Morgunblaðið - 14.04.1985, Síða 54
54
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985
Minning feðga:
Úlfar Kristjónsson
slcipstjóri og Jóhann
Óttar Úlfarsson
Fæddur 3. maí 1941
Dáinn 27. marz 1985
Við vorum harmi lostin þegar sú
hörmulega fregn barst okkur að
báturinn hans Úlla í Ólafsvfk
hefði farist með 5 manna áhöfn.
Slíkar fregnir snerta alla djúpt í
okkar fámenna landi. Gn þegar
beztu vinir hverfa svo sviplega
finnst okkur öllum að ennþá nær
sé höggvið. Engin orð megna samt
að tjá harm þeirra er allt hafa
misst, sem þeim var kærast í líf-
inu.
Við hjónin viljum í fáum og fá-
tæklegum orðum minnast vinar
okkar, Úlfars Kristjónssonar og
sonar hans, Jóhanns Óttars.
Við Úlfar vorum báðir unglings-
drengir, þegar leiðir okkar lágu
fyrst saman í Ólafsvík árið 1954,
og í 9 ár vorum við þar miklir og
góðir félagar og vinir. Ungur
kynntist hann eftirlifandi konu
sinni Öldu Jóhannsdóttur og voru
þau alla tið sérlega samhent. Kon-
an mín kemur til ólafsvíkur 1962,
hófst þá trygg og mikil vinátta
með okkur fjórum. Áttum við þar
skemmtilegt ár saman, en við
flytjum til Reykjavíkur 1963. Vin-
áttuböndin héldust þó óslitin alla
tíð milli okkar fjölskyldna, þó að
vík yrði á milli vina.
1 okkar huga var Úlfar búinn
miklum mannkostum og fjölþætt-
um hæfileikum. Glaðværð hans og
góðvild var slík, að öllum hlaut að
líða vel í návist hans. Já, þannig
var hann Úlli og þannig er hún
Alda, enda löðuðust dætur okkar
ungar að þeim hjónum öðrum
fremur og segir það sína sögu.
Þá er vart hægt að hugsa sér
athafnasamari mann en Úlfar.
Dugnaður í daglegum störfum
fékk ekki fullnægt athafnaþrá
hans, því hann átti einnig ótal
mörg önnur áhugamál eins og
Jarðarfarar-
skreytingar
Kistuskreytingar, krans-
ar, krossar.
Græna höndin
Gróörarstöð viö Hagkaup,
sími 82895.
Blómastofa
fíiðfinns
Suöurtandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið ðli kvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
Fæddur 16. maí 1965
Dáinn 27. marz 1985
golfíþróttina og sportveiði ýmis-
konar, og var auk þess þeim hæfi-
leikum gæddur, að öll verk fóru
honum vel úr hendi.
Við erum þakklát fyrir að hafa
átt því láni að fagna að hafa í svo
mörg ár notið vináttu hans, sem
átti svo mikið að gefa. Sú vinátta
og sú gleði, sem hann veitti okkur,
mun alla tíma verða okkur dýr-
mæt minning. Við minnumst einn-
ig með þakklátum huga allra
okkar hugljúfu kynna af drengn-
um þeirra hjóna, honum Jóhanni
óttari.
Okkar samúð, elsku Alda, er svo
djúp að hún verður ekki tjáð í orð-
um Megi sá Guð er ræður lífi og
dauða, leggja þér og öðrum að-
standendum líkn með þraut.
Blessuð sé minning þeirra, sem
við elskuðum öll.
Rikka og Binni
Það hefur ríkt djúp sorg yfir
íbúum Ólafsvíkur síðan fregnin kom
svo snöggt og óvænt, Bervík SH 43
hvarf skyndilega á heimsiglingunni
úr fiskiróðri með fimm vöskum sjó-
mönnum á besta aldri innanborðs.
Byggðarlag eins og ólafsvík, þar
sem öll afkoma íbúanna hefur ávallt
byggst á sjósókn og aflabrögðum,
hefur orðið að sjá á bak fjölda sjó-
manna á liðnum áratugum f hafið.
Slík blóðtaka var oft árlegur við-
burður þegar farkosturinn var litill
opinn árabátur, en þegar velbúin
traust skip eru komin til sögunnar,
er eins og allir séu óviðbúnir slíkum
atburðum, og áhrifin verða jafnvel
enn sárari.
Sjómenn f Ólafsvík hafa ávallt
verið í fremstu röð, miklir afla-
menn, sem með starfi sínu hafa lagt
grunninn að uppbyggingu byggðar-
lagsins öðrum fremur, sem m.a. hef-
ur orðið til þess að fátæka sjávar-
plássið Ólafsvík er nú orðið að
myndarlegum bæ, þar sem velmeg-
un ríkir.
Að missa heila skipshöfn, eins og
hér hefur gerst, er mikið áfall fyrir
byggðarlagið, sem aldrei verður
bætt. Það ríkir því djúp sorg í
Ólafsvík.
í dag verða jarðsettir í Ólafsvík
tveir úr skipshöfninni. Skipstjórinn
Úlfar Kristjánsson og sonur hans
Jóhann óttar.
