Morgunblaðið - 14.04.1985, Page 30

Morgunblaðið - 14.04.1985, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985 Útgefandi nMahíl* hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 330 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 25 kr. eintakiö. Stefnumótun í atvinnumálum Asmundur Stefánsson, forseti ASÍ, segir í skýrslu til mið- stjórnar sambandsins um at- vinnumál, að stórstígar efna- hagsframfarir hafi orðið á ís- landi fyrstu sjö áratugi aldarinn- ar. „Síðustu 10 árin höfum við hinsvegar," segir forseti ASÍ, „ekki þokazt fram á við og því dregizt verulega aftur úr flestum nálægum löndum. Þó efnahags- kreppan hafi dregið úr hagvexti hefur nágrannalöndunum flest- um miðað nokkuð á leið.“ Það er þess vert að hugleiða þessi orð í ljósi þess að Alþýðu- bandalagið átti sæti í ríkisstjórn- um hér á landi 1971—1974 og 1978—1983 eða samtals í 8 ár, fór m.a. með ríkisfjármál, húsnæð- ismál, félagsmál, menntamál og orkumál. Á þessum árum blómstruðu verðbólgan og geng- islækkanir meir en nokkru sinni en kaupgildi hins íslenzka gjald- miðils og launa seig að sama skapi. Þá greip ríkisvaldið ósjald- an inn i gerða kjarasamninga á þessu árabiii, alltaf til skerð- ingar. Forseti ASÍ vekur athygli á tveimur kjarnaatriðum í skýrslu sinni, sem flestir ættu að geta verið sammála um: • Árið 1981 var heildarfjöldi ársverka talinn rúm 109 þúsund. Fram til aldamóta, þ.e. á tímabil- inu 1981—2000, gæti fjölgun á vinnumarkaði numið 35 þúsund einstaklingum. • Framsýn atvinnustefna og samkomulag í þjóðfélaginu um brýnustu verkefni er forsenda bæði fyrir bættum kjörum og at- vinnuöryggi. Þegar forseti ASÍ leitar svara við spurningunni hversvegna við höfum dregizt aftur úr öðrum þjóðum kjaralega, segir hann: „Naumast er vafi á því að óljós markmið í atvinnumálum hafa ráðið miklu. Það má raunar taka svo djúpt í árinni að segja að hér hafi engin stefna verið í þeim efnum.“ Þessi ummæli eru ekki út í hött, þótt stór séu. Fjárfest- ingarmistök, sem ekki skila arði í þjóðarbúið, heldur eru baggi á því, og offjárfesting í einstökum atvinnugreinum, sem þýða meiri rekstrarkostnað á hvert veitt tonn eða unna einingu, auka ekki skiptahlutinn í þjóðfélaginu, fremur en hin erlenda skulda- söfnun. Við höfum ekki lagt nægilega áherzlu á nýsköpun atvinnuhátta okkar, tækniþróun, markaðsmál og sölumennsku. „Fjárfestingar- kerfið, menntakerfið og beinar stjórnvaldsaðgerðir verða að þjóna stefnunni," segir forseti ASÍ, „í stað þess að eitt vinni gegn öðru.“ „Miklu skiptir", segir hann ennfremur, „að hér verði viðhorfsbreyting og sú hugsun ráðandi að allir möguleikar séu metnir út frá hagkvæmnisjón- armiði í víðum skilningi og áherzla lögð á atvinnurekstur, sem getur greitt hátt kaup og er líklegur til að lyfta tæknistigi þjóðfélagsins.” Skýrslan tekur og jákvætt undir hugmyndir um orkuiðnað og samstarf við er- lenda fjármagns-, tækni- og markaðsaðila í þeim efnum. Þegar Morgunblaðið bar fram- angreind ummæli forseta ASÍ undir forystumenn stjórnar og stjórnarandstöðu taka þeir yfir- leitt vel í viðhorf hans. Jón Bald- vin Hannibalsson, formaður Al- þýðuflokksins, segir skýrsluna geta orðið fyrsta vísi að stefnu- mótun verkalýðshreyfingar í at- vinnumálum. „Ég tel ljóst að hefðbundin kjarabarátta hefur ekki borið árangur," segir hann ennfremur, „og sízt fyrir þá sem verst eru settir í þessu þjóðfé- lagi.