Morgunblaðið - 05.02.1985, Síða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1985
Kvennadeild Reykjavíkurdeildar
RKÍ
Sjúkravinir
Hádegisverðarfundur verður haldinn að Hótel Sögu
kl. 12.30 fimmtudaginn 7. febrúar í Ölstofu uppi.
1. Snorri Ingimarsson læknir flytur erindi um
brjóstakrabbamein.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku í síðasta lagi fyrir kl.
16.00 miövikudaginn 6. febrúar 1985 í síma 28222 —
23360 og 32211.
Félagsmálanefnd.
HITAMÆLINGA-
MIÐSTÖÐVAR
Fáanlegar fyrir sex, átta, tíu, tólf, sextán, átján eöa
tuttugu og sex mælistaöi.
Ein og sama miðstöðin getur tekiö við og sýnt bæði
frost og hita, t.d. Celcius h-200+850 eöa 0+1200 o.fl.
Hitaþreifarar af mismunandi lengdum og með mis-
munandi skrúfgangi fáanlegar.
Fyrir algengustu rið- og jafnstraumsspennur.
Ljósastafir 20 mm háir.
Þaö er hægt aö fylgjast með afgashita, kæli-
vatnshita, smurolíuhita, lofthita, kulda í kælum, fryst-
um, lestum, sjó og fleira.
REYKJAVIK, ICILAND
Vesturgötu 16. Símar 14680 — 13280.
Námskeið
Sjálfsþekking - Sjálfsöryggi
Vitað er að andleg líðan og sjálfsöryggi er mikilvægt
fyrir einstaklinginn í starfi og einkalífi. Tilgangur
námskeiösins er að leiðbeina einstaklingum að meta
stöðu sína og kenna árangursríkar aðferðir í
samskiptum.
Á námskeiðinu kynnast þátttakendur:
• Hvaða persónulegan stíl þeir hafa í samskiptum
• Hvernig sérstæð reynsla einstaklingsins mótar
hann.
• Hverjir eru helstu áhrifaþættir í samskiptum
• Hvernig má greina og skilja fjölskyldutengsl
• Hvernig ráða má við gagnrýni
• Hvernig finna má lausnir í árekstrum
• Hvernig læra má samskipti sem auka sjálfsöryggi
Leióbeinendur
eru
sálfræðingarnir
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal.
Innritun og nánari upplýsingar
í síma Sálfræðistöðvarinnar:
687075 milli kl. 10 og 12.
Pálmi Jónsson, formaður RARIK:
„Niðurskurður hefur áhrif
á framkvæmdaáætlun
en ekki rekstur“
PÁLMI JÓNSSON formaður stjórnar Rafmagnsveitna ríkisins telur að ef
lánsfjárheimild fyrirtækisins verður skorin niður um 35 milljónir, úr 175
milljónum í 140 milljónir króna, muni það koma niður á framkvæmdaplani
rafmagnsveitnanna, en ekki hafa áhrif á reksturinn. Sverrir Hermannsson
iðnaðarráðherra segir í samtali við Mbl. sl. sunnudag að RARIK fái ekki að
taka hærri upphæð í erlendum lánum en þeir borgi af, sem er 140,5 milljónir
króna.
„1 fjárlögum er skrá yfir áætl-
aðar framkvæmdir RARIK á ár-
inu 1985, og 175 milljónir er sama
talan og var í fjárlagafrumvarp-
inu eins og það var lagt fram,“
sagði Pálmi Jónsson formaður
stjórnar Rafmagnsveitna ríkisins
í samtali við blm. Mbl. í gær. „Hér
er um lánsfé að tefla, þannig að
lántökuheimildar þarf að afla í
fjárlögum. Ef þessi heimild er
skorin niður um 35 milljónir
króna, sem iðnaðarráðherra hefur
ekki rætt við mig sem formann
stjórnar rafmagnsveitnanna,
kemur það niður á framkvæmda-
plani rafmagnsveitnanna, en hef-
ur ekki áhrif á reksturinn," sagði
Pálmi jafnframt.
Pálmi sagði að rétt væri að hafa
í huga að framkvæmdafé þetta
væri þegar að miklum hluta bund-
ið með efnispöntun og efnisútveg-
un, þar sem afgreiðslutími á efni
til raforkuframkvæmda væri í
mörgum tilvikum 6 til 9 mánuðir
og rafmagnsveiturnar byggðu sína
efnisútvegun á því sem fram kæmi
í fjárlagafrumvarpi á hverjum
tíma. Auk þess fengju veiturnar
stundum heimildir hjá iðnaðar-
ráðuneyti og fjármálaráðuneyti
áður en fjárlagafrumvarp kæmi
fram, en það sagði Pálmi geta ver-
ið afar þýðingarmikið fyrir veit-
urnar vegna hins langa afgreiðslu-
tíma.
