Morgunblaðið - 18.08.1985, Síða 7

Morgunblaðið - 18.08.1985, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUÐAGUR 18. ÁGÚST 1985 B 7 Sigurður við kunningja sína að hann þurfi að vera kominn fyrir vissan tíma erinda sinna í Kaup- mannahöfn og það líti ekki vel út með það vegna þokunnar svo nú þurfi hann að heita á Strandar- kirkju. Þeir brostu að þessu hjá honum. Hann sagði mér að það hefðu liðið svo sem tíu mínútur, þá létti þokunni og hann komst í taeka tíð inn í borgina. Þegar kunningjar hans sáu að þokunni var að létta hrópuðu þeir: „Við viljum vera með í áheitinu." Þegar séra Matthías Jochums- son sat í Odda var hann eitt sinn sem oftar að hlaða heyi í heygarð. Þá týnir hann gullhring sem vinur hans gaf honum í Danmörku og þótti honum sárt að týna hringn- um. Þá heitir hann á Strandar- kirkju að hringurinn finnist. Eftir það var haldið áfram að leita og gullhringurinn góði kom í leitirn- ar. Þarna var ung stúlka hjá Matthíasi og varð henni þetta minnisstætt. Hafði hún aldrei fyrr heyrt Strandarkirkju nefnda en Matthías hafði mikla trú á Strandarkirkju. Það voru oft miklir skipskaðar á hafinu undan Selvoginum. Rafn sagðist muna eftir einni skútu sem strandaði beint fyrir neðan kirkj- una. Það björguðust allir af henni. Enskur togari fórst á sama stað, þá björguðust allir nema einn. Menn töluðu um að hann hafi ekki viljað bjargast, honum hafi verið send taug en hann hafi sleppt henni. Áður en við göngum úr kirkju fær Rafn okkur skinnklætt kver sem hefur inni að halda Strand- arkirkjuvísur eftir Jón Vestmann er þjónaði Strandarkirkju 1811 til 1842. Kristrún Þórðardóttir hafði varðveitt 44 vísur og eru þær í kverinu ásamt einni vísu er síðar fannst í sambandi við áheit. Vís- urnar eru taldar ortar árið 1811. Ein vísa verður tilgreind hér: Happaverk er haldið heit að efna mér. Og að sá alvandi umbuni þar fyrir margir dæmin muna þau frá eldri bæði og yngri tíð sem alræmið ei laug. Atján hurðir á járnum Þegar út er komið horfir styttan Landsýn þögul og dökk til hafs og kríur garga yfir henni ógnandi. Styttan er eftir Gunnfríði Jóns- dóttur og var komið fyrir á hól við kirkjuna árið 1950, hún á að tákna engilinn sem vísaði leiðina. Þegar við göngum frá kirkjunni nemur Rafn staðar um stund, læt- ur kirkjulyklana ofan í vasa sinn, horfir yfir dimman sandinn og segir svo: „Hér voru 18 hurðir á járnum hjá Erlendi lögmanni." Og heldur svo áfram: „Bræður mínir fundu hér gullhringa í hólum þar sem bærinn Strönd stóð. Hring- arnir eru nú á Þjóðminjasafninu." Þegar við erum sest inn í bílinn segir Rafn okkur að erfitt sé að taka grafir I Strandarkirkjugarði, það verði að nota sérstaka graf- kassa sem rennt er niður í jörðina jafnóðum og grafið er, sandurinn sé svo laus. „En þær varðveitast vel kisturnar í þessum garði,“ heldur hann áfram, „það sér ekki á málningu eftir tíu ár.