Morgunblaðið - 10.03.1985, Page 41

Morgunblaðið - 10.03.1985, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985 41 Kaup á Helgarpóst- inum ekki skilyrði fyr- ir því að fá blaðið NU MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi frá Katrínu Baldursdótt- ur og Jenný Axelsdóttur, útgefend- um tímaritsins Nú: „Það voru margir sem settu upp furðusvip skömmu eftir að Tíma- ritið Nú kom út. Menn áttu ekki að fá það afhent ókeypis, eins og til stóð, nema þeir keyptu Helgar- póstinn. Útgefendur brugðust skjótt við er þetta barst þeim til eyrna, enda tengsl tímaritsins Nú engin við Helgarpóstinn, að öðru leyti en því að Nú-ið var keyrt út í sömu bílum og Helgarpósturinn. Útgefendur hugðust greiða Helg- arpóstinum fyrir að dreifa ritinu, en það stóð aldrei til að Nú yrði fylgirit Helgarpóstsins. Er hringt var í Helgarpóstinn vegna þessa máls, voru svörin mjög loðin og ekki hægt að fá haldbæra skýringu á því hvers vegna á þessum misskilningi stæði. Ekki náðist í framkvæmda- stjóra blaðsins og er loks tókst að ná í ritstjóra Helgarpóstsins, vildi hann ekkert við þetta kannast, en sagðist skyldi sjá til þess að hringt yrði í alla sölustaði og þetta leiðrétt. Útgefendur Nú, vildu sjálfir ganga í það mál, en gátu hvorki fengið afhentan lista yfir sölustaðina, til þess að leið- rétta þetta sjáifir, né upplýsingar um það hvaða aðililar keyrðu út blöðin til þess að grafast fyrir um hvernig á þessum misskilningi stæði. Útgefendur vilja biðja við- skiptavini og lesendur ritsins Nú afsökunar á þessum rangfærslum og vonast til þess að slíkt komi ekki fyrir aftur. Nú-ið er og verður frítt og kaup á Helgarpóstinum ekkert skilyrði fyrir því að fá ritið afhent." Útifundur fram- haldsskólanema Framhaldsskólanemar gengust fyrir útifundi á Lækjartorgi á fóstudag undir yfírskriftinni „Menntun skal meta að verðleikum, því menntunarmál eru framfaramál". Upphafíega átti að halda fundinn á fímmtudag, en honum var frestað til fóstudags vegna veðurs. Stærri myndin er frá útifundinum, en að honum loknum var Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra afbent álykt- un fundarins. „ ., MorgunblaOio/Bjarni Af hverju Mallorka? Sól: Á Mallorka skin sólin næstum alla daga heit og hlý, án þess aö vera hitaþrugandi. Hægur andvari af hafi svalar þér viö heita ströndina. Hlýr sjór: Góður matur: Það er samdóma álit aö maturinn sé góöur, og úr nógu aö velja. Það er enda töluvert tómstundagaman aö velja á milli hinna gómsætustu rétta á sérkennilegum veitingastöðum. Sjórinn er hlýr — 2“ undir meðallofthita, og hreinn. Kannanir sýna aö við Mallorka er einn hreinasti sjór viö strendur Evróþu. Hrein strönd: Ströndin er mjúk og hrein, enda þrifin á hverju kvöldi — og með miklu grunnsævi fyrir börnin til aö busla í. Fallegt og framandi: Á Mallorka er fallegt og framandi umhverfi. Gróöursæl landbúnaðareyja, meö ótrúlega fjölbreyttu landslagi og framandi gróöri. Hótel ATLANTIK eru staðsett á eftirsóttustu stööunum á ströndinni. Líf og fjör: Lif og fjör einkenna Mallorka öðru fremur. Strandlifið er fjölbreytt og fjörugt: Seglbretti, róörabátar, hraðbátar, busl og sprell. Næturlifiö slær öllu viö, dans og diskó — sértu að leita aö ævintýrum, finnur þú þau hér... Paradís fyrir börn: Það er hægt að fullyrða að Mallorka sé paradis fyrir börn. Bæði eru Spánverjar meö afbrigöum barngóðir, og eins er þar urmull af leiktækjum, rennibrautum, sundpollum og spilum, auk þess sem sjálfsagt þykir aö börnin fylgi foreldrum út aö boröa á kvöldin. Fjölbreyttar skoðunarferðir: Hægt er aö velja um fjölbreyttar og sérkennilegar skoðunarferöir vitt og breitt um þessa fallegu eyju i fylgd með islenskum fararstjórum. Verslun: Á Mallorka kaupa menn perlur og leöurvörur, jakka, kápur og skó, á sérlega góöu veröi. — Auk þess sem hægt er að heimsækja ævintýralega útimarkaöi. Ódýrt: Og þá er ótalin einn álitlegasti kosturinn viö Mallorka — þú færö mikiö fyrir peníngana. Þaö er ódýrt aö borða góðan mat og drekka góö vin. Hægt er aö nota greiðslukort næstum hvar sem er. — Þú lifir i ódýrum lúxus. Reyndu Mallorka: Viljið þú velheppnað sumarleyfi — Reyndu Mallorka — þú iðrast þess ekki. UmbOÖ a islandi fyrir DINERS CLUB INTERNATIONAL m^T«( d 4-í.r- Allt flug er þægilegt Drotttor: dagflug til Palma. April: 3ja og 17. — mai: 6. og 27. Júni: 17. — Júli: 8. og 29. — Ágúst: 19. September: 9. og 30. — Október. 21. FERÐASKRIFSTOFA, IÐNAÐARHÚSINU HALLVEIGARSTÍG 1, SÍMAR 28388 - 28580 E

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.