Morgunblaðið - 23.05.1985, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MAl 1985
Fjármagn til rannsókna
við Mývatn er nu tryggt
Niöurstööur rannsóknanna veröa látnar ráöa hvort KMl-
iðjan veröur starfrækt áfram — Atvinnurannsóknir hafnar
SVERRIR Hermannsson iðnad-
arráðherra hefur lýst því yfir að
farið verði algerlega eftir niöur-
stöðum vísindalegra rannsókna
sem senn hefjast á lífríki Mý-
vatns þegar stjórnvöld taka
ákvörðun um áframhaldandi
rekstur Kísiliðjunnar. Ráðherra
hefur tekist að tryggja fjármagn
til þess að þessar rannsóknir
geti senn hafist Skipað hefur
verið í nefnd sem hafa skal yfir-
umsjón með rannsóknunum.
Náttúruverndarráð hefur ekki
tilnefnt mann í nefndina enn
sem komið er. Iðnaðarráðuneyti
hefur fallist á að hafnar verði nú
þegar atvinnurannsóknir í sam-
vinnu við hreppsnefnd Skútu-
staðahrepps og Iðntækni-
stofnunar með tilliti til þess að
hugsanlega þurfi að stöðva
rekstur Kísiliðjunnar vegna
mengunar frá henni. Einnig hef-
ur iðnaðarráðherra ákveðið að
kísilnám verði innan þeirra lína
í Ytri-flóa sem Náttúruverndar-
ráð hefur óskað eftir.
Þetta kom fram á fundi sem
iðnaðarráðherra, Sverrir Her-
mannsson, hélt með blaða-
mönnum í gær. í ræðu sinni gat
ráðherra þess að hann hefði „beitt
sér hart“ til að útvega fé til að
rannsóknir á lífríki Mývatns geti
hafist. Ríkissjóður mun leggja
fram greiðslur í þessu skyni á
móti Kísiliðjunni og er gert ráð
fyrir að þetta fjármagn verði allt
að tvær og hálf milljón króna á ári
hverju. Ráðherra sagði að „öld-
urnar hefðu risið hátt“ í umræð-
um um Mývatn að undanfömu.
Síðan afhenti hann blaðamönnum
yfirlýsingu sína sem orðrétt hljóð-
ar svo: „Af gefnu tilefni lýsi ég því
yfir, að niðurstöður væntanlegra
rannsókna á lífríki Mývatns verða
metnar undir forystu dr. Péturs
M. Jónassonar, af honum og þeim
vísindamönnum sem hann kýs að
kalla til þeirra hluta. Eftir því vís-
indalega áliti verður farið alfarið
þegar stjórnvöld taka ákvörðun
um áframhaldandi rekstur Kísil-
iðjunnar.“
I nefndina, sem hafa skal um-
sjón með rannsóknum við Mývatn,
hafa verið tilnefndir, auk for-
manns, dr. Péturs M. Jónassonar
vatnalíffræðings, þeir Hákon Að-
alsteinsson líffræðingur tilnefnd-
ur af sveitarstjórn og Sigurður
Rúnar Guðmundsson tilnefndur af
Kísiliðjunni. Náttúruverndarráði
hefur verið boðið að tilnefna mann
í nefndina en ekki svarað þvi boði.
í máli iðnaðarráðherra kom
fram að hann teldi að Náttúru-
Síðustu sýningar
á Skammdegi
Nýtt líf á myndbönd
SÝNINGUM á kvikmyndinni
„Skammdegi“ eftir Þriin Bertels-
son fer að fekka í Nýja Bíói í
Reykjavík. Myndin verður sýnd úti á
landsbyggðinni í sumar.
Kvikmyndafyrirtækið Nýtt líf,
sem framleiddi myndina, mun
innan skamms setja á markaðinn
myndbönd með kvikmyndinni
„Nýtt líf“, fyrstu mynd fyrirtækis-
ins. Myndin fjallar sem kunnugt
er um verbúðarlíf félaganna Þórs
og Danna í Vestmannaeyjum.
Sú breyting hefur orðið á fyrir-
tækinu Nýtt líf að Þráinn Bert-
elsson er orðinn einkaeigandi þess.
Jón Hermannsson hefur selt sinn
hlut.
verndarráð hafi ekki tilnefnt
mann í nefndina vegna þess að þá
teldi ráðið sig hafa skrifað undir
eitthvað fyrir iðnaðarráðuneytið.
Iðnaðarráðherra tók skýrt fram
að tilnefning manns í nefndina
fæli ekki í sér neina skuldbindingu
fyrir Náttúruverndarráð. Sverrir
Hermannsson gat þess einnig að
hann teldi eðlilegt að Náttúru-
verndarráð vildi fá á hreint hvert
væri valdsvið þess og lögsaga á
Mývatnssvæðinu og það mein-
bugalaust af sinni hálfu að dóm-
stólar yrðu látnir skera úr um það
atriði. Það mætti hinsvegar ekki
láta þau málaferli hindra að rann-
sóknir gætu hafist.