“ Við ökum Rafni heim til hans að Þorkelsgerði og hundarnir fjórir fagna honum þegar hann stígur út úr bílnum. Við kveðjum hann í myrkri við bæinn og þegar við rennum á braut lyftir hann hendi í kveðjuskyni, dökkur skuggi sem ber við hvítan húsvegg og hund- arnir gelta álengdar. Texti: Guðrún Guðlaugsdóttir Myndin Benedikt Jónsson í Kaupmannahöfn FÆST í BLAOASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTAR- STÖÐINNI OG Á KASTRUP- FLUGVELLI Mjög handhægar við öll rannsóknarstörf. Vogarsvið: frá 0,1 mg. til 20 kg. Sýnishorn á staðnum. Il.1sf.0s liF sími 82655 Bíldshöföa, 10,110 Rvk. verðum Langjökli á árabilinu 1971—1980. Jökultungan færðist fram 1,4 til 2,2 km og hrikalegt sprungusvæði náði yfir 300 fer- kílómetra. Vitað er um framhlaup í Drangajökli og meira að segja í smáum hvilftarjökli (1—2 ferkm) á borð við Teigadalsjökul á Tröllaskaga 1971. Má af því sjá að framhlaup eru víðtæk og nán- ast hluti af hreyfiferli margra ís- lenskra jökla. Svo virðist sem sumir jöklanna skjóti upp kryppu fyrir hlaupin, en ekki er vitað hvað kemur þeim af stað né hvernig undanfari þeirra er. Þá er líka óvíst hvað gerist í og undir jöklinum meðan á framhlaupi stendur. Með öðr- um orðum: Orsakir og eðli fram- hlaupa eru að mestu á huldu. Framhlaup eru í raun dæmi um hamfarir náttúrunnar. Þekk- ing á þeim og orsökum þeirra er mikilvæg. Til dæmis standa stór- virkjanir við ár sem eiga upptök í framhlaupsjöklum. Framhlaup geta ekki valdið tjóni á mann- virkjunum, en meiri framburður ánna kann að valda vandræðum og framhlaupin geta breytt vatnasviðum og rennsli ánna. Töluverðar rannsóknir á fram- hlaupum fara fram t.d. í Norð- ur-Ameríku og Sovétríkjunum. Hér á landi eru þær ekki hafnar en margvísleg vitneskja um þykkt jökla, undirlag og afkomu, sem safnast hefur, kemur þar að ’ gagni. Vilji menn svipast um eftir lík- legum jökli sem kann að hlaupa ítfram næstu árin, má benda á Tungnaárjökul. Þar varð fram- hlaup á fimmta áratugnum. Mörg undanfarin ár hefur sporð- ur hans hopað hratt en orðið um leið brattari. Ofan til í jöklinum virðist ísinn þykkna og telja þeir . sem til þekkja að allt kunni þetta að vera vísbending um væntan- leg framhlaup án þess þó að ,nokkur spái því. Höíundurinn er jardfrædingur og er kennari í Reykjavík. FRICO geislaofninn er tilvalinn vermir á svalir, útverustaöi og garöhús þegar svalt er í veöri á góðviðrisdögum á íslandi. Endurseljendur: Rafvörur - Laugarnesvegl 52 - Reykjavík Glóey - Ármúla 28 - Reykjavík Skúli Þórsson - Álfaskeiði 31 - Hafnarfirði Rafborg - Grindavík Árvirkinn - Selfossi Kaupfélag V-Skaftfellinga - Vik i Mýrdal Verslunin Kjarni - Vestmannaeyjum Bifreiða- og trésmiðja Borgarness Sigurdór Jóhannsson raftækjavinnustofa - Akranesi Leifur Haraldsson - Seyðisfirði Rafvirkinn - Eskifirði Kristall - Höfn/Hornafirði Rafborg - Patreksfirði Ljósvakinn - Bolungarvik Raftækni - Akureyri Árni og Bjarni - Reyðarfirði ./////' RÖNNING Sundaborg, sími 84000 „Tja.. Kaffi meö „bólu“ dugar^ ekki. — Ég verð aö fá mér fflltö „Með fflltö geislaofni útiveran þægileg“ sssz siiSSfl

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.