Morgunblaðið - 18.08.1985, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 18.08.1985, Qupperneq 2
2 W MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUÐAGUR 18. ÁGÚST 1985- MYNDIR OG TEXTI: VALGERÐUR JÓNSDÓTTIR Miðjarðarha fssól, vatnssull og menningarreisur Við lendutn á flugvellinum í Marseille, elstu borg Frakklands, sem var byggð fyrst af Grikkjum endur fyrir löngu eða um 1500 f.K. Ætlunin er þó ekki að hafa viðdvöl hér að þessu sinni, ferðinni er heitið til Cap D’Agde, en það er tiltölulega nýr sólar- og sumar- leyfisstaður Íslendinga við Mið- jarðarhafið, við erum í fyrsta hópnum sem leið á þangað í svo- kallaðri pakkaferð með ferða- skrifstofunni Úrval. Undirrituð hefur enn sem komið er enga reynslu af slíkum ferðum, fram að þessu hafa sumarleyfisferðir til útlanda einkennst af miklum ferðalögum í allar áttir, og tals- verður tími farið í að útvega ferðir og gistingu á hinum ýmsu stöðum. í þetta sinn höfum við ákveðið að láta aðra sjá um slíkar reddingar, og nota tímann sem vinnst til að liggja lengur í sólinni á ströndinni eða flatmaga einhverstaðar á sundlaugarbarmi. Á flugvellinum i Marseille tekur fararstjórinn, Guðrún Eyjólfsdóttir, á móti okkur og við tekur rútuferð á áfangastað. Cap D’Agde er um 15 ára gamall ferðamannabær, einn af nokkrum slíkum sem franska stjórnin ákvað að reisa til að freista þess að ná túristum af ströndum Ítalíu og Spánar. Yfir hásumarið búa þar um 150.000 manns og er gert ráð fyrir að þeim fjölgi a.m.k. um fjórðung á næstu árum. í bænum er hægt að finna flest það sem gleður venjulegan ferðamann í fríi, góðar strendur, vatns- skemmtigarð, þar sem menn ganga um á sundfötum og renna sér niður vatnsrennibrautir milli þess sem þeir fá sér sundsprett í öldusundlauginni eða gera eitt- hvað annað skemmtilegt. Þar eru tennisvellir, minigolf, bíiabrautir, hægt að fara í siglingar eða á seglbretti, og þeir sem uppteknir eru af skemmtanalífinu geta valið milli nokkurra diskóteka sem flest eru staðsett á sérstakri eyju sem auðvitað ber heitið Skemmtana- eyjan. Flestir búa í íbúðasamstæð- um, víða má sjá íbúðir auglýstar til sölu, en algengt virðist vera að einkaaðilar eigi þarna íbúðir sem eru siðan leigðar út þann tíma sem eigendurnir nota þær ekki. Sumarl§yfisgestirnir eru flestir af frönsku bergi brotnir, og því kom sér vel að hafa stungið „Frönsku í vasann" niður með farangrinum. Flestir íslendinganna verða þó fljotlega leiknir í að bjarga sér með algengustu orðatiltækjunum, geta beðið um reikninginn og þess háttar, og fylgja ráðum einnar ömmunnar í hópnum sem segist vera búin að finna íslensk orð yfir þennan hvimleiða pappír, nefni- lega Laddi í sjó! Sveitavín og skorpulifur Við erum fyrstu gestir íbúða- samsteypunnar Alhambra og fyrsti íslenski ferðamannahópur- inn í Cap D’Agde. í því tilefni býð- ur borgarstjórinn í Ágde til veislu, þar sem m.a. er boðið upp á smökkun á helstu víntegundunum sem framleiddar eru í nágranna- sveitunum. Þarna í kring er gíf- urleg vínframleiðsla en gæðin ekki í samræmi við magnið. Við fáum þær upplýsingar að þetta sé mest „sveitavín”, þ.e. vín sem drukkin eru svona hvundags, þau eru ekki flutt úr landi, og ef þau eru geymd of lengi eyðileggjast þau, verða að einhverskonar ediksblöndu. Helgi Þórsson, maður Guðrúnar farar- stjóra, er búinn að reikna út hve framleiðslan er mikil á hvert mannsbarn í heiminum og eftir þann útreikning er ekki laust við að þeirri hugsun bregði fyrir að a.m.k. annar hver maður þarna um slóðir hljóti að þjást af skorpulifur. Vínrækt hefur um aldaraðir verið einn aðalatvinnu- Ein af mörgum vatnsrennibrautum í Agualandi. > Yngsti farþeginn í hópnum, Jóhanna Árnadóttir 6 mánaða, skemmtir sér við öldusundlaugina. 