Morgunblaðið - 05.02.1985, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1985
47
II W/s.. JJ
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
'v ir
Um sjálfskuldar-
ábyrgð ríkissjóðs
Einn st-m átti bréf með sjálfskuld-
arábyrgð Ríkissjóðs 1942 skrifar:
Mig langar að skýra frá því
hvernig búið var að þeim sem
lögðu til hliðar peninga, oft af litl-
um launum, til þess að leggja í
Námsefni
skólans byggt
á Heilagri
Ritningu
Fyrir nokkrum vikum sendi ein-
hver einstaklingur innritunarkort
til Biblíubréfaskólans þar sem
hann óskaði eftir því að sér yrðu
send námsbréfin um Opinberum
Jóhannesar. En því miður láðist
honum að rita nafn sitt og heimil-
isfang á kortið, því höfum við ekki
getað orðið við ósk hans. Vonumst
við til þess að viðkomandi lesi
þessi orð og komi skilaboðum til
okkar, annað hvort skriflega til
Biblíubréfaskólans, Pósthólf 60,
Keflavík, eða símleiðis, í síma 91-
13899.
Annar einstaklingur skrifaði og
var eitthvað að vandræðast yfir
hver ræki skólann, var eitthvað
smeykur um að það væri leynd-
armál. En svo er að sjálfsögðu
ekki. Sjöunda dags aðventistar
bera ábyrgð á útgáfu námsefnis og
kostnaði við Biblíubréfaskólann,
sem er töluverður þar sem þátt-
taka í skólanum er öllum nemend-
um ókeypis. Persónulega sé ég,
undirritaður, um daglegan rekstur
skólans.
Vil ég leggja áherslu á að náms-
efni Biblíubréfaskólans er í einu
og öllu byggt á Heilagri ritningu
og engan veginn á mannasetning-
um. Er þar fylgt fordæmi Martin
Lúthers, siðbótamannsins rnikla,
er hann sagði „Sola Scriptura" eða
„Einungis Biblían", engu viðbætt
og ekkert tekið burt. Enda er aðal-
form námsefnis þannig að nem-
andinn þarf sjálfur að fletta upp í
Biblíunni og finna þar svörin
sjálfur. Þannig getur hver og einn
verið viss um að hann er að rann-
saka Orð Guðs hreint og ómengað.
Kær kveðja og ósk um Guðs
blessun til allra landsmanna,
Þröstur B. Steinþórsson,
skólastjóri Biblíubréfaskólans.
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 11 og 12,
mánudaga til fóstudaga, ef þeir
koma því ekki við að skrifa.
Meðal efnis, sem vel er þegið,
eru ábendingar og orðaskipti,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisróng
verða að fylgja öllu efni til þátt-
arins, þó að höfundar óski nafn-
leyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til
að beina því til lesenda blaðsins
utan höfuðborgarsvæðisins, að
þeir láti sinn hlut ekki eftir
liggja hér f dálkunum.
banka eða kaupa ríkistryggð bréf.
Þetta gerði mögulegt að bankar
eða opinberir sjóðir gátu lánað
peninga til ýmissa framkvæmda í
landinu.
í því tilefni sem hér um ræðir
var bréf sem ég eignaðist árið 1953
eftir föður minn látinn. Bréfið var
þannig:
„4% skuldabréfalán Bygg-
ingarsjóðs verkamanna, 1942,
flokkur B, krónur 2.000,
1944-1985.
Neðantil í bréfinu stóð eftirfar-
andi: Samkvæmt 3. gr. laga nr. 39
janúar 1935, um verkamannabú-
staði tekst Ríkissjóður hér með á
hendur sjálfskuldarábyrgð á
Skuldabréfi þessu ásamt vöxtum í
samræmi við skilmála þá sem um
getur í skuldabréfinu.
Fjármálaráðherra í júlí 1942,
Jakob Möller.“
Bréf þegga eignaðist ég sem fyrr
segir árið 1953. Ég hef fengið
greitt í Landsbankanum kr. 80 í
vexti á ári þar til árið 1981. Þá
voru mér greiddir 80 aurar í vexti
á ári. Nú 23. janúar 1985 var bréf-
ið innleyst með kr. 20 og 80 aura í
vexti.
Þetta er nú saga þessa bréfs.
Þegar það var keypt á sínum tíma
kostaði bréfið ca. 4—6 mánaða
laun verkamanns. Hér læt ég stað-
ar numið, en mig langar til að
þetta komi fyrir almennings sjón-
ir og tali sínu máli.
Umrædd myndbandaleiga á Sogavegi.
„Myndbandaleiga
á biðstöð SVR“
íbúar við Sogaveg skrifa:
Sú óþægilega, að við segjum
ekki óþolandi, röskun átti sér
stað hér við Sogaveginn rétt
fyrir verkfallið í haust, að allt í
einu er komin þar upp mynd-
bandaleiga í húsi sem staðið hef-
ir hálfbyggt i mörg ár og er enn
ófullgert. Þetta er í grónu ibúð-
arhúsahverfi, eins og viðurkennt
var af borgaryfirvöldum fyrir
nokkrum árum þegar hætt var
við að reisa einkaskólahús með
veitingaaðstöðu á næstu lóð,
vegna mótmæla okkar íbúanna í
kring.
Nú er okkur spurn: Hafa eig-
endur þessarar myndbandaleigu
leyfi borgaryfirvalda til þess að
setja þessa „næturforretningu"
upp hér í hverfinu eða þarf ekk-
ert leyfi til slíkrar röskunar?
Það er sem sé staðreynd að
myndbandaleiga þessi er oft
opin langt fram eftir kvöldi, og
fram yfir miðnætti þegar bisn-
essinn er mikill, eins og var í
verkfallinu í haust, og þá er ör-
tröð bíla hér í götunni með því
ónæði og umferðarhættu sem
slíkri örtröð fylgir.
Við segjum umferðarhættu, og
hversvegna sérstaklega. Það er
ótrúlegt en satt, og það alvarleg-
asta í þessu máli, að beint frir
framan myndbandaleiguna er
strætisvagnabiðstöð fyrir leið 6
og 7. Þegar örtröðin þarna er
sem mest á kvöldin kemst stræt-
isvagninn með sina farþega
beinlínis ekki að fyrir bilaþvargi
þeirra, sem eru að skipta við
myndbandaleiguna. Verður
vagninn þá að stoppa úti á miðri
götu og bílar á hreyfingu fyrir
aftan og framan þá, sem eru að
fara út eða inn.
Þessu óþolandi ástandi mót-
mælum við íbúar við Sogaveginn
eindregið. Ekki aðeins vegna
þess ónæðis, sem þetta skapar í
kyrrlátu íbúðarhúsahverfi held-
ur einnig, og ekki síður, vegna
umferðarhættunnar, sem við
höfum lýst hér að framan og vís-
um málinu til borgarstjórnar,
Umferðarnefndar Reykjavíkur
og Umferðarráðs. Kynnið ykkur
málið, við óskum svars.
r
Þýzkir
prentara-
hljóödeyfar
Vandaðir
Ódýrir
E. TH. MATHIESEN H.F.
DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIROI — SIMI 51888
Metsöiublad á hverjum degi!
FEBRÚAR
TILBOD
Viö veitum 20% afslátt af
barnamyndatökum til 20.
febrúar.
PANTIÐ TÍMA STRAX.
barna&fjölsk/ldu-
Ijúsmyndir
Austurstrœti6, sími 12644.