„Meðal annars af þessum sökum
tel ég vera erfitt að breyta að
verulegu marki þeirri fram-
kvæmdaáætlun sem fyrir liggur
og staðfest er með fjárlögum fyrir
árið 1985,“ sagði Pálmi, „enda þótt
oft hafi þurft að draga nokkuð
saman seglin þegar verðhækkanir
á efni eða vinnulaunum hafa verið
meiri en forsendur fjárlaga gerðu
ráð fyrir."
r
Morgunblaðið/Bjarni
Sigurður Magnússon afhendir Kristínu Ingvarsdóttur lyklana að húsakynn-
um Styrktarfélagsins á Háaleitisbraut 13. Á myndinni eru talið frá vinstri:
Kristín Ingvarsdóttir, Sigurður Magnússon, Óttar Kjartansson formaður
félagsins og Jónína Guðmundsdóttir forstöðukona endurhæfingarstöðvarinn-
Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra:
Nýr framkvæmdastjóri
Um mánaðamótin urðu fram-
kvæmdastjóraskipti hjá Styrktarfé-
lagi lamaðra og fatlaðra. Sigurður
Magnússon sem gegnt hefur starf-
inu á fimmta ár lét af störfum og við
tók Kristín Ingvarsdóttir, viðskipta-
fræðingur.
Kristín Ingvarsdóttir er fædd
árið 1945. Hún hefur unnið um
margra ára skeið á skrifstofu Rík-
isspítalanna. Eiginmaður hennar
er Bragi Hannibalsson skrifvéla-
virki og eiga þau þrjú börn.
Sigurður Magnússon tekur við
starfi framkvæmdastjóra Iþrótta-
sambands íslands 1. júní nk.
Farþegum Flugleiða
fjölgaði um nær 100 þús.
SAMKVÆMT bráðabirgðatölum um farþegaflutninga Flugleiða á síðasta
ári, flutti félagið samtals 659.000 farþega í áætlunarflugi það árið. Fjölgun
frá árinu 1983 nemur tæplega 100.000 farþegum.
í stórum dráttum, skiptist þessi
fjöldi eftir leiðum á þann hátt að í
Norður Atlantshafsflugi voru far-
þegar 248 þúsund og fjölgaði um
20% frá fyrra ári. A Evrópuleið-
um voru fluttir 195 þúsund far-
þegar og er þar um að ræða 26,7%
fjölgun. í innanlandsflugi voru
farþegar 216 þúsund talsins og
hafði fjölgað um 7,3% frá árinu
áður.
Á síðasta ári fluttu vélar Flug-
leiða samtals 10.415 tonn af frakt
og pósti og er þar um að ræða
nokkra aukningu. Frá áramótum
til 26. janúar flutti félagið nær
39.000 farþega í áætlunarflugi sem
er 28,7% aukning frá sama tíma í
fyrra.
Eiðfaxi er kominn út
Vigri seldi
í Cuxhaven
LÍTIÐ er nú um siglingar fiskiskipa
á erlendar hafnir, enda verð þar
lágt Aðeins þrjú skip selja afla sinn
í Þýzkalandi í þessari viku.
Vigri RE seldi alls 133,1 lest,
mest karfa í Cuxhaven á mánu-
dag. Heildarverð var 4.223.000
krónur, meðalverð 31,73. Tvö skip
til viðbótar selja afla sinni í
Þýzkalandi í vikunni, en ekkert í
Englandi.
Háskóla-
tónleikar
AÐRIR háskólatónleikar á vor-
misseri verða haldnir í Norræna
húsinu miðvikudaginn 6. febrúar í
samvinnu við Myrka músíkdaga.
Snorri Sigfús Birgisson leikur eig-
in verk á píanó. Tónleikarnir hefj-
ast klukkan 12.30.
Dauft yfir
loðnuveiðinni
DAUFT er nú yfír loðnuveiðunum og
ræður veður þar mestu um. Nánast
engin veiði hefur verið síðan í síð-
ustu viku, en á sunnudag tilkynntu 6
skip samtals 1.660 lestir. Ekkert
skip hafði tilkynnt um afla síðdegis í
gær.
Skipin, sem tilkynntu um afla á
sunnudag eru: Ljósfari RE, 450,
Harpa RE, 300, Hrafn GK, 250,
Börkur NK, 440, Gullberg VE, 120
og Heimaey VE 100 lestir. Flest
skipanna voru á miðunum í gær,
en veiðiveður var ekki.
EIÐFAXI, 1. tbl. 1985, er komið út.
Meðal efnis í blaðinu eru ýmsar
greinar, t.d. Hugleiðingar um
hugleiðingar Eyjólfs eftir Reyni
Hjartarson, Yfir Grænland á ís-
lenskum hestum 1912—13 eftir
ívar Gizurarson og Á Costa del
Sol í reiðgalla eftir Erling Jóns-
son. Björn Steinbjörnsson dýra-
læknanemi ritar grein um járn-
ingar og knúið er dyra hjá Boga
Eggertssyni frá Laugardælum.
Auk þess eru ýmsir fastir þættir í
blaðinu o.fl.
Ritstjóri Eiðfaxa er Hjalti Jón
Sveinsson, ritstjórnarfulltrúi og
aulýsingastjóri er Sigurður Sig-
mundsson frá Syðra-Langholti.