Morgunblaðið - 10.02.1985, Page 23

Morgunblaðið - 10.02.1985, Page 23
B 23 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1985 Walt Disney með Mikka mús. Ferill hans hófst árið 1939 þegar hann lagði fram 500 dollara til að stofna rafeindafyrirtæki með fé- laga sínum, William Hewlett. í dag er fyrirtæki þeirra meðal stærstu fyrirtækja heims á sviði smátölva og tölvubúnaðar, og velt- an rúmlega 180 milljarðar á ári. Packard var aðstoðarvarnarmála- ráðherra í forsetatíð Nixons og er enn stjórnarformaður fyrirtækis- ins, 72 ára gamall. An Wang An Wang fæddist í Kína fyrir 64 árum, og voru foreldrar hans miðstéttarfólk i Shanghai, þar sem Wang starfaði við samsetn- ingu útvarpstækja á árum síðari heimsstyrjaldarinnar, þar til hann fluttist til Bandaríkjanna árið 1945. Þar lauk hann doktors- prófi í eðlisfræði við Har- vard-háskóla. Eftir það fann hann upp nýja aðferð, sem notuð er við tölvugerð, og hann hefur einkarétt á. Hann stofnaði svo eigið fyrir- tæki, Wang Labs, árið 1951, og það er í dag meðal þeirra fremstu á sviði tölvuvæðingar á skrifstofum. Áætlaðar eignir hans eru um 50 milljarðar króna. Yoko Ono með sýningum Sean. skuldabréfum og öðrum verðmæt- um, sem þeir ekki hyggjast láta af hendi. Þeir hafa því ekki svo ýkja- mikið handbært fé á lausu. Stað- reyndin er sú að margir þessara. 400 auðmanna þurfa oft að leita til bankanna um lán til daglegra nota. Sumir þeirra hafa einmitt safnað auði sínum með því að velta hverri krónu fyrir sér, og halda því áfram í einkalífinu. Auk þess ætla þeir sér ekki að fylgja fordæmi þeirra fáu, sem farið hafa að bruðla með fjármunina og endað í gjaldþroti. Auk þessa er það nú einu sinni svo, að þegar komið er upp fyrir ákveðin mörk, er ekki svo ýkja margt unnt að gera við peningana. Það er aðeins unnt að aka um i einum bíl í einu, kampavínið getur orðið leiðigjarnt og heilsuspillandi til lengdar, og enginn býr nema í einu húsi, sem auk þess verður óhagkvæmt i rekstri sé það of stórt. Og þeim sem í eðli sinu er sparsamur finnst ógeðfellt að sitja uppi með einkaflugvél, sem hann svo ekki getur notað nema ef til vill einu sinni i mánuði. Þótt flestir þessara auðmanna lifi allt öðru lífi en þeir glaumgos- ar, sem mest láta á sér bera, verða þeir þó fyrir öfund annarra, sem dreymir um að komast i sömu að- stöðu. Flestir vilja því helzt láta lítið fyrir sér fara, forðast umtal í fjölmiðlum, búa afskekkt og beita fjármálaáhrifum sínum innan veggja stjórnarherbergja fyrir- tækjanna eða sjóðanna. Þeir koma ekki fram í eigin nafni, heldur nafni fyrirtækja og sjóða, og i augum utanaðkomandi eru það stjórnirnar og framkvæmdaráðin, sem taka ákvarðanirnar. Hvejrir eru þeir svo, þessir 400 mestu auðmenn Bandaríkjanna? Hér skal getið nokkurra þeirra, og þótt þeir séu ekki alveg jafn auð- ugir og Gordon Peter Getty, eiga þeir þó það sameiginlegt að ráða yfir að minnsta kosti 150 milljón- um dollara. Vasatölvur og tölvubúnaöur Eignir Davids Packard eru í dag metnar á um 67 milljarða króna. Silfurbraskarinn Nelson Bunker Hunt frá Dallas í Texas varð frægur fyrir það árið 1980 að kaupa ásamt bróður sín- um gífurlegt magn af silfri, sem svo átti að sjálfsögðu að hækka í verði og færa þeim bræðrum mik- inn hagnað. En í stað þess aö hækka, lækkaði verðið og þeir bræður urðu fyrir miklu fjár- hagslegu tapi. Engu að slður liggja helztu auðæfi fjölskyldunn- ar enn í tryggum olíufélögum og fasteignum. Nelson Bunker er í dag stjórnandi fjármagns, sem metið er á um 70—75 milljarða króna, og finnur lítið fyrir því þótt hann gefi árlega tugi milljóna króna til ýmissa kirkjusjóða og fé- laga. David Rockefeller Hann er auðugasti fulltrúi