Morgunblaðið - 05.02.1985, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRUAR 1985
51
Einvígi Margeirs og Agdestein:
„Af hverju leikur hann
ekki drottningu a8?“
— spurðu menn á Loftleiðum þegar Norðmaðurinn
missti af rakinni vinningsleið í miklu tímahraki
„EINVÍGIÐ fcr af stad meö látum, annað verður ekki sagt,“ sagði
Jóhann Hjartarson, hinn landskunni skákmaður, eftir að fyrsta einvíg-
isskák þeirra Margeirs Péturssonar og Norðmannsins Simen Agdestein
hafði farið í bið á Hótel Loftleiðum í gærkvöldi. Þrátt fyrir að biðskákin
sé jafnteflisleg var hún ssispennandi og hélt áhorfendum í spennu fram
á síðasta augnablik.
Báðir háðu æðislegt kapp-
hlaup við tímann í lokin. Mar-
geir átti undir högg að sækja
vegna veikrar kóngsstöðu og
Agdestein missti af rakinni
vinningsleið. „Af hverju leikur
hann ekki drottning a8?“ spurðu
menn frammi f skákskýringarsal
þegar Agdestein lék sinn 34. leik.
Sá leikur hefði ofið mátnet um
kóng svarts - kóng Margeirs. En
hafa ber í huga að Agdestein átti
eftir aðeins 3'Æ mínútu á siðustu
sex leiki sína og honum yfirsást
þessi sterki leikur — hopaði í
þess stað og jafntefli varð stað-
reynd. Margeir slapp með
skrekkinn, því allir voru sam-
mála um að biðstaðan sé dautt
jafntefli.
Allt of fáir áhorfendur fylgd-
ust með skák þeirra Margeirs og
Agdestein. Aðstaða er að mörgu
leyti góð í ráðstefnusal Hótel
Loftleiða og frammi í anddyri
kepptust landskunnir skákmenn
við að skýra skákina, þeir Sævar
Bjarnason og Jóhann Hjartar-
son. Menn skeggræddu fram og
aftur, veltu hinum ýmsu mögu-
leikum fyrir sér og komu fram
með „snilldarleiki", sem við nán-
ari skoðun stóðust ekki. „Enga
heimsk-speki hér,“ sagði Sævar
einhverju sinni eftir að ágætur
doktor í heimspeki hafði stungið
upp á heldur vafasömum leik.
„Þetta var fjörug skák. Hún
fór rólega af stað, en í lokin var
mikill hasar — ekki nein logn-
molla. Margeir átti lengi undir
högg að sækja og Agdestein átti
sigur vísan hefði hann fundið
réttu leiðina," sagði Jóhann.
„Það er ómögulegt að spá um
Morgunblaöid/Fnöþjófur
Sævar Bjarnason stendur mikilúðlegur við skýringatöfluna.
Þeir voru ábúðarmiklir í upphafi einvígis, Margeir og Agdestein.
Morgunblaöiö/Bj arni
úrslit í þessu einvígi. Við skulum
gera okkur grein fyrir því, að
Simen Agdestein er mjög sterk-
ur skákmaður, langsterkasti
skákmaður Norðmanna, sem
fram á sjónarsviðið hefur kom-
ið,“ sagði Helgi Ólafsson, sem
var meðal áhorfenda eins og
ýmsir kunnir skákmenn.
Menn voru almennt sammála
um að biöskák Margeirs og
Agdestein væri jafnteflisleg.
Þeir heyja fjögurra skáka ein-
vígi og sigurvegarinn öðlast rétt
til að tefla á millisvæðamóti. Sá
er tapar teflir við þann er hafnar
í öðru sæti á svæðamóti í ísrael
um þátttökurétt í millisvæða-
móti. Tveir efstu menn á milli-
svæðamótunum þremur fara
áfram í kandidataeinvígin. Að
lokum stendur aðeins einn skák-
maður uppi og hefur öðlast rétt
til að skora á heimsmeistarann.
Sem kunnugt er urðu Margeir
og Agdestein efstir og jafnir á
svæðamótinu í Gausdal í Noregi.
Hlutu IVi vinning og í kjölfar
þeirra kom danski stórmeistar-
inn Bent Larsen með 7 vinninga
og missti þar með af lestinni.
