Morgunblaðið - 10.02.1985, Side 44
44 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1985
HC&AAlin
„Gottormur, ég er ekJá ab á^oko. þig, en
þab 'jontar týréipald'm."
Hvort ég get þagað yfir levndar Hér er kennslubók í spænsku fyrir
máli? l»að veit ég ekki. l*að hefur byrjendur.
aldrei reynt á það!
Lýðræðissinni spyr hvað gera þurfi til að stórnmálamönnum skiljist að
meirihluti landsmanna er hlynntur innflutningi á sterku öli.
Þesslr hringdu . . .
Verðið við vilja
meirihlutans
Lýðræðissinni hringdi:
Nú þegar umræða hefur verið
í gangi um bjórmálið og sjaldan
eða aldrei meiri, langar mig til
að spyrja stjórnvöld hvað þurfi
að gera til þess að gera þeim
grein fyrir vilja fólksins.
Nú hefur mikið verið fjallað
um bjórinn á síðum dagblaðanna
og allt meira og minna í jákvæð-
um dúr. Skoðanakannanir fram-
kvæmdar þar sem mikill meiri-
hluti þátttakenda er hlynntur
bjórnum. Hvað þarf að gera til
þess að fá ykkur alþingismenn
til að þóknast vilja meirihluta
landsmanna?
Það er ekki beðið um mikið,
eingöngu að almenningur fái að
kjósa um málið. Ég trúi því ekki
að það fari eins með bjórinn og
Keflavíkursjónvarpið, að hópur
þröngsýnna afturhaldsseggja
nái að snúa aðgerðum þvert ofan
í vilja almennings.
Góð þjónusta
Nokkrir starfsmenn skattstof-
unnar komu að máli við Velvak-
anda.
Við viljum þakka Erlendi
Valdimarssyni, eiganda Orku-
bankans, fyrir sérstaklega alúð-
legt viðmót og þægilega fram-
komu. Þá erum við öll mjög
ánægð með alla þjónustu sem
þarna er veitt og er það til mestu
fyrirmyndar hvað allt er snyrti-
legt.
Góðbók
Ólöf Ósk hringdi.
Ég vil þakka Eðvarð Ingólfs-
syni fyrir stórgóða bók, Fimm-
tán ára á föstu. Svo vil ég óska
Eðvarð góðs gengis í framtíð-
inni.
Hver þekkir
þessa bæn?
Ragnhildur Eiríksdóttir
hringdi.
Mig langar svo til að grennsl-
ast fyrir um hvort að einhver
lesandi Velvakanda getur hjálp-
að mér. Þannig er, að mig langar
svo til að læra bæn eina sem
gamall maður fór með á hverjum
morgni þar sem ég vann á
sjúkrahúsi.
Þulan byrjar svona:
í þínu nafni uppvaknaður
ertu Jesús, guð og maður.
Síðan kemur löng þakkargjörð
um hitt og þetta en þulan endar:
Lof sé þér (eða þökk sé þér)
fyrir utan enda.
Amen.
Auglýsingamar
sýndar seinna
Linda Magnúsdóttir hringdi:
Ég vil taka undir með Sigrúnu
Sigurðardóttur sem spurði í
Velvakanda 3. febrúar hvort ekki
væri eftirlit með auglýsingum
sjónvarpsins.
Það eru svo sannarlega fleiri
en hún sem hafa átt við sama
vandamál að stríða. Vil ég benda
sjónvarpinu á að börn fá yfirleitt
að horfa á fyrsta auglýsingatím-
ann eftir fréttir þannig að ef um
slíkar ógnvekjandi auglýsingar
er að ræða sem óæskilegar eru
fyrir börn, þá ætti að hafa þær
seinna í dagskránni. Það kæmi
sér ákaflega vel fyrir þá sem eru
með lítil börn.
Nöturlegt tákn um
mann fy rirlitningu
„Sóknarbarn" spyr í bréfi sínu
til Velvakanda í gær, 5.2., hvort
heimssamtök lútherskra manna
hafi mótmælt því að Friðþæg-
ingarkirkjan, sem stendur austan
við Berlínarmúrinn, hafi verið
jöfnuð við jörðu svo að flóttafólk
vestur yfir ætti þar ekki lengur
skjól. Sóknarbarn spyr ennfremur
hvort íslenska þjóðkirkjan vilji
taka frumkvæði til mótmæla í
þessu máli, ef heimssamtökin haf-
ist ekkert að.
Miðstjórn Lútherska heims-
sambandsins hefur rétt lokið ár-
legum fundi sínum í Genf og
ályktanir og ákvarðanir þess
fundar hafa ekki borist hingað
enn. Hinsvegar hafa samtökin
margsinnis og með margvíslegum
hætti fordæmt hina ómannlegu
aðskilnaðarhyggju sem kemur
- skýrast fram í byggingu Berlín-
armúrsins og Apartheidstefnu í
S-Afríku.
íslenska kirkjan hefur tekið í
sama streng. Til dæmis sagði
Biskup Íslands, herra Pétur Sigur-
geirsson, í Morgunblaðinu nýlega
(25. okt. 1984) — Sambandsleysi
milli ríkja, aðskilnaðarstefna og
innilokun eru mesta ógnun við
heimsfriðinn og allt jákvætt sam-
starf. Að því leyti er járntjaldið
svonefnda mesti Þrándur í Götu
til friðar í Evrópu.
Ég vil þakka Sóknarbarni fyrir
að vekja máls á þessum hörmu-
lega og ögrandi atburði, og kalla
fólk þannig til umhugsunar um
þessi mál.
Svipaðir atburðir eru sífellt að
gerast þótt ekki sé sagt frá þeim í
fjölmiðlum. í ýmsum löndum mú-
hameðstrúarmanna er kristinni
kirkju gert nær ókleift að starfa
opinberlega, sama má segja um
ýmis lönd Afríku og Asíu þar sem
marxísk stjórnvöld ráða ríkjum.
Kirkjan, sem er allir kristnir
menn, hlýtur að vinna með öllum
tiltækum ráðum að því að frum-
læg mannréttindi verði virt og
einstaklingurinn fái að njóta sín í
frelsi og friði hvar sem hann býr á
jörðu.
Járntjaldið svonefnt og þar með
Berlínarmúrinn er eitt nöturleg-
asta tákn þeirrar grimmdar og
mannfyrirlitningar sem víða virð-
ist hafa undirtök. Ýmsir telja að
vísu að glufur hafa komið i það
tjald við vaxandi samskipti þjóða
báðum megin þess, en atburðir
eins og sprenging Friðþægingar-
kirkjunnar vinna hins vegar í aðra
átt og benda til hugarfars sem er
manninum fjandsamlegt.
Með kærri kveðju.
Bernharður Guðmundsson
Rokk-bræður skemmti
Ragga og Jóna skrifa:
Við erum hérna tvær sem erum
fastagestir á skemmtistaðnum
Ypsilon í Kópavogi og viljum
koma á framfæri þakklæti til eig-
enda staðarins fyrir skemmtiat-
riði þau sem þar hafa verið sýnd.
Sérstaklega viljum við þakka
fyrir Rokk-bræður sem hafa sung-
ið gömlu góðu rokklögin og komið
fólkinu í gott skap. Vonum við að
eigendur staðarins fái þá til að
skemmta hjá sér aftur.