Morgunblaðið - 10.02.1985, Side 33

Morgunblaðið - 10.02.1985, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1985 B 33 ■ FÖNG Bolli Gústqvsson menningarviðburð í bæjarlífinu. Það hlýtur að vera eitt af verkefn- um þessara blaða, að greina frá blómlegu starfi menningarstofn- ana og listviðburðum. Það vekur nauðsynlegan, almennan áhuga, ef fjallað er af skilningi um þessa mikilvægu þætti í staðbundnum fjölmiðlum. Ég veit að landshluta- útvarpið, RÚVAK, sem hér er að hefjast um næstu mánaðamót, mun hafa mikil áhrif til bóta.“ VI í framhaldi af umræðu um Tónlistarskólann vík ég talinu að listaverkakaupum Akureyrarbæj- ar og spyr Soffíu, hvort hún telji ekki tímabært, að komið verði á fót listasafni og viðunandi sýn- ingaraðstöðu. „Jú, það er auðvitað löngu tíma- bært, að Akureyri eignist lista- safn. Engum getur dulist, að vel búið safn hefur margþætt gildi, er nauðsynlegt til stuðnings Mynd- listarskólanum, og hefur ekki síð- ur uppeldisgildi fyrir grunnskóla- nemendur, auk þess sem það myndi vekja myndlistaráhuga fólks á öllum aldri, og verða til ómældrar ánægju. Það vill svo til, að ég slæddist inn í menningar- sjóðsstjórn bæjarins, sem á m.a. að annast listaverkakaup. Átti ég þar sæti í þrjú ár við litla lukku, vegna þess að ég þótti of afskipta- söm. Þetta er fjögurra mannna nefnd og forseti bæjarstjórnar er jafnan formaður. Það verður að segjast eins og er, að listaverka- kaup stjórnarinnar hafa verið harla handahófskennd. Hún hefur þó yfirleitt skoðað þær sýningar, sem hér hafa verið haldnar og æði oft keypt myndir. En það hefur ekki verið mörkuð nein ákveðin stefna, né leitað ráðgjafar list- fræðinga. Þannig á bærinn t.d. ekki heillegan þverskurð af verk- um, er gefur glögga sýn yfir það merka og gróskumikla tímabil ís- lenskrar myndlistar frá árinu 1940 til þessa dags, sem hefði þó verið mjög viðráðanlegt. Sjóður- inn fær ákveðna upphæð á ári hverju og henni á að ráðstafa til kaupa á listaverkum. Það hefur komið fyrir, að stjórnarmenn hafi fest kaup á myndum suður í Reykjavík. T.d. réðst ég í fyrir hennar hönd að kaupa málverk eftir Karl Kvaran, sem vakti að sjálfsögðu skiptar skoðanir, og Valur Arnþórsson keypti gamalt verk eftir Jón Engilberts, sem gert var upp og fengur var að. Myndum þessum hafa bæjaryfirvöld komið fyrir á ýmsum stöðum, í skólum, á skrifstofum bæjarstofnana og í Amtsbókasafninu. Haraldur Sig- urgeirsson mun hafa gert skrá yf- ir þessi verk og kann best skil á listaverkaeigninni. Þá ber þess að geta, að höggmyndir hafa ekki verið keyptar og einnig hefur listvefnaður með öllu orðið út undan. Nokkrar umræður hafa orðið um húsnæði fyrir listasafn. Helst staðnæmdust menn við íþróttaferlíkið, en komið hefur í ljós, að þar verður ekki viðunandi aðstaða. Auðvitað er til húsnæði til þess að byrja með. Ber þess að gæta, að verkin eru ekki svo mörg og alls ekki ástæða til að halda þeim öllum fram. Mér kemur fyrst í huga gamli barnaskólinn við hlið Samkomuhússins. Það er unnið að því að gera þetta merkilega hús upp og tekst með ágætum. Það er vel staðsett og gæti hæglega gegnt hlutverki listasafns fyrst um sinn. Vel mætti hugsa sér að reka það með líku sniði og Ásgrímssafn í Reykjavík, þ.e.a.S. skipta um myndir reglulega. Þá væri hægt að setja þar upp yfirlitssýningar, t.d. í samvinnu við Listasafn ís- lands eða Listasafn ASt, og eins mætti jafnframt gefa starfandi málurum kost á að sýna þar öðru hverju. Hitt er svo annað mál, að það hefur löngum þurft krafta- verkafólk eins og Ragnar í Smára eða Bjarnveigu Bjarnadóttur, til þess að leggja traustan grunn að listasöfnum með stórgjöfum. En slíkt fólk er sennilega ekki á hverju strái. Þegar ég minnist á gamla barnaskólann á Akureyri, þá kemur mér í hug Höfði, hús borgarstjórnar Reykjavíkur. Það er gamalt hús, en minnir um margt á listasafn, enda vel búið listaverkum, sem mér finnast njóta sín vel í því fallega húsi. Nú er fyllsta ástæða til að efla lista- verkasjóð og koma upp álitlegu safni, áður en verður um seinan að safna verkum frá því gróskumikla tímabili, sem ég minntist á áðan. Akureyrarbær þarf að ráða sér- menntaðan mann til þessa verk- efnis, sem yrði jafnframt for- stöðumaður Listasafns Akureyr- ar.