Síðasta umferðin t Gausdal var
æsispennandi. Þeir Margeir, A
gdestein og Larsen voru efstir og
jafnir fyrir síðustu umferðina
með 6'/í> vinning. Larsen varð að
sætta sig við jafntefli við Jóhann
Hjartarson en Margeir og Agde-
stein sigruðu sína andstæðinga.
Nokkurrar beiskju gætti hjá
Larsen í grein í Ekstrabladet
eftir mótið 1 garð andstæöings
Agdestein í síðustu umferð, Sví-
ans Ernst, sem notaði aðeins 45
mínútur af umhugsunartíma
sínum og lét leigubíl bfða sfn á
meðan hann lauk við að tapa
fyrir Agdestein. „Þessi fram-
koma Svíans er óíþróttamanns-
leg ætti að draga dilk á eftir
sér,“ skrifaði Larsen í Ekstra-
bladet.
En Agdestein er hingað kom-
inn hvort sem Larsen líkar betur
eða verr og þessum unga Norð-
manni nægir jafntefli í einvíginu
við Margeir þar sem hann vann
innbyrðisviðureign þeirra í
Gausdal. Ýmsir telja þetta bein-
línis Margeiri í hag þar sem
Norðmaðurinn tefli upp á jafn-
tefli, sem jafnan sé veikleika-
merki og Margeir hafi allt að
vinna. En menn voru ekki á eitt
sáttir á Loftleiðum í gærkvöldi.
„Að sjálfsögðu er það Agdestein
mikill akkur að nægja jafntefli í
svo stuttu einvígi. Það setur
aukna pressu á Margeir," sagði
Guðmundur G. Þórarinsson eftir
skákina í gærkvöldi.
En í skákinni kom i ljós aö
jafntefli úr einvíginu er Agde-
stein ofarlega í huga. 1 stað þess
að tefla til sigurs hopaði hann á
mikilvægu augnabliki. Fann ekki
vinningsleið og valdi í þess stað
„örugga leið“. En allt um það,
viðureignin á Loftleiðum æsi-
spennandi og lofar sannarlega
góðu um framhaldið, svo sem
skákskýringar Braga Krist-
jánssonar bera með sér.
HH.
Skák
Bragi Kristjánsson
1. skákin:
Hvítt: Simen Agdestein
Svart: Margeir Pétursson
Drottningarbragð
I. d4 — Rf6, 2. c4. e6,3. Rf3 — d5,
4. Bg5 — Be7, 5. Rc3 — O—O, 6.
e3 — h6, 7. Bh4 — b6, 8. Bd3 —
Bb7, 9.0—0 - Rbd7, 10. De2 -
Einnig er hægt að leika strax
10. Bg3 - c5,11. Hcl - cxd4,12.
exd4 — dxc4, 13. Bxc4 — a6, 14.
a4 - Rh5, 15. d5 - Rxg3, 16.
hxg3 — exd5, 17. Rxd5 — Bxd5,
18. Dxd5 - Rc5, 19. Df5 - Dd7,
20. Dh5 - Bf6, 21. a5 - Da7? -
22. b4 — Rd7, 23. Hfdl og hvítur
stendur betur (Romanishin —
van der Wiel, Sarajevo 1984).
10. — c5, 11. Hfdl —
önnur Ieið er hér 11. Hcl —
Hc8, 12. Bg3 cxd4, 13. exd4 —
dxc4, 14. Bxc4 með þægilegra
tafli fyrir hvít (Karpov — Gell-
er, 1981).
II. — Re4, 12. Bg3 — cxd4, 13.
exd4 —
Til greina kemur hér 13. Rxd4,
og eftir 13. — Rxg3, 14. hxg3 —
Re5, 15. cxdö — Rxd3, 16. Dxd3
- Bxd5,17. De2 — Dc8,18. Rxd5
- exd5, 19. Df3 - Db7, 20. Rf5
nær hvítur betra tafli.
13. — Rg3, 14. hxg3 — Rf6, 15.
Re5 — a6, 16. cxd5 — Rxd5!
Margeir verður að leika þenn-
an leik, því eftir 16. — exd5 hef-
ur hann ekkert mótspil, en hvit-
ur getur leikið f3 og g4 eða Df3-
f5.
17. De4 — f5
Auðvitað ekki 17. — g6, 18.
Rxg6! og hvítur vinnur.
18. De2 — Bf6
Svartur hefur nú veikt peð á
e6, en hvítur á d4.
19. a4! —
Norðmaðurinn kemur í veg
fyrir að Margeir geti leikið b6-
b5, og bindur þannig svart við að
valda peðið á a6.
