Morgunblaðið - 05.02.1985, Side 36

Morgunblaðið - 05.02.1985, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1985 t Móðir okkar, BJÖRG MAGNÚSDÓTTIR frá Túngarði, lést i Hrafnistu i Reykjavik, laugardaginn 2. febrúar. Soffía Magnúsdóttir, Gestur Magnússon. t Eiginkona min, MÁLFRÍÐUR PÁLSDÓTTIR, lést laugardaginn 2. febrúar. Skúli Guömundsson. t Móöir okkar og tengdamóöir, KRISTÍN SVAVA VILHJÁLMSDÓTTIR, frá Vogsósum til heimilis aö Seljabraut 17, Þorlékshöfn, lést aö heimili sinu 2. febrúar. Synir og tengdadætur. t Móöir okkar, ÓLÖF BALDVINSDÓTTIR, Kórsnesbraut 63, Kópavogi, andaöist á hjúkrunarheimilinu Sunnuhliö, Kópavogi, 2. febrúar. Adam Þorgeirsson, Hrafnhildur Þorgeirsdóttir, Hjördis Þorgeirsdóttir, Arnar Þorgeirsson. t Konan min og móöir okkar, GUÐRÚN BERGLJÓT ÞÓRÐARDÓTTIR, Krossholti 4, Keflavfk, lést i Reykjavik, sunnudaginn 3. febrúar. Þórhallur Helgason og börn. t Elskuleg móöir okkar, tengdamóöir og amma, BERGÞÓRA JÓNSDÓTTIR, Nökkvavogi 4, Reykjavfk, andaöist i Vifilsstaöaspitala aöfaranótt 4. febrúar. Indfana Sigfúsdóttir, Siguröur Sigfússon, Gylfi Guömundsson og barnabörn. t Móöir min, BRYNGERDUR FRÍMANNSDÓTTIR fré Grfmsey, Klakksvfk, Færeyjum, er látin. Fyrir hönd systkina og ættingja, Sigmundur Baldvinsson. t JÓN STEFÁN RAFNSSON tannlæknir, Stekkjaseli 1, Reykjavfk, veröur jarösunginn frá Háteigskirkju miövikudaginn 6. febrúar kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á kirkjubyggingu Seljasóknar. Marfa Gfsladóttir, Rafn Jónsson, Gísli Jónsson, Rafn Jónsson, Hulda Björg Jónsdóttir, Hulda Olgeirsdóttir, systkini og aórir aðstandendur. Unnur Pjeturs- dóttir - Minning Fædd 20. aprfl 1903 Dáin 28. janúar 1985 Nú þegar frú Unnur Pjeturs- dnttir, ekkja Einars Pjeturssonar stórkaupmanns, hefur kvatt okkur i hinsta sinn er mér ljúft og skylt að minnast hennar. Frá því eg var barn var Einar frændi minn stórvinur minn og þegar hann giftist Unni eignaðist ég annan vin sem ég hefi matið mikils og notið vináttu hennar og vinsemdar í gegnum árin. Frú Unnur Pjetursdóttir var dóttir hjónanna Pjeturs Ingi- mundarsonar slökkviliðsstjóra og konu hans, Guðrúnar Benedikts- dóttur kaupkonu, mæt hjón og virt í Reykjavík í æsku minni. Unnur var mjög vel menntuð kona, talaði fleiri tungumál og varð deildar- stjóri Sjóvá á unga aldri en eftir að hún giftist Einari helgaði hún sig heimilinu og uppeldi barna sinna. Hún þurfti líka að standa fyrir móttöku á mörgum við- skiptavina Einars innlendum sem erlendum, komu þá í ljós kostir hennar í matargerð og gestamót- töku, man ég margar dýrindis veislur sem ég sat á heimili þeirra hjóna og aldrei kom ég svo þangað að mér væri ekki tekið opnum örmum og fyrir það vil ég þakka með þessum fáu orðum. Unnur vann að ýmsum mannúð- armálum, starfaði í Kvenfélaginu Hringnum og í Vinahjálp meðan kraftar entust. Seinni árin notaði hún til að grúska í ættfræði sinni og hafði mikla ánægju af. Friður Guðs sé með henni. Sigríður Sigurjónsdóttir í dag verður gerð útför tengda- móður minnar, Unnar Pjeturs- dóttur, sem andaðist þann 28. janúar sl. á Landakotsspítala eftir stutta sjúkrahúslegu á áttugasta og öðru aldursári. Unnur fæddist þann 20. apríl 1903 í Reykjavík. Hún var elsta barn þeirra merkishjóna Guðrún- ar Benediktsdóttur f. 9. september 1878 að Miðhúsum í Vatnsdal, d. 31. janúar 1957, og Péturs Ingi- mundarsonar húsasmiðameistara og fyrrverandi slökkviliðsstjóra í Reykjavík, f. 6. júlí 1878 á Úti- bleiksstöðum í Heggstaðanesi í Miðfirði, d. 24. nóvember 1944. Með Unni er nú gengið það síð- asta af fimm börnum þeirra hjóna Pjeturs og Guðrúnar. Systkini Unnar voru Sigríður húsfreyja f. 23. ágúst 1905, d. 19. júlí 1959, Kjartan brunavörður og verslun- armaður f. 9. ágúst 1908, d. 29. janúar 