Morgunblaðið - 05.02.1985, Side 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRpAR 1985
Ibúða- og iðnaðarlóðir í miðri sveit
Við Húnavelli hefur verið skipulagður byggðakjarnL,
Hér eru til leigu lóðir undir íbúðar- og iðnaðarhúi
• Hitaveita ð staðnum.
• Stutt er til Blönduóss.
e Stutt er ð virkjunarsvæði Blöndu.
# Ýmsir möguleikar eru þvi ð atvinnu fyrir þð sem hér vilja búa.
# Auðvelt að koma ð markað þeim vörum sem framleiddar eru.
Nánari upplysingar gefur Torfi Jónsson, oddviti Torfalækjarhrepps. simi 95-4286.
HREPPSNEFND TORFALÆKJARHREPPS
oc ALFA-LAVAL
VARMASKIPTAR
Á undanförnum áratugum hafa
ALFA LAVAL varmaskiptar sann-
að ágæti sitt á hitaveitusvæðum
um land allt.
Nú hefur ALFA LAVAL hafið framleiðslu á
nýrri tegund af varmaskiptum af gerðinni CB-12
og CB-25. Hitarar þessir henta í mörgum til-
fellum betur en hinir viðurkenndu PL-01 varma-
skiptar, auk þess að vera hagkvæmari í verði.
Sem fyrr bjóðum við upp á hina viður-
kenndu PL-01 og PL-22 plötuvarma-
skipta frá ALFA LAVAL með stuttum
Helstu kosti ALFA-LAVAL varmaskipta:
• Þeir eru virkir og einfaldir
• Plöturnar úr ryðfríu stáli sem tærast
ekki við öll venjuleg skilyrði
• Þrýstiþol mikið
• Þeir taka lítið pláss
• Nýtingin mjög góð
fyrirvara.
Við veitum allar tæknilegar upplýs-
ingar, svo og hvers konar upplýsingar
aðrar um ALFA-LAVAL varmaskipt-
ana.
LANDSSMIÐJAN HF.
SÖLVHÓLSGÖTU 13-101 REYKJAVÍK
SlMI (91) 20680 - TELEX 2207 GWORKS
Gunnar Héðinn
Jakobsson — Minning
Fæddur 5. febrúar 1930
Dáinn 17. janúar 1985
Hve sæl, ó, hve sæl er hver leikandi lund,
en lofaðu’ engan dag fyrir sólarlags stund.
Svo örstutt er bil milli blíöu og éls,
og brugðizt getur lánið frá morgni til kvelds.
Þessar ljóðlínur Matthíasar
Jochumssonar komu í hug mér er
ég frétti lát Gunnars, sem bar að
fyrirvaralust.
Glaður og reifur kvaddi hann
okkur á vinnustað að loknu dags-
verki daginn áður.
Gunnar fæddist f Reykjavík og
voru foreldrar hans hjónin Heið-
veig Guðmundsdóttir og Jakob
Guðmundsson. Börn þeirra eru
auk Gunnars, sem var elstur, Val-
gerður, Sigríður og Helgi. Gunnar
átti skyldfólk að Þverfelli, Lund-
arreykjadal í Borgarfirði. Fór
hann þangað sem drengur og
dvaldi þar mikið fram yfir ferm-
ingu. Bar hann æ síðan mikinn
hlýhug til þessa staðar.
Gunnar vann síðan ýmsa vinnu
ýmist á landi eða sjó, en lengst af
starfaði hann hjá Ólgerð Egils
Skallagrímssonar hf. en varð að
láta af starfi vegna heilsubrests.
Síðustu árin var hann umsjónar-
maður á Lækjartogi í biðstöð
Strætisvagna Reykjavíkur og hús-
vörður í húsi því sem hún er í.
Þáttaskil urðu í lífi Gunnars, er
hann kvæntist eftirlifandi konu
sinni, Guðrúnu Sigriði Sumarliða-
dóttur. Eignuðust þau son, Jakob,
sem nú er lVfc árs gamall. Einnig
gekk Gunnar i föðurstað tveimur
börnum Guðrúnar, Sigurborgu og
Sumarliða.
Gunnar reyndist einstakur
heimilisfaðir, vakti yfir velferð
fjölskyldunnar, og gerði allt sem I
hans valdi stóð til þess að henni
liði sem best.
Gunnar var ólatur maður, lag-
hentur og reyndist okkur vel, sem
störfuðum hér.
Gunnar hafði yndi af börnum og
blómum. Oft biðu hér barnahópar
með fóstrum sínum. Brá hann
ævinlega skjótt við og sótti
.nammi“ handa þeim í söluturn-
inn. Sömuleiðis sá hann um að
blóm væru hér ætíð í biðstöðinni.
Ég vona að Guð styrki fjöl-
skyldu hans á ókomnum árum.
Hvíli hann i friði.
Steinunn G. Magnúsdóttir
Námskeið fyrir
iðnfyrirtæki
vöruþróun og markaðssókn
verður haldið á vegum Félags íslenskra
iðnrekenda 12.—14. febrúar nk.
Efni:
— Umfjöllun og skilgreining helstu hugtaka, vöruþróun — til
hvers?
— Aöferöir til vöru-, markaösgreiningar.
— Innri greining — ytri greining, aöferöir til mats á sterkum og
veikum hliöum fyrirtækja.
— Mat á þróun markaðarins (þarfir og kröfur).
— Leit aö nýjum framleiösluhugmyndum.
— Samanburður og val hugmynda.
— Gerö framkvæmdaáætlunar.
— Framkvæmd aögeröa.
— Fjármögnun vöruþróunarverkefna.
Markmið:
Gera þátttakendur færa um aö standa fyrir og stjórna vöru-
þróun innan eigin fyrirtækja, þannig aö hámarks árangur náist
meö lágmarks kostnaöi.
Þátttakendur:
Stjórnendur fyrirtækja; forstjórar, framkvæmdastjórar, deildar-
stjórar, tæknimenn og aörir starfsmenn er bera ábyrgö á vöru-
þróun, framleiðslustjórnun og markaösmálum.
Tími:
12,—14. febrúar kl. 8.30—12.30, samtals 12 tímar.
Staður:
Hallveigarstígur 1, 3. hæð.
Verð:
Fyrir félagsmenn Fil kr. 2.400.-
Fyrir aöra kr. 3.200,-
Þátttaka tilkynnist til Félags íslenskra iðnrekenda, Hallveigar-
stíg 1, sími 91-27577 fyrir 8. febrúar nk.
Leiðbeinandi:
Páll Kr. Pálsson, tæknideild Fíl.
Markmió Félags íslenskra lönrekenda er að efla islenskan iðnað þannlg að iðnaður-
inn veröi undirstaöa bœttra lífskjara. Félagiö gœtir hagsmuna iönaöarins gagnvart
opinberum aöilum og veitir félagsmönnum ýmiskonar þjónustu.
FÉLAG (SLENSKRA
IÐNREKENDA