Morgunblaðið - 14.04.1985, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985
Fræðsluhópur
fyrir fráskilda
FRÆÐSLU- og umræAuhópur fyrir
fólk sem nýlega hefur gengið í gegn-
um skilnað tekur til starfa mánudag-
inn 22. apríl kl. 20.30 á Vesturgötu
10. Haldnir verða sex vikulegir
fundir og takmarkast þátttakenda-
fjöldi við átta.
Stjórnendur hópstarfsins eru
félagsráðgjafarnir Nanna K. Sig-
urðardóttir og Sigrún Júliusdóttir.
Starfið byggir á fræðslu um skiln-
að, félagslega og tilfinningalega,
og er vettvangur fyrir gagnkvæm-
an stuðning og reynslumiðlun
þátttakenda. Um hefðbundna
meðferð er ekki að ræða heldur
innsæi, stuðning og fræðslu.
Nánari upplýsingar fást hjá
Tengslum sf. á Vesturgötu 10 kl.
14—18 alla virka daga.
(PrétUtilkynning)
^^^uglýsinga-
síminn er 2 24 80
Asgarður
Höfn, Hornafirði:
Morgunb)aði6/Haukur
Stjórnarmenn verbúðarinnar á Höfn í Hornafirði, þeir Sigfinnur Gunn-
arsson, útgerðarmaður, Hermann Hansson, kaupfélagsstjóri, og Lúðvík
Jónsson, útgerðarmaður.
Ásgarður tekinn í notkun
Höfn, Hornafirði, 29. mars.
SEINNI hluti Ásgarðs, verbúð-
anna á Hornafirði, hefur nú verið
tekinn í notkun.
Hafist var handa við byggingu
síðari hlutans árið 1983 og voru
verktakar allir heimamenn. I
nýja húsinu er sjónvarpsher-
bergi, setustofa, fjögur þriggja
manna svefnherbergi, gufubað,
þvottahús og íbúð húsvarðar,
sem er um 100 fermetrar, en
eldri íbúðin var 33 fermetrar.
Með tilkomu nýja hússins er
rúm fyrir 108 manns í 36 her-
bergjum. f hverju herbergi eru
sturta og hreinlætistæki.
Eigendur verbúðanna eru
KASK, sem á 'A hluta, en út-
gerðarmenn eiga %.
Fyrstu framkvæmdir við
byggingu verbúðanna hófust ár-
ið 1974 og var þeim lokið 1978.
Hefur vertíðin ætíð verið full-
skipuð, en í dag eru nokkur her-
bergi laus, sem stafar af skorti á
vinnuafli. Verbúðin er sögð ein
hin glæsilegasta á landinu og
hafa menn líkt henni við gott
hótel, enda aðbúnaður allur sem
best má vera.
— Haukur
athugo
að þú sparar
bensín með
því að aka
á réttum
dekkjum ?
FULLKOMIN HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
TÖLVUSTÝRÐ JAFNVÆGISSTILLING
GOODWYEAR
GEFUR 0'RÉTTA GR/P/Ð
„Vatnsforði Suð-
urnesja nægur
sem stendur"
„VATNSFORÐI Suðurnesja er nægur sem stendur, en hann hefur sín tak-
mörk. Á meðan ekki er tekið af forðanum nema til einnar laxeldisstöðvar þá
er engin hætta á vatnsskorti, en verði stöðvarnar 20 þá dugir vatnið ekki til,“
sagði Freysteinn Sigurðsson, deildarstjóri vatnsorkudeildar Orkustofnunar.
I grein er Karl Steinar Guðna- gengur með eina stöð en ekki 20
son, þingmaður Alþýðuflokksins,
skrifaði í Morgunblaðið á mið-
vikudag segir m.a. að sérfræð-
ingar Orkustofnunar hafi haldið
því fram á fundi Sambands sveit-
arfélaga á Suðurnesjum í nóvem-
ber sl., að vatnsforði væri af
skornum skammti á svæðinu.
