Morgunblaðið - 10.03.1985, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985
íþróttaleikvangar Reykjavíkurborgar:
Veitingasalan
verður boðin út
30 ÁRA LEIKAFMÆLI
Morgunblaðið/Bjarni
Árni Tryggvason bélt upp á 30 ára leikafmæli sitt í Austurbæjarbíói á föstudagskvöldið. Húsfyllir var hjá Árna
og voru honum fsrðar gjafir í tilefni afmslisins. Hríseyingar fsrðu honum blóm, málverk og talstöð í bátinn.
„Við samþykktum á fundi í fyrra-
kvöld að bjóða út alla veitingasölu á
íþróttavöllum Reykjavíkurborgar,"
sagði Júlíus Hafstein formaður
íþróttabandalags Reykjavíkur í sam-
tali við Morgunblaðið.
„Við höfum rekið þetta sjálfir
hingað til, en ákváðum að það
væri rétt að athuga hvort einkaað-
ilar hefðu ekki áhuga á að taka
þetta að sér. Við teljum að einka-
aðilar séu betur til þess fallnir að
sinna þessum rekstri fáist viðun-
andi tilboð í hann,“ sagði Júlíus
ennfremur.
„Vallargestir mega því eiga von
á betri þjónustu. Með því er ég
ekki að halda því fram að þjónust-
an hjá okkur hafi ekki verið nægi-
lega góð. Það má hins vegar búast
við að þeir sem hafa sérhæft sig í
veitingarekstri geti boðið upp á
fjölbreyttari og betri þjónustu en
við. Þess er að gæta að það er ekk-
ert smá fyrirtæki að afgreiða
8—10 þúsund manns i 15 mínúnta
hléi, eins og oft getur þurft að
gera á landsleikjum eða þegar
fræg erlend félagslið sækja landið
heim,“ sagði Júlíus.
Hann sagði að einnig væri tíma-
bært að athuga hvort ekki bæri
einnig að bjóða út veitingarekstur
í Laugardalshöll.
Magnús Gústafsson forstjóri Coldwater:
Getum ekkí keppt um
magn við Kanadamenn
meigináherzluna á hina ótvíræðu
— leggjum því megináherzlu á ótvíræða forystu í gæðum
„OKKUR er borgað umfram aðra fyrir afbragðsgóða vöru. Af þorski, sem
stenzt gæðakröfur getum við selt allt, sem til fellur og gætum selt meira af
ýsu og karfa. Við getum ekki keppt við Kanadamenn í magni, en yfirburðir
okkar í gæðum eru ótvíræðir. Því verðum við að leggja áherzlu á að þjóna
þeim hluta markaðsins, sem vill borga fyrir gæði,“ sagði Magnús Gústafss-
on, forstjóri Coldwater, í saratali við Morgunblaðið.
Hlutdeild Kanadamanna í sölu áður, en birgðir jukust um tæpar 5
þorskflaka á Bandaríkjamarkaði milljónir punda milli áranna. Því
hefur farið mjög vaxandi á síðustu
árum, en hlutdeild íslendinga
minnkandi. Árið 1977 var heildar-
innflutningur þorskflaka í Banda-
ríkjunum 118,6 milljónir punda.
Hlutur Islendinga var þá 58,9 millj-
ónir punda en Kanadamanna 26,1.
Á síðasta ári var hlutur íslendinga
44,3 milljónir punda en hlutur
Kanadamanna 103,4 milljónir af
174,7 milljóna punda heildarinn-
flutningi. Heildarinnflutningur
þorskflaka á síðasta ári var rúmum
3 milljónum punda meiri en árið
hefur sala flakanna heldur dregizt
saman á þessum tíma. Þá er athygl-
isvert, að hlutur Kanadamanna í
innflutningi þorskblokka hefur far-
ið minnkandi síðustu þrjú ár, hlut-
ur íslendinga farið heldur vaxandi
og hlutur Dana meira en tvöfaldazt.