1984, Tómas stórkaupmað- ur f. 19. september 1910, d. 16. ág- úst 1969, Ólafur endurskoðandi f. 24. maí 1919, d. 12. janúar 1972. Foreldrum Unnar, þeim Guð- rúnu og Pjetri, var margt til lista lagt. Guðrún stundaði um tíma farsæl verslunarstörf í Reykjavík og var meðal annars ein af stofn- endum og stjórnendum verslunar- innar Gullfoss, ennfremur tók hún mikinn og virkan þátt í félags- störfum í Reykjavík. Áður en Pjetur tók við embætti aðalslökkviliðsstjóra í Reykjavík 1920, hafði hann unnið við iðn sína og þótti hagsýnn, vandvirkur og góður skipuleggjandi við húsa- smíðar svo sem Miðbæjarbarna- skólinn og Iðnaðarmannahúsið gamla við Lækjargötuna bera vott um, svo dæmi séu nefnd. Að ofangreindu má ráða að Unnur var komin af stórhuga gáfufólki og þessir voru meðal annarra þeir kostir sem Unnur tók í arf frá foreldrum sínum. Hafa þau snemma gert sér grein fyrir hvað í Unni bjó og einsett sér að virkja það sem best eins og eft- irfarandi umsögn, sem hún tjáði mér einu sinni sjálf, lýsir best. * Unnur fermdist vorið 1917 og þá tók hún inntökupróf í Verslun- arskóla íslands, sem var á þeim tíma til húsa á Vesturgötu 10. Þann 30. apríl 1919, útskrifaðist hún frá Verslunarskólanum við góðan orðstír. Þar sem foreldrum hennar þótti hún of ung til að fara að vinna úti, var ákveðið að hún skyldi eiga frí í eitt ár. Einnig var ákveðið að Unnur skyldi læra að sauma á sig flík (eins og hún orð- aði það) og kom móðir hennar henni til þekktrar saumakonu í bænum, hálfan daginn til þess arna, og stóð þetta nám yfir í 6 mánuði. Hafa þessar ráðstafanir eflaust komið sér vel fyrir unga Sigfríður P. Þormar — Minning Fædd 4. september 1889 Dáin 27. janúar 1985 Með Sigfríði P. Þormar er horf- in af sjónarsviðinu kona, sem fylgdist með vexti og viðgangi tveggja byggðarlaga á Austur- landi í lok síðustu aldar og á fyrri hluta þessarar aldar, fyrst Brekkukauptúns í Mjóafirði og síðan Neshrepps og Neskaupstað- ar í Norðfirði. Hún gaf sig að vísu ekki að opinberum málum fremur en venjulegt var um konur á blómaskeiði hennar, en hún var nákomin austfirzkum athafna- mönnum, sem settu svip í samtíð sína. Frú Sigfríð, eins og hún var venjulega titluð í uppvexti mínum eystra, andaðist í Borgarspítalan- um í Reykjavík hinn 27. síðasta mánaðar, en fæddist í Brekku- kauptúni í Mjóafirði 4. september 1889. Fram eftir ævi átti hún við betri kjör að búa en títt var um íslendinga yfirleitt á þeim tíma, enda má segja, að hún héldi sig ríkmannlega. En er á leið, mátti hún þola ýmislegt mótdrægt í líf- inu, ástvinamissi og þverrandi efni. En einmitt þá sýndi hún, að hún var miklu lífsþreki gædd og lét hvergi bugast, þó að árin færð- ust yfir. Sigfríð var fönguleg kona, nokk- uð stórvaxin, miðað við hennar kynslóð, en þó fríðleikskona. Þeg- ar litið er á uppruna Sigfríðar og ættir þær, sem að henni stóðu, er ekki að furða, þó að hún væri miklu lífsmagni búin. Faðir henn- ar var Konráð Hjálmarsson (1858—1939), einn hinn kunnasti athafnamaður austanlands um sína daga, bæði í Mjóafirði og á Norðfirði. Ein happasæiasta framkvæmd Konráðs var sú, að hann fékk fslending, sem verið hafði í Ameríku, fsak Jónsson, til að setja upp „frosthús" eða íshús, svo að safna mátti beitu og geyma mátti hana óskemmda langtímum saman. Breiddist þessi aðferð óð- fluga út um landið (frá ísaki eystra og Jóhannesi Nordal syðra), íslenzkum sjávarútvegi og þar með þjóðarbúinu til mikils farnaðar. Konráð var rótgróinn Mjófirðingur, sonarsonur Her- manns Jónssonar í Firði, sem var kjarnakarl, þó að hann væri ekki alltaf sléttur og felldur. Móðir Sigfríðar var Sigríður Jónsdóttir Jónatanssonar, en Jón faðir hennar var annálaður sjó- sóknari og hákarlaformaður frá Höfða á Höfðaströnd í Skagafirði, en