Morgunblaðið - 10.03.1985, Síða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985
Nýjasta mynd franska sjón-
listamannsins Jean-Luc Godards
hefur svo sannarlega vakið at-
hygli. Það er að vísu ekkert nýtt
fyrir Godard, en að þessu sinni
hefur honum tekist að hneyksla
óvenju marga.
Það sem fer svo óskaplega
fyrir brjóstið á fólki, er að God-
ard hefur fært söguna um Maríu
mey í nútímabúning. Fólk, sem
vill lesa þetta ævaforna ævintýri
af gulnuðum blöðum bibliunnar,
virðist kunna þvi ansi illa að
nútímafólk segi söguna á nú-
tímavísu. Viðbrögð þessa fólks
hefur lika verið eftir þvi: það sit-
ur um bíóin sem sýna myndina
og abbast upp á fólk sem kaupir
miða, klerkar úthúða myndinni í
fjölmiðlum, kvikmyndaeftirlitið
bannaði hana, en það var dregið
til baka fyrir dómstólum og guð
veit hvað.
í útgáfu Godards er María
engin önnur en dóttir bensín-
stöðvareiganda. Jósef er leigu-
bílsstjóri, og það fyrsta sem hon-
um dettur i hug, þegar hann veit
að María er ófrisk, er hve marga
elskhuga hún hafi átt. (Þessi
punktur einn er vægast sagt
skelfilegur i augum heittrúaðra.)
En ekki skánar það. Erkiengill-
inn Gabríel er drykkfelldur iðju-
leysingi, og Jesú sjálfur ofsa-
fengið smábarn, sem segir fátt
annað en: „Ég er sá sem er.“ En
Jósef, sem má ekki vera að því að
hlusta á smábarnavæl, segir syni
sínum að þegja. Og til að bæta
gráu ofan á svart, þá birtist
María allsnakin í ekki ófáum at-
riðum.
En höfundurinn Jean-Luc
Godard lætur sér fátt um finn-
ast. Hann hefur efni á að brosa;
myndin verður vinsælli eftir því
sem gagnrýnisraddirnar verða
háværari.
HJÓ.
Myriem Roussel leikur Maríu í nýjustu mynd Godards. Myndin hefur
farið fyrir brjóstið á viðkvæmu fólki.
Stjörnugjöfin
Stjörnubíó:
The Karate Kid ★ ★ *
Tónabíó:
Með ástarkveðju frá Rússlandi ★★Vi
Háskólabió:
Gorky Park ★ ★
Austurbæjarbíó:
Greystoke ★ ★V4
Purple Rain ★ ★
Nýja bió:
Batchelor Party ★ ★
Bíóböllin:
Heimkoma njósnarans ★'/4
fsræningjarnir ★'/»
Þú lifir aðeins tvisvar ★ ★
Reckless ★W
Regnboginn:
Hotel New Hampshire ★ ★ ★
Cannonball Run II ★
París, Teias ★ ★ ★ ★
Vistaskipti ★ ★ ★
av.
hneykslar
lýðinn
I I tiCIMI KVII\MyNliANN4
Godard
BÍÓHÖLLIN:
BÍÓHÖLLIN mun von bráðar taka
til sýninga myndina „Reuben,
Reuben“ með Tom Conti í aðal-
hlutverki. Myndin fjallar um
ærslabelginn Gowan, skáld sem
þykir sopinn ansi góður.
Tom Conti var útnefndur til
óskarsverðlauna fyrir leik sinn í
„Reuben, Reuben", en beið lægri
hlut fyrir Robert Duvall. Það var
annað kvikmyndahlutverkið sem
Conti fékk , í fyrri myndinni lék
hann á móti David Bowie í
„Merry Christmas, Mr. Lawr-
ence“ sem Bíóhöllin sýndi á sín-
um tíma. Conti hefur mikið leik-
ið á sviði beggja megin Atl-
antshafsins, fékk m.a. Tony
verðlaunin fyrir aðalhlutverkið I
„Er ekki þetta mitt líf?“
Persónan sem Conti leikur í
„Reuben, Reuben“, er skrautleg,
svo ekki sé meira sagt, því hún
er blanda af skáldunum Brendan
Behan og Dylan Thomas, sem
voru jafn frægir fyrir drykkju og
verkin sem þeir skrifuðu.
Það læðist að mér sá grunur
að gamla brýnið Julius Epstein
hafi haft ævisögu Dylan Thomas
til hliðsjónar þegar hann samdi
handritið að myndinni (Const-
antine FitzGibbon skráði ævi-
sögu skáldsins). Stór hluti
myndarinnar fjallar um fyrir-
lestrarferð skáldsins Gowan
McGland, sem hefur ekki skrifað
orð í fimm ár, um Bandaríkin
þvers og kruss. Eins og Dylan
Thomas, er Gowan alveg fyrir-
munað að lesa úr verkum sínum
edrú.
í aukahlutverki er Kelly
McGillis, rúmlega tvítug leik-
kona, sem hefur vakið mikla at-
hygli fyrir leik sinn í nýjustu
mynd Harrison Ford, Witness,
sem var frumsýnd í febrúar í
Bandaríkjunum.
HJÓ.
Kelly McGillis og Conti.
The
Natural
STJÖRNUBÍÓ frumsýndi mynd-
ina The Natural í síðustu viku.
Barry Levinson, sem gerði Diner,
er leikstjóri, en aðalhlutverkið er
Roberts Redford; það fyrsta síðan
1980. Hann tók því rólega eftir að
hann fékk Óskarinn fyrir að leik-
stýra Ordinary People.
Meðal annarra sem leika í
myndinni, má nefna Robert
Duvall, Glenn Close (Garp), Kim
Basinger (Never Say Never Aga-
in) og Barbara Hershey (The
Entity). Myndin er byggð á
dulmagnaðri skáldsögu eftir
Bernard Malamud.
Tom Conti leikur lífsglaða skáldið í „Reuben, Reuben"