Morgunblaðið - 14.04.1985, Síða 60
OPINN 9.00-00.30
siaðfestiAnsiraust
SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Iðnaðarsendi-
menn til Asíu
og Ameríku
— iðnaðarráðherra ætlar að verja 15
milljónum til markaðsöflunar og
kynningar á íslenskum iðnaði
SVERRIR Hermannsson iðnaðarrádherra hefur hafið undirbún-
ing að því að stofna sérstök sendiráð iðnaðarráðuneytisins í Aust-
urlöndum fjær og Bandaríkjunum. Hyggst iðnaðarráðherra verja
15 milljónum króna til þessa, þegar á næsta ári. Er þessi ákvörðun
iðnaðarráöherra í beinu framhaldi af því að hann tilkynnti á
ársfundi Félags íslenskra iðnrekenda að hann hefði ákveðið að
stofna sérstaka deild í iðnaðarráðuneytinu sem hefði það hlutverk
að skipuleggja sókn okkar íslendinga á fjarlæga markaði.
„Þessi ákvörðun mín byggist á
því, að ég hef ekki síður áhuga á
að senda menn á vettvang, sér-
staka sendiherra, að smala nýj-
um iðnaðarfærum í þessum lönd-
um,“ sagði Sverrir í samtali við
Morgunblaðið. „Þar á ég við að
þeir athugi um áhuga þarlendra
manna á að reisa hér fyrirtæki,
minniháttar iðnaöarfyrirtæki,
sem myndu hæfa okkur vel.“
stjórnarerindrekar utanríkis-
þjónustunnar.
Iðnaðarráðherra hefur i hyggju
að láta sérstaka nefnd utan ráðu-
neytisins stjórna þessari deild og
starfsmönnum hennar. Hyggst
hann í því skyni setja á laggirnar
fimm manna nefnd færustu sér-
fræðinga úr hópi iðnrekenda,
bankamanna, stjórnmálamanna
og tæknimanna.
SEGLBRETTAÍÞRÓTT
MorKunblaðið/ÓI.K.M.
Seglbrettaíþróttin er að ryðja sér til rúms á íslandi. í gær var þessi maður ásamt fleirum að leika listir sínar við
Eiðsgranda í kalsaveðri og norðangjósti. Hann lét þó veðrið ekkert á sig fá, enda vel varinn þótt hann blotnaði
■ hitastigi, sem var við frostmark.
Iðnaðarráðherra sagðist vilja
búa betur í haginn fyrir erlend
fyrirtæki, svo þau gætu fjárfest
hérna, en hann bætti við að er-
lend fyrirtæki yrðu þó í einu og
öllu látin sitja við sama borð og
þau íslensku — þau erlendu ættu
ekkert forskot að fá.
Sverrir sagðist þurfa allt þetta
ár i skipulagningu og undirbún-
ing, en þegar á næsta ári væri
hægt að senda iðnaðarsendimenn
til Bandaríkjanna og Austur-
landa fjær. Sagðist hann myndu
verja um 15 milljónum króna til
þessa starfs á næsta ári. Myndi
kostnaðurinn skiptast milli deild-
arinnar í iðnaðarráðuneytinu hér
og þessara tveggja iðnaðarsendi-
herra. Sagðist Sverrir myndu
hafa samráð við viðskiptaráðu-
neytið og utanríkisráðuneytið.
Hann taldi að það myndi auð-
velda störf sendimannanna, ef
þeir hefðu svipuð réttindi og
Sautján ára piltur stung-
inn í kviðinn við Hlenun
Er úr lífshættu. — Arásarmaðurinn, 19 ára piltur, handtekinn
SAUTJÁN ára gamall piltur var
stunginn í kviðarholið fyrir utan veit-
ingastaðinn Trafffk við Laugaveg
laust eftir miðnætti í fyrrinótt. Piltur-
inn hlaut innvortis blæðingar, missti
mikið blóð og var hann fluttur lífs-
hættulega særður í slysadeild Borg-
arspítalans. Flytja þurfti blóð frá
Blóðbankanum við Barónsstíg. Að að-
gerð lokinni var pilturinn fluttur í
gjörgæziudeild Borgarspítalans og er
líðan hans eftir atvikum. Hann mun
Árásarvopnið Morgunblaðið/ÓI.K.M.
vera úr lífshættu. Árásarmaðurinn —
19 ára gamall piltur, var handtekinn
skömmu eftir ódæðið.
