Morgunblaðið - 10.02.1985, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 10.02.1985, Qupperneq 18
18 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1985 Kapphlaupið á Suðurskautið um tókst að bjarga öllum sínum mönnum eftir að skip þeirra var molað af ísnum. Hann var af millistéttarfóiki og fór ungur í kaupskipaflotann en ekki í flotann eins og Scott. Síðan gerðust tveir afdrifaríkir atburðir í lífi hans, hann fór sem stýrimaður með Scott til Suðurskautssvæðisins 1901 og giftist dóttur auðugs lög- fræðings. Það fyrra kom honum í kynni við heimskautasvæðin sem tóku hug hans og hið síðarnefnda jók löngun hans til að auðgast til að geta veitt konu sinni það sem hún var vön og þetta tvennt varð fljótt samtengt í vitund hans. Hann trúði því að tækist honum einhver frábær dirfskudáð sem heillaði heiminn, þá mundi það um leið opna honum leið til frægð- ar og um leið fjár. En jafnframt þarfnaðist hann þeirrar miklu ögrunar sem heimskautaferðirnar buðu upp á og viðnám kröftum sínum. Helförin heim Þegar árið 1912 gekk í garð var Scott við fjórða mann á leið yfir ísbreiðuna í átt til Suðurskauts- ins. 10. janúar skrifaði hann í dagbók sína: „Það reyndist okkur erfitt að komast tíu mílur á dag, hvað þá meira, en takist okkur það enn í fjóra daga, þá ættum við að vera sloppnir." Síðan bætir hann við: „Okkur ætti að takast þetta, en færðin er skelfileg!“ En áfallið beið þeirra. Þiðjudaginn 16. janú- ar skrifar hann: „Það versta sem okkur gat hent eða hér ufn bil það versta hefur nú dunið yfir ... Þeg- ar við höfðum gengið á annan klukkutíma sá Bowers það sem hann taldi vera vörðu. Hann var þó ekki viss og hélt að þetta væri íshryggur ... Við héldum göng- unni áfram og sá hann þá að þetta var dökkur fáni bundinn við sleða- meið. Norðmennirnir höfðu orðið á undan okkur og hafa þvi orðið fyrstir á Suðurskautið. Þetta eru okkur hræðileg vonbrigði og það tekur mig mjög sárt vegna minna tryggu félaga. Allar okkur draumaborgir eru hrundar. Heim- förin verður erfið.“ Og dagbókar- færslan heldur áfram: „Þetta hef- ur verið hræðilegur dagur. Það er skelfilegt að hafa brotist hingað með þessum harmkvælum án þess svo að verða fyrstir. Nú er ekki annað eftir en heimförin og að reyna að koma fréttum fyrst á framfæri. Ég er í vafa um að okkur takist það.“ Gremja Scotts í garð Norðmannsins braust út í færslu 18. febrúar: „Ég tel það auðsætt að þeir hafi miðað að því að komast hingað fyrir þann dag er haft var eftir mér í Lundúnum að ég teldi heppilegastan, eða 22. desember." Nú hafði þessi skelfi- lega þrekraun er enginn virtist geta gengið undir nema hljóta ríkulega umbun fyrir reynst unnin fyrir gýg. Á heimleiðinni sýndu þeir þrákelknislega seiglu á fyrstu dögununi þótt engin ævintýri biðu þeirra. Þeir héldu undan vindi, stundum drógu þeir upp segl til að létta sér sleðadráttinn. En þetta átti eftir að versna og það dregur af þeim, einkum Oates sem tefur fyrir þeim. Að morgni 15. mars hafði Oates sagt þeim að hann gæti ekki farið lengra og beðið þá að skilja sig eftir í svefnpokanum, en þeir vildu ekki yfirgefa hann og hann var enn með þeim er þeir slógu upp tjöldum. Scott skrifar daginn eft- ir „Við getum borið vitni hugrekki hans. Hann hefur liðið skelfilegar þjáningar vikum saman án þess að kvarta ... Hann gaf ekki upp - og vildi ekki gefa upp alla von fyrr en í fulla hnefana. Hann var ótta- laus. En nú var komið að endalok- unum. Hann svaf í fyrrinótt og vonaði að hann vaknaði ekki aftur. En hann vaknaði um morguninn í gær. Það var blindhríð. Hann sagði: „Ég ætla að bregða mér út og verð kannski smástund." Hann gekk út í hríðina og við höfum ekki séð hann síðan." Og síðar bætir hann við: „Við vonum allir að við getum horfst jafnæðrulaus- ir í augu við dauðann og vissulega er hann ekki langt undan.