Morgunblaðið - 10.03.1985, Síða 1
112SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
58. tbl. 72. árg._______________________________ SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kampelman formaður bandarísku samninganefndarinnar í Genf:
Heitir ábyrgum og mark-
vissum samningaviðræðum
Ge«í, 9 nura. AP.
Lech Walesa:
*
„Akærurnar
brot á mann-
réttindum“
Varejá, 9. mars. AP.
LECH WALESA leidtogi Samstödu og
þrír samstarfsmonn hans mættu hjá
saksóknaranum í Gdansk í morgun
samkvæmt kvaðningu. Þeim er gefíð
að sök að hafa æst til óláta og skipu-
lagt ólöglegar mótmælaaðgerðir. Þeir
eiga ylir höfði sér allt að þriggja ára
fangelsi ef stjórnvöld kjósa að sækja
þá til saka. Kkkert lak út um hvað fór
á milli Walesa og saksóknara, en eftir
yfirheyrsluna sagði hann í áheyrn
fréttamanna, að sakargiftirnar á
hendur sér væru „rakalausar og aðfor
gegn sjálfsögðum mannréttindum".
Walesa afhenti fréttamönnum
tilkynningu frá sér og þar átaldi
hann yfirvöld fyrir að vilja ákveða
hvaða einstaklingar tækju þátt í
„opinberu lífi og hverjir ekki“, eins
og hann komst að orði. „Samstaða
er öflug og verður það svo lengi sem
allur þorri almennings í landinu
óskar eftir því. “
Valda kolin
olíulækkun?
Cinoi, 9. marz. AP.
LAttSN brezku koladeilunnar
gæti fljótlega haft nýja erfiðleika í
för með sér fyrir OPEC-ríkin, að
sögn orkuráðherra Venezúeia.
Lausn koladeilunnar þýðir að
á markað bætast kol, sem nema
jafngildi hálfrar milljónar olíu-
fata daglega. Við það myndast
spenna, sem kann að leiða til
nýrrar verðlækkunar á olíu.
Spáði ráðherrann því að
ástandið á olíumarkaðinum
mundi ekki breytast sem neinu
næmi næstu árin, og verð því
ekki hækka. Alþjóðaorkustofn-
unin spáir því að eftirspurnin
muni aukast um 300 þúsund
oliuföt á dag á þessu ári vegna
3% hagvaxtar í iðnríkjunum.
Þessi viðbót kemur ekki OPEC-
ríkjum til góða, heldur fram-
leiðendum Norðursjávarolíu og
framleiðsluríkjum utan OPEC,
að sögn orkuráðherra Venezú-
ela.
Gervihjarta-
þegi látinn
Tuc.son, Arizona, 9. mars. AP.
GERVIHJARTAÞEGINN á sjúkra
húsi háskólans í Tucson lést í nótt.
Þetta var Thomas Creighton, 33 ára
gamall vélvirki, og uppskuður hans
vakti einkum athygli fyrir það, að
gervihjartað sem notað var hafði ekki
verið samþykkt til nota í mannslík-
ama. Læknir hans, Jack Copeland,
taldi sig hins vegar tilneyddan er
gallað hjarta Creightons bilaði og
ekkert mannshjarta var til reiðu.
„Þetta var að mínu viti eina von
Creightons, við höfðum reynt
mannshjarta sem tók ekki við sér
og áttum ekkert hjarta sem við
töldum að passaði," sagði Cope-
land. Creighton lifði i 11 klukku-
stundir með gervihjartað, og fyrra
mannshjartað var grætt í hann á
fimmtudaginn. Hann lést er lækn-
ar voru að græða f hann annað
mannshjarta sem tckist hafði að
afla.
BANDARÍSKU fulltrúarnir í af-
vopnunarviðræðunum sem hefjast
á næstu dögum í Genf, komu til
svissnesku borgarinnar í dag og
nefndarformaðurinn, Max M.