“ Svavar Gestsson, formaður Alþýðubandalagsins, er daufast- ur í dálkinn aðspurðra um skýrsl- una; sýnist hallari undir þær eldri hefðir í kjarabaráttu, sem skilað hafa okkur fremur aftur á bak en áfram. Skýrsla forseta ASÍ er í raun jákvæð gagnvart hugmyndum, sem ábyrgir stjórnmálamenn innan og utan ríkisstjórnar hafa sett fram, um þjóðarsátt, er hafi nýsköpun atvinnulífs og bætt lífskjör í landinu að leiðarljósi. Vel fer á því ef viðræður aðila vinnumarkaðarins leiða til sam- eiginlegrar afstöðu í atvinnumál- um. Bætt lífskjör, sem er sameig- inlegt keppikefli, felast fyrst og fremst í þeim verðmætum, sem til verða í þjóðarbúskapnum, og þeim viðskiptakjörum við um- heiminn, er okkur tekst að ná. Lífskjör verða hinsvegar hvorki til i slagorðum né verkföllum. Rauða fjöðrin — Grettistak Landssöfnun Lions-hreyfingar til kaupa á línuhraðli í Krabbameinsdeild Landspítalans er lofsvert Grettistak. Þetta Grettistak getur heimt margan manninn, sem verður fyrir krabbameini, aftur til heilbrigði og hamingju, en um 700 ný krabbamein greinast hér á ári. Þetta Grettistak er þó lauflétt að bera, „ekkert mál“, ef við tökum samhuga og samhent á viðfangs- efninu. Megi hin rauða fjöður Lions- manna — í barmi sem flestra landsmanna — vitna um þann samtakamátt, sem í okkur býr. Og um vilja og hyggindi til að nýta hann til góðs fyrir einn og alla. Myndbönd Hafa má margvísleg not af myndböndum. Þau geta flutt mönnum margt annað en sorp og sora, stundum jafnvel mikilvægan fróðleik og mikla list. Þannig er hægt að fá ýms- ar útgáfur af Shakespeare á mynd- bandaleigum, listaverk eins og Yentl og ljóðrænt stórvirki eins og Tess, svo að dæmi séu tekin. Þegar talað er um myndbönd eru menn of oft með hugann við klámmyndir og óstöðvandi kæki eins og bandarísku framhaldsþættina. Hitt er sjaldnar minnzt á sem geymir mikla list merkilegra leikara og er ekki síður ástæða til að kynna sér en góða bók sem á erindi við umhverfi sitt. Mikið hefur verið rætt um einkarétt Ríkisútvarpsins á útvarps- og sjón- varpsrekstri og ótta Alþingis við frelsi í þeim efnum; hik og holtaþokuvæl sem minnir einna helzt á „sannfæringar- kraft" kerfiskarla skipulagshyggjunnar í Sovétsamveldinu. Stundum glenna menn sig út af því sem sumir virðast óttast mest af öllu, frjálshyggju svokall- aðri, en hún er í raun og veru engin sérstök kenning og er sízt af öllu nein trúarbrögð eins og marxisminn, heldur margvíslegar skoðanir á því hvernig maðurinn sé frjálsastur í umhverfi sínu enda eiga svonefndir frjálshyggjumenn það eitt sameiginlegt að þeir bera ein- staklinginn fyrir brjósti, aðstöðu hans í þjóðfélaginu og vilja að hann sé frjáls en ekki þræll neins kerfis — og allra sízt fulltrúa ríkisforsjárinnar. Frelsi í miðlun myndbanda er eitt af því sem frjálshyggjumenn telja sjálf- sagðan hlut. Einstaklingurinn á að eiga kost á því að velja úr fjölbreyttu safni myndbanda ekki síður en t.a.m. þeirra bóka sem á markaðnum eru. Frjáls- hyggjumenn eru líklega einnig allir sammála um það að einstaklingurinn hefur leyfi til að velja sér myndbönd með vondu efni en þó vilja þeir helzt að allir komizt til þess þroska í þjóðfélag- inu að þeir kunni fótum sínum forráð í þeim efnum sem öðrum. Verst telur góð- ur frjálshyggjumaður þegar smekklitlir, fordómafullir og stundum forpokaðir einstefnumenn ríkisforsjárinnar hrifsa til sín völd og áhrif í skjóli einokunar eins og við búum við í útvarps- og sjón- varpsrekstri. Hröð aukning myndbandaleiga er auðvitað ekkert annað en andsvar við þessari einokun í sjónvarpsrekstri enda er margt efni betra á myndbandaleigum en það sem birtist á hinum opinbera