Morgunblaðið - 14.04.1985, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985
53
Annie B.
dóttir —
Kædd 30. marz 1939
Dáin 5. aprfl 1985
Mánudaginn 15. apríl verður til
moldar borin Annie B. Friðriks-
dóttir, sjúkraliði. Ég kynntist
Annie árið 1975 en þá fórum við
báðar í stjórn Sjúkraliðafélags ís-
lands. Það sem gerði einkum þá
stjórn samstillta var kannski það
að engin í hópnum hafði starfað
áður í stjórninni, og flestir höfðu
litla reynslu af félagsmálum,
Annie var oftast ritari félagsins á
þessum árum og sá um að rita
bæði á stjórnarfundum og félags-
fundum, og fórst það vel af hendi.
Hún hætti í stjórn félagsins árið
1982. ,
Það var oft létt yfir okkur, enda
yngri og kannski bjartsýnni og
jafnframt reynslulausari um hve
erfitt er að koma málum í fram-
kvæmd. Annie hafði þá sérstöku
kímnigáfu að geta komið öllum í
gott skap þvi hún var mikill
mannþekkjari og sá lfka hvernig
öðrum leið.
Annie var tilfinninganæm og
listræn kona, hafði mikið form-
skyn og unni því að hafa fallega
hluti i kringum sig. Hún hafði
mjög gaman af að ferðast, og
minnist ég þess eitt sinn þegar
stjórn félagsins fór vestur á firði
að Annie var hrókur alls fagnaðar
og vissi mikið um landið og sögu
þess.
Við Annie höfðum oft persónu-
legt samband á þessum árum og
vil ég þakka henni hlýhug og vel-
vild í minn garð og fjölskyldu
minnar.
Annie var gift Jóni Ingólfssyni,
málarameistara og áttu þau þrjú
börn, Sólveigu, Sigrúnu og Frið-
rik, en þau slitu samvistum. Börn
hennar eru nú uppkomin og hún
búin að eignast barnabörn. Sein-
ast þegar ég hitti hana í vetur
ræddi hún um litlu barnabörnin
og sagði mér frá framförum
þeirra, en því miður hittumst við
alltof sjaldan þessi sfðustu ár.
Annie átti við veikindi að strfða
seinustu ár ævi sinnar og lagði
mikið á sig til að ná bata, sýndi
mikla einbeitni og dugnað. En f
haust veiktist hún af þeim sjúk-
dómi sem dró hana til dauða og
virðist erfitt að berjast við þann
vágest.
Eg var beðin að skila þakklæti
og kveðju frá Sjúkraliðafélagi ís-
lands fyrir öll þau störf sem hún
innti þar af hendi. Þá vil ég senda
aðstandendum hennar innilegustu
samúðarkveðjur.
Sigríður Kristinsdóttir
Á morgun, mánudag, verður
kvödd góð kona, sem allt of fljótt
var tekin frá þessu jarðneska lífi,
aðeins 46 ára. Þó svo ég hafi vitað
frá því snemma í haust um hennar
miklu veikindi, kom kallið á óvart.
Því hún, núna, svo fljótt?
Annie vinkona mín, þessi dug-
mikla, hraustlega kona, sem var,
einmitt núna svo ánægð með börn-
in sín, litlu ömmudrengina og til-
veruna alla. Því hún? Við því fæst
víst ekkert svar.
Við erum búnar að þekkjast í
tæplega þrjátíu ár og vinátta
okkar styrktist með hverju ári,
þótt tengdir slitnuðu.
Annie var glaðlynd, hreinskilin
og traust. Hún var góður vinur,
ekki síst þegar á reyndi. Fáir voru
mér hjálplegri í einu og öllu, þegar
maðurinn minn var sem mest
veikur. Vart leið sá dagur að hún
kæmi ekki til mín eða hringdi.
Ætíð var hún boðin og búin til
aðstoðar á allan hátt. Slíkum vin-
um gleymir maður ekki og þá er
sárt að missa.
Annie fæddist á Eyrarbakka 30.
mars 1939. Dóttir hjónanna Sól-
veigar Þórgilsdóttur sem nú er
látin og Friðriks Jóhannssonar,
sem kveður dóttur sína nú, en með
þeim voru alla tíð miklir kærleik-
ar. Annie bar sérlega hlýjan hug
til systkina sinna allra og fjöl-
Friðriks-
Minning
skyldna þeirra, samband hennar
við þau var mjög gott.
Ung flutti hún til Reykjavíkur
með fjölskyldu sinni og fór fljót-
lega að vinna fyrir sér. Fyrst við
framreiðslu og veitingastörf. Lið-
lega þrítug tók hún sig til, þá gift
OR þriggja barna móðir og fór í
sjúkraliðanám. Sem sjúkraliði
vann hún svo meðan heilsan
leyfði, eða þar til í september sl.
Fyrst hálfs dags vinnu með fimm
manna heimili, síðan allan daginn,
eftir að börnin fóru að heiman.
Lengst af vann hún á Landspítal-
anum. Hún var virkur meðlimur í
félagi sjúkraliða og í stjórn þess
um tíma.
Kveðjustundin er komin. Sól-
veig, Sigrún, Friðrik, við Ingólfur
vottum ykkur og fjölskyldum ykk-
ar, einnig þér elsku Friðrik og
börnum þínum, dýpstu samúð.
Hvíli Ánnie í friði.
vuu
t
Faöir minn, tengdafaöir og afi,
INGÓLFUR EINARSSON,
frá Vogi,
Fellaströnd,
lést 4. aprii sl. Jaröarförin hefur fariö fram f kyrrþey aö ósk hins
látna.
Siguröur Svainn, Kristfn og börn.
t
Látin er
MARGRÉT HALLDÓRSDÓTTIR
frá ísafiröi.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 15. april kl.
15.00.
Fyrir hönd aöstandenda,
Fjóla Sigmundsdóttir.
Mazda626ft
SIGURVEGARINfö
Nú annað árið í röð kusu lesendur hins virta þýska bílatímarits ,,AUTO MOTOR
UND SPORT“ MAZDA 626 bíl ársins 1985 í flokki 1800 cc innfluttra bíla.
MAZDA 626 sigraði með miklum yfirburðum í sínum flokki, því að allir vita að Þjóð-
verjar gera afar strangar kröfur til innfluttra bíla um gæði, öryggi og góða aksturs-
eiginleika.
Það er bví engin furða að MAZDA er langmest seldi iapanski bíllinn í Þyskalandi.
Þessi verðlaun eru aðeins ein í röð fjölmargra viðurkenninga, sem MAZDA 626
hefur hlotið, því að hann hefur meðal annars verið kjörinn ,,BÍLL ÁRSINS“ í
Bandaríkjunum, Japan, Ástralíu, Nýja Sjálandi og Suður-Afríku.
Þú getur nú eignast þennan margfalda verðlaunabíl á sérstöku verði, eða frá
kr. 426.300 — til öryrkja ca. kr. 326.300
Opið laugardaga
frá kl. 10—4
MEST FYRIR PENINGANA
BILABORG HF
Smiöshöfða 23 sími 812 99