Úlfar fæddist 30. maí 1941 að
Ytri-Bug í Fróðárhreppi, var því að-
eins 43 ára gamall. Foreldrar hans
eru Jóhanna Kristjánsdóttir og
Kristján Jónsson. Barnahópurinn
var stór, fátækt mikil á þeim árum,
lífsbaráttan hörð, en upp komust
börnin og urðu fyrirmynd annarra
að koma sér áfram enda kraftmikið
fólk. Þegar Kristján lést 1947, flutt-
ist Jóhanna með barnahópinn stóra
til Ólafsvíkur skömmu síðar. Þar
hófst nýr kafli í sögu þessarar fjöl-
skyldu, sem vert væri að skráð yrði.
Jóhanna Kristjánsdóttir var ham-
hleypa til vinnu enda mjög eftirsótt
til allra starfa og vel látin, vann hún
fullan vinnudag fram á áttræðisald-
ur. Lifir hún enn hálfníræð. Saga
hennar er hetjusaga.
Eins og áður sagði voru börnin frá
Ytri-Bug kraftmikið fólk sem hefur
komist vel áfram og tekið virkan
þátt í uppbyggingu á utanverðu
Snæfellsnesi. Sjósókn varö hlut-
skipti bræðranna. Sigurður er skip-
stjóri og aðaleigandi aflaskipsins
Skarðsvíkur, Guðmundur lengst af
skipstjóri og aðaleigandi báts og
síðar togara er bar nafnið Lárus
Sveinsson, Björn og Einar eigendur
bátanna Garðars I og Garðars II.
Einar er skipstjóri á Garðari II og
Úlfar var skipstjóri og aðaleigandi
Bervikur. Sigurvin, yngsti bróðir-
inn, var með bræðrum sínum til sjós
en lærði síðar til framreiðslustarfa
og er nú starfandi þjónn f Reykja-
vík. Þessi upptalning segir sína sögu
um bræðurna frá Ytri-Borg. Sama
er að segja um systurnar, lífssaga
þessa fólks er spegilmynd þess afls,
sem er forsenda uppbyggingar í
landinu.
Úlfar Kristjánsson var lífsglaður,
traustur og vinsæll meðal samtíð-
armanna. Hann var með afbrigðum
aflasæll, ekki síður en bræöur hans,
var lífsganga hans til fyrirmyndar.
Eiginkona hans er Sæunn Alda Jó-
hannesdóttir, en faðir hennar var
Jóhannes Jónsson frá Nesi, kenndur
við önundarnes. Mikill dugnaðar-
og aflamaður. Var Úlfar með
tengdaföður sínum við sjósókn með-
an Jóhannes lifði, fór vel á með
þeim. Úlfar og Sæunn Alda voru
sérlega samhent, komu sér upp fal-
legu heimili í Ólafsvík, voru nýbúin
að endurnýja þaö með nýju glæsi-
legu húsi í Sandholti 44.
Jóhann Óttar var vel gerður ung-
ur maður, sem vildi feta í fótspor
föður síns og sækja sjóinn. Nú eru
þeir feðgar allir. Lífshlaup þeirra
var stutt en afgerandi, þeir skilja
eftir sig minningu sem ekki fyrnist
yfir. Þeir settu sterkan svip á mann-
lífið í Ólafsvík. Ég mun ávallt minn-
ast Úlfars Kristjánssonar með sér-
stökum hlýhug. Hann hafði ávallt
góð áhrif, glaðlyndur og hreinskipt-
Við hjónin sendum Sæunni öldu
og öllum ástvinum þeirra feðga ein-
lægar samúðarkveðjur og biðjum
Guð að styrkja þau í sorg þeirra.
Blessuð sé minning þeirra feðga.
Alexander Stefánsson
+
Elginmaöur minn og faöir okkar, tengdafaöir, afi og langafi,
JÓN SIGURDSSON,
frá Snœbjarnaratööum, (Fnjóskadal,
Dalbraut 27,
Raykjavlk,
sem lést i Landspitalanum laugardaginn 6. april sl. veröur jarö-
sunginn frá Dómkirkjunni f Reykjavik fimmtudaginn 18. april kl.
13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Landspitalann og
Krabbameinsfélag fslands.
Magnúsfna Kristjénsdóttir,
Hólmfriöur G. Jónsdóttir, Ingvi 8. Ingvarsson,
Brynleifur Jónsson, Sigurbjörg Guömundsdóttir,
Siguróur K. Jónsson, Selma Jóhannesdóttír,
Helgi Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Maöurinn minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi,
SIGURGEIR SIGFÚSSON,
fyrrverandi leigubflstjóri,
Langholtsvegi 58,
veröur jarösunginn frá Áskirkju miövikudaginn 17. apríl kl. 13.30.
Þeir sem vildu minnast hans vinsamlega láti Styrktarfélag
vangefinna njóta þess.
Hllf Gestsdóttir,
Gestur Sigurgeirsson, Svala Ingimundardóttir,
Gunnar Sigurgeirsson, Sigrún Jónsdóttir,
Vilhjámur Sigurgeirsson, Sigrún Guömundsdóttir,
Raymond Lay Croix,
og barnabörn.
RENAULT11
■ ■■■■■■■I ■IFNk
•■w §»» p* | §§
I llnl
_ _ ___________RIÐINDI'
Fyrir þá sem hafa leyfisbréf á eftirgjöf aðflutningsgjalda er veröiö á
RENAULT 9 — Frá kr. 269.000,-
RENAULT 11 jST Frá kr. 281.000,-
KRISTINN GUÐNAS0N HF.
SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 686633