skjá. í sjónvarpinu eru þó gerðar til- raunir með frambærilegt innlent efni, svo að öllu réttlæti sé fullnægt, en samt þjáist þessi opinbera stofnun af sam- keppnisleysi og allar beztu kvikmyndir íslenzkar hafa verið gerðar af einka- rekstrarmönnum en ekki því opinbera. Það eitt ætti að vera nægileg lexía fyrir Alþingi íslendinga þegar það fjallar um sjónvarpsrekstur en hefur þó ekki dug- að til. En kvikmyndaframleiðendur eiga undir högg að sækja vegna þess hversu lítið íslenzkt þjóðfélag er. Sakharov-mynd Hjá Nýju vídeóleigunni (vont nafn; hvenær ætlum við að losa okkur við þetta óþarfa orð vídeó — myndband er gott íslenskt orð) er nú hægt að fá merka kvikmynd sem framleidd var í fyrra, Sakharov, og sýnir hún betur en flest annað hvernig fer þar sem hin kalda hönd skipulagshyggjunnar drepur allt í dróma og kerfið getur jafnvel ekki notið góðs af mikilvægri hugsun snill- ings á borð við Andrei Sakharov og kröfum hans um frelsi einstaklingsins, reisn hans og ræktun andlegs atgervis. Hið eina sem Sovétkerfið hafði áhuga á í lífi og störfum Sakharovs voru hæfi- leikar hans til að framleiða vetnis- sprengju, enda fékk hann ungur bæði Lenins- og Stalínsorðuna fyrir framlag sitt í þeim efnum. En svo opnuðust augu hans. Hann fór að sjá fjötraða samborgara sína allt í kringum sig og þoldi ekki það sem hann sá. Fyrst settist efinn að honum, síðan fann hann hjá sér löngun til að taka þátt í baráttu fyrir andófsmenn, skrif- aði undir skjal til stuðnings Yuri Daníel sem hafði verið dæmdur í Gúlagið fyrir skrif sín. Þá sagði fyrri kona Sakharovs skömmu áður en hún dó: Þú gengur of langt — og hún hafði miklar áhyggjur af manni sínum, ekki að ástæðulausu. En hann gat ekki annað en gengið of langt. Hann var hættur að þola kerfið, forréttindi sín, ekki sízt þau. Og nú fór hann að fylgjast með baráttu andófs- manna, leggja þeim lið, setja sig inn í málstað þeirra. Skömmu eftir að fyrri kona hans lézt voru laun þessa frægasta raunvísindamanns Sovétríkjanna fyrr og síðar skert um helming. En hann lét sér fátt um finnast og tók því meiri þátt í mannréttindabaráttunni sem honum var hótað meira. Ríkið - öllu ofar Og hvernig var Sakharov hótað? Að sjálfsögðu með því vopni sem ávallt er otað að einstaklingum: kröfu kerfisins, ríkið verður ..., í þágu ríkisins ..., hagsmunir ríkisins ... ríkið fyrir ríkið. (!) Ríkið fyrst og síðast; ekki einungis hagsmunir ríkisins í útvarps- og sjón- varpsrekstri eins og hér á landi — ef hagsmuni skyldi kalla vegna þess þeir ganga í berhögg við hagsmuni einstakl- ingsins, heldur einnig hagsmunir ríkisins á öllum sviðum. „Glæpur" Sakharovs var sá að hann gekk ekki lengur erinda ríkisins heldur einstaklingsins og hafn- aði loks því kerfi sem hafði skreytt hann með Stalínsorðunni, Lenínsorðunni og öðru einskis nýtu erfðagóssi frá tímum einveldiskonunga. Barátta Sakharovs- hjónanna í mannréttindasamtökunum kynntist Sakharov síðari konu sinni, lækninum Elinu Bonner, sem hafði særzt á auga í stríðinu og að því kæmi að hún missti sjónina, ef ekki yrði að gert. Hún fór til skólasystur sinnar, augnlæknis í Moskvu, þá nýgift Andrei Sakharov, en hún sagði henni að hún missti vinnuna ef hún veitti henni læknishjálp. Þá var hafin hatrömm barátta fyrir því að El- ina Bonner kæmist til uppskurðar á ít- alíu og vegna ótta Sovétstjórnarinnar við almenningsálitið á Vesturlöndum lét hún loks undan þessari kröfu. Þá hafði Andrei Sakharov verið sviptur öll- um mannréttindum í þessu fyrrum fyr- irmyndar- og