Morgunblaðið - 14.04.1985, Page 27
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985
27
ljúfmenni, ekki til í honum hroki
þrátt fyrir velgengni og frægð.
Pétur var maður sem maður
gleymir ekki.“
„Lítillátur þrátt
fyrir mikinn frama“
Jón Þórarinsson, tónskáld, er
einn þeirra manna, sem kynntust
Pétri og hafði hann þetta um
hann að segja: „Persónuleg kynni
mín af Pétri hófust ekki fyrr en
eftir 1950. Þá var hann orðinn
roskinn maður og kominn heim
eftir mikinn frægðarferil í
Þýzkalandi. Yfir Pétri var mikil
reisn, hann var enginn hvers-
dagsmaður. Á söngferli sínum í
Þýzkalandi naut hann mikilla
vinsælda, sem hetjutenór, en upp
úr 1930 fóru aðstæður að vera
honum erfiðar þar. Hér heima
var lítið fyrir hann að gera, mann
með hans hæfileika. Hann hélt
nokkra tónleika, söng í óperettum
og við mörg hátíðleg tækifæri og
var aðalsöngvarinn með lúðra-
sveitinni á Lýðveldishátíðinni
1944. Það var helzt að lúðrasveit
gæti haft við honum, slik var
röddin. Erfiðleika hans eftir
heimkomuna má fyrst og fremst
rekja til þess að hér á landi á
þessum tíma var enginn starfs-
vettvangur fyrir svona mikinn
söngvara. Pétur var einstakt
ijúfmenni og allra manna lítillát-
astur þrátt fyrir þann mikla
frama, sem hann hafði hlotið og
elskulegur í allri umgengni."
Páll Ísólfsson,
tónskáld.
Jón Þórarinsson,
tónskálð.
Þingflokkur
kvennalistans:
Fordæmir harð-
lega ákvörðun
bankaráðanna
Á þingflokksfundi Kvennalistans
10. apríl var samþykkt svohljóóandi
ályktun:
„Þingflokkur Kvennalistans for-
dæmir harðlega þá ákvörðun
bankaráða ríkisbankanna að
greiða bankastjórum sínum 450
þús. kr. á ári til kaupa á einkabíl-
um.
Þessi ákvörðun er því miður að-
eins eitt dæmi um það siðleysi,
sem ríkir hér á landi, þegar kaup
og kjör eru ákveðin. A meðan
stjórnvöld láta sér sæma að
skerða stórlega laun í landinu og
daufheyrast við kröfum um
mannsæmandi laun fyrir unna
vinnu samþykkja fulltrúar fjög-
urra stjórnmálaflokka í bankaráð-
um ríkisbankanna þvílíkan styrk
til hálaunamanna og verðtryggð-
an að auki í bága við gildandi lög.
Þessi ákvörðun sýnir í hnotskurn
aðstöðumun fólks hér á landi og
hvernig samtrygging gömlu
stjórnmálaflokkanna viðheldur
honum.
Kvennalistinn er mótfallinn
hvers konar fríðindum og launa-
aukum, sem eru til þess eins falln-
ir að auka tekjubilið í þjóðfélag-
inu. Þar sem ekki verður séð, að
bankastjórar þurfi meira á bílum
að halda vegna starfa sinna en
annað vinnandi fólk telur þing-
flokkur Kvennalistans réttast að
afnema slíka bílastyrki til þeirra
með öllu.“
VZterkurog
k-/ hagkvæmur
auglýsingamióill!
plor|jmihIahit>
Handhafar öryrkjaleyfa athugið:
Þegar þið kaupið
POLONEZ
fáið þið stóran og sterkan bí) við ykkar hæfi en á smábílaverði:
155.800,- kr. kominn á götuna.
★ Þjónustan hjá okkur er rómuð.
★ Við bjóðum ykkur góðan reynsluakstur
og aðstoð við lausn einstakra vanda-
mála.
★ Komið og kaupið stóran og sterkan bíl
sem er þægilegur í akstri, hagnýtur, end-
ingargóður og fallegur.
Polonez-umboöiö Ármúla 23, s. 685870 - 81733.
Baðinnréttingar ffyrír þá sem hafa
góðan smekk.
VALD. POULSENI
Suðurlandsbraut 10. Sími 686499.
Innréttingadeild 2. hæð.
Seltirningar - Mosfellingar !
Hjón um þritugt með tvö börn og vel tamin hreinræktaöan
hund óska aö taka á leigu 3ja-4ra herb. ibúö, eöa ein-
býlishús. Reglusemi og góöri umgengni heitiö.
Upplýsingar i síma 667144 eöa 36460 eftir kl. 18.00.
WRANGLER
JEPPADEKK ,
L