Morgunblaðið - 10.02.1985, Síða 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRpAR 1985
íslenska sendingin á Addis Ababa-flugvelli. Gunnlaugur Stefánsson
starfsmadur Hjálparstofnunar kirkjunnar lóðsar kassa til burðarkarla.
brúðkaup. Gestirnir eru að tfnast
að hótelinu en fæstir komu inn
fyrr en brúðhjónin bar að í glæsi-
vagni: brúðurin í hvítu og dró á
eftir sér slörið, brúðguminn í
dökkum jakkafötum, bæði bráð-
myndarleg. Á undan gekk einn og
lék á eins strengs fiðlu með geita-
skinnsbelg. Gestirnir koma á eftir,
allir prúðbúnir á vestrænan mæli-
kvarða, og klappa með sama takti
konurnar við strákofana áður.
meðan geisar annars konar fjör
í búnabettuaragrúanum skammt
frá hótelinu og glæsigarði þess.
Vegna brúðkaupsins hafa pant-
anir okkar skyndilega gufað upp
en hótelstjórinn er mjög lipur
maður, lætur flytja stóla burtu úr
biðstofu sinni og þar sofum við á
gólfinu. Enginn segist hafa sofið
dúr en allir hafa heyrt alla hina
hrjóta.
I Dessie eru höfuðstöðvar björg-
unarstarfsins í Wollo-héraði. Einn
yfirmanna hjálparstarfs Lúth-
erska heimssambandsins (LWF)
þar er geðþekkur Eþfópi, Kebete
Haile að nafni. Við förum með
honum í birgðageymslu, þar sem
vörubílar biðu í röðum, flestir
hlaðnir amerískri matarolíu (sem
kemur sér vel á þessum slóðum).
Inni í allstórri skemmu hefur ver-
ið hlaðið upp matarolíukössum f
þúsundavfs. „Það berst nógur mat-
ur,“ segir hann, „vandinn er að
koma fyrir birgðum og eins að ko-
ma birgðum frá okkur aftur. Við
höfum ekki nema sex vörubfla til
þessara flutninga í öllu fylkinu."
Beðiö eftir Stóru
rigningunni
Kebete Haile rennir í gegnum
nokkrar staðreyndir með okkur:
Lútherska heimssambandið rekur
fæðudreifingarstöðvar, Rauði
krossinn og innlenda hjálpar-
stofnunin (RRC eða Relief and Re-
habilitation Commission, sem
heyrir beint undir ráðherra) eru
jafnframt með sjúkraskýli. LWF í
Wollo hefur reynt að einbeita sér
að börnunum, 2000 börn fá að
borða daglega í Wichale, 2000 f
Mersa, 500 í Worgesa, þar sem ís-
lensku hjálparliðarnir verða. Af
liðlega 3,5 milljón fbúum í Wollo
hafa ekki færri en 2 milljónir orð-
ið fyrir skakkaföllum af völdum
þurrkanna, margir mjög alvarleg-
um. Tíu af tólf sýslum í Wollo eru
þurrkasvæði og þar eru stærstu
búðirnar í landinu sjálfu — 25
þúsund manns halda til f Bati-
búðunum austan við Dessie. Hátt í
hundrað kílómetra norðan við
Dessie og Worgesa eru Korem-
búðirnar með sína fjörutíu þúsund
íbúa. Maður sér fyrir sér alla íbúa
Reykjavíkursvæðisins saman-
komna f Kópavogi að leita að mat.
„Vonin í dag er að Stóra rign-
ingin komi i júnf, júlf og ágúst,“
segir Kebete Haile. „Þá má búast
við uppskeru í október eða nóv-
ember. Þangað til verður ekkert
fyrir þetta fólk að hafa nema
utanaðkomandi hjálp. Sem stend-
ur berst nægur matur til landsins
en hvað það verður lengi veit eng-
inn. Nema Guð. Við ætlum að hver
fimm manna fjölskylda þurfi 50
kíló af korni mánaðarlega en höf-
um þurft að fara allt niður í 15
kfló mánaðarlega. Nú vitum við
ekki betur en að allir fái mat sem
þurfa hann.“
f Worgesa, skammt norðan við
Dessie, tekur Hjálparstofnun
kirkjunnar þátt í að byggja upp
aðstöðu til hjálparstarfs. Eftir að
fara niður í gegnum bæjarslömm-
ið f fylgd vopnaðs unglings er
komið inn á heimavistarlóð, þar
sem hópur barna situr og borðar
einhverskonar graut úr útlendu
mjöli af bláum plastdiskum. Flest
eru svei mér sællegri en krakkarn-
ir utan við búðirnar — þau fá
næringarefnaríkan mat tvisvar á
dag. Þau búa f kringum Worgesa
og ganga heim á milli mála. Þetta
eru lítil krfli mest og horfa stór-
eyg á þessa menn. „Finnst þeim
þetta gott?“ spyr ég nærstaddan
ungling. „Yes, like very very fine.“
Venjulegur matur þessara
barna er hveitibrauð og korn-
grautar af ýmsu tagi, sorghum,
marsillakorn. En kannski gleym-
ist hvað er venjulegur matur —
það eru rúm þrjú ár síðan rignt
hefur að gagni í þessari sveit.