Magnús sagði, að framleiðsla ís-
lendinga og Kanadamanna á þessu
sviði væri ekki samanburðarhæf
hvað gæði varðaði eins og söluverð
sýndi. Uppistaða þorskflaka Cold-
water væri seld á 1,80$, nema til
Long John Silver’s, sem nyti 10
senta magnafsláttar. Megnið af
þorskflökum Kanadamanna seldist
á 1,20 til 1,30$ pundið og allt niður í
90 sent.
Þetta leiddi hugann að því,
hvernig íslendingar brygðust við sí-
aukinni markaðshlutdeild Kanada-
manna enda væru horfur á því að
afli þeirra ykist á næstu árum.
Keppni um íorystu í formi magns
væri vonlaus. Því yrði að leggja
meigináherzluna á hina ótvíræðu
forystu í gæðum. Islenzki fiskurinn
væri mun betra hráefni en sá kan-
adíski, bæði hvítari og þéttari nema
á sumrin, þegar hann lfktist þeim
kanadíska nokkuð. Leggja þyrfti
áherzlu á gæði fisksins, vöruvöndun
og pakkningar, sem fólk væri til-
búið til að borga meira fyrir en ella.
Hins vegar væri staðreyndin sú, að
skortur á fólki í fiskvinnslu gæti
takmarkað nýtingu þeirra tæki-
færa, sem fyrir hendi væru.
Þá sagði Magnús, að það mætti
ekki gleymast, að Coldwater væri
leiðandi í sölu ýsuflaka hvað magn
snerti og sömuleiðis í sölu karfa-
flaka. Frá árinu 1980 til 1984 hefði
sala ýsuflaka aukizt úr 9 milljónum
punda í 15 milljónir og karfaflaka-
salan úr 9 milljónum í 14.
Alþjóðlega
mótið í Danmörku:
Helgi í hópi
efstu manna
HELGI Ólafsson sigraði Danann
Jens Christiansen í 6. umferð alþjóð-
lega skákmótsins í Danmörku á
föstudag. Þar með hefur Helgi hlotið
3'/i vinning, vinningi á eftir ung-
verska stórmeistaranum Josef Pint-
er. Föstudagurinn var óheilladagur
fyrir Jóhann Hjartarson. Hann tap-
aði biðskák sinni gegn Pinter og féll
í gildru sem Ungverjinn lagði fyrir
hann. Því næst tefldi hann við Curt
Hansen frá Danmörku og fór skák
þeirra í bið. Að sögn Jóhanns á Han-
sen alla möguleika á að vinna þá
skák.
Staða efstu manna í mótinu er
nú þannig, að Pinter hefur hlotið
4% vinning, Vassily Smyslov frá
Sovétríkjunum hefur 3% vinning
og biðskák, þar sem hann stendur
verr. Helgi Ólafsson er í 3.-4.
sæti ásamt Carsten Hoi frá
Danmörku, þeir hafa 3Vi vinning.
Jóhann Hjartarson hefur 2'k
vinning úr 6 umferðum.
Akranes:
Einn í gæzlu
vegna innbrots
EINN maður hefur verið úrskurð-
aður í gæzluvarðhald á Akranesi
vegna rannsóknar lögreglunnar á
innbroti í Fólksbílastöðina. Rúða í
útidyrahurð var brotin. Tóbaki og
sælgæti var stolið en talsverður
hluti þýfisins hefur þegar fundist.
Málið er í rannsókn.
Kolbeinsey ÞH 10 á nauðungaruppboð:
Húsvíkingar stofna félag
til að kaupa skipið aftur
LJÓST virðist vera að togarinn Kolbeinsey frá Húsavík verður seldur á
nauðungaruppboði innan fárra mánuða. Húsvíkingar eru staðráðnir í að
eignast skipið aftur og undirbúa nú stofnun hlutafélags í þeim tilgangi undir
forystu bæjarsjóðs, að því er Bjarni Aðalgeirsson bæjarstjóri sagði í samtali
við blaðamann Mbl. á Húsavík á röstudag. Hefur Bjarni, fyrir hönd þeirra er
munu stofna nýja hlutafélagið, leitað eftir hluta þeirra hundrað milljóna, sem
ríkisstjórnin hefur fært af lánsfjáráætlun til að auðvelda byggðarlögum að ná
aftur til sín „vandræðaskipum“, sem fara á nauðungaruppboð.
