Morgunblaðið - 14.04.1985, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 14.04.1985, Qupperneq 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985 Margrét Halldórs- dóttir — Kveðja Fædd 27. janúar 1902 Dáin 31. mars 1985 Nú kveðjum við Möggu frænku, Margréti Halldórsdóttur. Hún varð síðust til að kveðja fjögurra ömmusystra okkar frá ísafirði. Við minnumst þeirra með gleði í hjarta, því kátari og skemmtilegri systur er vart hægt að hugsa sér. Þessar síkátu, lágvöxnu konur að vestan veittu okkur systkinunum margar ánægjustundir í Drápu- hlíðinni. Systur Möggu, sem við kynntumst, voru þær Áróra leik- kona og Anna sem bjó á ísafirði. Möggu þökkum við ferðina í Þorskafjörðinn og alla umhyggju hennar fyrir okkur, krökkunum, alla tíð. Guð blessi hana og varðveiti. Útför frænku okkar fer fram á morgun, mánudaginn 15. apríl, frá Fossvogskirkjunni kl. 15. Dóra, Pétur og Ágústa Skært geta leiftrin logað. Liðin og myrkvuð ár birtast í blárri móðu sem bros í gegnum tár. Bak við heilaga harma er himinninn alltaf blár. (D.St.) Margrét fæddist á ísafirði. Hún var dóttir hjónanna Ástríðar Eb- enesersdóttur og Halldórs ólafs- sonar murarameistara og um langt skeið lögregluþjóns á ísa- firði. Faðir Astríðar, Ebeneser Matthíasson, var smiður, búsettur í Stykkishólmi og síðar í Flatey, en hélt til ísafjarðar í atvinnuleit um 1860 og vann þar við húsa- smíðar, m.a. við byggingu ísafjarðarkirkju, en smíði hennar lauk 1863. — Síðar rakti Ástríður spor föður síns til ísafjarðar og kynntist þá Halldóri og gengu þau í hjónaband 13. janúar 1898. Foreldrar Halldórs voru Elín Halldórsdóttir frá Gili í Bolunga- vík (af Arnardalsætt) og Ólafur Ólafsson frá Skjaldfönn. Þau gift- ust 6. október 1866 og bjuggu f Hnífsdal til vorsins 1873, er þau fluttust að Sela-Kirkjubóli í Ön- undarfirði, en síðan til ísafjarðar árið 1884 og bjuggu þar síðan til dauðadags. Halldór var um hríð í fóstri hjá móðurbróður sínum, Bjarna Hall- dórssyni, og konu hans önnu Petr- ínu Halldórsdóttur frá Engidal inn af Skutulsfirði. Voru þau f Engidal fyrstu árin, en bjuggu lengst af í Hnífsdal. Halldóri þótti mjög vænt um fósturforeldra sína, en eftir flutning foreldranna til ísafjarðar mun hann hafa dvalið „heima". Hann fékkst við margvfsleg störf á ísafirði. 1904—’05 byggði hann, ásamt 2 öðrum, fyrsta stein- steypta húsið á ísafirði. Var gat- an, er húsið stóð við, lengi á eftir nefnd Steypuhúsgata, en er nú nr. 5 við Sólgötu. Hann var u.þ.b. 17 ár lögregluþjónn á ísafirði og gat sér frægðarorð. Sfðan varð hann um nokkur ár verkstjóri við fisk- vinnslu hjá Hæsta hf., rak um skeið verslun, en síðustu árin snéri hann sér aftur að múrara- störfum. Þekktastur varð hann samt fyrir félagsstörf sín, einkum leiklistarstörfin, er hann stundaði af miklum áhuga um 50 ára skeið og hlaut miklar vinsældir og hrós að launum, — en launin munu hafa verið létt í vasa! — Hann starfaði mikið að verkalýðsmálum og var heiðursfélagi í verkalýðsfé- laginu Baldri. Þau hjónin störfuöu vel og lengi í Góðtemplararegl- unni og Ástríður starfaði af mikl- um áhuga að sérmálum kvenna f kvenfélaginu ósk. Þau hjónin eignuðust 7 börn og var Margrét 3. í röðinni. Hún ólst upp í foreldrahúsum og átti að sjálfsögðu heima í steinhúsinu frá byggingu þess og þar til hún flutt- ist frá Isafirði. Bróðir Ástríðar, Andrés, var giftur danskri konu, Caroline, og bjuggu þau í Árhus. Þau voru barnlaus og á unglingsárum Margrétar buðu þau henni að koma í heimsókn og dvelja þar ytra um hríð. Þessu fylgdi mikil spenna, það var á við stóra vinn- inginn og var auðvitað þegið með þökkum. Hún dvaldi hjá þeim hjónum nokkra mánuði í góðu yf- irlæti. EPL þakpönnustálið sameinar styrkleika stálsins og hefðbundið útlit pönnusteinsins sem var mikið notaður á þök hér áður fyrr. Stálið er sterkt, glansandi og