Morgunblaðið - 05.02.1985, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRUAR 1986
41
Traustið, vald-
ið og virðingin
— eftir Sigurð
Guðmundsson
Tilefni eftirfarandi er yfirlýsing
undirrituð af Valdimar Gislasy/ii
og Bergi Torfasyni og birtist í
Morgunblaðinu 22. jan. sl. Yfirlýs-
ing þessi er sögð tilkomin vegna
ályktunar sauðfjáreigenda í þrem
hreppum á sunnanverðum Vest-
fjörðum frá 7. des. 1984. Ekki sé ég
ástæðu til þess að sinni að ræða
þessa yfirlýsingu þeirra tvímenn-
inga alla, enda er hún alllöng, en
nokkur atriði skulu tekin hér til
meðferðar.
Þeir tvímenningar tala um
markaða stefnu til útrýmingar
riðuveiki í Vestfjarðahólfi. Æði
reikul virðist sú stefna á stundum.
T.d. var okkur, sem sátum fund að
Núpi 30. júní á liðnu ári, sagt eft-
irfarandi m.a.: Girða átti af
Rauðasandshrepp með varnar-
girðingu úr Stálfjalli í Hvalsker.
Sauðfjáreigandi í Mjólkárvirkjun
skyldi farga öllu sínu fé á hausti
komanda, þ.e. 1984. Allt sauðfé í
Barðastrandarhreppi skyldi og
skorið niður að hausti.
Staðreyndirnar eru þessar: Um
miðjan nóvember sagði mér glögg-
ur bóndi á Barðaströnd, að enn
gengi þar í högum um 300 fjár og
væri enginn reki gerður að því að
ná því saman. Síðar kom í ljós, að
fjöldi þessa fjár var mun meiri og
nú fyrir fáum dögum voru um það
myndskreyttar fréttir í fjölmið-
lum, að enn gengi Barðastrandar-
fé úti og uppi hafðar aðskiljanleg-
ar aðferðir við að ná því. Býsna
löng sláturtíð það!
Fjáreigandinn í Mjólkárvirkjun
gleymdi hinum góða ásetningi um
niðurskurð og setti á meginhluta
fjár síns, svo sem góðra bænda er
háttur. Og Rauðasandsgirðingin!
Þar fór í verra! Henni mun ekki
ennþá endanlega hafa verið valinn
staður, en hugmyndirnar hafa
færst æ vestar, og hafa nú spá-
fuglar það í flimtingum, að trú-
lega verði endirinn sá, að girt
verði einungis kringum landar-
eign eins bæjar, svo að rollunum á
Láganúpi megi takast að halda ár-
unni hreinni!
En maðal annarra orða. Er Al-
viðra í Dýrafirði ekki í Vestfjarða-
hólfi? Eða gildir ekki grunurinn
svo norðarlega?
Að því er varðar allt tal þeirra
tvímenninga um varnir gegn riðu-
veiki vil ég benda þeim á eftirfar-
andi málsgrein, sem tekin er beint
úr greinargerð framkvæmda-
nefndar riðuvarna í Vestfjarða-
hólfi og lögð var fram á fjórðungs-
þingi á ísafirði 8. og 9. sept. sl.
Málsgreinin hljóðar svo: „Það er
álit nefndarmanna, að heimamenn
séu ekki fáanlegir til að taka þátt
í neinum þeim ráðstöfunum, sem
dæmdar eru fyrirfram til að mis-
takast."
Ættu þeir tvímenningar að
leggja þessa málsgrein vel á minn-
ið til síðari tíma.
Svo að ég víki aftur að fundin-
um á Núpi, reis þar upp ábúðar-
mikill spekingur og kvaðst ætla að
afsanna riðuveiki í sínum hreppi,
að því er best varð skilið nú og um
alla framtíð. Hins vegar lét hann
þess ekki getið hvaða aðferðum
hann hygðist beita til þess arna.
Kannski er það hernaðarleynd-
armál.
Tvímenningarnir segjast harmi
slegnir yfir því, að heilindi og
starfshæfni Sauðfjárveikivarna
og starfsfólk Tilraunastöðvarinn-
ar á Keldum skuli í efa dregin. Að
því er varðar Sauðfjárveikivarnir
skal aðeins bent á 30 ára aðgerð-
arleysi þeirrar stofnunar í riðu-
^Auglýsinga-
síminn er 2 24 80
„Bændur hér um
slóðir eru staöráðnir í
því að standa þétt sam-
an gegn hvers konar
ofríki og yfirgangi úr
hvaöa átt sem slíkt kem-
ur.“
veikimálum Barðstrendinga. Það
ætti að nægja. Ég kannast ekki
við, að starfsfólki Tilraunastöðv-
arinnar á Keldum sé vantreyst hér
um slóðir, með einni undantekn-
ingu þó. Sigurður dýralæknir Sig-
urðarson nýtur mér vitanlega ekki
trausts eins einasta fjáreiganda
hér. Fyrir því hljóta að vera ákv-
eðnar ástæður.
