Morgunblaðið - 12.03.1985, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 12.03.1985, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 12. MARZ 1985 55 iryep VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11-12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS to'l/MUWUM-JJ Tveir sautján ára segja lítið vit í því að fólk megi samkvæmt lögum giftast og stofna heimili 18 ára, en verði að bíða til tvítugs eftir því að geta keypt áfengi og skemmt sér á öldurhúsum. Þessir hringdu . . . Átján ára fái aðgang að vínveitingahúsum Tveir sautján ára skrifa: Við viljum koma nokkrum at- riðum á framfæri varðandi skrif bindindismanna í blöðum. Þann- ig er að samkvæmt lögum má fólk stofna heimili, giftast og ala upp börn átján ára en ekki neyta áfengis eða sækja vínveitinga- staði fyrr en um tvítugt. Traffic er bara fyrir yngri krakka, fjórt- án og fimmtán ára, en þeir sem eru sautján og átján ára komast oftast ekki inn á vínveitinga- staði og geta þá lítið skemmt sér. Helst þyrfti að lækka aldurstak- mark vínveitingahúsanna niður í átján ár eða þá að opna skemmtistað fyrir sautján og átján ára unglinga þar sem strangt yrði tekið á aldurstak- marki. Þessi bindindismanna- áróður er löngu orðinn úreltur, krakkar byrja oft að drekka fjórtán og fimmtán ára og verð- ur oftast ekki meint af. Er ekki kominn tími til að endurskoða þessi lög um aldurs- takmark vínveitingahúsanna? P.s.: Við viljum taka undir grein sem Wham!-aðdáandi skrifar í Velvakanda 24. febr. um að fá þættina Top of the Pops sýnda reglulega í sjónvarpinu. Flestir krakkar sem við höfum talað við eru sammála, enda þykja þessir þættir mjög góðir. Með þökk fyrir birtinguna. Verslunarmiðstöð við Kleifarsel Sigurður Örn Sigurðarson hjá Seljakjöri hringdi: Um daginn skrifar kona í Velvakanda og segist óánægð með þjónustu við íbúa Selja- hverfis. Langar mig að benda á að við hjá Seljakjöri erum að koma upp verslunarmiðstöð við Kleifarsel og hefur bráðabirgðaverslun með kvöldsölu þegar verið opnuð þar. Síðar er meiningin að byggja þarna litla verslunarmið- stöð með bakaríi, pósthúsi, bankaútibúi, bókabúð, matvöru- verslun o.fl. Ætlunin er að miðstöðin rísi innan tveggja ára. Hulunni svipt af Sigríði Kona hringdi: Ég vil nú láta í ljós ánægju mína yfir því hve krakkarnir í Stundinni okkar eru ágæt og skemmtileg. Þetta er góð til- breytni að lofa þeim að koma fram og sýna hvað þau geta, ekki síður en fullorðna fólkið. Sennilega eru ekki allir svo kunnugir henni Sigríði Hann- esdóttur leikkonu sem yfirleitt er í dulargervi þegar hún kemur fram eða skemmtir eins og t.d. í Brúðubílnum sem frægur er hjá yngri kynslóðinni. Hvernig væri nú að fá að kynnast þessari konu í sjónvarpi og útvarpi? Hún gæti boðið upp á gamanvísur, söng og margt fleira. Einnig veit ég til þess að hún hefur haldið námskeið fyrir kvenfélagskonur víðsvegar og gert þar garðinn frægan. Hvers eiga selirnir að gjalda? I.A. skrifar: Mig langar til að tala við þig, selur, nábýlingur minn. Frá upp- hafi íslandsbyggðar hefur þú ver- ið einn af bjargvættum okkar mannanna, sem byggjum þetta land. Þú hefur verið vinur okkar og hjálparhella á löngum, dimm- um öldum. Þú hefur að nokkru fætt okkur og skætt og orðið að gjalda