Hinn særði var ásamt þremur fé-
lögum sínum fyrir utan veitinga-
staðinn Traffík laust eftir mið-
nætti þegar ölvaður piltur vék sér
að þeim og hafði uppi tilburði til
slagsmála. Piltarnir sinntu honum
ekki og héldu áfram göngu sinni.
Hinn ölvaði brá hnífi á loft og
stakk einn þeirra fyrirvaralaust í
kviðarholið. Vissu piltarnir ekki
fyrr en félagi þeirra hneig helsærð-
ur niður.
„Þurfti sannarlega að
hafa fyrir sigri mínum“
Rætt við Karl Þorsteins, íslandsmeistara í skák
„ÉG ER ákaflega ánægður með sigur minn á Skákþingi íslands; titillinn
er eftirsóknarvcrður. Þó titilhafa hafi vantað, þá þurfti ég sannarlega
fyrir sigri mínum að hafa. Kynslóðaskipti hafa orðið — það sést bezt af
því, að fjórir efstu menn eru tvítugir og yngri. Við Lárus Jóhannesson
erum tvítugir og Davíð Ólafsson og Þröstur Þórhallsson aðeins 16 ára. Ég
held ég megi fullyrða að aldrei áður hafa jafn ungir menn skipað efstu
sæti á Skákþingi Islands," sagði Karl Þorsteins, íslandsmeistari í skák, í
samtali við Mbl.
Sigur Karls á mótinu var
glæsilegur. Hann hefur þegar
borið sigur úr býtum, þó einni
umferð sé ólokið. Hefur hlotið
níu vinninga úr 12 skákum. „Ég
hef teflt mikið að undanförnu og
er kominn í góða æfingu. Finnst
ég vera öruggari og meiri ró yfir
taflmennsku minni og stöðug-
leiki. Ég hef einbeitt mér að
skákinni undanfarna mánuði,
tefldi á afmælismóti Skáksam-
bandsins, á Húsavík og nú á
Skákþinginu.
Skákþingið var mjög
skemmtilegt og margar tvísýnar
skákir litu dagsins Ijós. Skákir
mínar við Þröst Þórhallsson,
Andra Áss Grétarsson og Dan
Hansson voru mjög tvísýnar og
spennandi. Annars átti ég von á
Dan Hanssyni, Róberti Harðar-
syni og Hauki Angantýssyni
sterkari en raun bar vitni, átti
allt eins von á því þeir myndu
blanda sér í baráttuna um titil-
inn.
Nú stefni ég ótrauður á að ná
þriðja áfanga að alþjóðlegum
meistaratitli og mun taka þátt i
alþjóðlegu skákmótunum í Borg-
arnesi og Vestmannaeyjum. Eg
náði fyrsta áfanga á Reykjavík-
urskákmótinu í fyrra og öðrum á
heimsmeistaramóti unglinga í
Finnlandi og vonandi tekst mér
að ná titlinum í sumar," sagði
Karl Þorsteins.
Karl Þorsteins
Piltarnir komust í síma við Aust-
urbæjarbíó og kvöddu sjúkrabif-
reið og lögreglu á vettvang.
Skömmu síðar var árásarmaðurinn
handtekinn skammt frá þeim stað
þar sem hann framdi ódæðið. Hann
var mjög ölvaður. Rannsókn máls-
ins er á frumstigi. Yfirheyrslur yf-
ir árásarmanninum hófust í gær,
en krafa um gæzluvarðhald hafði
ekki verið sett fram þegar Mbl. fór
í prentun.
Árásin við Traffík var önnur
vopnaða árásin á innan við sólar-
hring. Aðfaranótt föstudagsins
réðust tveir piltar vopnaðir hnífum
á mann fyrir utan veitingastaðinn
Pub-inn á Hverfisgötu.
Árásarvopnið er svokallaður
smelluhnífur eða fjaðrahnífur. Ýtt
er á takka og skýst þá oddmjótt
hnífsblaðið fram. „Þessir hnífar
eru stórhættulegir og engin ástæða
til að bera slík vopn. Við verðum
varir við hnifa öðru hvoru og er
sérstök ástæða til að hvetja for-
eldra til að kanna, hvort unglingar
hafi slík vopn undir höndum,"
sagði Helgi Daníelsson, yfirlög-
regluþjónn hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins, í samtali við Mbl.