjarma í ár FYR8TA tölublaðið í ár af tímaritinu Bjarma er nú komið út og hafa nokkrar breytingar verið gerðar á útliti blaðsins og það jafnframt stækkað. Aðalefni þessa tölublaðs er dauðinn og er fjallað um málið frá ýmsum sjónarhornum. Þá er í blaðinu m.a. viðtal við Ástráð Sig- ursteindórsson núverandi starfs- mann Hins íslenska biblíufélags og hugleiðing eftir séra Guðmund Óla ólafsson. Diners Club færir út kvíarnar á íslandi Stjórn félagsins Réttarbót aldraðra, frá vinstri Jónína Jónsdóttir, ritari, Lárus Hermannsson, varaformaður, Bjami Tómasson, formaður og Jón Hanncsson, gjaldkeri. Aldraðir stofna hagsmunafélag FERÐASKRIFSTOFAN Atlantik hefur verið umboðsaðili á íslandi fyrir Diners Club-greiðslukortafyr- irtækið frá því síðastliðið haust. í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins sagði Böðvar Valgeirsson Fjölbraut á Akranesi: Fimm sóttu um skólameistarann FIMM MENN sóttu um stöðu skólameistara Fjölbrautaskólans á Akranesi, en umsóknarfrestur rann út fyrir helgina. Umsækjendur eru: Bragi Hall- dórsson, aðstoðarskólameistari á Sauðárkróki, Haraldur Jóhanns- son, hagfræðingur, Haukur Ág- ústsson, skólastjóri Héraðsskól- ans á Laugum í Þingeyjarsýslu, Jón Hannesson, menntaskóla- kennari, og Þórir Ólafsson, settur skólameistari á Ákranesi. forstjóri ferðaskrifstofunnar að starf þeirra væri fólgið í því að afla Din- ers Club viðskiptavina, annars vegar fyrirtækja sem taka við kortunum sem greiðslu og hins vegar korthafa. Þau fyrirtæki sem taka við Din- ers Club-kortum taka eingöngu við þeim frá útlendingum, en ís- lenskir korthafar geta enn sem komið er aðeins notað kortið er- lendis. Öll reikningsleg viðskipti fara gegnum Diners Club í Kaup- mannahöfn, og fá fyrirtæki upp- gert a.m.k. fjórum sinnum í mán- uði, en að sögn Böðvars Valgeirs- sonar er það ein ástæða þess að þau eru tilbúin að greiða nokkru hærri þóknun til Diners Club en til annarra greiðslukortafyrir- tækja sem gera upp einu sinni i mánuði. Árgjald fyrir kort frá Diners Club er 385 danskar krónur, en á næstunni verður gert átak í því að bjóða íslendingum þessi kort. Félagið Réttarbót aldraða heldur framhaldsstofnfund 7. febrúar nk., kl. 4 í Alþýðuhúsinu. Félagið var stofnað 17. janúar sl., en markmið félagsins er að vinna að félagsmál- um aldraða og veita þeim upplýs- ingar um almenn réttindi þeirra. Brýnasta verkefnið er efling Al- menna lífeyrissjóðsins, sem aldr- aðir hefðu aðgang að, en margt eldra fólk hefur lítil sem engin lif- eyrissjóðsréttindi í þeim sjóðum sem það er aðili að. Til að fjár- magna sjóðinn er stefnt að frjáls- um framlögum allra íslendinga. Annað verkefni félagsins er að koma á fót upplýsingamiðstöð fyrir aldraða, þar sem aldraðir gætu leitað eftir upplýsingum og aðstoð sérfræðinga við að leysa persónuleg vandamál sín. (Úr fréttatilkynningu. raðauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar | JÍFélagsstarf Sjálfs tœðisflokksim; | Reykjaneskjördæmi Formenn (ulltrúaráöa og sjálfstæöisfélaga í Reykjaneskjördæmi eru hvattlr tll aö senda ársskýrslur sínar sem fyrst tll formanns Kjördæm- isráös vegna undirbúnings aöalfundar ráösins og landsfundar. Stjórnin. Akranes — Þorrablót Sjátfstæöisfélögin á Akranesi halda þorrablöt föstudaginn 8. febrúar nk. i Sjálfstæöishúsinu viö Heiöarbraut kl. 19.00. Þátttaka tilkynnist í síma 1825 (Pálina), 1752 (Rúnar), 2023 (Jónina), sem allra fyrst og i síöasta lagi fyrir hádegi flmmtudaginn 7. febrúar. Allt sjálfstæöisfólk og gestir þeirra velkomnir. Mætlö öll vel og stundvislega. Stjórn fulltrúarráös sjálfstæöisfélaganna á Akranesi. Félag sjálfstæðismanna í Hlíða- og Holtahverfi: . Spilakvöld veröur haldiö í Valhöll fimmtudaginn7. febrúar kl. 20.30. Góö verðlaun. Kaffiveitingar. „ ,, , St/ornm. Kópavogur - Kópavogur Spilakvöld Sjálfstæöisfélaganna i Kópavogi verður þriöjudaginn 5. febrúar kl. 21.00 stundvislega í Sjálfstæöishúsinu Hamraborg 1. Stjórnln. Selfoss — þorrablót Sjálfstæðisfélögin á Selfossi halda sameigin- legt þorrablót, laugardaginn 9. febr. kl. 20.00 í Inghól (Fossnesti). Skemmtiatriði og dans. Þátttaka tilkynnist í síma 1350 (Ella), og í síma 1344 (Bjössi), fyrir 5. febr. Allt sjálfstæðisfólk og gestir þeirra velkomið. Atvinnumál Verkalýösráö Sjálfstasöisflokksins og Málfundafélagiö Ööinn halda sameiginlegan fund um atvinnumál, þriöjudaginn 5. febrúar 1985 i Valhöll, Háaleitisbraut 1, og hefst hann kl. 20.00. Framsögumenn: Birgir isl. Gunnarsson alþm., formaöur stórlöju- nefndar, og Magnús L. Sveinsson borgarfulltrúi, formaöur atvinnumálanefndar Reykjavíkurborgar. Umræöur — fyrirspurnir. Kaffiveitingar. Fundarstjóri: Málhildur Angantýsdóttir, sjúkraliöi. Allir sjálfstæöismenn velkomnir. Þriójudagur 5. febrúar 1985 kl. 20.00. Undirbúnlngsnofnd. Málhildur Magnús L.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.