þess með lífi þínu. Sjaldan gengum við nær þér, þínum ætt- bálki, en svo, að þú gast haldið velli. í raun vorum við þá til- neyddir, vegna margháttaðra þrenginga okkar sjálfra, að bera okkur eftir allri þeirri björg, sem að höndum bar, til að geta fram- fleytt okkur. Þökk sé þér fyrir allt þitt framlag í okkar þágu. En nú hafa orðið þær umbætur á öllum kjörum okkar íslendinga, að við getum vel komist af án þess að þurfa að heimta líf þitt okkur til bjargar. Við gætum því leyft þér að lifa frjálsu lífi við sameig- inlegar strendur ykkar og okkar, án þess að þér stafaði ógn af fram- ferði okkar. En erum við menn sannir vinir þinir í raun? Því er nú ver að svo er ekki. í stað þess að vera þér þakklátir fyrir alla þá björg, sem þú hefur veitt okkur þá erum við nú farnir að sækjast eft- ir lífi þínu, í miklu meiri mæli en fyrr og án neinna þarfa. Einhverjir fundu upp á því að greiða verðlaun hverjum þeim manni, er gæti drepið þig. Því er nú verr, að drápseðlið er svo ríkt í mörgum manninum, að hann svífst einskis, ef honum.er gefinn laus taumur til að drepa án ámæl- is. Þessir menn hafa ætt um allar strendur, skjótandi, limlestandi og drepandi, eingöngu til að svala morðæði sínu. Því nú reyndu þeir ekki að hafa af þér neinar nytjar, enda þurftu þeir þess ekki með. Ólafur Á. Kristjánsson skrifar: Margt er skrýtið í kýrhausnum þegar hann baular, sagði karlinn. Sama má segja um deilu mennta- málaráðherra og kennara um upp- sagnarfrest ríkisstarfsmanna, hvort hann á að vera þrír mánuðir eða sex í neyðartilfellum. Nú þegar kennarar ætla að hverfa frá kennslustörfum fyrir fullt og fast, á mjög óheppilegum tíma fyrir nemendur, vegna deilu um kaup og kjör, því ekki hafa þeir samúð með nemendum, telur menntamálaráðherra sig geta skyldað þá til starfa í þrjá mánuði til viðbótar við þá þrjá sem liðnir eru, sem eðlilegan frest án vand- ræða fyrir nemendur. Lögspeking- Þetta er ljótur leikur, og síst átt þú skilið, selur vinur minn og ná- býlingur, að svona sé með þig far- ið. Það er heit ósk mín að þessum ódæðisverkum linni og að þú fáir framvegis að una óáreittur af mönnum því lífi sem þér og okkur öllum hefur verið ætlað að njóta frá upphafi vegar. ar, sem hafa látið ljós sitt skína opinberlega um þetta deilumál, eru ekki sammála. Nú vill svo til að til er stofnun sem heitir Hæstiréttur og hefur síðasta orðið, ef hann fær slík þrætumál til úrskurðar. Hefur deiluaðilum ekki dottið í hug að leita á náðir þessa dóm- stóls eða eru þeir báðir hræddir við hugsanlegan úrskurð og vilja heldur pexa áfram um þetta at- riði, ásamt öllu öðru í þessu stríði? Væri nú ekki ráð að deiluaðilar kæmu sér saman um að byrja nú á því að fá úrskurð Hæstaréttar í snarheitum, það myndi hreinsa andrúmsloftið og greiða fyrir áframhaldandi samningum. Hæstiréttur úr- skuröi í málinu Þýzk borð fyrir: ★ Tölvuskjá og lyklaborð. ★ Tölvuprentara Vönduð Ódýr E. TH. MATHIESEN H.F. DALSHRAUNI 5 — HAFNARFIRÐI — SIMI 51888 llngir og aldnir njóta þess að borða köldu Royal búðingana. Bragðtegundir: — Súkkulaði, karamellu, vanillu og jarðarberja. evrópska og japanska bíla. Heildsala — Smásala Armúla 36. sími 82424. PósthóH 4180. 104 Reyk|avik
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.