“ Það reyndist rétt. 19. mars skrifar Scott: „Við eigum mat til tveggja daga en varla eins dags olíu.“ Hann talar um kal á fæti: „Ég slepp aldrei við að láta taka af mér fótinn ef ekki bíður mín ann- að verra.“ Þeir telja að þeir eigi 16 mílur ófarnar að vistunum, en enn er 40 stiga frost á Celsius og stórmurinn stendur beint í fangið. Þennan eftirmiðdag leggja þeir þó að baki 5 mílur. En nú er stórhríð Oats bar mikla umhyggju fyrir hest- unum og reyndi á allan hátt að lina þjáningar þeirra þegar skipið valt á leiðinni. Hann fórnaði lífi sínu og gekk út í hríðina til að reyna að bjarga félögum sínum þegar hann var búinn að vera og orðinn til traf- ala á leiðinni með Scott frá Suður- skautinu. Til Kathleenar eiginkonu sinnar skrifaði Scott eitt siðasta bréfið, þegar félagar hans lágu látnir við hlið hans og líf hans var að fjara út í tjaldinu í ísnum. Þar talar hann um son þeirra, sem var náttúrufræðingurinn Peter ScotL Hér er Kathleen, sem var myndhöggvari, með syni sínum. Scott skrifaði deyjandi í tjaldi sfnu huggunarbréf til ættingja mannanna sem lágu við hlið hans látnir, bréf til ekkju sinnar, til þeirra sem stutt höfðu leiðangurinn og opið bréf til almennings. Hér er sýnishorn af síð- ustu færsíu hans sem endar á: „í guðanna bænum hjálpið fólkinu okkar“. og 23. mars stendur: „Sama stórhríðin — á morgun verða síð- ustu forvöð — engin olía eftir og matur til eins eða tveggja daga. Nú dregur að endalokunum. Höf- um ákveðið að flýta ekki fyrir þeim — við munum halda áfram ferð okkar þar til yfir lýkur með útbúnað okkar eða án hans í átt að birgðastöðinni.“ Síðan verður hlé á innfærslum í sex daga, meðan stórhríðin geisaði og líf þeirra fjaraði út dag frá degi. Þessa daga börðust þeir að vísu ekki gegn fár- viðrinu, þeir urðu að halda kyrru fyrir í tjaldinu og finna þrótt sinn dvína með hverri stundinni er leið. Hefðu þeir árið áður getað sett birðastöðina þar sem þeir ætluðu, eða 20 mílum sunnar, þá hefðu þeir nú verið komnir að henni. Scott skrifar í dagbókina: „Frá 21. hefir geisað stöðugt illviðri af VSV og SV. Við áttum olíu til að hita okkur tvo bolla af tei á mann og tæplega tveggja daga matarskammt hinn 20. Ahverjum degi höfum við beðið færis að komast þessar 11 mílur sem eftir eru, en fyrir utan tjaldskörina er iðulaus stórhrið. Ég held nú að öll von sé úti. Við munum ekki láta bugast, en við erum að verða máttfarnir að sjálfsögðu, endalok- in geta ekki verið langt undan. Mér þykir það leitt, en ég held að ég geti ekki skrifað meira.“ Og síð- asta færslan: „I guðanna bænum hjálpið aðstandendum okkar.