Freysteinn sagði, að nú væri
mikilvægast að skipuleggja
vatnsnýtingu svæðisins. „Það hef-
ur ekki verið hingað til og þess
vegna hafa íslandslax hf. og önnur
fyrirtæki ekki getað gengið inn i
slíkt skipulag, heldur orðið að fara
aðrar leiðir," sagði hann. „Það
slíkar. Þarna er mikill áhugi á að
koma upp fiskeldisstöðvum og
annarri starfsemi, en í þessum
vatnsforða felst allt neysluvatn
sem sveitarfélögin þarna eiga kost
á yfir höfuð, nema þeir vildu
sækja vatn austur á Þingveili. Það
er því eðlilegt að sveitarfélögin
vilji ekki láta spilla vatninu fyrir
sér og því verður að skipuleggja
nýtinguna. Fjaðrafokið í kringum
mál Islandslax hf. er skiljanlegt,
en vatnsskortur er ekki sjáanlegur
sem stendur," sagði Freysteinn
Sigurðsson að lokum.
Verkfall sjómanna fjölg-
aði atvinnuleysisdögum
SKRÁÐIR atvinnuleysisdagar í marsmánuði sl. voru 46 þúsund á öllu landinu.
Þetta jafngildir því að 2.100 manns haH verið á atvinnuleysisskrá allan mánuð-
inn, eða sem svarar 1,8%af áætluðum mannafla á vinnumarkaði samkvæmt spá
Þjóðhagsstofnunar.
Samkvæmt yfirliti um atvinnu-
ástandið, sem gefið er út af Vinnu-
málaskrifstofu félagsmálaráðu-
neytisins, hefur skráðum atvinnu-
leysisdögum fjölgað frá fyrra mán-
uði um 16 þúsund og atvinnulausum
á skrá um 700 manns. Þá voru
skráðir atvinnuleysisdagar nú 7
þúsund fleiri en i sama mánuði i
fyrra og var marsmánuöur fyrsti
mánuðurinn á þessu ári þar sem
skráðir atvinnuleysisdagar reynd-
ust fleiri en i sama mánuði 1984.
Ástæður þessarar þróunar má fyrst
og fremst rekja til verkfalls sjó-
manna, enda gætti áhrifa verkfalls-
ins aðeins að litlu leyti í tölum
febrúarmánaðar.
Áhrifin af stöðvun fiskveiða
komu harðast niður á landsbyggð-
inni. Höfuðborgarsvæðið var með
tæp 19% af skráðu atvinnuleysi i
marsmánuði og nærri helmingi
færri daga en á sama tíma í fyrra,
en landsbyggðin með rúmt 81%.
Undanfarin ár hefur hlutdeild höf-
uðborgarsvæðisins í skráðu at-
vinnuleysi verið 35—40% að meðal-
tali.
Fyrstu þrjá mánuði yfirstand-
andi árs hafa verið skráðir alls 132
þúsund atvinnuleysisdagar á öllu
landinu á móti 180 þúsund á sama
tíma í fyrra. Þegar á heildina er
litið hefur atvinnuástand á 1. árs-
fjórðungi þessa árs verið verulega
betra en á sama tíma á síðasta ári.
Síðasta virkan dag marsmánaðar
voru 1.300 manns á atvinnuleys-
isskrá, en meðaltal mánaðarins var
eins og áður segir 2.100 manns.
Vinnustofa fynr norræna
listamenn sett upp í sumar
MENNINGAR- og listastofnun
Hafnarfjarðar, Hafnarborg, var ný-
lega úthlutað 125 þúsund dönskum
krónum úr norræna menningar-
sjóðnum til að setja upp vinnuað-
stöðu fyrir norræna gesti.
Einar I. Halldórsson, bæjar-
stjóri Hafnarfjarðar, sagði að
húsnæði Hafnarborgar væri gjöf
til bæjarins frá Sverri Magnús-
syni lyfsala og konu hans, Ingi-
björgu. Það hefðu snemma komið
upp hugmyndir um að innrétta
hluta húsnæðisins sem íbúð og
vinnuaðstöðu fyrir listamenn frá
öðrum Norðurlöndum, sem sækja
vildu ísland heim.
„Slikar gestavinnustofur eru
alls staðar á Norðurlöndum nema
hér, en samtök norrænna lista-
manna sjá um úthlutun á húsnæð-
inu,“ sagði Einar. „íslenskir lista-
menn hafa notfært sér slíka að-
stöðu á hinum Norðurlöndunum,
en við vonumst til að hægt verði
að taka þessa vinnustofu i notkun
þegar á næsta vetri."