Tunglið á hvolfi
beint fyrir ofan
Landið vaknar upp úr fimm. Þá
er lika aflétt útgöngubanninu, sem
er í gildi um allt land nema í hafn-
arborginni Massawa. Hanar gala,
geitur jarma, fólkið fer að fara um
vegina með asna sína og byrðar,
rjúka fer upp um kofaþökin
(strompar eru óþarfur möguleiki)
og krakkarnir byrja að skrfkja.
Fyrsta morgunskfman er seiðandi
og falleg en ljósaskiptin að kvöldi
eru dulúðleg; himinninn skiptir
litum og verður gullinn rétt áður
en myrkrið dettur skyndilega á,
umferðin um vegina minnkar,
karlar og börn reka kýrnar og
Bibliukindurnar heim á leið, fólkið
sest vafið í hvítt út undir vegg eða
við vegarbrúnina. Dýrin ganga um
inn á milli fólksins og enn fær allt
á sig óraunverulegan blæ — það er
í mesta lagi að maður hafi séð
eitthvað þessu Ifkt f fantagóðum
fræðslumyndum um Afrfku. Samt
sýna myndirnar ekki nema örlftið
brot af því hvernig þetta fallega
land býr sig undir nóttina, hvernig
stjörnurnar kvikna ein af annarri
og hvernig hásléttutunglið glóir á
hvolfi beint fyrir ofan bílþakið.
1 Addis er haldinn fundur ís-
lenska hjálparfólksins og sænsku
trúboðshjónanna Ericson. Hann
er yfirmaður Lúthersku kirkjunn-
ar í Dessie og nágrenni, bæði hafa
verið um árabil í landinu og gjör-
þekkja það. Þau hjónin fara yfir
helstu atriðin í væntanlegu starfi
íslendinganna: þau sex dreifa
kröftum sínum á þrjár stöðvar í
Wollo, þangað sem sækja 25—30
þúsund fjölskyldur, 150—180 þús-
und manns. Hjúkrunarfræðingun-
um er ætlað að aðstoða við sjúkra-
hjálp, stjórna henni og annast
greiningar á þeim verst höldnu.
Strákarnir eiga að byggja upp
búðirnar í Worgesa, reisa skemm-
ur þar sem leyfi fæst til, dreifa
sáðkorni sem útvegað hefur verið,
aðstoða John Ericson á alla lund.
Þegar hann segir frá kólerufar-
aldrinum og að frést hafi af skær-
um stjórnarhersins og uppreisn-
armanna skammt norðan við
Worgesa kinka fslendingarnir al-
varlega kolli. Þau hugsa sitt en
segja fátt.
Ericson hlustar kurteislega á
spurningar og frásagnir hinna
nýkomnu og minnir á að tveggja
daga rigning geti breytt ýmsu um
lit á landinu: „Ástandið er best
meðfram veginum sem þið ókuð.
Út frá honum, bæði í austur og
vestur, er ástandið miklu verra og
versnar eftir því sem norðar dreg-
ur. Ekki gleyma, að þar er hernað-
arástand."
Við horfum á einn þátt þess
milli Dessie og Addis, nálægt stað
sem heitir Kombolcha. Þangað
streyma vörubílarnir norðan að,
hlaðnir fólki sem ætlað er að setj-
ast að annars staðar í landinu. Á
tíu mínútum mættum við tíu stór-
um flutningabílum, sumum með
tengivagna. Ekki færri en þúsund
manns voru á þessum bílum. Þús-
und harmsögur. Þúsund færri
stuðningsmenn frelsisfylkinganna
í Tigre og Wollo.
NÚ ER TÆKIFÆRIÐ (JTSALA
að fá sér skápa fyrir gott verð. / SELKO SKÁPAR
Við seljum næstu daga útlitsgallaða
skápa og stakar skáphurðir á stórlækk-
uðu verði.
Hurðirnar eru tilvaldar á innréttingar.
SELKD
SIGURÐUR
ELÍASSON hf.
Auöbrekku 1-3Kópavogi, s:41380
RAFIÐJANsf. IGNIS-umboðiö
Ármúla 8
108 Reykjavík.
Sími 91-19294.
Kr. 11.700 Kr. ia530 Kr. 10.716 Kr. 14905 Kr. 13270 Kr. 13^05 Kr. 15.105 Kr. 1&140 Kr. 1^800