“ VII Við höfum gert myndlistinni nokkur skil, þótt raunar sé hægt að halda lengi áfram. En áður en þessi spjalli lýkur, langar mig til þess að heyra álit Soffíu á verk- efnum úthlutunarnefndar lista- mannalauna. „Hlutskipti okkar, sem í nefnd- inni störfum, er hálf raunalegt eins og málum er nú háttað. Ekki er ég að kvarta undan samstarf- inu, því það er ágætt. Ég hefi sannfærst um það, að skipun nefndarinnar, sem er í höndum Alþingis, er sennilega besta lausn- in og hefur alls ekki bitnað á sam- starfinu. Ég held þvi hiklaust fram, að þetta sér miklu betra fyrirkomulag, heldur en að láta samtök listamanna sjá um úthlut- un. Þá færi allt i bál og brand. Auðvitað verða þeir, sem í nefnd- inni starfa að hafa nokkra innsyn í íslenska list og fylgjast með því sem er að gerast á sviðum hennar. Ég býst við að þingmenn hafi það í huga, þegar nefndin er skip- uð. Það skiptir engu máli, hvaða störf nefndarmenn hafa með höndum í þjóðfélaginu, enda koma þeir úr ýmsum áttum eins og þú veist. Ég tek sem dæmi, að mér þykir ágætt að starfa með Magn- úsi Þórðarsyni, sem veitir skrif- stofu NATO á Islandi forstöðu. Ég býst við, að pólitískar skoðanir okkar fari lítt saman, en í störfum úthlutunarnefndar þykir mér Magnús tillögugóður og réttsýnn og hann fylgist greinilega ágæt- lega með íslensku listalífi. En það raunalega við starfsaðstöðu okkar í nefndinni er, hversu litlir fjár- munir eru til skiptanna. Viðhorf listamanna til launanna eru mis- jöfn. Margir virðast líta á þau sem æskilega viðurkenningu, leggja áherslu á að fá nafn sitt á blað. Én fæstum þeirra munar um þessa hungurlús. Eins og málum er nú háttað, þykir mér hins vegar vit- urlegast að breyta listamanna- launum ! starfslaun og sameina jafnframt hina ýmsu sjóði í senn. Jafnframt yrði úthlutunarnefnd framvegis treyst til þess að skipa mönnum í heiðurslaunaflokk. Mér þykir eðlilegt, að nefndin verði skipuð með sama hætti og áður, en störf hennar verði viðameiri, krefðust lengri tíma og meiri vinnu, þegar hennar væri ætlað að bæta starfsaðstöðu íslenskra listamann, svo um munaði. Og auk þess yrði þá að leita ráðgjafar og nefndin hefði að sjálfsögðu frjáls- ar hendur um það, hvert hennar væri leitað. En það er engin glóra í þvf, að peðra þessu lítilræði, sem okkur er fengið, út um víðan völl. Ég vona sannarlega, að þess verði ekki langt að bfða, að jákvæð breyting verði á skipan þessara mála.“ Tíminn líður og skyldstörfin kalla. Ég kveð Sofffu og Jón Haf- stein. Hennar bíða verðandi tónsnillingar, en hans metnaðar- fullir, upprennandi raunvísinda- menn, er glíma við flóknar stærð- fræðiformúiur, sem mér hefur alltaf hrosið hugur við. Verzlunaraðstaða Iðnrekendur, heildsölur og verzlanir Leigjum út verzlunaraöstööu í lengri eöa skemmri tíma. Þjónusta Tökum aö okkur vörur í umboðssölu. Tölvuvædd þjónusta. Vöruloft Markaöshússins, Sigtúni 3, sími 83075. VIÐ HÖFUU TEKIÐ VIÐ UMBOÐINU <3>g£> er heimsþekktur framleiðandi hvers kyns þungavinnuvela. <$£>vélar hafa getið sér gott orð fyrir frábæra hönnun, styrk, öryggi og hagkvæmni í rekstri. Við munum kosta kapps um að veita viðskiptavinum okkar trausta og góða þjónustu i hvivetna. Vél frá <%£> er þrautseigur vinnuþjarkur. VEGHEFLAR HJÓLASKÖFLUR U4 LYFTARAR HJÓLAGRÖFUR VÉLBÖRUR HJÓLASKÓFLUR BELTAGRÖFUR J RAFM AGNSLYFT ARAR HLAÐBÆR SKEMMUVEGI 6 KÓPAVOGI, SIMAR 75722 CG 40770 o

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.