17. júní haldinn hátíðlegur í veitingahúsinu Stjörnunum á hafnarbakkanum í Cap D’Agde. Við borgarhliðið í Carcassonne. Nokkrir íslendingar virða fyrir sér matseðilinn á veitingastað f fjalla- þorpinu Nimes. Séð yfir hringleikahúsið í Nimes, sem byggt var á dögum Ágústínusar keisara. vegurinn þarna í Suður-Frakk- landi og áður en franska stjórnin settist á rökstóla og ákvað að breyta mýrarfenum í ferðamanna- staði var vínrækt svo til eini at- vinnuvegurinn. Vínbændur kynna framleiðsluna á útimörkuðum og víðar, við rekumst á þá hvert sem við förum, en minnisstæðastir eru þó nokkrir öldungar sem sitja í skuggsælu húsi í fjallaþorpinu Minerva við hvítdúkað borð og bjóða ferðamönnum að bragða á víninu úr hvítþvegnum glösum. Merkimiðarnir á slíkum vínflösk- um eru mjög persónulegir, við sjá- um þarna flöskur sem merktar eru „vínið hans Pésa í Minerva" eða eitthvað álíka. Aðrir vínframleið- endur eru þó með meiri umsvif, og mynduð hafa verið nokkurs konar vínsamlög líkt og mjólkursamlög- in sem við könnumst við. Á ferð- um okkar um nágrannasveitirnar gerum við stutt stopp í nokkrum slíkum samlögum og fáum að smakka á vínunum, svo sem eins og vínum steins og sólar, „vins de pierre et soleil" sem ber vöru- merkið Saint-Saturnin. Carcassonne og hring- leikahúsið í Nimes En það er fleira að sjá í Suður- Frakklandi en vinekrur, áhuga- menn um miðaldasögu mega alls ekki láta hjá líða að skoða Carc- assonne, fullkomnustu og heilleg- ustu víggirtu borg í heimi. Heim- sókn þangað líkist því að gengið sé á vit fortíðarinnar, við sjáum fyrir okkur líf fólksins innan virkis- veggjanna og tilraunir til að brjóta borgina á bak aftur, en þar hafa hinir mörgu turnar og víg- girðingar verið þúfur í götu árás- armannanna. Fyrstu ummerki mannabyggða í Carcassonne eru frá 6. öld f.K., en borgin er á nokk- urs konar krossgötum eins og nafnið ber með sér, tengir Atl- antshafsströndina og ströndina við Miðjarðarhaf og Frakkland við Spán. Það voru Rómverjar sem byrjuðu að reisa virkisveggina nokkrum öldum f.K. til að verjast utanaðkomandi árásum. Það hef- ur verið vel byggt því stór hluti stendur enn. Á 12. öld og síðar var önnur víggirðing byggð upp hinni til styrktar. Borgin var gerð upp 1 upprunalegri mynd á 19. öldinni og þangað streymir nú á degi hverjum fjöldi ferðafólks, en inn-' an virkisveggjanna er fjöldi versl- ana og matsölustaða, þar sem m.a. er hægt að kaupa ýmis miðalda- vopn, svo sem lásboga, sem ungl- ingarnir í hópnum voru fljótir að falla fyrir. Við fetuðum aftur í fótspor: Rómverja er við fórum til Nimes og skoðuðum hringleikahúsið þar,: en það mun háfa verið Ágústínus’ keisari, sá hinn sami og við gjarn-.' an lesum um í jólaguðspjallinu, sem lét byggja það. Þarna voru háðir hinir grimmilegustu leikar í' anda Rómverjanna, en þeir létu sér greinilega ekki allt fyrir* brjósti brenna eins og sjá mátti af' öðrum minnisvarða um veru^ þeirra þarna, Pont du Gard, gríð- arstór, brú sem þeir byggðu til að leiða uppsprettuvatn yfir ána, því þrátt fyrir ánægju af grimmi- legum og blóðugum leikum voru þeir snyrtimenni hin mestu, böð- uðu sig a.m.k. reglulega. „Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.“ ; Daginn sem við leggjum NimeS' og Pont du Gard undir fótinn strá-,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.