Ég hlýt í þvi sambandi að taka
fram, að ég tel það hvorki hlýða né
sæma opinberum embættismanni,
að fara á einum bæ með kviksögur
og slúður um annan.
Þegar þeir menn, sem völd hafa,
misbeita þeim, er það kölluð
valdníðsla og þykir ekki gott. Hitt
er þó jafnvel enn verra, þegar
menn taka sér vald, sem þeir ekki
hafa að lögum.
Ef þeim tvímenningum kynni að
vera það einhver harmaléttir,
skulu þeir minntir á hið forn-
kveðna, að blóðnætur eru bráðast-
ar, og eflaust gleður það þá líka að
heyra, að ég er þess fullviss, að
bændur hér um slóðir eru stað-
ráðnir í því að standa þétt saman
gegn hvers konar ofríki og yfir-
gangi úr hvaða átt, sem slíkt kem-
ur.
En sú er trú mín, að gylfrum
gangi traustið og virðingin hjá
þeim tvímenningum í garða ein-
hverra aðila, ef niðurskurðar-
áformin eiga eftir að beinast norð-
ur um Hrafnseyri.
Sigurður Gudmundsson er stöðvar-
stjórí Otradal.
Sunnudagur 10. feb.
Þriðji og sfðasti áfangi hefst kl. 21.30. Húsið
opnað kl. 19 fyrir matargesti en kl. 20.30
fyrir aðra en matargesti.
Aðgangseyrir kr. 360.
Þríréttaður kvöldverður kr. 740.
Bæði kvöidin leikur hln sprellfjöruga Hljómsveit
Magnúsar Kjartanssonar, ásamt söngvurunum
Jóhanni Helgasyni og Ellen Kristjánsdóttur fyrir
dansl til klukkan 01.
Borðapantanir þríðjudag 5. feb. og miðvikudag 6. feb.
kl. 15-17 ( anddyri Súlnasalar eða ( s(ma 20221.
GILDIHF
James McKechan og
Jane Lyttteton.
Bo Loft Jensen og
Helle Poulsen.
Geir Bakke og
Trine Dehli.
Danskeppnin verður í þremur liðum:
Fimmtudagur 7. feb.
Fyrsti áfangi hefst kl. 21.30. Husið opnað
kl. 19fyrir matargesti, en kl. 20.30 fyrir aðra
en matargesti.
Aðgangseyrir kr. 360.
Þrfréttaður kvöldverður kr. 740.
Sunnudagur 10. feb.
Annar áfangi, sem einkum er ætlaður
bðmum og unglingum, hefst kl. 15. Húsið
opnað kl. 14.
Aðgangseyrir kr. 100 (kr. 250 fyrir foreldra).
Stórviðburður fyrir íslenskt dansáhugafólk. ! kjölfar frábærlega vel
heppnaðrar keppni slðastliðinn vetur efnum við á ný til alþjóðlegrar
danskeppni í Súlnasal. Fjögur af bestu áhugadanspörum heimsins
keppa í suður-amerískum dönsum. Og nú verða íslensk danspör (
fyrsta sinn meðal þátttakenda.
Útlendu danspörin koma frá Ástralíu, Englandi, Noregi og Danmörku
og keppa í fimm dönsum: Jive, sömbu, rúmbu, paso doble og cha cha
cha. Islensku pörin keppa I jive og cha cha cha.
Atíl DflNSSKÓLm
Sími 52996
HEIMILJSTÖLVA
ÁRSINS
Flest virtustu tölvublöö Evrópu og Bandaríkjanna
hafa nýlega kosiö Commodore 64 heimilistölvu árs-
ins annaö áriö í rööl
Þetta sýnir svo ekki veröur um villst aö Commodore
64 er ein öflugasta og vinsælasta heimilistölva sem
völ er á í dag. Commodore 64 er í raun miklu meira
en heimilistölva; hún er heilt tölvukerfi því viö
Commodore 64 heimilistölvuna eru fáanlegir prentar-
ar, diskettudrif, teiknarar og fjöldi annarra tækja, aö
ógleymdu sennilega mesta úrvali forrita, sem fáan-
legt er á nokkra tölvu.
Taktu þátt í sigurgöngunni og veldu þér Commo-
dore 64 heimilistölvu. Hún svíkur engan.
F= ARMULA 11 SÍMI 81500