Morgunblaðið - 12.03.1985, Síða 28

Morgunblaðið - 12.03.1985, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1985 Neðansjávarbifhjól við kafbátavarnir Hér getur að líta „neðansjávarbifhjól" það sem sænski flotinn hefur tekið í þjónustu sína. Það er um 7,6 m langt og með því á að kanna getu kafbátavarna landsins. Unnt er að aka á tækinu á allt að 40 metra dýpi. Á myndinni er fyrsta „áhöfnin" sem sérstaklega hefur verið menntuð til að fara með „hjólið". „Tíundi maðurinn" fær góðar viðtökur London, 11. mars. AP. „TÍUNDI madurinn", nýútkomin bók eftir breska rithöfundinn Graham Greene, sem hann skrifaði á fimmta áratugnum en gleymdi síðan þar til handritið fannst í skjalasafni í Hollywood fyrir tveimur árum, hefur fengið einstaklega góðar viðtökur. Ljúka gagnrýnendur upp einum munni um, að bókin sé meðal bestu verka Greenes. „Þetta er Greene eins og hann gerist bestur," sagði í Sunday Express, „og ekki að undra eftir að verkið hefur geymst og „þroskast" í 40 ár.“ Sunday Times sagði ein- faldlega um bókina, að hún væri „meistaraverk" og í Observer sagði, að útgáfan væri „vafalaust gleðilegasti bókmenntaviðburður- inn á árinu". Graham Greene, sem er áttræð- ur að aldri, skrifaði „Tíunda manninn" fyrir Metro-Goldwin- Mayer-kvikmyndafélagið í Holly- wood, „á þrælslegum samningi" eins og hann segir sjálfur, en kvikmyndajöfrunum leist ekki á innihaldið og handritið fékk að rykfalla í skjalasafni félagsins. Þegar árin liðu og vegur Greenes óx gleymdi hann handritinu að mestu. „Mig minnti aðeins, að þetta hefðu verið drög, sem ég hripaði niður á tvær blaðsíður," sagði hann í viðtali fyrir skömmu en raunverulega var um að ræða 60.000 orða handrit. Það var svo seint á árinu 1983, að Sam Marks, sem sér um skjala- safn MGM, sýndi breska útgef- andanum Anthony Blond handrit- ið og sá var ekki seinn á sér að kaupa útgáfuréttinn af kvik- myndafélaginu fyrir 11.600 doll- ara. Síðan fór hann til Nizza í Frakklandi þar sem Greene býr og fékk samþykki hans fyrir útgáf- Svisslendingar vilja ekki lengra sumarfrí D 1 I AP ^ ■ * Bern, Sviss, 11. mars. AP. í þjóóaratkvæóagreiðslu, sem fram fór í Sviss í gær, var því hafn- að, að verkamenn yfir fertugt fengju lengra sumarfrí en þeir hafa nú. Svisslendingar hafa einnig hafnað því í tveimur atkvæðagreiðslum að stytta vinnuvikuna, sem er sú lengsta í iðnríkjum Vesturlanda. Augljóst var af fyrstu tölum, að umtalsverður meirihluti kjósenda var andvígur því að breyta stjórn- arskránni þannig að allir verka- menn yfir fertugt, um 700.000 manns, fengju fimm vikna sumar- frí hið minnsta eins og Jafnað- armannaflokkurinn og verka- lýðssamtökin höfðu lagt til. Svissneska stjórnin, þar á meðal tveir ráðherrar úr flokki jafnað- armanna, hvatti kjósendur til að fella tillöguna. Sagði hún, að sam- þykkt hennar gæti haft allt önnur áhrif en ætlast væri til og valdið því, að atvinnurekendur skirrtust við að hafa fullorðna menn í þjón- ustu sinni. Svisslendingar hafa tvisvar fellt tillögur um að stytta vinnuvikuna og síðast fyrir níu árum þegar meirihlutinn gegn því var fjórir á móti einum. Samkvæmt skýrslu Alþjóðavinnumálastofnunarinnar vinna Svisslendingar að jafnaði 43,7 stundir á viku, Vestur-Þjóð- verjar 40,4, Japanir 40,3, Frakkar 39,3, Bandaríkjamenn 35 og Belg- ar 33,5. Heita má, að varla hafi verið gert verkfall í Sviss í hálfa öld. Develop 10 Minnsta Ijósritunarvél í heimi Ljósritunarvél fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir. Ótrúlega lítil, áreiðanleg og auðveld í notkun. Vél sem skilar svörtu kolsvörtu og hvítu snjóhvítu. U KJARAIM HF ÁRMÚLA 22 REYKJAVÍK SÍMi 83022 Kambódía: Listaverki stolið CWago. 