Morgunblaðið - 14.04.1985, Side 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985
maður sem hefur
þurft að færa fórnir
fyrir list sína
Mikið hefur verið skrafað og
skrifað um David Lean og
mynd hans A Passage to India
undanfarnar vikur, ekki síst
vegna útnefninganna ellefu til
Óskarsverðlauna. Hér er ekki
ætlunin að fjalla um þessa
nýju stórmynd hans, heldur
verður farið í stórum stökkum
þvers og kruss í gegnum hinn
langa og um margt stórbrotna
lífsferil hans.
Áttræður unglingur
David Lean skipar óvenjulegan
sess í kvikmyndasögunni. Burtséð
frá öllum listaverkunum sem
hann hefur skapað (og verður
fjallað um síðar í greininni)
myndi lengd starfsferils hans
tryggja honum pláss í mannkyns-
sögubókum. Lean var 19 ára þegar
hann fékk fyrsta starf sitt í
kvikmyndaveri árið 1927, eða þeg-
ar Laxness var að hamast yfir
kvikmyndinni bandarisku; og
hann er enn að 58 árum síðar,
ferskari og kraftmeiri en margir
„unglingar" í kvikmyndabransan-
um.
David Lean er óvenjulega ráð-
vandur kvikmyndagerðarmaður.
Hann hafði t.a.m. ekki gert kvik-
mynd í þrettán ár þegar hann
byrjaði á „Ferðinni til Indlands",
einfaldlega vegna þess að hann
hafði ekki efni í höndunum sem
dugði í heila kvikmynd. Minni spá-
menn þekkja ekki slíkan hugsun-
arhátt. Að þessu leyti á risi hinnar
vestrænu kvikmyndar, Lean, og
risi hinnar austrænu kvikmyndar,
Kurosawa, æði margt sameigin-
legt. Báðir njóta ótakmarkaðrar
virðingar kollega sinna. Spielberg
segist ekki vita um neinn leik-
stjóra sem ekki falli á kné þegar
minnst er á Kwai-brúna eða
Lawrence of Arabia, tvær þekkt-
ustu mynda Leans. Spielberg seg-
ist bera mikla virðingu fyrir Lean,
enda búi Lean yfir ríkari orða-
forða í kvikmyndinni en nokkur
annar.
David Lean er tæplega áttræð-
ur, fæddist inn í kvekarafjöl-
skyldu árið 1908. Lean fékk
1 snemma áhuga fyrir bíómyndum,
en þar sem trú foreldra hans taldi
kvikmyndina ekki aðeins óþarfa
heldur syndsamlega, þá var oft
erfitt fyrir snáðann aö komast í
bíó. Faðir hans stakk af, og þegar
Lean var 13 ára fór hann í heima-
vistarskóla. Fjarri fangelsismúr-
um æskuheimilisins gafst honum
færi á að sinna áhugamálum sín-
um. Hugur hans beindÍ3t að ljós-
myndun og eyddi hann mörgum
tímum sólarhringsins í kvik-
myndahúsum. „Kvikmyndin heill-
aði mig gersamlega," sagði Lean
síðar. Fyrsta myndin sem hann sá
hét „Baskerville-hundurinn", gerð
1921. Þögul, en fögur svart/hvít
myndin náði slíkum tökum á
drengnum að hann afréð að
freista gæfunnar í ungum heimi
kvikmyndanna.
Saumakonan
Enda þótt kvikmyndin hafi töfr-
að drenginn Lean meir en nokkuð
annað, þá gekk það ekki alveg and-
skotalaust að komast í leikstjóra-
1. Gamlir vinir og félagar: David Lean og Alec Guinness, sem hafa unniö saman að
sex kvikmyndum. 2. Fyrsta og eina grínmyndin sem Lean hefur gert, Hobson’s Choice
(1954) með Charles Laughton. 3. Sena úr Zhivago lækni (1965). 4. Kwai-brúin (1957):
ógleymanleg mynd um tilgangsleysi stríðs. 5. Sarah Miles lék Dóttur Rayans (1970). 6.
