Morgunblaðið - 10.02.1985, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1985
B 3
Reglugerð um
rækju kynnt
Fiskvinnsluskólinn og Ríkismat
sjávarafurða munu á næstunni halda
sjö námskeið um mat á rækju og til
kynningar á reglugerð þar að lút-
andi. Verða fyrstu námskeiðin í
Reykjavík í upphafi næstu viku.
Morgunblaðinu hefur vegna þessa
borizt eftirfarandi fréttatilkynning
frá Ríkismati sjávarafurða:
Hinn 1. ágúst 1984 tók gildi
reglugerð um meðferð, geymslu og
vinnslu rækju um borð í veiðiskip-
um og vinnslustöðvum í landi.
Vegna mikillar aukningar í
rækjuveiðum, sérstaklega á djúp-
slóð og fjölgunar vinnslustöðva í
landi var þörfin orðin brýn á setn-
jngu reglugerðarinnar.
Fiskvinnsluskólinn og Ríkismat
sjávarafurða munu halda nokkur
námskeið til kynningar á reglu-
gerðinni svo og til að samræma
matsmenn, eftirlitsmenn og
starfsmenn rækjuvinnsla í mati
og túlkun á reglugerðinni. f fyrstu
voru áætluð þrjú námskeið fyrir
matsmenn Ríkismats sjávaraf-
urða en þegar farið var að kynna
málefnið reyndist áhugi það mikill
að nauðsynlegt reyndist að halda
að minnsta kosti sjö námskeið.
Verða þau haldin dagana 11., 12.
og 14. febrúar í Reykjavík, 19. og
20. febrúar á Akureyri og 27.
febrúar á ísafirði. Enn hefur ekki
verið ákveðið hvenær sjöunda
námskeiðið verður haldið.
Kjalarnesprófastsdæmi:
Námskeið um
fjölskylduna og
hjónabandið
Á VEGUM Kjalarnessprófastsdæm-
is verður haldið námskeið dagana
15. og 16. febrúar og 1. og 2. marz
um fjölskylduna og hjónabandið.
Námskeiðið er einkum ætlað ungu
fólki og fer það fram í safnaðarheim-
ilinu Kirkjuhvoli, Garðabæ.
Fjallað verður um eftirtalin
mál: Fjölskyldan og hjónabandið,
réttindi og skyldur hjóna og sam-
býlisfólks, foreldrar og uppeldi
barna, fjölskyldan í blíðu og
stríðu. Prófastur og aðstoðar-
prestur Garðasafnaðar hafa unnið
að undirbúningi þessa námskeiðs
nú um nokkurt skeið ásamt þeim
séra Birgi Ásgeirssyni, dr. Birni
Björnssyni og Sævari Berg Guð-
bergssyni félagsráðgjafa. Þrir þeir
síðastnefndu flytja erindi á nám-
skeiðinu en auk þeirra þau Nanna
K. Sigurðardóttir félagsráðgjafi,
Sigríður Ingvarsdóttir lögfræð-
ingur og Páll Eiríksson geðlæknir.
Allar nánari upplýsingar eru
veittar á skrifstofu prófasts og hjá
prestum Kjalarnessprófastsdæm-
is. Skráningu á námskeiðið lýkur á
miðvikudag.
Hópuppsagn-
ir kennara
í þjóðmála-
umræðu
SUNNUDAGINN 10. febrúar kl.
14.30 verður önnur þjóðmálaum-
ræða á Veitingahúsinu Gaukur á
Stöng. Umræðuefnið er „Hópupp-
sagnir kennara — hrynur mennta-
kernð?“.
Frummælendur verða Kristján
Thorlacius formaður HÍK og Inga
Jóna Þórðardóttir aðstoðarráð-
herra. Eftir framsögu þeirra
verða fyrirspurnir og umræður úr
sal.
Ný sending af fótlag'askóm ^
ur mjuku ' "
sterku anilinskinni
með ósviknum
hrágúmmísólum.
Litur: Ljósbrúnt og svart.
Nr. 35—36 ófóöraö.
Nr. 35—47 loöfóöraö.
Verö frá kr. 1.110,-
Einnig er komin nýja geröin med riflásnum.
Póstsendum
samdægurs __________ T0PP
V/SA
E
M
SKORm
VELTUSUNDI 1
21212
Egilsgötu 3. a.1»519.‘
S-L dagurinn:
Keilukeppni
Feröakynning
og glæsileg
Ferðakynning
í Austurstræti
Fyrsta keilukeppnin á íslandi
Við efnum til fyrstu opinberu keilukeppninnar á
Islandi og er öllum heimil þátttaka! Sigurlaunin
eru glæsileg:
■ 1. verölaun: 2ja vikna sæluhúsaferð til
Hollands að verðmæti 15 þús.
■ 2. verðlaun: Máltíð fyrir tvo á Sælkeranum.
■ Einnig fá þrír næstu sérstök aukaverðlaun og
allir fá veglega viðurkenningu fyrir þátttökuna.
Keppnin hefst á sunnudagsmorgun
I tilefni dagsins höfum við söluskrifstofuna,
Austurstræti 12,opna frá kl. 13-16 og höldum
óvenjulega og skemmtilega ferðakynningu.
■ Stórskemmtileg ferðagetraun. Giæsiieg
ferðaverðlaun í boði - flug til Kaupmanna-
hafnar fyrir tvo.
■ Dixie-bandið leikur hressileg lög fyrir gesti og
gangandi.
■ Trúðurinn Skralli sprellar fyrir þá yngstu.
■ Og rúsinan í pylsuendanum: Heimsdaman
Henríetta gefur holl ferðaráð og segir frá
Parísarævintýrum kvenna, en Rósamunda
sendir heim beina lýsingu á upplifun sinni á
skemmtistöðum Evrópu!
klukkan 9.30.
— Hátíð í Háskólabíói!----------------------
Húsiö opnað kl. 14.30. Dixie-bandið leikur létt lög í anddyrinu frá kl. 14.45.
Klukkan 15 hefst síðan skemmtidagskráin:
Kvikmyndasýning - stuttar og skemmtilegar
barnamyndir.
Barnagaman - fóstrunemar sjá um söng og
leiki sem allir í salnum geta tekið þátt í.
Lukkumiðar. Tveir glæsilegir ferðavinningar
- italíuferð að andvirði kr. 20 þúsund og flug
til Danmerkur að andvirði kr. 15 þúsund -
dregnir út á hátíðinni.
Stjúpsystur syngja og fara með gamanmál
eins og þeim er einum lagið.
BjÖSSÍ bolla - sá eini sanni skemmtir og
leikur við börnin.
Fjölskylduhátíö
Sunnudagurinn 10. febrúar er SL-dagurinn í ár! í tilefni af útkomu sumaráætlunar
og sumarbæklings ’85 höldum við hátíð og bjóðum öllum að vera með!
?A4?sunnuda9í
Trúðurinn Skralli sprellar í anddyrinu, í
salnum og á sviðinu og kynnir jafnframt
dagskrána.
Ferðabæklingar liggja frammi á öllum stöðunum!
Samvinnuferóir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SÍMAR 21400 & 23727
(Fréttatilkynning.)