Morgunblaðið - 10.03.1985, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985
.... og nú tekur „listamaðurinn“ við.
Á undanförnum árum hefur Rowney skapað sér alþjóölegan orðstír fyrir frábæra
framleiöslu á vatnslitum, olíulitum, penslum og öörum fylgihlutum. — Þeir sem vilja
mála í frístundum eða hafa skapað sér sess á listmálarabrautinni verða því ekki sviknir
af Rowney merkinu.
Það er ekki bara málning á boðstólum í Málaranum við Grensásveg.Sími 83500
Breskur húmor
frá Benny Hill
Myndbönd
Árni Þórarinsson
Svo virðist sem enskt og
bandarískt sjónvarpsefni, aflóga
sem alveg nýtt, sé orðið lang-
vinsælasta efnið á myndbanda-
leigunum. Ef marka má svokall-
aða vinsældalista sem tvö dag-
blaðanna birta vikulega sækist
þjóðin mest í langhunda (seríur)
um amerískt efnafólk sem virka
samkvæmt uppskriftinni auð-
ur+völd+ástir=átök=dramatísk
spenna=framhald í næstu viku.
Þarna tróna sápuóperur eins og
Dallas, Dynasty og Falcon Crest.
Svo koma stutthundarnir (mín-
í-seríur). Þær virka samkvæmt
uppskriftinni auður+völd+ástir=-
átök=dramatísk spenna=fram-
hald á næstu einni til tveimur
spólum. í þessum flokki eru
eldhúsreyfarar og útsöluþriller-
ar eins og Mistral’s Daughter,
Master of the Game, Lace, Cele-
brity, Angelique og fleiri. Það
bætast sífellt fleiri spólur af
þessu tagi á markaðinn þessar
vikurnar, enda engin von til að
þær verði bannfærðar af siðferð-
iseftirliti kvikmynda. Margar
þeirra ætti hins vegar skynsem-
iseftirlit hvers og eins áhorfanda
að taka af sýningarskrá. Þetta er
mikið til lapþunn undanrenna í
umbúðum dýrustu eðalvína.
í þessari sókn sjónvarps-
mynda gegn bíómyndaspólum í
vinsældavalinu er ánægjuleg
undantekning frá reglunni: Það
eru spólur með samsafni atriða
úr skemmtiþáttum breska grín-
istans Benny Hill. The Benny
Ilill Show er mér vitanlega fyrsti
og eini grínþátturinn sem send-
ur hefur verið á myndbanda-
markaðinn hérlendis (reyndar
fyrir utan spólur með völdu efni
úr bandarísku Candid Camera-
þátturinn). Og þótt Benny Hill
hafi aldrei verið sýndur hér í ís-
lenska sjónvarpinu virðast
margir kannast við hann af af-
spurn því spólurnar hafa rokið
beint í fyrsta sæti listans.
Benny Hill er á margan hátt
dæmigerður breskur sjón-
varpstrúður. Þetta er feitlaginn
bangsi með breitt, tvírætt glott
og sameinar með sinni aðferð
tvær tegundir breskrar kímni,
annars vegar hinn klúra, farsa-
fengna revíuhúmor sem alþýðan
elskar úr sjónvarpi, leikhúsi og
bíómyndum eins og Áfram-
myndunum; hins vegar mennt-
aðri, fágaðri enskan orðaleikja-
húmor. Sumpart má segja að
Benny Hill takist í bestu skiss-
um sínum að lyfta neðanþind-
argríni á hærra plan. Flestar
skissurnar ganga út á bangsann
Benny á kvennafari, gjarnan
með forljótt frúarskass í eftir-
dragi en bosmamiklar ljóskur
vísa honum veginn eða leiða
hann afvega, eftir því hvernig á
það er litið. Oft og einatt er
þetta drepfyndið glens, þótt við-
fangsefnin verði heldur einhæf
til lengdar.
Spólurnar með skemmtiefni
Benny Hill eru þéttpakkaðar
með skissum og einatt kynlegum
músíkatr:ðum. Þar sem íslenska
sjónvarpinu virðist ekkert bjóð-
ast annað þessi árin af ensku
gríni en endalausar kringum-
stæðnakómedíur úr eldhúsum,
dagstofum og svefnherbergjum
hjóna eða hjónaleysa þá er vel
skiljanlegt að fólk taki þessum
skaupspólum fegins hendi. Þær
veita prýðilega afþreyingu eina
kvöldstund, en þá er rétt að
menn skoði bara eina og eina
spólu hverju sinni, því annars
fer einhæfnin að verða of áber-
andi.
Stjörnugjöf: The Benny Hill Show ick'/i
JHtfgnnfclafrib
Askriftarsíminn er 83033
NYVAHAKJÖR
fiátl.janúar
Sparisjóðsreikningar (alm.).................. 24.0%
Spariveltureikningar......................... 27.0%
Sparireikningar með 3ja mún. uppsögn........ 27.0%
Sparireikningar með 6 mán. uppsögn........... 31.5%
Innlánsskirteini 7.5% + alm. sparisjóðsvextir 31.5%
Hávaxtareikningur...................24.0% - 32.5%
(eða verðtryggður með vöxtum miðað við kjör 3ja og
6 mán. vísitölubundinna reikninga hjá bankanum).
Verðtryggðir sparíreikningar:
(sérstakar verðbætur 2.0% á mánuði)
3ja mán. binding.............................. 1.0%
6 mán. binding................................ 3.5%
Tékkareikningar:
a) ávísanareikningar....................... 19.0%
b) hlaupareikningar........................ 12.0%
Innlendir gjaldeyrísreikningar:
innst. í bandarikjadollurum................... 7.5%
innst. í sterlingspundum..................... 10.0%
? innst. í v-þýskum mörkum........................ 4.0%
innst. í dönskum krónum...................... 10.0%
24.0%
27.0%
28.82%
33.98%
33.98%
35.14%
Víxlar (forvextir)............................ 31.0%
Viðskiptavixlar (forvextir)....................32.0%
Hlaupareikningar.............................. 32.0%
þar af verðbótaþáttur 19.0%
Skuldabréfalán................................ 34.0%
Viðskiptaskuidabréf........................... 35.0%
Lán með verðtryggingu:
a) lánstimi allt að IVi ár..................... 4.0%
b) lánstími minnst IVi ár...................... 5.0%
Betri kjör bjóðast varla
Samvinnubankinn