forréttindaríki sínu. Hann stóð einn með baráttufélögum sínum, en þó aldrei stærri. Frjáls, per- sónugerð samvizka Rússlands, umvaf- inn ást og kærleika nánasta umhverfis og er einkar athyglisvert að fá að skyggnast inn í heimilislíf þeirra hjóna því að það er vel gert í myndinni enda engir aukvisar sem þar koma við sögu, þar sem eru Jason Robards sem leikur Sakharov og Glenda Jackson sem leikur Elinu konu hans. Það er ekki sízt áhrifamikið að sjá sendifulltrúa norsku stjórnarinnar koma í heimsókn til Sak- harovs meðan kona hans er á Italíu og tilkynna honum að hann hafi hlotið friðarverðlaun Nobels. Það er áhrifa- mikið andartak í myndinni og sýnir vel hvers virði slík viðurkenning er þeim sem berst við alræði og er fyrirlitinn í því umhverfi sem hið opinbera setur á svið í kringum frægan andófsmann. Áhrifamikil mynd Þessi kvikmynd fjallar um ævi And- rei Sakharov og virðist gera henni góð skil. Hún er áhrifamikil og varpar ljósi á líf hans og störf. Hún er því mikilvægt framlag í þeirri baráttu sem þau hjón heyja nú, heilsulitil og að því að sagt er MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985 31 REYKJAVÍKURBRÉF laugardagur 13. apríl Andrei Sakharov og kona hans, Yelena Bonner. Talið er víst, að þessi mynd af þeim hjónum hafi verið tekin í borginni Gorky, en þangað voru þau send í útlegð innanlands. Tanya Yankelevich, stjúpdóttir Sakharovs, ásamt manni sínum, Efrem, og bróður, Alexey semenov. Myndin var tekin í janúar árið 1980 þegar þeim höfðu borizt fréttir um, að KGB-menn hefðu handtekið Sakharov. Voru þau þá stödd í Bandaríkjunum. að niðurlotum komin, úr fangelsinu í Gorky, þar sem þau nú eru í útlegð. Þessi borg minnir á örlög mikils rithöf- undar sem taldi byltinguna til bóta á sínum tíma, var jafnvel e.k. persónu- gervingur hennar, en var myrtur af út- sendurum þessa sama kerfis eins og nú er komið í ljós. Kerfi sem þolir ekki frægustu rithöf- unda sína er ekki upp á marga fiska. Og kerfi sem þolir ekki Andrei Sakharov, snillinginn sem uppgötvaði náttúrulög- mál og nefna má í sömu andrá og Ein- stein og aðra slíka forvígismenn nú- tímaraunvísinda, er minna virði en skít- urinn á skósólum Gorbaséks. Menntaskólinn í Reykjavík er gömul stofnun sem haldið hefur reisn sinni og er nú kröfuharðari en jafnframt víð- sýnni fjölmiðill þekkingar en nokkru sinni. Við þessa virðulegu stofnun starfa margir merkir kennarar. Einn þeirra er Olafur Oddsson cand. mag., einn af íslenzkukennurum skólans. Hann skrifar athyglisverða grein í tímarit móðurmálskennara, Skímu, sem nú er helgað umræðum um íslenzka tungu, eins og Morgunblaðið hefur greint frá. Við ljúkum þessu Reykjavík- urbréfi með tilvitnun í niðurlag greinar Ólafs. Hann segir: „En þó að viðhorfin séu um sumt sundurleit hygg ég að málverndarstefna og hófsamleg hreintungustefna séu enn meginsjónarmið í þessum efnum. Marg- ir telja að forðast beri allt ofstæki í því að berjast gegn öllum erlendum orðum án nokkurs undansláttar. En þeir telja þó að hreintungustefna eigi enn sem fyrr erindi við íslendinga. Jakob Benediktsson mælti eitt sinn svo um þessi efni: Til eru þeir menn, bæði útlendir og innlendir, sem gera gys að hreintungu- stefnu íslendinga, telja hana jafnvel hlægilega rómantík og úrelta íhalds- semi á þessum tímum alþjóðamennsku og stórveldadýrkunar. En því er til að svara að hún hefur þrátt fyrir allt varð- veitt samband okkar við fortíðina og fornar bækur okkar, tryggt okkur órofin tengsl við þá fjársjóði íslenzkrar tungu