þolir mikið veðurálag. Fæst í rauðum og svörtum litum. Allur frágangur er til fyrirmyndar, naglarnir sjást ekki og allir fylgihlutir fást. í verði erum við vel samkeppnisfærir. Fáðu þér varanlegt pönnuþak af hefðbundinni gerð. INNKAUP HE ÆGISGÖTU 7, REYKJAVÍK - SÍMI 22000 EPL ÞAKPÖNNUSTAL í HÆSTA GÆÐAFLOKKI r En svo kom heimþráin. Það er auðvitað alltaf best að vera heima. Heima hjá pabba og mömmu i faðmi fjalla blárra og njóta logns- ins og sumardýrðarinnar heima við sjóinn og í skóginum. Það mátti minnast þess, sem Matthías kvað um bróður sinn Magnús, sem lengi bjó á ísafirði: Manstu fjörð í miðjum fjallasal, manstu okkar fyrsta barnahjal, manstu vorin, manstu fagran skóg, morgunsöng og kvöldsins helgu ró? Svo var siglt heim og „tekið til óspilltra málanna". Hún réð sig til Póststofunnar á ísafirði og vann þar í áratugi við afgreiðslu og skrifstofustörf. Og árin liðu. En dag nokkurn fékk Ástríður frétt um það að bróðir hennar væri mikið veikur, lægi fyrir dauðan- um, ekkert hægt að gera. — Þá fékk Margrét ákafa löngun til að fara utan, heimsækja „töntu“, fylgja frænda síðasta spölinn og reyna að hjálpa. Og enn kemur Matthías mér í hug Trú hinu besta. Gjörðu gott við alla. Sú gleði er best, að hjálpa þeim sem kalla og reisa þá, sem þjást og flatir falla. En Margrét var í föstu starfi. Henni þótti leitt að biðja um frí og svo vissi hún ekki hve lengi hún þyrfti að dvelja ytra. Hún tók því það ráð að segja upp starfinu. En svo var hin hliðin — peningarnir. Launin voru það lág að ekkert var hægt að leggja fyrir. En hún hafði greitt í lífeyrissjóð starfsm. ríkis- ins og gat fengið þá peninga endurgreidda og missa þá áunnin réttindi. Hún tók þann kostinn, fór utan og hjálpaði. En aftur seiddi sumardýrðin heima, aftur var siglt heim — og árin Iiðu. Það voru breyttir tímar. Ástríð- ur lést 1951 og börnin voru farin að heiman, sum gift, önnur dáin. Halldór var orðinn aldraður, þungur til vinnu, þótt seigur væri. Það kom í hlut Margrétar að ann- ast hann í ellinni. Það gerði hún fúslega og af miklum skörungs- skap. Hún sá um matreiðsluna, heimilishaldið, viðhald íbúðarinn- ar, rnálaði stofurnar og hlúði að pabba. Svo féll hann frá 23. júní 1957 og þá varð breyting á högum Margrétar. Húsið var selt dóttur- syni Halldórs, Geir Guðbrands- syni, og komst í góðar hendur, en Margrét hélt til Reykjavíkur i atvinnuleit. Hún fékk starf hjá Málningarverksm. Hörpu og vann þar nokkur ár af samviskusemi og kostgæfni meðan heilsan leyfði. Síðan lá leiðin í elliheimilið Grund, fyrst í Hveragerði, en svo nokkur síðustu árin í Reykjavík. Síðustu vikurnar voru henni erfið- ar, fæturnir fúnir. Henni voru boðin hjálpartæki, hjólastóll eða stafur, sem hún þáði, en vildi helst hjálpa sér sjálf meðan hægt var og svo? Síðustu dagana var sýnilegt hvert stefndi. Hún var farin að heimsækja hinar látnu systur sín- ar og frænkur, talaði við þær og lét vel yfir. Hún sofnaði svo síð- asta blundinn undir miðnætti síð- asta dag marsmánaðar. Far vel heim, heim í drottins dýrðargeim. Náð og miskunn muntu finna meðal dýrstu vina þinna. Friðarkveðju færðu þeim. Far vel heim. (M J.) Ólafur I. Magnússon + Sonur okkar og bróöir, HILMAR GRÉTAR HILMARSSON, Keilufelli 13, veröur jarösunginn frá Fella- og Hólakirkju þriöjudaginn 16. april kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast af þakkaöir en þeir sem vildu minnast hans láti liknarstofnanir njóta þess. Margrét Kriatjánsdóttir, Hilmar Friösteinsson og systkini. t Útför, GEIRS ZOÉGA, Öldugötu 14, fer fram frá Dómkirkjunni I Fteykjavik þriöjudaginn, 16. april kl. 13.30. Halldóra Ólafsdóttir Zoéga, Geir Zoéga, Sigrlóur Einarsdóttir ZoAga, Helga ZoAga, Ingimar K. Sveinbjörnsson og barnabörn. LEGSTEINAR MOSAIK H.F. Hamarshöfða 4 — Sími 81960

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.