Morgunblaðið - 23.05.1985, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1985
ESAB
Rafsuóutæki
vír og
fylgihlutir
Nánastallt til
rafsuöu.
Forysta ESAB
ertrygging
fyrirgæöum
og góöri þjónustu.
Allartækni-
upplýsingar
eru fyrirliggjandi
ísöludeild.
= HÉÐINN =
VÉLAVERSLUN, SELJAVEGI 2,
SÍMI24260
ESAB
Einhell
vandaöar vörur
___ík
Cterkurog
k/ hagkvæmur
auglýsingamióill!
Ríkisstjóri Flórída:
Telur Reagan
sýna Kúbu-
stjórn linkind
Tallahamee, Flórida, 22. maí. AP.
BOB Graham, ríkisstjóri í Flórída,
hefur gagnrýnt Ronald Reagan,
Bandaríkjaforseta, fyrir aö sýna
stjórnvöldum á Kúbu linkind meö
því að senda ekki til síns heiraa kúb-
anska glæpamenn og geðsjúklinga,
sem komu til Bandaríkjanna I
„bátaflóttanum mikla“ árið 1980.
„Við getum ekki liðið það, að Fí-
del Castró ákveði hver utanrík-
isstefna okkar er og ráði því hver
fær að koma til landsins," sagði
Graham á blaðamannafundi í
Tallahassee í gær.
Á mánudag rifti Kúbustjórn
samningi við Bandaríkjastjórn,
sem gerður var í desember í fyrra,
en samkvæmt honum fengju allt
að 30.000 Kúbanir að flytjast til
Bandaríkjanna á hverju ári, þ.á m.
hópur pólitískra fanga, og þeir
flóttamenn frá Kúbu, sem nú
dvelja í fangelsum og á geðveikra-
hælum í Bandaríkjunum, mundu
snúa aftur.
Ástæða þess, að Kúbustjórn
rifti samningnum var að sama dag
hóf Útvarp Marti, sem Banda-
ríkjastjórn rekur, útsendingar frá
Flórída, en stöðinni er ætlað að
flytja íbúum á Kúbu fréttir, tón-
list og annað dagskrárefni. Bill
Graham, ríkisstjóri, bendir hins
vegar á, að Kúbustjórn hafi verið
fullkunnugt um það er hún gerði
samninginn við Bandaríkjastjórn,
að þingið í Washington styddi
fyrirætlanir um að koma útvarps-
stöðinni á fót.
Lawton Chiles, öldungardeildar-
þingmaður demókrata, sagði í
gær, að viðbrögð Kúbustjórnar við
útsendingum Utvarps Marti væru
furðuleg. Benti hann á, að Kúbu-
menn reka sjálfir stöðvar sem
beint er til Afríku, Mið- og Suð-
ur-Ameríku og Karabíska hafsins.
„Og það eru ekki nema nokkrir
mánuðir síðan þeir hættu að
endurvarpa Útvarpi Moskvu til
Bandaríkjanna," sagði hann.
Bill Graham, ríkisstjóri, lagði
til á blaðamannafundinum í gær,
að ef Kúbustjórn þverskallaðist
við að taka á móti þeim Kúbu-
mönnum, sem Bandaríkjamenn
telja óæskilega, ætti að flytja þá
til bandarísku herstöðvarinnar í
Guantanamo á austurhluta Kúbu
og koma þeim þannig á framfæri
við kúbönsk stjórnvöld.
Hryðjuverka-
menn tamila
hreiðra um sig
í þjóðgörðum
Kolombó, 21. m«í. AP.
GÆSLUMENN f Ruhunu-þjóðgarð-
inum í suðurhluta Sri Lanka urðu
varir ferða skæruliða úr hópi tamila
og hvöttu alla sem dvelja í orlofshús-
um í þjóðgarðinum til þess að flýta
sér burt af ótta við að hryðjuverk
kunni að vera yfirvofandi.
Nokkrir dagar eru síðan að
skæruliðar réðust með skothríð á
óbreytta borgara í borginni An-
uradhapura og drápu 125 manns.
Að blóðbaðinu loknu flýðu hryðju-
verkamennirnir inn í nærliggjandi
þjóðgarð og þar reyndist ómögu-
legt að hafa uppi á þeim, enda
frumskógurinn þéttur og erfiður
yfirferðar. Hryðjuverkamennirnir
hurfu þó ekki sjónum fyrr en þeir
höfðu drepið 25 starfsmenn þjóð-
garðsins.
Báðum þjóðgörðunum hefur
verið lokað fyrir mannaferðum
uns öryggissveitir hafa gengið úr
skugga um að óhætt sé að opna þá
aftur. Fimm öryggisverðir létu líf-
ið i dag í öðrum þjóðgarðinum, er
einn þeirra steig ofan á jarð-
sprengju.
Fjárhagslegt tjón af árekstrinum varð gífurlegt, eins og þessi mynd gefur hugmynd um.
