Morgunblaðið - 14.04.1985, Page 39

Morgunblaðið - 14.04.1985, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985 39 Nú getur þú eignast Nordmende sjónvarp eða myndbandstæki með aðeins 8.000 króna útborgun. Eftiistöðvar greiðast á átta mánuðum Nordmende hefur ávallt veriö leiöandi fyrirtæki á sínu sviði. Fyrirtækiö hefur margoft kynnt tækninýjungar, sem keppinautarnir hafa síðan nýtt sér. Vísindamenn Nordmende í Bremen hafa unniö enn einn sigur! NORDMENDE Nú gerir Radíóbúöin þér kleift aö eignast Nordmende sjónvarp eöa mynbandstæki meö aðeins 8.000 króna útborgun og eftirstöðvum á átta mánuöum. Þú getur valiö úr fjölbreyttu úrvali tækja. Öll eru þau glæsilega hönnuö og tæknilega fullkomin. Tryggöu þér nýtt Nordmende á góöum kjörum. Skipholti 19. Reytqavik. S: 29800 Gyðingleg fræði PRÓFESSOR Jacob Neusner, pró- fessor í gyðinglegum fræðum við Braun University á Rhode Island í Bandaríkjunum, flytur fyrirlestur við guðfræðideild Háskóla Islands á morgun, mánudaginn 15. aprfl, kl. 10. Fjaílar fyrirlesturinn um sam- skipti Gyðinga og kristinna manna á fyrstu öld e. Kr. Próf. Neusner er Gyðingur og meðal virtari fræðimanna í gyð- inglegum fræðum segir i frétt frá háskólanum. Er ísland fyrsti við- komustaður hans á fyrirlestraferð um Norðurlönd. Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu 5, annarri hæð í aðalbyggingu Háskólans, og er öllum opinn. í Norræna húsinu Á MORGUN, sunnudag, kl. 20.30 mun Christopher Keyte bassbariton og Karen Woodhouse sópran, bæði frá Bretlandi, halda tónleika í Nor- ræna húsinu. Christopther Keyte hefur sung- ið á stórum tónlistarhátíðum i Evrópu og farið í nokkrar tón- leikaferðir til Ástraliu og Nýja Sjálands. Hann hefur á söngskrá sinni tónlist frá öllum tímabilum, allt frá barrokk til nútímaverka og hefur gefið út meira en 50 hljómplötur. Karen Woodhouse er ung sópr- ansöngkona, sem hefur vakið mikla athygli fyrir söng sinn und- anfarið. Hún hefur haldið fjölda einsöngstónleika, gert upptökur fyrir BBC og hefur nýlokið þátt- töku í sjónvarpsupptöku, sem byggð er á lífi Handels. Undanfar- in 3 ár hefur hún kennt söng og píanóleik við Kingsmead School i London. Karen leikur á píanóið með Christopher Keyte á tónleikunum en auk þess syngur hún með hon- um dúetta og einnig syngur hún einsöng við undirleik. Á efnisskrá eru einsöngslög og dúettar eftir Henry Purcell, Ralph Vaughan Williams, Roger Quilter, Arthur Benjamin og William Walton (Frétta(ilkynning) vinningarnir úr 2500 krónum í 3000 krónur en þeim fækkar jafnframt úr 5700 í rúma 5000. Helstu breytingar eru því hækk- anir og fjölganir millivinninga eða 720 utanlandsferðir á 40.000, eða 60 í hverjum mánuði, og 1320 hús- búnaðarvinningar á 10.000, eða 110 í hverjum mánuði. Mánaðarverð miða breytist í 130. Hagnaður af rekstri happ- drættisins verður þannig að 60% falla til framkvæmda Sjómanna- dagsráðs við Hrafnistu í Hafnar- firði og 40% fara í Byggingarsjóð aldraðs fólks í umsjá Trygginga- stofnunar ríkisins. Við Hrafnistu í Hafnarfirði er nú verið að ljúka við endurhæf- ingardeild og meðferðarsundlaug og lagfæringu lóðar. Næstu framkvæmdir verða við næsta smáhýsahverfi, en. þau eru fyrirhuguð fjögur. NÝTT happdrættisár er að hefjast hjá happdrætti DAS. Vinningar hækka nú að verðmæti um 30% og verða þá að heildarverðmæti 75.144.000. Hæstu vinningarnir hækka ekki heldur lækka lægstu Tónleikar Karen WoodboosF Ckrurtopber Kejrte Vinningar hjá DAS hækka

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.