Ráðherra lagði einnig áherslu á
að hann hafi ekki talið sig geta
farið að tilmælum Náttúruvernd-
arráðs um að gefa námaleyfi til
fimm ára þar sem það hefði skað-
að rekstur Kísiliðjunnar stórlega.
Af þeim sökum hafi hann gefið
leyfi til fimmtán ára starfsemi.
Þessa ákvörðun sagði ráðherra að
Náttúruverndarráð hefði ítrekað
reynt að fá sig til að falla frá.
Hann hefði ekki sinnt þeim til-
mælum en kæmi hins vegar i ljós
við rannsóknir á lífrikinu að því
væri hætta búin vegna Kísiliðj-
unnar yrði rekstri verksmiðjunn-
ar hætt samstundis. Það yrði ekki
tekin nein „pólitísk geðþótta-
ákvörðun" í þessu máli.
Ráðherra var spurður hvers
vegna Rannsóknastofnun Nátt-
úruverndarráðs við Mývatn hafi
ekki verið falin umsjón með rann-
sóknunum. Hann svaraöi því til að
hann hafi talið eðlilegt vegna
þeirra fjármuna sem ráðuneytið
legði til, að ráðuneytið skipaði
nefnd sem síðan starfi undir
stjórn þess.
Síðan tók dr. Pétur M. Jónasson
til máls og sagði að hann og Há-
kon Aðalsteinsson hefðu unnið við
Mývatn á tímum Laxárdeilunnar
og gefið út bók um vistfræði svæð-
isins árið 1979 ásamt fleirum.
Hann kvað þá félaga vænta góðs
af samvinnu við Háskólann hvað
rannsóknirnar snerti og nefndi I
því sambandi að Árni Einarsson
líffræðingur væri nú að vinna að
doktorsritgerð sinni um húsönd.
Hann gat þess að gera þyrfti nýjar
mælingar á „kúluskít" og sagði
góð tæki nú tiltæk til þess. Einnig
kvaöst hann vonast til að gott
samstarf gæti tekist við Rann-
sóknastöð Náttúruverndarráðs og
það sé raunar forsenda þess að
rannsóknir við Mývatn geti hafist
í sumar sem þó yrði æ tvísýnna
því lengri tími sem liði.
Dr. Pétur vildi ekkert segja um
hve lengi þessar rannsóknir gætu
staðið yfir en kvaðst vonast til að
þeim yrði lokið innan fimm ára og
byrjað yrði á botninum í Ytri-flóa.
í samtali við Árna Einarsson
líffræðing kom fram það álit hans
að ráðherra færi ekki alveg rétt
með línuna þar sem láta skal stað-
ar numið við kísilnámið að sinni.
Hann kvað ráðherrann fara tals-
vert vestur fyrir Iínuna sem Nátt-
úruverndarráð lagði til að gilti,
þar sem kísilgúrinn er þykkastur.
Kristján Benediktsson
Framsóknarmenn
í borgarstjóm:
Kristján
Benedikts-
son gefur
ekki kost
á sér á ný
KRISTJÁN Benediktsson, efsti
maður á lista Framsóknarflokks-
ins í borgarstjórn Reykjavfkur,
hefur ákveðið að gefa ekki kost á
sér á ný til borgarstjórnar, en
næstu sveitarstjórnarkosningar
fara fram vorið 1986. Kristján hef-
ur setið í borgarstjórn í 24 ár.
Hann hefur átt sæti í borgarráði í
20 ár.
Kristján, sem er fram-
kvæmdastjóri þingflokks Fram-
sóknarflokksins, tilkynnti þessa
ákvörðun sina á síðasta aðal-
fundi fulltrúaráðs Framsóknar-
flokksins, sem haldinn var fyrir
u.þ.b. mánuði. í viðtali við blað-
amann Mbl. sagði Kristján, að
meginástæða þessa væri sú, að
hann væri búinn að sitja all-
lengi í borgarstjóm og sér fynd-
ist rétt að hleypa öðrum að. I
öðru sæti listans er nú Gerður
Steinþórsdóttir og í þriðja sæti
Sigrún Magnúsdóttir.
Sverrír Hermannsson skýrir blaðamönnum frá þeim rannsóknum, sem áformað er að gera á Iffríki Mývatns.
„Breið samstaða“ um nýjan forstjóra Sambandsins:
Hafði ekki hug á að taka
við forstjórastarfinu
- segir Valur Arnþórsson, kaupfélags-
stjóri hjá KEA og stjórnarformaður SÍS
„ÉG VAR búinn að gera upp við mig fyrir nokkru. að ég hefði ekki áhuga
á að að mér starf forstjóra Sambandsins. Eg vildi hins vegar bíða
með að láU þessa afstöðu mína í Ijós þar til tryggt væri að samstaða værí
í stjórninni um eftirmann Erlends Einarssonar," sagði Valur Arnþórsson,
stjórnarformaður Sambands íslenskra samvinnufélaga, f samUli við
blaðamann Mbl. í gær um niðurstöðu stjórnarfundar SÍS í fyrrakvöld.
