Morgunblaðið - 10.02.1985, Qupperneq 20
20 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1985
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
Hrogn
Aþessum árstíma eru hrogn í hverri fiskbúð, en
þau eru fáanleg frá janúarlokum og fram til
miðs marsmánaðar. Þá fer þorskurinn að
hrygna. Þessi tími er tilhlökkunarefni þeirra
sem unna tilbreytni í matargerð. Eitt sinn kom lítill
sonur minn hlaupandi inn með öndina í hálsinum og
hrópaði: „Mamma, það fæst þetta appelsínugula, sem
mér finnst svo gott.“ Já, gefið börnunum hrogn, þeim
finnst þau góð og gefið þeim lifur og nýja soðna ýsu eða
þorsk með. Ýsan og þorskurinn eru einmitt feitustu og
best skömmu fyrir hrygningu. Ýsuhrognin eru yfirleitt
ekki borðuð svo nokkru nemi, heldur eru það þorsk-
hrognin sem við kaupum í fiskbúðum.
Matreiða má hrogn á ýmsa
vegu. Heimsfrægur er réttur
Grikkja: „Taramosalata", sem er
búinn til úr reyktum hrognum.
Þeir sem eiga reykgrill, geta
auðveldlega reykt hrogn, en
hægt er að reykja hrogn í köku-
kassa með götum, ef grind er
sett á botninn og sag eða trjá-
flögur settar undir grindina.
Kassinn er síðan settur ofan á
gastæki. Sérstakt sag fæst í
þeim verslunum sem selja
reykgrill. Gott er að reykja mik-
ið af hrognum í einu, sjóða síðan
og frysta til síðari nota. Hrognin
gegnsoðna ekki f reyknum, og
því þarf að sjóða þau eftir reyk-
ingu. Þótt Grikkir noti reykt
hrogn í „Taramosalata" er það
ekki nauðsynlegt, ef í réttinn er
bætt einhverju góðu kryddi í
staðinn. Hér gef ég uppskrift af
„Taramosalata", sem ég ætla
sem ídýfu. Einnig er hér upp-
skrift af soðnum hrognum með
lifur eins og við þekkjum þau
best, ýsuflaki með hrognaþaki,
sem er mjög góður réttur og
hægt er að nota leifar af hrogn-
um í. Til gamans er hér upp-
skrift af færeyskum „rognadrýl-
um“ (hrognabollum) með mikilli
tólg. Færeyingar setja sykur eða
sýróp út á drýlurnar og setja
jafnvel rúsínur út í þær. Eg
kann ekki slíkt að meta. Hins
vegar eru þessar bollur góðar
með hvers kyns grænmeti og
kartöflum.
Hrognaídýfa
(Taramosalata)
250 g reykt hrogn
2 stórar skorpulausar fransk-
brauðsneiðar
'h dl mjólk
1 bikar jógúrt án bragðefna
1 stór hvítlauksgeiri
safi úr 1 sítrónu
'/« tsk salt
'/« tsk pipar
5 dropar tabaskósósa
væn grein fersk steinselja eða 1
msk þurrkuð
1. Reykið hrognin og sjóðið eins
og segir hér á undan. Takið siðan
himnuna af þeim. Kælið. Setjið í
hrærivél eða blandara.
||||!!
HIÍ! Rji
L Jii w ji i
M
2. Rífið franskbrauðið út 1
mjólkina. Látið standa í 10 mín-
útur, vindið þá eins mikinn
vökva úr brauðinu eins og hægt
er og setjið brauðið saman við
hrognin.
3. Merjið hvítlauksgeirann og
setjið saman við hrognin og
brauðið
4. Hrærið þetta vel saman, setjið
síðan jógúrtið smám saman út í
og hrærið vel á milli.
5. Kreistið safann úr sítrónunni
og hrærið vel út í.
6. Setjið salt, pipar og tabaskó-
sósu út í.
7. Setjið ídýfuna i skál, leggið
plastfilmu yfir skálina. Geymið í
kæliskáp í 3—4 klst.
8. Klippið steinseljuna og setjið
út í og berið fram. Meðlæti:
Smákex eða snack-ólífur jafnvel
hrátt grænmeti svo sem gúrku-
stafir, tómatbátar, selleri-
stönglar, radísur og gulrætur.
Soðin hrogn
Handa 4
1 meðalstór hrognabrók u.þ.b.
750 g
1 'h msk. gróft salt
5 dl vatn
5 dl mysa
1. Sjóðið saman vatn, mysu og
salt.
2. Þvoið hrognabrókina, látið
hana í grisju eða plastpoka sem
þolir suðu (það þurfa að vera göt
á honum) Nauðsynlegt er að
vefja utan um hrognin eða setja
þau í poka til þess að þau springi
síður.
