Morgunblaðið - 10.03.1985, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 10.03.1985, Blaðsíða 62
62 r vg AM nr qTTr> ^ H’TTyrr/fTyp fjin f Tí7r/TTT*">Qrw MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. MARZ 1985 Úr leikritinu Rashomon Helga Bachmann í hlutverki Gertrude Stein. Að loknu þíngi Norðurlandaráðs: Þjóðleikhúsið tekur til starfa af fullum krafti á ný NÚ UM helgina hófust á ný leik- sýningar í Þjóðleikhúsinu eftir þing Norðurlandaráðs og býður leikhúsið að vanda upp á fjöl- breytta dagskrá og leiksýningar við allra hæfi. Það er gífurlega mikið verk að gera leikhúsið klárt fyrir sýningar á ný, en menn leggja nótt við dag og fyrsta sýningin var á laugar- dagskvöld, aðeins sólarhring eftir að þinginu lauk. Á laugardags- kvöld var 67. sýningin á „Gæjum og píum“, en þessi söngleikur hef- ur fengið mjög mikla aðsókn og er fyrir þó nokkru kominn í hóp allra vinsælustu verkefna Þjóðleikhúss- ins frá upphafi. í dag, sunnudag kl. 14.00, kem- ur „Kardemommubær" Thor- björns Egners síðan á fjalirnar á ný, en uppselt hefur verið á allar sýningar verksins til þessa Hið merkilega leikrit „Rash- omon“ verður sýnt í 6. sinn í kvöld sunnudagskvöld, en það hefur sýnt sig að íslenskir leik- húsgestir kunna vel að meta þessa dularfullu morðgátu sem til okkar er komin frá Japan. Á sunnudagskvöld verður ennfremur sýning á Litla sviðinu á leikritinu „Gertrude Stein Gertrude Stein Gertrude Stein", eftir Marty Martin, en þessi ein- leikur um ævi bandarísku skáldkonunnar Gertude Stein hefur hlotið afbragðs góða dóma og góðar undirtektir áhorfenda hér sem annars staðar. Framundan eru ennfremur mörg spennandi verkefni í Þjóð- leikhúsinu. Næsta frumsýning er fyrirhuguð 22. mars nk. og bæt- ist þá enn einn merkisáfanginn við íslenska ballettsögu, en þá hefjast sýningar á fyrsta heils- kvöldsballettinum sem íslenskur danshöfundur semur. Nanna Ólafsdóttir er höfundurinn og verkið er sú fræga fyrirmynd allra ástarsagna, „Dafnis og Klói“, en tónlist er eftir franska tónskáldið Maurice Ravel. Þá verður sömuleiðis frum- sýning á Litla sviðinu í mánuð- inum, þó endanleg dagsetning sé ekki ákveðin. Þar kemur upp Ijúft og frægt danskt leikrit, „Valborg og bekkurinn" og er eftir Finn Methling. Þar segir af gamalli ekkju sem spjallar við garðbekk einn um gömlu góðu dagana og er saga hennar krydd- uð mörgum alþekktum söngvum. t apríl stendur einnig mikið til í Þjóðleikhúsinu, en í þeim mán- uði verður leikhúsið 35 ára og verður þá frumsýning á sjálfri „fslandsklukkunni“, eftir Hall- dór Laxness, perlunni í bók- menntum okkar á þessari öld. (Fréttatilkynning) Sigling með Norrænu er ævintýri útaf fyrir sig sem opnar þér nýja ferc5amöguleika Gisting á glæsilegu fjallahóteli í Noregi. Hóteldvöl á besta stað í Kaupmannahöfn, Tívolí skammt undan. Sumarhús víða í Danmörku og í Þýskalandi og ævintýralegar rútuferðir um alla Evrópu. Með Norrænu getur þú ferðast til nágrannalandanna, Færeyja, Hjaltlands, Noregs og Danmerkur og verið frjáls ferða þinna á eigin bfl. DwWn 2ja vikna ferð Sigling til Danmerkur. 5 daga rútuferð til Barlinar. Hótel og morgunverður Siglt heim með tveggja nétta viðdvöl I Faareyjum. Verð frá kr. 22.750 - Novðurlandaferð 3ja vikna ferð. Sigling til Danmerkur 13 daga rútuferð og aigling um Svfþjóð. Finnland Noreg og Danmörku Hótel og hélft faaði. Sigh heim með tveggja nétta viðdvöl I Færeyjum Verð fré kr. 41.750.- Normandý, Bretaniuekagi, Loére 3ja vikna farð. Sígling til Danmerkur. 10 daga rútuferð gegnum Þýskaland og Belgfu til Frakklands. Hótel og hélft fnði. Siglt heim með tveggja nétta viðdvöl I Faereyjum. Verð fré kr. 30.066.- 2ja vikna ferð. Sigling til Danmerkur. 7 daga rútuferð til Bæjaralands. Hótel og hélft fæði. Siglt heim með tveggja nétta viödvöl i Fnreyjum. Verð frá kr. 21.280 - Parfs 2ja vikna ferð. Sigling til Danmerkur. 6 daga rútuferð til Parlsar. Hótel og morgunveröur. Siglt heim með tveggja nétta viödvöl I Færeyjum. Verö fré kr. 19.112.- Rfn 2ja vikna ferð. Sigling til Danmerkur. 5 daga rútuferð til Rínar. Hótal og fullt fnði. Siglt heim með tveggja nétta viödvöl I Færeyjum Vérö frá kr. 19.2 Týról 3ja vikna ferð. Sigling til Danmerkur. 10 daga rútuferð til Týról. Hótel og hélft fnði. Siglt heim með tveggja nétta viðdvöl í Fnreyjum. Verö fré kr. 28.536. Harzen í Þýskalandi 2ja vikna ferö.| Sigling til Danmerkur. 4 daga rútuferð til Herzen. Hótel og fullt fnði. Sigh heim meö tveggja nétta viödvöl I Færeyjum. Verð fré kr. 18.600. Hótafferð tN Kaupmannahafnar Verð fré kr. 66.270. . miðað við fjögurra manna fjölskyldu m/bll. A besta stað I borginni. Sigling I eina viku og hóteldvöl I Kaupmannahöfn f eina viku. öll herbergi með baði. Morgunveröur. Fjallahótel I Noregi Verö fré kr. 60.000. , miöaö viö fjögurra manna fjölskyldu m/bíl. Sigling í eina viku og hóteldvöl með hélfu fnöi I eina viku. Ibúóahótel é Jótlandi Varð fré kr. 51.340., miöaO við fjögurra manna fjölskyldu m/bíl, eina viku é siglingu og sina viku é ibúðahóteli. Sumarhús I Dsnmórku Verö fré kr. 49.000.-. miöeð við fjögurra manna fjölskyldu m/bfl. Eina viku é siglingu og eir.a viku I sumarhúsi. i Ferðaskrifstofa Ríkisins CDf SkÓ9arhBð6,101 Reykjavík. simi 91-25855, m mm m
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.