hann fórst rúmlega fertugur með skipi sínu og allri áhöfn. Um Jón er fróðleg ritgerð í VIII. bindi Blöndu. Kona Jóns Jónatanssonar og móðir Sigríðar var Rannveig, dóttir séra Hákonar Espólín (síð- ast á Kolfreyjustað); sonar Jóns sýslumanns Espólín (1769—1836), sem kunnastur er fyrir Árbækur sínar, fyrsta samfellda rit um sögu fslands eftir að Sturlungu sleppir á 13. öld og fram yfir 1830. Jón Espólín var ekki síður ann- álaður um sína daga fyrir mikinn vöxt og afl að sama skapi, enda þótt hann komist svo hæversklega að orði um sjálfan sig í Árbókun- um; „Ekki mátti hann sterkan kalla nema í gildara lagi.“ Hann var sonur Jóns sýslumanns Jak- obssonar á Espihóli, en til þess bæjar á ættarnafnið rót sína að rekja. Faðir Jóns Jakobssonar var Jakob Eiríksson (1708—1767) bóndi og stúdent á Búðum á Snæ- fellsnesi. Um hann segir Páll Egg- ert Ólason svo í fslenzkum ævi- skrám: „Hann var manna mestur og rammur að afli, vel að sér, heppinn læknir, rausnsamur og vel metinn, búsýslumaður mikill, hafði oftast 20—30 skip á útvegi sínum.“ Af þessu má marka, að margt þrekmennið er að finna í ættum Sigfríðar Þormar. Hinn 13. september 1912 giftist Sigfríð Páli G. Þormar, sem þá var bankaritari og gjaldkeri bæjar- sjóðs á Seyðisfirði. Páll fæddist á Eiðum 27. maí 1884, sonur Gutt- orms Vigfússonar, sem þá var skólastjóri búnaðarskólans þar. Guttormur hafði numið búfræði í Noregi, verið kennari á Möðruvöll- um fyrsta starfsár skólans þar (1880—1881). Hann var kunnur maður á sinni tíð, alþingismaður Sunnmýlinga 1892—1908, en lengst af bóndi í Geitagerði í Fljótsdal, dáinn 1928. Synir hans tóku sér ættarnafnið Þormar. Það er leitt af Guttorms-nafninu, og hef ég heyrt, að Sigurður Guð- mundsson skólameistari hafi verið með í ráðum um val nafnsins. Páll var gagnfræðingur frá Ak- ureyri 1906, en starfaði á Seyðis- firði 1907—1915. Hann var vel íþróttum búinn, var t.d. þátttak- andi I flokki, sem sýndi fslenzka glímu á Ólympíuleikunum í Lond- on 1908 við góðan orðstír. Voru þar engir aukvisar á ferð. Flestir munu enn kannast yið nöfn manna eins og Jóhannesar Jós- efssonar, Hallgríms Benediktsson- ar og Sigurjóns Péturssonar, sem allir voru í þessum flokki. Til Norðfjarðar fluttust þau Páll og Sigfríð 1915. Gerðist Páll brátt meðeigandi að verzlun tengdaföður síns. Jafnframt lét hann opinber mál nokkuð til sín taka, og gegndi hann þess vegna talsverðum trúnaðarstörfum. Hann var oddviti Neshrepps 1920—1925, hreppstjóri sama sveitarfélags 1925—1929, er það varð bæjarfélag, í yfirskattanefnd Suður-Múlasýslu 1921—1925 og um hríð brezkur vísikonsúll I Nes- kaupstað. Fyrir kom að Páll var settur bæjarfógeti I forföllum, eft- ir að sveitarfélagið fékk kaupstað- arréttindi. Þau Sigfríð og Páll áttu í Nes- kaupstað stórt og myndarlegt hús, sem nefndist Þórsmörk. Þar bjuggu þau við mikla rausn og lengst af við rúman fjárhag. Var þar jafnan margt í heimili, börnin urðu sex og fósturbörn þrjú. Á heimilinu var einnig ráðskona, sem hafði þjónustustúlkur sér til aðstoðar. Páll var í eðli sínu framfara- sinnaður og tók upp ýmsar nýj- ungar. Hann eignaðist útvarps- tæki fvrstur manna á Norðfirði, alllöngu áður en Ríkisútvarpið hóf göngu sína. Ég minnist þess frá uppvaxtarárum mínum, að Páll setti hátalara utan á hús sitt og fólk tók sér stundum sæti á sum- arkvöldum á bekkjum í garði þeirra hjóna til að hlusta á útvarp frá fjarlægum löndum, einkum frá Englandi. Einnig hefur mér verið sagt, að Páll, sem lengst af rak nokkurn búskap, hafi snemma haft hátalara í fjósi sínu, svo að kýrnar mættu einnig njóta sömu tilbreytingar og mannkindin. Þeg- ar kom fram á erfiðleikaárin upp úr 1930, setti Páll upp refabú og

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.