Rockefeller-ættarinnar, en rætur ættarauðsins liggja í hlutabréfum, bankastarfsemi, og fasteignum. Hann stjórnar stofnun þeirri, sem ber nafn ættarinnar, og er sonar- sonur olíuauðmannsins Johns Davidson Rockefeller, sem var stjórnandi Standard Oil. David er sennilega sá I fjölskyldunni, sem þekktastur er, en hann hefur á sfð- ari árum fengið keppinaut í frændanum Jay, sem nú er orðinn öldungadeildarþingmaður fyrir Vestur-Virginíuríki og demókrati i þokkabót, þótt Rockefellerættin sé annars þekkt fyrir eindreginn stuðning við repúblikana. Hamborgarar Joan Beverly Kroc var svo lán- söm að vera þriðja eiginkona Ray- monds Kroc þegar hann lézt á ný- liðnu ári. Það leiddi til þess að hún ræður nú yfir fjármunum, sem metnir eru á um 20 milljarða króna. Eiginmaðurinn sálugi hóf feril sinn sem sölumaður tækja til að laga mjólkurhristing, en kom fljótt auga á möguleikana sem buðust í matreiðslu hamborgara (McDonalds). Smám saman tókst honum að byggja upp mesta ham- borgaraveldi heimsins. Frúin var hinsvegar orgelleikari I veitinga- húsi þegar þau fyrst kynntust. 600 milljónir vidskiptavina H.J. Heinz Co. heldur því fram að 15% ailra íbúa heims séu I dag viðskiptavinir félagsins. Þekktast er fyrirtækið fyrir tómatsósu sína, en framleiðir auk þess mjög fjöl- breytt úrval matvöru. Henry John Heinz II er nú sá eini úr fjölskyld- unni, sem fer með stjórn fyrirtæk- isins, en sonur hans er öldunga- deildarþingmaður. Einkaeignir hans eru metnar á sem svarar 17 milljörðum króna. Marx Leonard Marx er hvorki skyldur Karli Marx, né Marx-bræðrunum, þeim Groucho, Harpo, Chico og Zeppo. Hann hefur hinsvegar auðgazt á fasteignaviðskiptum og kjörbúðum. Hann er nú áttræður að aldri, og eignir hans metnar á 11,5 milljarða króna. Ford-fjölskyldan William Clay Ford, Henry Ford II og Josephine Clay Ford eru öll barnabörn Henrys Ford, þess sem stofnaði bílasmiðjurnar. Þau þrjú eiga samtals 40% atkvæðisbærra hlutabréfa í fyrirtækinu og sam- tals eru eignir þeirra metnar á yf- ir 25 milljarða króna. Estée Lauder Nafn hennar er vel þekkt, ekki sízt meðal kvenna. Hún stofnaði snyrtivörufyrirtæki sitt árið 1946, en snyrtivörunar seljast nú fyrir meira en 25 milljarða króna ár- lega. Sjálf hefur Estée Lauder dregið sig í hlé frá stjórn félags- ins. Fyrirtækið, sem einnig selur framleiðslu sína undir nöfnunum Clinique og Aramis, er nú sameign hennar og tveggja sona hennar, Leonards og Ronalds. Áætlað er að heildareign þeirra mæðgina sé vel yfir 25 milljarða króna virði. Disney Skapari Andrésar andar lézt fyrir um 15 árum, og ríkasta skyldmenni hans er bróðursonur- inn, Roy Edward Disney, sem einnig á hagsmuna að gæta í sjón- varpsrekstri, og eru eignir hans metnar á um 8 milljarða króna. Öldungurinn á listanum Helen Clay Frick er 95 ára og elzt auðkýfinganna. Faðir hennar var Henry Clay Frick frá Pitts- burg, sem auðgaöist á koxvinnslu og var þekktur fyrir hörku i garð verkfallsmanna. Um skeið bjó Helen í nánd við fyrra heimili föð- urins í New York, þar sem nú er til húsa eitt bezta listasafn stórborg- arinnar, Frick-safnið við Central Park, en að undanförnu hefur hún nánast ekkert verið á almanna- færi. Eignir hennar nema trúlega rúmum 6 milljörðum króna. Yoko Ono Árið 1969 giftist Yoko Ono John Lennon, einum Bítlanna frægu, og sá í raun að miklu leyti um ráð- stöfun þeirra miklu fjármuna, sem streymdu inn. Þegar Lennon var myrtur árið 1980 yfirtók hún stjórn allra þeirra styrktarsjóða, sem stofnaðir höfðu verið. Hún hefur staðið fyrir og fjármagnað auglýsingaherferðir fyrir alheims- friði, en lætur annars lítið á sér bera. Þegar hún ferðast notar hún ekki eigið nafn, og þá fylgja henni jafnan