Judy Davis og Victor Banerjee leika Adelu og Aziz í nýrri mynd Leans, Ferðinni til
Indlands. 7. Peter O’Toole í hlutverki Lawrence of Arabia (1962) 8. Pip og Miss
Havisham í Great Expectation (1946) sem Lean byggði á sígildrí skáldsögu eftir
Charles Dickens.
stólinn. Aðeins nítján ára fékk
Lean vinnu hjá Gaumont kvik-
myndaverinu í Lundúnum. Starfi
hans var að sækja te fyrir leikara-
hópinn. Smám saman skoppaði
hann upp metorðastigann, var
orðinn „þriðji aðstoðar-leikstjóri"
innan nokkurra mánaða.
David Lean var ungur að árum
en hann þroskaðist fljótt. í viku
hverri iærði hann eitthvað nýtt í
galdrastofunni sem kvikmyndin
er. Lean hefur sagt frá því þegar
hann fyrst almennilega skildi
þetta nýja tungumál, sem engum
takmörkum virtist. bundið. Þegar
hann var á sendla-stiginu vingað-
ist hann við sýningarstjórann,
sem vann við að sýna það efnt sem
hafði verið tekið þann og þann
daginn. læan fékk þennan mann
til að leyfa sér að horfa á allt efn-
ið. Lean hafði séð sum atriðin tek-
in upp, og hann vissi að þau voru
tekin með margra stunda millibili,
en það sem heillaði' nn mest var
hvernig atriðin voru „saumuð
saman". Það fannst honum ganga
göldrum næst.
Lean gerðist klippari og brátt
fór af honum orð sem afbragðs at-
vinnuklippari. Fyrst klippti hann
fréttamyndir, en hann varð eftir-
sóttur meðal virtra leikstjóra áður
en heimsstyrjöldin skall á. Hann
var ekki síður þekktur fyrir
óvenjulegar aðferðir. Hann notaði
nefnilega gamall klippiborð, sem
hafði verið notað fyrir þöglar
myndir, til að klippa talmyndir;
fyrir Lean var myndin í íyrirrúmi,
en hljóðið aukaatriði.
Á stríðsárunum klippti hann
eingöngu stríðsmyndir sem voru i
tísku. Honum var boðið að leik-
stýra, en Lean beið eftir rétta
tækifærinu. Það kom loks þegar
leikritaskáidið Noel Coward, sem
lítið þekkti til tæknihliöa kvik-
myndanna, byrjaði að gera mynd-
ir. Coward fékk Lean sér til að-
stoðar og í sameiningu gerðu þeir
nokkrar myndir. Sú þekktasta
heitir In Which We Serve (1942).
Coward gaf Lean nokkur föður-
leg heilræði. Eitt: aldrei nota
sömu hugmyndina tvisvar. Tvö:
gerðu ætíð það sem hugurinn
girnist, en ef fólkinu líkar ekki
það sem þig langar að gera, þá
skaltu hætta strax. — Fyrsta
atriðið hefur Lean alltaf í heiðri
haft, en hann er of mikill lista-
maður til að fara eftir hinni tæru
markaðskenningu í númer tvö.
Lístræn öskur
1945 er merkisár: það markar
endalok blóðsúthellingarinnar
miklu, en það markar einnig upp-
haf leikstjórnarferils David
Leans. Árin 1944 og 1945 gerði
hann þrjár myndir, This Happy
Breed og Blithe Spirit, en það var
þriðja myndin, Brief Encounter,
sem er fyrsta merka varðan á
langri leið Leans í gegnum lífið.
Myndin var byggð á sögu
Cowards, en Lean ljáði sögunni
persónuleg einkenni sem dýpkuðu
hana.
Næstu tvær myndir byggði Lean
á heimsþekktum skáldsögum eftir
Charles Dickens, Great Expect-
ations (1946) og Oliver Twist (1948).
Alec Guinness lék Fagin i þeirri
síðarnefndu, og var það upphafið