11. m»ra. AP. MÁLVERKI eftir meistara Picasso var stolið úr einkasafni á „Magnifi- cent Mile“ í Chicago um helgina. Málverkið er metið á 39.000 dollara og lögreglan viðkennir að hafa engar vísbendingar um hver eða hverjir stálu gripnum. Skæruliðabúðir Graham Greene unni í samvinnu við útgefanda hans. „Tíundi maðurinn" hefst á tím- um þýska hernámsins í Frakk- landi og segir frá því, að Þjóðverj- ar taka 30 franska gísla og hóta að drepa þrjá þeirra, tíunda hvern mann, fyrir dögun til að hefna dauða tveggja þýskra hermanna. Sihanouks falla stöðvar sínar. Fóru Víetnamarnir fyrst inn í Thailand en réðust síð- an þaðan inn í búðirnar. Haft er fyrir satt, að tveir helstu foringjar skæruliðahersins hafi fallið. Kínverska fréttastofan Xinhua skýrði frá því í dag, að Víetnamar hefðu gert meira en 20 árásir inn yfir landamæri ríkjanna um helg- ina og skotið meira eii 16.000 fall- byssukúlum á kínverskt land. Kváðust Kínverjar hafa hrundið árásunum og eyðilagt mörg vígi Víetnama við landamærin. Fyrir nokkrum dögum fóru fréttir af auknum liðsflutningum Kínverja í átt til landamæranna en talið er, að þeir hafi haft þar að undan- förnu um 2—300.000 manns. Ví- etnamar halda úti 600.000 manna herliði við landamærin. Aranyanprathet, Thailandi, 11. mara. AP. UM 1000 MANNA víetnamskt her- lið náði í dag á sitt vald síðasta vígi skæruliða í Kambódíu eftir ákafa bardaga í viku. Flúðu sumir skæru- liðanna til Thailands að sögn þar- lends herforingja. Víetnamska herliðið, sem naut stuðnings öflugs stórskotaliðs, náði í morgun á sitt vald Tatum- búðunum þar sem skæruliðar Si- hanouks fursta hafa haft bæki- Fágætir myrkvar Plutó og Charons WaHhington, 11. mara. AP. TUNGLMYRKVAR sem standa yfir hjá reikistjörnunni Plútó og tungii hennar Charon gefa stjarnfræðingum og vísindamönnum fágætt tæki- færi til að gera ýmsar mælingar og útreikninga á þessari minnstu reikistjörnu sólkerfisins. Myrkvarnir standa yfir í 5 ár og þeir hófust 16. janúar síðast- liðinn. Þegar myrkvunum lýkur munu líða 124 ár þar til þeir hefjast á ný. Plútó, sem er minnst reikistjarnanna, er líka lengst frá sólinni á sporbaug sín- um og er það ein skýringin á því hve langur tími líður á milli um- ræddra atburða. f hvert skipti sem Charon fær- ist á milli Plútó og jarðar myrkvast hluti Plútó og með því að mæla hvað hver myrkvi tekur langan tíma, hve lengi hver myrkvi varir í heild og hve birta Plútó dofnar mikið geta vísinda- menn mælt ummál, eðlisþyngd og umfang bæði Plútós og Char- on. Stjarnfræðingar fundu ekki Plútó fyrr en árið 1930, eftir margra ára leit að „níundu reiki- stjörnunni". Charon fannst ekki fyrr en árið 1978. Svo lítið er vitað um Plútó, að það kom stjörnufræðingum í opna skjöldu er myrkvunarhrinan hófst. Mugabe líkt við Hitler Bulawayo, Zimbabwe, 11. mars. AP. JOSHUA Nkomo, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Zimbabwe, hóf í gær kosningabaráttuna með fjölmennum útifundi í borginni Bulawayo og réðst harkalega á stjórn Mugabes. Kosningar í landinu eiga að fara fram um miðjan júní nk. Talið er, að um 50.000 manns hafi sótt fundinn hjá Nkomo, sem er þá sá fjölmennasti frá því Zimbabwe varð sjálfstætt ríki. Var hann mjög harðorður um Mugabe, forsætisráðherra, og sagði, að kosningasvikin væru þegar hafin, löngu áður en til kosninganna kæmi. Var gerður góður rómur að máli Nkomos þeg- ar hann sagði, að „sjálfstæði án frelsis er út í hött og í Zimbabwe er ekkert frelsi". Hélt Nkomo því fram, að stjórn Mugabes lyti leið- sögn „nasista, sem tækju Hitler fram“. Bulawayo er höfuðstaður Mat- abelelands og Ndebele-ættflokks- ins, sem Nkomo tilheyrir, en Mug- abe er af Shona-ættbálknum, sem er fjölmennastur í Zimbabwe og ræður mestu um stjórn ríkisins. I Matabe-landi hefur verið mikil óöld og hermenn stjórnarinnar gerst sekir um mikil óhæfuverk. Mugabe og Nkomo voru samherjar í stríðinu gegn minnihlutastjórn hvítra manna en vinskapurinn entist ekki nema fram að sjálf- stæðistökunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.