3. Setjið hrognin í pottinn og lát-
ið vera við suðumark í 30 mínút-
ur. Hrogn þurfa langa suðu.
4. Takið hrognin upp úr pottin-
um. Takið himnuna af þeim
meðan þau eru heit og skerið í
sneiðar og berið fram.
Soöin lifur
1 meðalstór lifur
2 tsk salt
14 lítri vatn
1. Hitið vatn og salt.
2. Skolið lifrina vel, skerið úr
alla bletti og orma ef einhverjir
eru í henni. Sjóðið síðan í salt-
vatninu í 10 mínútur.
Athugið: Margir sjóða lifrina
með hrognunum, en gætið þess
að hún þarf mun styttri suðu-
tíma en hrognin. Einnig sjóða
margir ýsu með, en hún þarf
einnig styttri suðutíma en
hrognin.
Ýsubakstur meö hrognaþaki
Handa 5
1 ýsuflak, u.þ.b. 400 g
1 tsk. salt
'/4 tsk pipar
safi úr 'k sítrónu til að hella yfir
fiskinn
1 msk. matarolía
1 msk. hveiti
1 meðalstór laukur
3 msk. rjómaostur
2 tsk. sítrónusafi
'h meðalstór soðin hrognabrók
2 egg
væn grein fersk steinselja eða 2
tsk. þurrkuð
'h dl rifinn ostur
2 msk. rasp
1. Roðdragið flakið, skerið úr því
beinagarðinn, skolið og þerrið
með eldhúspappír. Leggið flakið
á eldfast fat.
2. Stráið salti og pipar yfir flak-
ið, hellið síðan sítrónusafa yfir
það. Látið það bíða í 10—12 mín-
útur.
3. Afhýðið og saxið laukinn,
sjóðið hann síðan í olíunni við
hægan hita í 10 mínútur.
4. Hrærið hveiti út í laukinn,
setjið síðan sítrónusafa og
rjómaost út í. Skerið hrognin
smátt og hrærið út í.
5. Takið hræruna af hitanum og
hrærið eggin út í.
6. Smyrjið hrærunni yfir fiskinn,
stráið síðan steinselju yfir.
7. Rífið ostinn, blandið raspi
saman við hann og stráið yfir.
8. Hitið bakarofn í 180°C og bak-
ið þetta í 20—30 mínútur. Með-
læti: Soðnar kartöflur og sítr-
ónu- og tómatbátar.
Færeyskar rognadrýlur
(hrognabollur)
Handa 4
1 hrognabrók, u.þ.b. 750 g
400 g hveiti
1 'h tsk salt
1 'h tsk. lyftduft
'A tsk. pipar
lOOgtólg
2 lítrar saltvatn til að sjóða í
1. Takið hrognin úr himnunni og
setjið í hrærivélarskál.
2. Skerið tólgina smátt og setjiö
saman við hrognin.
3. Setjið hveiti, salt, lyftiduft og
pipar saman við.
Hrærið vel saman.
4. Setjið vatn ásamt salti í pott.
Látið sjóða.
5. Bleytið hendurnar og mótið
stórar bollur með þeim.
Setjið síðan bollurnar út í vatnið
og sjóðið við hægan hita í 30
mínútur.
6. Skerið drýlurnar í sneiðar.
Þær eru mjög þéttar og ekki
ólíkar brauði.
Meðlæti: Soðnar kartöflur með
klipptum frystum eða þurrkuð-
um graslauk, rófur, gulrætur,
blaðlaukur, hvítkál og brætt og
kalt smjör.
Póstverslunirt Príma pósthólf 63, 222 Hafnarfjördur Pöntunarsími 91-651414 (allan sólarhringinn)
Otrúlega lágt verð á þessum handklæðum
Aðeins kr. 1.150.-
20 stk. í setti
2 mynstruð baðhandklæöi 56x112 sm
2 einlit baöhandklæöi 56x112 sm
2 mynstruð baöhandklæöi 38x64 sm
2 einlit baöhandklæöi 38x64 sm +
4 stk. mynstruö gestahandklæöi
4 stk. mynstraöir þvottapokar
30x30 sm
4 stk. einlitir þvottapokar 30x30 sm
Badhandklæði — 20 stk. í setti
MEIRIHÁTTAR TILBOÐ
MEDAN BIRGÐIR ENDAST
Vinsamlegast sendió mér eftirfarandi:
Heimili___________________________
Póstnr./staður____________________
Sendist til:
Póstverslunin Príma, pósthólf 63,
222 Hafnarfjöróur, sími 91-651414.
□ Handklœðasett kr...
□ Hjálögó greiðsla kr...
(ekkert póstburðargjald)
□ Sendist í póstkröfu
(póstkröfukostnaður
kr. 68,50