sem á bókum eru skráðir og enn lifa á vörum alþýðu, og síðast en ekki sízt forðað tungu okkar frá því að drukkna í flóði erlendra áhrifa. Islenzk menning er órjúfanlega tengd íslenzkri tungu, ís- lenzkum bókmenntum, íslenzkum orða- forða. Rofni þau tengsl, glatist sam- bandið við fortíðina, mundi þess skammt að bíða að saga islenzkrar menningar væri öll. Þættir um íslenzkt mál 108. — 109. bls.) Á síðustu árum hefur borið allmikið á „mannúðarsjónarmiðum" í mállegum efnum. Vara menn þá við höstugum að- finnslum og hæðnislegum athugasemd- um. Þetta geti reynst skaðlegt, orkað jafnvel í öfuga átt og stundum leitt til málótta. Ég er um sumt sammála þeim, sem þannig tala. Málið er lifandi fyrir- bæri sem lýtur um margt eigin lögmál- um. Það ber vitni um sérkenni hvers manns og hvers tíma. Lítt rökstuddar árásir á fólk eru oftast til ills. Menn miða þá gjarna við eigið mál og telja það hárrétt, en það sem er þeim fram- andi er þá ólögmætt. — Séð hef ég menn ráðast á aðra af því að framburður orðs- ins íslands var þeim ekki að skapi. Með því að fletta upp í Orðabók Blöndals má þó sjá að framburður er hér með tvenn- um hætti og mun það fara eftir lands- hlutum. Heyrt hef ég þau rök að þetta sé samsett orð og því sé framburðurinn ís-land einn réttur. Ekki þarf annað en benda á samsett orð eins og „vit-laus“ (þar sem sterkur aðblástur er á undan tannhljóðinu vegna hliðarhljóðsins) til að sýna að slík rök eru haldlaus. Ég hygg að farsælla sé og líklegra til árangurs að fara fremur varlega í mál- legum leiðbeiningum. Hér þarf að laða menn að málvöndun með góðu fordæmi og skynsamlegum rökum fremur en árásum, sem leitt geta til kergju. En þótt ég mæli með varúð í fyrr- greindum efnum hygg ég að íslendingar verði að taka upp harðari málstefnu í viðureign við þá sem hér útbreiða óþörf engilsaxnesk áhrif í tíma og ótíma. Og Hófsamleg hrein- tungustefna þá kastar nú tólfunum þegar sumir ís- lendingar nota ensku í samskiptum við landa sína. Þeir nefna fyrirtæki sín enskum nöfnum og auglýsingar ætlaðar íslendingum eru á ensku. Þetta er al- þjóðleg plága en þjóðirnar eru hér mis- jafnlega vel á verði. Nýlega mátti lesa í dönsku dagblaði auglýsingu sem var nánast á þessa leið: „Lad vor art-director team udforme Deres image promotion f.eks. ved direct mail efter internationale concepts." Þetta var gagnrýnt í blaði verkfræð- inga, Ingenioren, og ég hygg að Danir, vinir vorir og frændur, muni brátt rísa upp gegn þessari plágu. Og við getum litið okkur nær. Flestir harma lítt að „bólingið" var kveðið í kútinn en fleira slíkt er á ferli. Virðuleg bílabúð auglýsti nýlega í víðlesnu blaði: BODDÍ BULDING? [svo!] og mun átt við það þegar gamlir bílar eru gerðir upp eða endurbættir. Margt annað í auglýsingum og blöðum er með svipuð- um hætti. Ég hygg að þessi niðurlæging tungunnar sé afleiðing yfirþyrmandi engilsaxneskra áhrifa á mörgum svið- um. En við íslendingar, sem viljum eiga góð skipti við allar þjóðir, ekki síst norræna frændur vora, svo og engil- saxa, verðum að taka hér upp mun ákveðnari og áhrifameiri menningar- og málstefnu. Taka þarf hina ásæknu eng- ilsaxnesku plágu miklu fastari tökum. Annars kann illa að fara.“ „Mikid hefur verid rætt um einkarétt Ríkisútvarps- ins á útvarps- og sjónvarps- rekstri og ótta Alþingis við frelsi í þeim efnum; hik og holtaþokuvæl sem minnir einna helzt á „sannfæringar- kraft“ kerfis- karla skipu- lagshyggj- unnar í Sovét- samveldinu.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.