lifverðir. Áætluð eign um 6 milljarðar. Coca Cola Robert Winship Woodruff, sem er nú 94 ára, er maðurinn á bak við sterka stöðu Coca Cola-fyrir- tækisins, þótt það hafi verið faðir hans, sem stofnaði félag um kaup á fyrirtækinu árið 1919. Hann stjórnar nú ýmsum sjóðum, sem ráða yfir fjármagni upp á að minnsta 15 milljarða króna, auk þess sem talið er að hann eigi sjálfur eignir að verðmæti um 10 milljarða króna. Eins og fram hefur komið hafa margir auðmannanna tekið auð- æfin í arf. Einn þeirra, sem eru á hraðri leið í áttina að sæti á stóra listanum og hefur ekkert hlotið í arf frá forfeðrum sínum, er popp- söngvarinn vinsæli Michael Jack- son, en eignir hans eru taldar nema sem svarar 2‘/i milljarði króna. Vinsælasta platan hans nefnist Thriller, og seldist í meira en 35 milljónum eintaka, en tekjur Jacksons af þeirri plötu einni eru taldar nema um 1.800 milljónum króna. (HeimiWir: Korbes og Huradaudobladet) Skýrsla um málefni aldraðra á Norðurlöndum Birt hefur verið á vegum Norður- landaráðs skýrslan „Gammal i Norden“. Er hér um að ræða fyrstu skýrsluna af þremur um víðtæka at- hugun á málefnum aldraðra á Norð- urlöndum. Skýrsluna tóku saman þeir Svein Olav Ilaatland, sem starf- ar hjá norsku öldrunarstofnuninni (NGI) og Gerdt Sundström hjá fé- lagsvísindadeild háskólans í Stokk- hólmi. Verkefni þessu var hrundið af stað á vegum Norðulandaráðs fyrir um tveimur árum og er því stjórnaó af embættismönnum í heilbrigöis- og félagsmálaráðu- neytum viðkomandi landa. I þessari skýrslu er lýst ástandi í húsnæðismálum aldraðra, fjöl- skyldugerð hjá þessum aldurshóp og þjónustu innan og utan stofn- ana. Þetta er fyrsta athugun sinn- ar tegundar á þessu sviði, þar sem gerður er samanburður á heil- brigðis- og félagslegri þjónustu fyrir aldraða á öllum Norðurlönd- um. Niðurstöður skýrslunnar sýna að talsverður munur er á öldrun- arþjónustu á Norðurlöndum. Hvað ísland varðar kemur fram að mjög skorti á allar upplýsingar um þau atriði sem athuguð voru og gerir það allan samanburð mjög erfið- an. Eintök af skýrslunni munu liggja frammi i heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu innan skamms. (Úr fréttatilkynningu.) Franskir kommunistar: Kenna sósíal- istum um ófarnað sinn St Ouen, Prnkklandi, 7. febrúnr. GEORGES Marchais, leiðtogi kommúnistaflokksins I Frakklandi. sagði í ávarpi sínu á 25. þingi flokks- ins á þriðjudag, að sósíalistar ættu höfuðsökina á hinum mikla ósigri flokksins í kosningunum í sumar sem leið. Kommúnistaflokkurinn fékk að- eins 11,2 prósent atkvæða í kosn- ingunum til Evrópuþingsins í júní, sem er lægsta atkvæðahlutfall flokksins í 43 ára sögu hans. Fylg- ismönnum kommúnistaflokksins hefur fækkað jafnt og þétt á sl. fimm árum. „Sannarlega berum við okkar hlut ábyrgðarinnar á þessum óför- um,“ sagöi Marchais í ávarpinu, „en það voru athafnir sósíalista- flokksins, sem réðu úrslitum." Kommúnistar áttu aðild aö rikis- stjórn Frakklands með sósíalist- um frá 1981 og þar til í júlí í fyrra, er þeir slitu samstarfinu vegna ágreinings um stefnu í atvinnu- og iðnaðarmálum. Á þingi franskra kommúnista, sem haldið er í borginni St. Ouen, sitja 1.722 fulltrúar. Marchais, sem er 64 ára að aldri og hefur verið formaður flokksins í 13 ár, sækist eftir endurkjöri og er búist við því að hann fái fylgi til áfram- haldandi formennsku. Þó hefur orðrómur verið á kreiki um að stofnað verði til einhvers konar „samvirkrar forystu" í flokknum og Marchais verði neyddur til að deila leiðtogastarfinu með einum eða tveimur mönnum öðrum. VZterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiöill! JRorgimhlnhiíi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.