Morgunblaðið - 05.02.1985, Qupperneq 43
MORGUNBLADID, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1985
43
Morgunblaðið/Bjarni.
GYLFI PÁLSSON,
PÚSTÞJÓNUSTUNNI
Gylfi Pálsson ásamt
syni sínum Brynjari.
ár
A sjö bíla í augnablikinu
Hann Gylfi Pálsson í Púst-
þjónustunni er ekki að
safna frímerkjum, mynt, kortum
eða neinu slíku, heldur eyðir
hann allri sinni orku og pening-
um í bíla. í augnablikinu á hann
sjö bíla á hjólum og einn í pört-
um og margir af þessum bílum
eru meðal þeirra sem flestir
Reykvíkingar taka eftir þegar
þeir sjá þá aka um stræti borg-
arinnar. Blm. og ljósm. fóru og
heimsóttu Gylfa í siðastliðinni
viku, spjölluðu örlítið og fengu
að mynda bílana.
— Hefurðu lengi haft bíla-
dellu?
„Já það held ég að óhætt sé að
segja. Ætli að það fari ekki að
nálgast þrjátíu ár núna síðan
áhuginn kviknaði fyrir alvöru.
Síðan hef eé ekki losnað við
bakteríuna, og hún á sjálfsagt
eftir að fylgja mér lengi".
— Er þetta ekki dýrt tóm-
stundagaman?
„Að vísu, en ég vinn nú mest í
þeim sjálfur og þetta kemur í
staðinn fyrir skemmtanir, áfengi
og tóbak. Það má kannski segja
að ég sé eins og svertingjarnir í
Bandaríkjunum, sem leggja
mest upp úr bílunum og búa svo
í hálfgerðum hreysum.
Sonur minn Brynjar virðist
ætla að erfa þessa dellu, hann er
19 ára, kominn með þrjá bíla,
hefur ekki mikinn áhuga fyrir
skemmtunum og áfengi og vinn-
ur hér hjá mér.“
— Ekurðu um á öllum þessum
bílum til skiptis?
„Nei sumir eru ekki á númer-
um og maður notar meira jepp-
ana á veturna þó snjórinn hafi
alveg svikið í vetur og þá hvílir
maður hina bílana og öfugt. Svo
selur maður þá af og til og fær
sér nýja til að breyta.“
Þeir eru fallegir bflarnir hans og flestir þannig að maður snýr sér við á gðtu þeir þeir birtast
Farið á
kostum
Ein af þeim kvikmyndum
sem eru nýjar af nálinni og
hvað mesta athygli hafa vakið
nú upp á síðkastið heitir „Rom-
ancing the Stone“ og var hún út-
nefnd til „Golden Globe“-verð-
launa fyrir stuttu og vann til
fleiri en einna. Aðalhlutverkin i
myndinni eru í höndum Michael
Douglas og Kathleen Turner.
Þykja þau fara á kostum í
myndinni og leikur þeirra verið
rómaður. Hér eru þau í einu at-
riði myndarinnar.
KYNNTU ÞER
KEILU
Þeir voru margir sem
lögöu leiö sína í Öskju-
hlíð um helgina og
kynntu sér keilu, nýjustu
íþróttina á íslandi.
Nú notum við tímann
fram aö helgi til að fín-
stilla vélarnar og bjóðum
þig velkomin þegar við
opnum aftur á laugar-
dag.
Þangað til hvetjum
við þig að kynna þér
keilu t.d. með því að
■ ■
renna við í Oskjuhlíð
milli kl. 10.00 og 18.00,
litast um, og þiggja
bæklinginn:
KYNNTU ÞÉR KEILU