[| t.LáAki ÞiiN
FR
Lést við köfun
á Dalvík
MAÐURINN sem lést við köfun í
Dalvíkurhöfn í fyrradag hét Snorri
Guðlaugur Árnason, 42 ára gamall.
Snorri nam múraraiðn og var
meistari í þeirri iðngrein. A síð-
astliðnu ári varð hann einn af
stofnendum fiskeldisstöðvarinnar
ölunar á Dalvik, og var fram-
kvæmdastjóri stöðvarinnar er
hann lést. Snorri lætur eftir sig 4
börn og sambýliskonu sína, As-
gerði Jónasdóttur.
Við höfum ekki nefnt neinar töl-
ur í þessu sambandi,“ sagði Bjarni,
„en við vonumst til að við getum
fjármagnað okkar hlut í þessu skipi
með framlaginu, sem á að koma í
gegnum Byggðasjóð. Það er ljóst að
skipið fer á sölu og engin önnur leið
fær til að losna við skuldahalann.
Kolbeinsey verður ekki gerð út með
þessum skuldahala og þegar eru
miklir fjármunir í fyrirtækinu tap-
aðir.“
Það er hlutafélagið Höfði sem á
og gerir út Kolbeinsey. Skipið var
keypt á nm 50 millj. doliara-
tryggðar krónur í júnílok 1981 —
þær fimmtíu milljónir voru orðnar
190 milljónir í desember sl. Höfði
hefur skilað 20% af aflaverðmæti
reglulega til Fiskveiðasjóðs og
borgað nærri fjörutíu prósent af
upphaflegu kaupverði fyrir skipið
— en skuldar samt tæpar 200 millj-
ónir, þar af 114 milljónir í skipinu
sjálfu, skv. upplýsingum Kristjáns
Asgeirssonar, framkvæmdastjóra
Höfða.
„Maður veit aldrei að kvöldi hve
skuldin verður mikil að morgni,"
sagði hann. „Ef við hefðum miðað
við pund í staðinn fyrir dollara væri
skuldin 57 milljónum króna lægri.
Miðað við fulla nýtingu á skipinu og
viðbótarkvóta frá hinum togaran-
um okkar gætum við borgað í mesta
lagi 8,7 milljónir á árinu. Það eru
25% tekin út úr veltunni — en það
hefur ekkert að segja í hítina. Þetta
mál verður ekki leyst nema af
stjórnvöldum. Þau ráða þessu öllu.“
Morgunblaðíð/Friftþjófur
Trillukarlar á Húsavík undirbúa
róður — togarinn er á förum.
Pólitísk samstaða hefur tekist í
Húsavík til að firra byggðarlagii
því gríðarlega áfalli, sem missii
togarans væri. Fulltrúar allri
flokka hafa setið í nefnd með bæj
arstjóranum til að undirbúa stofn
un hins nýja fyrirtækis og er ger
ráð fyrir að eigendur þess verði þei
sem nú eru eigendur Höfða hf., eðí
bæjarsjóður, Fiskiðjusamlag Húsa
vikur, Kaupfélag Þingeyinga og ein
staklingar. Kolbeinsey hefur skilai
um 40% af hráefninu til Fiskiðju
samlagsins. 100-120 manns missí
vinnu sína ef skipið fer og vegní
margföldunaráhrifa, segja stjórn
málamenn á Húsavík, er Kolbeins
ey grundvöllur 300-400 starfa
bænum, þar sem íbúar eru un
2.500. 1 ályktun, sem stuðn
ingsmenn G-listans á Húsavfk sam
þykktu nýlega, segir m.a.: „Tekju
missir bæjarbúa sem af þessu hlyt
ist gæti orðið um 130—150 milljónii
króna á ári, eða sem jafngildir eini
togaraverði. Þetta þýddi einni|
tekjumissi hjá bæjarsjóði upp í
15 17 milljónir í minni útsvars
tekjum."