“ Síðustu orðin eru rituð skjálfandi hendi, en stafirnir þó greinilegir og orðin læsileg. Scott hefur dáið síðastur. Hann skrifar kveðjubréf sín full af umhyggju en þó æðru- laus þótt þeir séu orðnir máttfarn- ir og matarlausir og helkuldinn hafi þá í greip sinni. Hann skrifar konu Wilsons félaga síns huggun- arbréf og segir að hann hafi dáið eins og hann lifði sem sannur maður. Móður Bowers skrifar hann líka og segir að eftir því sem syrti í álinn hafi hann sýnt meira hugrekki og æðruleysi, hann skrif- ar vini sínum J.M. Barrie sem er áhrifamaður og biður hann um að stuðla að því að ekkjur þeirra fé- laga og börn hljóti bætur eftir þá: „Það kann að vera að ég hafi ekki reynst mikill landkönnuður," skrifaði hann, „en meiri göngu hafa engir farið en við og mjög litlu munaði að tilgangi hennar yrði náð.“ Hann skrifaði þeim sem höfðu styrkt leiðangurinn og valið hann til foringja fyrir honum, út- gefanda sínum og gömlum félög- um úr sjóhernum. Og að lokum bréf sem erfiðast hefur verið að skrifa, bréfin til Kathleenar og móður hans. Huggaði þá síðar- nefndu eins og hann gat. Til ekkju minnar er utanáskriftin á bréfi Kathleenar, sem hann fullvissar um að hann hafi ekki liðiö neinar þjáningar, biður hana fyrir dreng- inn þeirra, hvetur hana til að gift- ast á ný „þegar rétti maðurinn verður á vegi þínum til að verða þér stoð í lífinu“ og hann segir „þú veist að það sem mér þykir erfið- ast er að ég fæ ekki að sjá þig aftur.“ Loks skrifar hann „opið bréf til almennings" er hefst á þessum orðum: „Orsaka ófaranna er ekki að leita i skipulagsleysi, heldur þeirri ógæfu er elti okkur í hvert sinn er áhættu þurfti að taka.“ Hann getur um tap hest- anna, illviðrið og lausamjöllina neðst á skriðjöklinum og segir: „Ég held að engir dauðlegir menn hafi lifað slíkan mánuð sem við.“ Hann segist ekki sjá eftir að hafa Matarekammtur handa einum manni i sleðaferð í leiðangri Scotts. farið þessa ferð, „sem hefur sann- að það að Englendingar geta þolað harðrétti, sýnt samhjálp og horfst í augu við dauðann af sömu hreysti og áður fyrr. Við lögðum okkur í hættu, við vissum að hjá því yrði ekki komist; við höfum orðið fyrir óhöppum, en við höfum enga ástæðu til að kvarta... Þessi slitróttu skrif og lik okkar munu segja söguna, en vissulega mun rík þjóð sem okkar sjá svo um að að- standendur okkar komist ekki á vonarvöl." Það var 12. nóvember að leitarflokkur á hundasleða kom að tjaldinu þar sem þeir lágu látn- ir. Hundarnir skiptu sköpum En hvernig leit málið út frá sjónarhóli Amundsens? Hann kryfur i bók sinni „Sókn mín til heimskautanna" ástæðurnar fyrir þvi að hans leiðangur kom heilu og höldnu úr sinni hættuför á Suður- skautið, en Scott og felagar hans hlutu dapurleg skapadægur. Eftir að hafa borið af sér þann áburð, að hann hafi komið óheiðarlega fram við Scott sem keppinautur með því að leyna hann þvi að hann ætlaði að stofna til kapphlaups milli leiðangra þeirra og sýna að Scott hafi vitað um fyrirætlun hans eftir að hann fór frá Ástralíu og meðan þeir höfðu vetursetu suður á jöklinum, þá segir hann: „Öll reynsla mfn sem heimskauta- fari hefur sannfært mig um að hundar séu einu dráttardýrin sem nothæf eru á snjó og ís. Þeir eru fljótir á fæti, sterkir og vitrir og komast allar þær leiðir sem færar eru mönnum. En Scott hafði með sér vélsleða sem þegar í stað reyndust ónothæfir á fsnum og snjónum. Hann hafði Iika með sér k-J t'iX' ^ wl' í*v , v | Uv X*-i**~~ I, .> UZ ft/ Cj *—^ ■> rj *ýijr

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.