Morgunblaðið - 18.08.1985, Síða 8

Morgunblaðið - 18.08.1985, Síða 8
ö D r*----r MORUUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. AGUST 1985 Líklega best að búa með fjórum konum — segir Alfreð Flóki sem sýnir verk sín í Listmunahúsinu Úti er sól og sæla, Flóki situr í leðurstól á efri hæðinni í Listmunahúsinu innan um mikið pappírsflóð og myndir af öllu tagi. Á neðri hæðinni er verið að ganga frá undirbúningi sýningar sem mun standa til 1. september. Vinir Flóka eru honum innan handar við upp- setningu sýningarinnar enda segist Flóki lítill snillingur við flest venjuleg störf, getur að eig- in sögn ekki með góðu móti fest upp mynd. etta eru áratuga- Þlangir komplexar, ég man þegar ég var 7 ára og ætl- aði að hella mér mjólk í glas, þá sagði einhver, „heyrðu vinur, þetta getur þú ekki“ og enn þann dag í dag er ég alveg sannfærður um að þetta hafi verið rétt.“ Flóki segist fæddur á röngum tíma, hefði átt betur við hann að vera uppi um síðustu aldamót eða ennþá fyrr, „hefði átt vel við mig að liggja á legubekk heilu dagana og nærast á vinberjaklasa." Hann hefur verið búsettur hér á landi undanfarin tvö ár, eða frá því hann hélt síðustu sýningu í maí ’83. Að þessu sinni sýnir hann 40 teikningar unnar með tússi, svart- krít, rauðkrít og litkrít. „Yrkisefnin eru nú sem fyrr um- breyttar bernskuminningar, skrýtnar fjölskyldur í skugga- legum herbergjum, skúmaskot og niðurrifin veggfóður, fólk að gera eitthvað óprenthæft." — Sumir segja að þú sért alltaf að sýna svipaðar myndir? „Eg er alveg ósammála. Þyrfti að halda yfirlitssýningu til að fólk sæi að ég er fjölbreyttasti mynd- listarmaður norðan Alpafjalla. En af tvennu illu held ég það sé betra að endurtaka sjálfan sig en endur- taka aðra eins og margir aðrir myndlistarmenn." — Hvað ertu lengi að teikna hverja mynd? „Það er misjafnt, þessa fjöl- Menning - samfélag - trúarbrögð Erlendar bækur Sigurlaugur Brynleifsson Sigmund Freud: Civilization, Society and Religion. The Pelican Freud Libary Volume 12. Translated from the German under the general edit- orship of James Strachey. The pres- ent volume edited by Albert Dick- son. Penguin Books 1985. Meðal ritgerða í þessu bindi eru: „Massenpsychologie und Ich-Ana- lyse“, sem Freud lauk við í marsmánuði 1921 og var gefið út nokkrum mánuðum síðar í Leipz- ig, Vín og Zúrich. Enska þýðingin er tekin eftir 18. bindi heildarút- gáfunnar. „Group Psychology and the Analysis of the Ego. „Freud ræðir kenningar Gustave le Bon, sem skrifaði þá frægu bók „Psychologie des foules" 1895. Le Bon telur að einkenni mass- anna þ.e. múgsins, séu þau, að ein- staklingurinn tapi vissum per- sónulegum einkennum sjálfs sín þegar hann samsamast múgnum og að hann ummyndist í einhvers- konar sameiginlega hópsál, sem magni með honum tilfinningar, vilja og gerðir, sem séu algjörlega frábrugðnar tilfinningum og vilja hans sjálfs í einangrun með sjálf- um sér. Hann verði umskiptingur. Le Bon telur að það séu vissar hugmyndir og tilfinningar sem að- eins komi upp og verði kveikja að- gerða í hóp. Freud telur að í hóp og í hópefli losni einstaklingurinn við áunnin höft og opni heima hvatanna. Persónuleg ábyrgð hverfur og hann hverfur eins og le Bon segir á stig frummannsins, hópsálar- innar. Freud talar um ástand þegar tilfinningar einstaklingsins og skynsemi séu of máttiausar til Eitt af afsprengjum siðmenningarinnar eru svokallaðir „skinheads” — leðurhausar — í Liverpool á Englandi. Þeir þykjast miklir af grimmd sinni og hörku og komu við sögu á Heysel-leikvanginum í Brilssel í lok maí þegar 38 áhorfendur að knattspyrnuleik týndu lífi í ólátum á vellinum. þess að þær geti orðið undirstaða persónulegs andlegs sjálfstæðis og hann leiti því styrks í hóp, þar sem tilfinning og vilji allra sam- samist. Freud bendir á þá aug- ljósu staðreynd, hvað þessi af- staða er algeng og almenn meðal manna í öllum samfélögum. Freud gerði sér hugmyndir um „hinn frumstæða hóp“ eða hjörð, þar sem ættfaðirinn átti hjörðina og réð henni algjörlega. Foringinn eða leiðtogi hjarðarinnar var sjálfum sér nægur. Hann er eng- um háður og hefur engin tilfinn- ingaleg tengsl. Hann ann engum, aðeins sjálfum sér. Hann er því narcistískur í fyllsta máta. Hjörð- in aftur á móti átti ekkert frum- kvæði, lifir hóplífi og sviptist til öll í einu, gerir allt saman, hver öðrum líkur. Freud telur að leið- toginn hafi mótað með hjörðinni þessa hópsál, með því að þvinga menn til þess, með kynferðislegum sulti. Kynlíf telur hann að hafi verið takmarkað og þar með hafi hann ummyndað kynhvötina í að- dáun og dýrkun á sjálfum sér. Freud útlistar þessar kenningar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.