Morgunblaðið - 14.04.1985, Blaðsíða 24
Á áttunda hundrað böm komu saman og sungu:
„Syngjandi barn, hamingjusamt barn“
I>að hcfur vart leynt sér að
sönglíf og kórstarf á vegum
skólanna hefur orðið æ öflugra á
undanfornum árum. Má segja
að það sé vart tiltökumál lengur
að hlýða á vandaðan söng barna-
kóra svo víða sem þá er orðið að
finna.
Dæmi um þetta þróttmikla
starf mátti merkja í lok mars er
um 800 börn komu til að syngja
saman í Langholtskirkju.
Að sögn Egils Friðleifssonar
stjórnanda Öldutúnskórsins var
tilefnið Landsmót íslenskra
barnakóra sem haldið er annað
hvert ár og var þetta í fimmta
skipti sem slíkt mót er haldið.
Það voru að þessu sinni 19
barnakórar víðsvegar af landinu
sem komu og stilltu saman radd-
ir sínar. !
Fyrst sungu kórarnir sitt í
hvoru lagi, en þá sungu þau lög
eftir Bach og Hándel í tilefni 300
ára afmælis þeirra og auk þess
sungu börnin ðnnur lög sem þau
höfðu æft saman. Að síðustu var
Landsbankinn:
þjóðsöngurinn sunginn.
Egill sagði að frumhugsunin
að baki þessa landsmóts væri að
syngjandi barn væri hamingju-
samt barn. Þá sagði hann að til-
gangurinn væri einnig að glæða
og efla skilning á fallegri tónlist
sem félagsþroska.
Eftir tónleikana fyrri daginn
var slegið á léttari strengi og
börnin komu með skemmtiatriði
er þau höfðu æft. Það voru einnig
gestir sem komu þ.e. hljómsveit
kvikmyndavers í Peking sem
stödd var hérlendis og þeir léku
forna kínverska tónlist. Þá komu
einnig félagar úr Musjca Antiqua
og fluttu efni frá fyrri öldum.
Helgi Bachmann framkvæmdastjóri lánasviðs
HELGI Bachmann hefur verið ráð-
inn framkvæmdastjóri lánasviðs
Landsbankans. Staða þessi er ný
innan bankans en lánasviði er ætlað
að sameina alla þá starfsemi, sem
lýtur að útlánum fyrirtækja.
Hér fer á eftir fréttatilkynning
Landsbankans um stöðuveiting-
una og hið nýja starfssvið;
Stofnað hefur verið nýtt starfs-
svið í Landsbankanum, lánasvið.
Lánasviði er ætlað að sameina alla
þá starfsemi, sem lýtur að útlána-
málum fyrirtækja. Hagdeild
bankans verður hluti lánasviðs, en
hún hefur fyrst og fremst fjallað
um útlánamál fyrirtækja á undan-
förnum árum. Þá mun útlánaeft-
irlit verða önnur megingrein lána-
sviðs og fyrirkomulag og fram-
kvæmd afurðalána hin þriðja.
Stofnun lánasviðs er liður I þeim
breytingum á starfsskipulagi
bankans, sem bankaráð ákvað að
framkvæma á sl. ári að tillögu
bankastjórnar.
Framkvæmdastjóri Iánasviðs
hefur verið ráðinn Helgi Bach-
mann. Hann varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1951, lauk cand. oecon prófi frá
viðskiptadeild Háskóla Islands
1955 og hóf það sama ár störf í
hagfræðideild Landsbankans og
Seðlabankans. Hann hefur verið
forstöðumaður hagdeildar Lands-
bankans frá 1961 og jafnframt
ráðunautur bankastjórnar um út-
lánamál.
Helgi Bachmann