Kampelman, lofaði fréttamönnum
að fram rayndu fara „ábyrgar og
markvissar" viðræður sem miðuðu
að því að ná „sanngjörnum og að-
gengilegum“ samningum. Hann
varaði þó við því, að ágreiningur
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna
væri „djúpstæður" og vart við því
að búast að samkomulag næðist á
„einni nóttu“, eins og Kampelman
komst að orði.
Bandarísku sendinefndina
skipa 80 manns sem skiptast í
þrjár nefndir, nefnd Kampel-
mans mun ræða við Sovétmenn
um varnarkerfið í geimnum gegn
kjarnorkuvopnum sem Banda-
ríkjamenn eru farnið að huga að
þrátt fyrir hávær mótmæli
Rússa. John Tower veitir for-
stöðu nefndinni sem mun fjalla
um langdrægar kjarnorkuflaug-
ar og Maynard Glitman og menn
hans munu hafa meðaldrægar
kjarnorkuflaugar á sinni könnu.
Þeir Kampelman, Tower og
Glitman voru í Washington á
föstudaginn og sátu þá lengst af
á fundi með Ronald Reagan
Bandaríkjaforseta, sem sagði
þeim m.a. að „gera allt sem í
þeirra valdi stæði til að góður
árangur næðist á þessum fund-
um með Sovétmönnum". „Við
munum kanna allar mögulegar
og ómögulegar leiðir og hlusta
þolinmóðir og jákvæðir á allt
sem Sovétmenn hafa fram að
færa. Við skiljum fullvel að sam-
komulag næst ekki með ein-
Að sögn fréttastofunnar Irna,
gætu loftárásir írana hafist „þá
og þegar“. Aðeins borgunum
Najaf, Karbala, Kazemieh og
Samerra yrði hlíft. Voru íbúar
annarra borga hvattir til að flýja
borgirnar áður en látið yrði til
skarar skríða.
stefnu annars tveggja deiluaðila.
Ég vitna í Andrei Gromyko utan-
ríkisráðherra Sovétríkjanna þeg-
ar ég segi að það ætti að vera
æðsta markmið allra að tryggja
að öllum kjarnorkuvopnum verði
komið fyrir kattarnef sem fyrst.
Þetta tökum við Bandaríkja-
menn auðvitað undir, þetta er
jafnframt okkar markmið og það
er góður grunnur til að byggja
íranir sögðu íraka hafa skotið
eldflaugum í tveimur lotum á
Dezful meðan flestir borgarbúar
sváfu. Hefðu a.m.k. 75 manns
fallið eða særst. í kjölfarið
fylgdu eldflaugaárásir á Khorr-
amabad og hefðu flestir hinna
föllnu verið konur og börn.
viðræðurnar á,“ sagði Kampel-
man.
Sovésku fulltrúarnir koma til
Genfar á morgun, sunnudag, en
talið er að viðræður þessar geti
staðið yfir næstu árin. 15 mánuð-
ir eru síðan Sovétmenn gengu út
frá slíkum viðræðum í Genf, eftir
að bandalagsríki NATO hófu að
koma fyrir meðaldrægum kjarn-
orkuflaugum í Vestur-Evrópu.
Talsmaður stjórnarandstæð-
inga í írak hélt því fram í dag, að
stjórn Saddams Hussein hefði
iátið taka af lífi 10 menn úr Al-
Hakim-fjölskyldunni, en í henni
eru margir trúarleiðtogar. Sé
þetta sannleikanum samkvæmt
hafa 29 fjölskyldumeðlimir, sem
átt hafa samstarf við stjórn
Khomeinis erkiklerks í íran, ver-
ið líflátnir frá 1974.
íranir hóta að skjóta á
flestar borgir í Irak
Nikóstu, 9. mare. AP.
íranir skýrðu frá því að írakar hefðu látið eldflaugum rigna yfir borg-
irnar Dezful og Khorramabad í morgun með þeim afleiðingum að á
fimmta hundrað manns hefðu fallið eða særst. Hétu íranir hefndum með
árás á allar borgir í írak nema fjórar, þar sem helgidóm shíta er að finna.