Noregur:
Röng sporskiptíng
olli lestarslysinu
Osló, 22. maí. Frá Jan Erik Laure, rrédaritara Mbl.
LÖGREGLUMENN og starfs- skiptinguna,
menn norsku ríkisjárnbrautanna
eru nú að athuga hvernig stóð á
lestarslysinu sl. mánudag þegar
tvær lestir rákust á skammt frá
Osló. Slösuðust þá 40 manns, ekki
þó mjög alvarlega, og þykir það
ganga kraftaverki næst, að enginn
skyldi týna lífi.
Það voru mistök með spor-
n slysinu olli.
Fyrir einhverja handvömm eða
af annarri ástæðu var lest með
300 farþegum hleypt inn á ranga
braut og var hún ekki komin
nema 600 metra frá brautarstöð-
inni þegar hún mætti annarri
tómri.
Farþegalestin var á hægri ferð
en samt sem áður gekk hún tíu
metra inn í lestina, sem á móti
kom. Þeir tveir, sem voru þar við
stjórnvölinn, sáu hvað verða
vildi og gátu forðað sé aftur í
lestina í tæka tíð. Lestarstjórinn
axlarbrotnaði þó við árekstur-
inn. Fjórir farþeganna í hinni
lestinni klemmdust inni í einum
klefanum og tók það björgun-
armenn nokkurn tíma að losa þá
þaðan.
UNESCO:
Starfsfólk mótmæl-
ir framkomu M’Bows
Paris, 22. maí. AP.
FÉLAG starfsmanna hjá
IJNESCO, Menningar- og
vísindastofnun Sameinuðu
þjóðanna, hefur sent fram-
kvæmdastjórn stofnunarinn-
ar skrifleg mótmæli í fram-
haldi af þeirri tilkynningu
Amadou Mahtars M’Bow,
framkvæmdastjóra, að
fækka verði um 300 í starfs-
liðinu vegna fjárhagsörðug-
leika.
í bréfi starfsmannafélagsins er
lýst yfir óánægju með að M’Bow
skuli ekki hafa greint starfs-
mönnum stofnunarinnar frá fyrir-
ætlun sinni áður en hann gerði
hana opinbera.
Framkvæmdastjórn UNESCO
situr nú á sex vikna fundi í höfuð-
stöðvunum í París, sem hófst 9.
maí, og ræðir framtíð stofnunar-
innar. Margir telja að UNESCO
riði til falls eftir að Bandaríkja-
menn hættu þátttöku í starfi
stofnunarinnar og fleiri vestræn-
ar þjóðir hafa lýst því yfir að þær
kunni að fara að dæmi þeirra.
Síðar á þessu ári verður þess
minnst, að liðin eru 40 ár frá
stofnun UNESCO, sem hlotið hef-
ur lof fyrir starf sitt á sviði vis-
inda-, mennta- og menningar-
mála, sem stofnunin var upphaf-
lega sett á fót til að sinna. Á síðari
árum hafa kommúnistaríkin og
ríki í þriðja heiminum ráðið ferð-
inni innan UNESCO og stofnunin
einkum sýnt friðarumræðu, ný-
skipan fjölmiðlunar og efnahags í
heiminum áhuga. Telja gagnrýn-
endur stofnunarinnar að þar sé
hún komin langt út fyrir verksvið
sitt.
Geta mýflugur borið
með sér alnæmisveiruna?
DANSKA dagblaóið BT hafði eftir sérfræðingum á mánudag, að eigi væri
útilokað, að sjúkdómurinn alnæmi (AIDS) gæti hugsanlega farið manna á
milli fyrir tilstuðlan mýflugna sem hafa viðurværi sitt af blóðdrykkju úr
mönnum og skepnum. „Við getum ekki útilokað að mý geti borið með sér
alnæmLsveiruna," sagði Jan Gerstoft hjá mótefnarannsóknarstofnun sænska
ríkisins.
Hér er ekki um venjulegt bitmý
sem lifir á norðurhveli jarðar að
ræða, heldur stærri tegundir sem
lifa í Afríku, Haiti, Mið-Ameríku
og í nokkrum héruðum Flórída.
Þessar flugur eru alræmdastar
fyrir að bera malaríuveiruna og
sýkja menn og málleysingja með
henni.
Gerstoft ítrekaði að engar sann-
anir lægju fyrir, hér væri einungis
um getgátur að ræða og meðan
menn hefðu ekki sannanir í hönd-
unum bæri að varast að vera með
fullyrðingar í þessum efnum.
Umræða þessi hefur hafist ekki
síst vegna þess hve alnæmi hefur
reynst ótrúlega útbreitt í Afríku
og kunna menn engar skýringar á
því. Gífurlegur fjöldi mannageng-
ur þar með alnæmisveiruna, en
eins og með annan kynsjúkdóm,
herpes, taka ekki allir sýkina sem
ganga með veiruna. Þeir eru hins
vegar allir smitberar.