Morgunblaðið - 10.03.1985, Síða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985
Morð hans 1541
aftur sett á svið
Eftir messu 26. júní snæddu Pizarro og
nokkrir vinir hans hádegisverð í höll hans
við Plaza de Armas í borginni, sem hann
hafði stofnsett sex árum áður þegar hann
hafði tekið Inkakeisarann Atahualpa til
fanga og líflátið hann.
Þar sem höll Pizarros stóð stendur nú
forsetahöll Perú, gegnt glæsilegri dóm-
kirkju, þar sem Pizarro hvílir í marmara-
kapellu.
Hópur um 20 vopnaðra tilræðismanna
„La conquista del Perú“,
fyrsta bókin sem var gefin út
um Perú (1534).
undir forystu Juan de Herrada réðst inn í
óvarða höllina þegar Pizarro var að ljúka
við að snæða hádegisverð sinn og veifuðu
stríðsöxum, sverðum, spjótum og lásbogum.
Samsærismennirnir voru svokallaðir
Almagristar. Hernando Pizarro, hálfbróðir
Francisco, hafði tekið Diego de Almagro af
lífi fyrir samsæri í júlí 1538. Stuðnings-
menn Almagros voru staðráðnir í að hefna
ástsæls leiðtoga síns og höfðu gert ungan
son hans, Diego yngra, að leiðtoga sínum.
Þegar Almagristar réðust inn í höll Piz-
arros varð snarpur bardagi, en flestir félag-
ar Pizarros flúðu. Pizarro fór í brjóstbrynju
sína og felldi einn árásarmanninn áður en
hann hneig sjálfur niður og lézt af mörgum
sárum, sem hann hlaut.
Hálfbróðir Pizarros, Francisco Martin de
Alcantara, féll við hiið hans. Francisco de
Chaves, ofsafenginn maður, var myrtur,
þótt hann væri vinur Almagrista og reyndi
að rökræða við þá.
í átökunum særðist Pizarro á þeirri
hendinni, sem hann hélt sverðinu með, að
Francisco Pizarro var ólæs og óskrifandi
svínahirðir þegar hann steig fyrst fram á
svið sögunnar. Þegar ævi hans lauk, hálfri
öld síðar, hafði hann getið sér það til frægð-
ar að hafa lagt voldugt ríki Inka að velli,
stofnsett borgina Lima, gegnt embætti vísi-
konungs i Perú og komizt yfir gífurleg völd
og auðæfi.
NÆGAR heimildir eru til um blóði drifínn feril spænska landkönnuðarins
Francisco Fizarro og blóðugan dauða hans. í fjórar aldir hefur hins vegar
verið deilt um jarðneskar leifar hans. Nú telja vísindamenn sig hafa ráðið
þá gátu að iokum.
Að sögn Los Angeles Times segjast vísindamennirnir hafa boriö kennsl
á bein Fizarros svo að óyggjandi sé og um leið svipt hulunni af fals-múmíu.
Þetta hefur gert þeim kleift að setja 444 ára gamalt morð Fizarros aftur á
svið af ótrúlega mikilli nákvæmni.
Þessi vísindareyfari náði hámarki þegar bein Fizarros voru lögö til
hinztu hvíldar í Lima í janúar sl. við hátíðlega athöfn, sem fór nákvæmlega
eins fram og landvinningamaðurinn gamli hafði mælt fyrir um í erfðaskrá
sinni 1537.
Franisco Pizarro
„Blæddi út“
Pizarro var 1,75 metrar á hæð, grann-
holda og sterklegur, alsettur örum og 63 ára
að aldri þegar hann féll með sverð í hendi
sunnudaginn 26. júní 1541. Hann lét lífið í
fyrstu stjórnarbyltingunni, sem sögur fara
af í nýlendum Spánverja í Ameríku.
„Pizarro blæddi út,“ sagði meinafræðing-
urinn Uriel Garcia. „Banahöggið var
sverðstunga í hægri kjálkann. Sennilega
hafa hóstarbláæðin og hálsslagæðin skorizt
í sundur og líklega hefur hann hryggbrotn-
að. Trúlega var hann lamaður þegar hann
gaf upp öndina."
Garcia og starfsfélagar hans í Perú fengu
aðstoð margra sérfræðinga við að ieysa
Pizarro-ráðgátuna. Fornleifafræðingar,
mannfræðingar, sjúkdómafræðingar, sér-
fræðingar í geislafræði, eðlisfræðingar,
sagnfræðingar og fleiri tóku þátt í þessu
leynilögreglustarfi í sjálfboöavinnu.
Þeir voru frá margvíslegum stofnunum
eins og sjúkrahúsum, listasöfnum og há-
skólum. Allir höfðu þeir eitthvað fram að
færa er stuðlað gat að ráðningu gátunnar.
„Um leið og Pizarro-dellan skaut rótum
fylltist margt spennt fólk ástríðufullum
áhuga,“ sagði Hugo Ludena, fornleifafræð-
ingur og sagnfræðingur, sem stjórnaði leit-
Osigur Inkanna, myndskreyting eftir Theodore de Bry (1596).
inni að Pizarro. Hann er forstöðumaður
stjórnarstofnunar, sem verndar söguleg
verðmæti.
Saga þessi er tvíþætt og 436 ár Iiðu frá
upphafi fyrri hluta hennar til upphafs hins
síðari.
Árásin á höllina
Þrálátur orðrómur var á kreiki í Lima í
júní 1541 um yfirvofandi tilraun til að ráða
landstjórann af dögum, en Pizarro gerði
engar sérstakar varúðarráðstafanir.
RUNTAL OFNARNIR FRÁ ONA VEITA YLINN.
OFNASMÐJA NORÐURLANDS
FUNAHÖFÐA 17 - v/ÁRTÚNSHÖFÐA
SI'MI 82477 - 82980 -110 REYKJAVÍK