Morgunblaðið - 10.03.1985, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985
°7
Tívolí í Hveragerði
Hveragerdi, 8. marz.
HAFIZT var handa við fyrsta verk-
þáttinn við gerð skemmtigarðs í
Hveragerði í dag.
Það eru Eden, Hveragerði, og
Kaupland sf. í Reykjavík, sem
hafa fengið 25.000 fermetra land
undir skemmtigarð, sem ætlunin
er að hefji starfsemi 1. maí í vor.
Við byrjun verksins í dag
sagði Bragi Einarsson, eigandi
Eden, m.a.:
„Okkur sem stöndum að þessu
fyrirtæki er að sjálfsögðu ljóst
að skemmtigarður sambærilegur
við það sem best gerist erlendis
sprettur ekki upp á einni nóttu
— við ætlum okkur að reka hann
í byrjun að mestu undir berum
himni. Ef vel gengur er ætlunin
að byggja yfir hann, svo að í
framtíðinni risi hér „Höll
sumarlandsins" til ánægju fyrir
alla landsmenn.
Við erum sannfærðir um að
Hveragerði með allan sinn
jarðhita er óskastaður fyrir slík-
an skemmtigarð. Tívólígarður er
ekki aðeins fyrir yngstu kynslóð-
ina, við höfum þá trú að í hverj-
um manni blundi barnið inni
fyrir, og öll höfum við gott af
saklausri skemmtun." Sigrún.
Fyrsta skódustungan tekin: frá vinstri: Karen Mellk, Bragi Einarsson, eigandi Eden, og Olga Bragadóttir,
sem tók fyrstu skóflustunguna. MorKunblaðið/SiKrún
Hagstætt
verð á loð-
skinnaupp-
boðunum
HIÐ HÁA verð sem fengist hefur
fyrir loðskinn á uppboðum í vetur
hélst á uppboðum sem haldin hafa
verið að undanförnu. Eftirspurn eftir
refaskinnum hefur þó heldur farið
minnkandi.
Á uppboði finnska loðdýrarækt-
arsambandsins í Helsingfors sem
nýlokið er voru boðin upp rúmlega
400 þúsund blárefa- og skugga-
skinn og seldust 93% þeirra. Fyrir
blárefaskinnin fengust 2.290 kr.
íslenskar og 2.600 fyrir skugga-
skinnin. 83% framboðinna
silfurrefaskinna seldust fyrir
5.814 kr. að meðaltali. Á sama
uppboði voru boðin upp rúmlega
400 þúsund svartminkaskinn. 89%
högnaskinnanna seldust fyrir
1.200 kr. ísl. að meðaltali en 99%
læðuskinnanna fyrir 1.060 kr. Boð-
in voru upp rúmlega 200 þúsund
brúnminkaskinn. Högnaskinnin
seldust 100% fyrir 1.236 kr. að
meðaltali en læðuskinnin seldust
96% fyrir 870 kr.
Á uppboði hjá Hudson’s Bay-
uppboðshúsinu í London í síðustu
viku voru boðin upp rúml. 600 þús-
und minkaskinn, þar af um 1.000
íslensk. Boðin voru upp rúmlega
236 svartminkaskinn og seldust
þau 99%. Fyrir högnaskinnin
fengust um 1.300 kr. isl. að meðal-
tali en 1.140 kr. fyrir læðuskinnin.
Þá voru einnig boðin upp 95 þús-
und brúnminkaskinn og seldust
þau 98—99%. Fyrir högnaskinnin
fengust 1.120 kr. að meðaltali en
800 ísl. kr. fyrir læðuskinnin.
Samkvæmt upplýsingum frá upp-
boðshúsinu var þetta mjög gott
uppboð og komu margir kaupend-
ur á það.
Djúpivogur:
Sunnutindur
með 115 tonn
eftir þriggja
daga veiði
Djúpavogi, 8. mars.
Sunnutindur SU 59 kom hér inn í
fyrrakvöld með 115 tonn af fiski,
eftir aðeins þriggja daga útivist, svo
hér vinna allir sem vettlingi geta
valdið.
Meðan á verkfallinu stóð var
fiskvinnslufólk að vinna hér í
saltfiski við ormahreinsun og
fleira.
í dag er hér sæmilegasta veður
en gengur á með éljum. Vegir eru
vel færir í allar áttir.
Fréttaritari
FARARSTJÓRAR: ,
JÓN BALDVIN HALLDÓRSSON
KJARTAN L. PÁLSSON, (g.
(þannig að golfkyifur eru
velkomnar meðferðis)^^
íi h líindi
páskana
Dublin 4/4 (skírdagur)
til 8/4 (annar í páskum)
Hinar þékktu páskaferðir okkar til Irlands eru ógleyman-
legar öllum þátttakendum og hafa undantekningarlaust
selst upp á undanförnum árum. Við fpúgum í beinu
leiguflugi inn í yndislegt írskt vorið, gistum á Burlington
hótelinu í Dublin, kynnumst hinum vinalegu og skemmti-
legu frændum okkar, (rum, og förum í skoðunarferðir um
nágrannasveitir. Petta er ódýr og lífleg ferð sem þú getur
fariö án þess að taka frí frá vinnu!
Verð aðeins kr. 13.900
(flug, gisting í 2 m. herb. m/morgunverði, fararstjórn).
Vor í Grikklandi
FARARSTJÓRI:
SICURÐUR A.
MACNÚSSON
Vouliagmeni 2/4 til 16/4
Við efnum til heillandi tveggja vikna
vorferðar til Grikklands um páskana. Gist
verður á Hotel Paradise, fyrsta flokks
hóteli á Vouliagmeni-ströndinni skammt
frá Aþenu, en þar er framúrskarandi
baðströnd og afslöppunaraðstaða. Farnar
verða einstakar skoðunarferöir til ýmissa
markverðustu staða vestrænnar
menningar. Möguleiki á aukadvöl í
Amsterdam á heimleið.
verð aðelns kr. 27.150
(flug, gisting í 2 m. herb. m/morgunverði,
fararstáórn).
ATH! Takmarkaður sætafjöldi!
Samvinnuferóir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
SÖLUSKRIFSTOFA AKUREYRI: SKIPAGÖTU 18 - SfMAR 21400 & 23727