Þar var ákveðið að ganga til samninga við Guðjón B. Ólafsson, forstjóra
Iceland Seafood Corporation, sölufyrirtæki Sambandsins í Bandaríkjun-
um, um að hann Uki við sUrfi forstjóra í ársbyrjun 1987.
Á stjórnarfundinum var gerð „Ég er í afar skemmtilegu
leynileg skoðanakönnun meðal starfi sem kaupfélagsstjóri á Ak-
stjórnarmanna um næsta for-
stjóra. Niðurstaðan varð sú, að
sögn Vals Arnþórssonar, að sex
stjórnarmenn kusu helst að Val-
ur tæki við forstjórastarfinu, þrir
vildu Guðjón B. ólafsson. Sam-
kvæmt upplýsingum Mbl. munu
það hafa verið þeir Finnur
Kristjánsson frá Húsavík, Þórar-
inn Sigurjónsson alþingismaður
Framsóknarflokksins og Ingólfur
ólafsson kaupfélagsstjóri í
KRON. Þegar þessi úrslit lágu
fyrir lýsti Valur því yfir að hann
hefði ekki hug á starfinu og lagði
til að gengið yrði til samninga við
Guðjón.
ureyri og einnig sem stjórnarfor-
maður Sambandsins,” sagði Val-
ur í gær. „Ég hef hug á að gegna
þvi starfi áfram á meðan ég hef
fylgi til þess og tíma til að sinna
báðum störfunum. Ég held að það
sé skemmtilegra en að vera for-
stjóri Sambandsim, með fullri
virðingu fyrir þvf starfi."
Stjórnarformaður SÍS sagði
um skoðanakönnunina á fundin-
um (ekki fór fram eiginleg at-
kvæðagreiösla) að niðurstöður
hennar hefðu ekki neina meiri-
háttar þýðingu. „Það hafði áður
verið gerð óformleg könnun í
stjórninni, þar sem verið var að
leita eftir þessari breiðu sam-
stöðu, og niðurstöður hennar
voru helst þær að menn skiptust
fimm á móti tveimur og tveir
sátu hjá. En þetta var allt í mjög
góðu andrúmslofti og stjórnar-
menn mjög einhuga um hvernig
standa átti að þessu máli,“ sagði
hann. „I allri minni meðferð á
þessu máli hef ég leitast við að ná
sem breiðastri samstöðu og sem
mestri samheldni i hreyfingunni
um þetta mikilsverða starf.“
Þrír stjórnarmenn, þeir Valur,
Finnur Kristjánsson varaformað-
ur og Ólafur Sverrisson ritari,
voru kosnir til að ganga til samn-
inga við Guðjón B. ólafsson. Mun
hann koma heim til Islands á
næstunni og kvaðst Valur gera
sér vonir um að starfssamningur
við hann yrði frágenginn fyrir að-
alfund Sambandsins, sem hald-
inn verður 13. og 14. júní næst-
komandi.
„Það er ekki rétt,“ sagði hann,
„að stjórnin hafi ákveðið að
starfssamningurinn verði bund-
inn við fimm ár. Ég hef nefnt, að
ég gæti hugsað mér að slíkur
samningur væri bundinn til fimm
eða sjö ára, enda fer slíkt fyrir-
komulag í vöxt, bæði hér heima
og erlendis. Hvernig þessu verður
háttað er svo alveg undir nefnd-
inni og Guðjóni sjálfum komið.
Það er heldur ekki rétt, sem fram
hefur komið, að ráðningu for-
stjóra verði að bera undir aðal-
fund. Starfssamninginn á að
leggja fram á aðalfundi til athug-
unar, eins og segir í samþykktum
Sambandsins. Það er réttur og
skylda stjórnarinnar að ráða for-
stjóra og það munum við að
sjálfsögðu gera,“ sagði Valur
Arnþórsson.
Guðjón B. ólafsson, sem vænt-
anlega sest í forstjórastól SlS 1.
janúar 1987, mun að öllum líkind-
um hefja störf á aðalskrifstof-
unni í Reykjavík um mitt næsta
ár og starfa þá fyrst í stað með
Erlendi Einarssyni, fráfarandi
forstjóra. Guðjón sagðist f gær
telja ótímabært að vera með yfir-
lýsingar f fjölmiðlum um niður-
stöðu stjórnarfundarins, málið
yrði ekki frágengið fyrr en hann
hefði rætt við nefndina, sem
stjórnin kaus, og það yrði vænt-
anlega gert öðru hvoru megin við
helgina 8.-9. júní næstkomandi.