19. — He8, 20. Bc4 — Dd6
Ef svartur reynir að valda
peðið á a6 með 20. — Rb4 gæti
Rg6-f4 orðið honum erfitt.
21. RI3 —
Norðmaðurinn teflir fyrir ör-
yggið, enda dugar honum jafn-
tefli i einvíginu til að komast á
millisvæðamót.
21. — Rc7
Mörgum áhorfendum fannst
þetta óvirkur leikur hjá Mar-
geiri, en með honum valdar hann
báða veikleika sina, peðið á a6 og
e6 og hótunin — Bxf3 gæti vofað
yfir hvít.
22. Hd2 —
Hvassara hefði verið að leika
hér 22. Hd3 til að eiga möguleik-
ann Hd3-e3 síðar.
22. — Kh7, 23. Hadl — He7, 24.
Re5 — Hd8, 25. Kh2 —
Tímahrakið er nú komið til
sögunnar, og Agdestein tekur
því enga áhættu.
25. — Db4!?
Margeir hefði nú getað leyst
taflið upp með 25. — Bxe5, 26.
dxe5 — Dc6, 27. f3 — Hed7 og
jafntefli virðist líkleg úrslit.
26. f4 - g6
Bjartsýnir áhorfendur stungu
upp á 26. — g5!?, en eftir 27. g4!
opnast taflið hviti i hag.
27. Ba2 —
Eftir 27. g4 — Bxe5, 28. Dxe5
(28. dxe5 — Dxf4) — Rd5 er ekki
að sjá að hvítur komist neitt
áfram.
27. — b5, 28. axb5 — Rxb5!?
abcdafqh
Öruggara hefði verið 28. —
axb5, því nú opnast taflið Agde-
stein í hag.
29. d5! — exd5
Margeir verður að drepa þetta
peð.
30. Rxd5 — Bxd5, 31. Hxd5 —
IIxd5
Eftir 31. - Hde8, 32. Hd7 með
hótununum Rc6 og Bf7 er svart-
ur í miklum vanda.
32. Hxd5 — Rd6
Margeir var hér í miklu tíma-
hraki og missir af bestu vörn-
inni: 32. — De4! og ef 33. Dxe4 —
fxe4, 34. Bbl — Bxe5, 35. fxe5 —
e3, þarf svartur engu að kvíða.
33. Dxa6 — Re4, 34. Hdl —
í tímahrakinu missir Agde-
stein af vinningsleið: 34. Da8! t.d.
34. — Del (svartur hótar þrá-
skák með — Dxg3+, og — Del+),
35. Hd3 — Hg7 (hvað annað?
Hótunin er Dg8 mát). 36. Rf7 og
hvítur vinnur. Ekki dugar heldur
34. - Db7, 35. Df8! - Bg7 (hvað
annað?), 36. Dg8+! - Kxg8, 37.
Hd8+ - Kh7, 38. Bg8+ - Kh8,
39. Rxg6 mát. Svartur hefur
heldur ekki tíma til að leika 34.
— Bxe5 vegna 35. Hb5! með
máthótuninni Dg8.
34. — Bxe5, 35. fxe5 — Db8
Báðir keppendur voru i miklu
timahraki í þessari mjög tvísýnu
stöðu. Svartur gat ekki leikið 35.
— Rxg3? vegna 36. Bg8+! (ekki
36. Kxg3 — Dg4+ ásamt 37. —
Dxdl) 36. - Kh8 (36. - Kxg8,
37. Dxg6+ ásamt 38. Hd8+), 37.
Df6+ - Hg7, 38. Bf7 - Kh7, 39.
Bxg6+ — Hxg6, 40. Hd7 og hvítur
vinnur.
36. Dc4 — h5.
Annars vofir máthótunin á g8
alltaf yfír.
37. Hd5 — Dxb2, 38. Hb5 — Df2,
39. Dg8+ — Kh6, 40. Df8+ — Hg7
• b c d • f o h
Agdestein lék biðleik í þessari
stöðu og hlýtur að þráskáka og
taka jafntefli með 41. Dh8+ —
Hh7,42. Df8+ - Hg7 (ekki 42. -
Kg5, 43. Dd8+ - Kg4?, 44. Dh4
mát), 43. Dh8+. Svartur hótar í
stöðunni bæði — Dxg3+ og —
Del+ og — Dxa2. Biðskákin
verður tefld áfram í dag kl. 10
fyrir hádegi.